Morgunblaðið - 28.05.2022, Page 44

Morgunblaðið - 28.05.2022, Page 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2022 Bíldshöfða 9 - 517 3900 | Trönuhrauni 8 - 565 2885 | stod.is GÖNGUSOKKAR FYRIR ÍSLENSKT SUMARVEÐUR Sokkarnir eru búnir þrýstingseiginleikum sem: Auka blóðflæði Draga úr vöðvaeymslum eftir hreyfingu Auka súrefnisupptöku Styðja við sinar og liðbönd Hraða endurheimt Myndlistarmennirnir Gabríela Kristín Friðriksdóttir og Björn Roth opna sýninguna Sporbaugur/Ellipse í Listasafni Reykjanesbæjar í dag, laugardag, kl. 14. Eru bæði þekkt fyrir ævintýralegan myndheim en þó með ólíkum hætti, eins og bent er á í tilkynningu. „Ein kynslóð lista- manna skilur þau að en á sama tíma tilheyra verk þeirra sömu fjöl- skyldu. Bæði eru þau þekkt fyrir súrrealíska túlkun á heiminum, ásamt pönkuðu viðhorfi til heims- ins,“ segir þar. Sýningin er gerð sér- staklega fyrir rými Listasafns Reykjanesbæjar og hafa listamenn- irnir ákveðið að vinna með litabæk- ur fyrir börn. Um efnistök þeirra Björns og Gabríelu skrifar listfræðingurinn Jón Proppé: „Litabækur fyrir börn eru í raun mjög undarleg fyrirbæri. Til hvers eru þær? Þær þroska ekki sköpunarkraftinn því það er bannað að lita út fyrir og eina sjálfstæða ákvörðun barnsins liggur í litaval- inu. Kannski er uppeldislegt gildi þeirra ekki flóknara en þetta: Að kenna barninu að fylgja reglum og sætta sig við að fá ekki að ráða nema því sem minnstu skiptir í lífinu. Litabók Gabríelu og Björns virðist fylgja þessum fyrirmyndum en hér skiptir samhengið þó öllu. Bókin er sett fram sem þáttur í listsýningu og litaðar útgáfur þeirra af myndunum hanga á veggjum safnsins: Bókin er orðin listaverk og opinberuð gestum safnsins á svipaðan hátt og þegar barn kemur hlaupandi til mömmu til að sýna henni hvað það litaði flott í litabókina sína. Þetta er allt eins og í ævintýri og þannig losnar ímynd- unaraflið úr fjötrum. Innsetningar og myndbandsverk taka svo við og leiða okkur enn lengra inn í dular- fullan heim þar sem allt getur gerst og allt getur orðið að list.“ Safnið gefur út bók í tilefni af sýn- ingunni sem er í senn sýningarskr, litabók ognúmerað myndverk. Litrík Verk eftir Gabríelu (t.v.) og Björn á sýningunni í Reykjanesbæ. Furðufyrirbærið litabók Hvernig ertu? nefnist einkasýning Prins Póló, tónlistar- og myndlistar- manns, sem opnuð verður í Borgar- bókasafninu í Gerðubergi í dag, laugardag, kl. 14. Svavar Pétur Eysteinsson, sem gengur undir listamannsnafninu Prins Póló, mun leggja safnið undir sig og sýna ljósmyndir, prentverk, vídeóverk og skúlptúra. Mun Svavar blanda saman eigin tónverkum, myndlist og ljósmyndum en sam- hliða undirbúningi á sýningunni hef- ur hann unnið að nýrri hljómplötu sem kemur út á opnunardegi sýning- arinnar, þ.e. í dag. Í tilkynningu segir að Svavar sæki oft innblástur í „sjoppulegan“ hvers- dagsleikann með litríkri upphafn- ingu og húmor að vopni. Hann er alinn upp í Breiðholtinu og segir í til- kynningunni að mikill fengur sé fyrir Borgarbókasafnið að fá tæki- færi til að sýna verk hans í sumar. Sýningin stendur yfir til 28. ágúst. Sýning og plata hjá prinsi Prinsinn Svavar Pétur Eysteinsson er fjölhæfur og dáður listamaður. Brák Jónsdóttir sýnir verkið „Sé (að Nýp)“ í dag kl. 16 að Nýp á Skarðsströnd. Með verkinu vefur hún saman þræði veruleika og ímyndunar við rannsókn á um- hverfi sínu, eins og því er lýst í til- kynningu. „Vísanir verksins í heim vísinda, safna, geymslu og mynd- listar varpa ljósi á dvöl listamanns- ins á Nýp í aðdraganda að vinnslu verksins. Gler spilar stórt hlutverk í innsetningunni; horft er inn um það, út um það, gegnum það. Áhorf- andinn stendur andspænis þeim viðhorfum mannsins að meta nátt- úruna út frá sjálfum sér, aðskilja sig frá henni, fanga hana, færa hana úr stað og laga að eigin af- stöðu,“ segir þar. Brák lauk námi við Listaháskóla Íslands í fyrravor og er sjálfstætt starfandi myndlistarmaður. Verk- efni hennar fjalla um samband fólks og náttúru og vinnur hún gjarnan með staði þar sem menning og náttúra mætast og valdið sem þar birtist. Nýp sýningarrými er opið samkvæmt samkomulagi og er fólk beðið að hringja í síma 8961930 eða senda erindi á nyp@nyp.is Að Nýp Kynningarmynd fyrir sýninguna. Þræðir veruleika og ímyndunar Tíminn á leiðinni nefnist ellefta ljóðabók Steinunnar Sigurðar- dóttur sem nú er komin út. Stein- unn var 23. maí sl. sæmd heiðurs- doktorsnafnbót frá íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, ásamt Hannesi Péturssyni, og verð- ur bókinni og þeirri nafnbót fagnað með upplestrarhátíð í Borgarbóka- safninu í Grófinni í dag, 28. maí, kl. 13.30. Um bók Steinunnar segir í til- kynningu að meginstef hennar sé tíminn sjálfur, ýmist gjöfull eða grimmur; kynslóðir sem komi og fari, árstíðir, upphaf og endalok og að bæði sé horft inn á við og út í heiminn, á nátt- úruna, lífið sjálft. Dagskráin í bókasafninu er á þá leið að lesið verður upp úr nýju ljóðabókinni og öðrum verk- um Steinunnar frá ýmsum tím- um. Meðal lesara eru Þorleifur Hauksson, Sigmundur Ernir Rún- arsson, Ragnheiður Steindórs- dóttir, Júlía Margrét Einarsdóttir og Arnar Jónsson. Léttar veitingar verða í boði. Fagna nafnbót og nýrri ljóðabók Steinunn Sigurðardóttir Bandaríski leikarinn Ray Liotta er látinn, 67 ára að aldri. Liotta var hvað þekktastur fyrir eftirminni- legan leik sinn í glæpamyndinni Goodfellas eftir Martin Scorsese, þar sem hann lék mafíósann Henry Hill og af öðrum hlutverkum sem hann hlaut lof fyrir má nefna hlut- verk í myndinni Field of Dreams. Liotta lést í svefni í Dóminíska lýð- veldinu þar sem hann var við tökur á kvikmyndinni Dangerous Waters. Fyrsta bitastæða hlutverk Liotta var í kvikmynd Jonathans Demmes, Something Wild, frá árinu 1986 sem var grín- og has- armynd. Á ferli sínum var hann í aukahlutverki í mörgum sjón- varpsþáttum og af öðrum eftir- minnilegum kvikmyndum sem hann lék í má nefna Cop Land, Hannibal, Blow og The Place Beyond the Pines. Liotta hlaut fjölda tilnefninga fyrir leik og níu verðlaun. Liotta látinn, 67 ára að aldri Ray Liotta Kordo-kvartettinn efnir til óvenjulegra tónleika í tónleika- röðinni Sígildir sunnudagar í Hörpu á morgun, 29. maí, en þá verður áheyrendum boðið í ferða- lag í gegnum sögu strengjakvar- tettsins allt frá Bach til Barbers, eins og því er lýst í tilkynningu. Á efnisskrá verða valdir kaflar úr mörgum þekktustu strengja- kvartettum tónbókmenntanna sem gefa innsýn í gjöfulan heim klassískrar tónlistar. Tónleikarnir fara fram í Norð- urljósum, hefjast kl. 16 og eru þeir styrktir af Launasjóði lista- manna og Styrktarsjóði Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Her- manns. Kordo skipa fiðluleik- ararnir Páll Palomares og Vera Panitch, víóluleikarinn Þórarinn Már Baldursson og sellóleikarinn Hrafnkell Orri Egilsson en þau eru öll í Sinfóníuhljómsveit Ís- lands Kordo Kvartettinn kemur fram í Hörpu. Kordo á Sígildum sunnudegi Elli Egilsson opnar einkasýn- inguna NEVADA í galleríinu Þulu í dag, laugardag, kl. 14 en Þula er við Hjartatorgið í miðborg Reykjavíkur. Elli er sjálfmenntað- ur myndlistar- maður og hefur starfað síðustu misseri í Los Angeles og Las Vegas, þar sem hann er búsettur. „Verk Ella eru unnin eftir ímynd- uðum myndformum íslenskrar náttúru, eins og hún formast í skap- andi hugsun, engir sérstakir staðir hafðir í huga, pensillinn látinn ráða för og verkin máluð á draumkennd- an hátt með heimagerðum olíu- litum þar sem listamaðurinn notar sína eigin olíulitaformúlu,“ segir m.a. í tilkynningu. Ímynduð mynd- form náttúru Elli Egils Andrew Fletcher, hljómborðsleikari og einn stofnenda ensku poppsveit- arinnar Depeche Mode, er látinn, sextugur að aldri. Í tilkynningu frá sveitinni segir að liðsmenn hennar séu í áfalli og harmi slegnir yfir frá- falli vinar síns. Depeche Mode var stofnuð í Basildon árið 1980 og öðl- aðist fljótt miklar vinsældir og virð- ingu. Kom hún 17 plötum í efstu tíu sæti enska plötulistans. Fletcher, jafnan kallaður Fletch, var gull af manni, að því er fram kemur í yfirlýsingu hljómsveitar- innar, og reyndist félögum sínum ávallt stoð og stytta. Fletch var af aðdáendum sveitarinnar tal- inn sá sem sæi að mestu um fjármál hennar og tón- leikaplön og ekki veitti af slíkum manni þegar litið er til þess að hljómsveitin hefur selt yfir 100 millj- ónir platna í gegnum tíðina. Fletch dó á heimili sínu og er andlát hans sagt hafa átt sér eðlilegar orsakir. Fletcher látinn, sextugur að aldri Andrew Fletcher

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.