Morgunblaðið - 28.05.2022, Síða 48

Morgunblaðið - 28.05.2022, Síða 48
Norski kórinn Scala Brio syngur í messu í Skálholts- kirkju á morgun, sunnudag, kl. 11. Scala Brio er bland- aður kór, stofnaður árið 1987, og í honum eru 55 söngv- arar frá Sula og Álasundi í Noregi. Stjórnandi og stofnandi kórsins er Gro Dalen og flytur kórinn fjöl- breytta og vinsæla tónlist, jafnt klassísk sem þjóðleg verk, og hefur haldið tónleika víða við ýmis tilefni. Hann fer fimmta hvert ár utan til tónleikahalds og þetta ár valdi hann Ísland og Skálholtskirkju. Norski kórinn Scala Brio syngur í messu í Skálholtskirkju á morgun Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hummer-bifreið í Liverpool-litum er ein helsta táknmynd enska fót- boltaliðsins hjá aðdáendum þess í Reykjanesbæ. Henni er stillt upp fyrir utan félagsaðstöðuna, sem þeir kalla Litla-Anfield, á meðan á leikj- um Liverpool stendur eða vegna annarra viðburða, sem tengjast fé- laginu. „Við geymum bílinn gjarnan í Liverpool-hofinu og tökum hann út, þegar mikið liggur við,“ segir Guðjón Vilhelm Sigurðsson. Félagarnir Guðjón og Jakob Her- mannsson keyptu Hummer-bílinn á uppboði 2015 og hafa með aðstoð sérfræðinga unnið við að koma hon- um í „rétta“ gírinn. „Liturinn dró okkur að bílnum og ekki skemmdi fyrir að hann var framleiddur árið 2005, árið sem Liverpool varð Evr- ópumeistari með eftirminnilegum hætti,“ segir Guðjón. „Við vorum sannfærðir um að hann hefði verið framleiddur til þess að vera Liver- pool-bíll og okkur fannst vanta slík- an bíl hérlendis til þess að betra yrði að búa á Íslandi.“ Evrópubikarinn á húddinu Liverpool vann Evrópubikarinn til eignar 2005. Í kjölfarið létu Guð- jón og félagar gera eftirlíkingu af bikarnum og er honum rennt á til- heyrandi stað á húddi bílsins, þegar eitthvað Liverpool-tengt er í gangi. Eins og í kvöld, þegar Liverpool leikur til úrslita á móti Real Madríd í Meistaradeild Evrópu. Þrátt fyrir að hafa lent í 2. sæti í ensku deildinni, sem lauk um liðna helgi, segir Guðjón ljóst að Liver- pool haldi áfram í baráttu um tit- ilinn á næstu árum og því þurfi líka að fá eftirlíkingu af bikarnum, sem Englandsmeistaratitlinum fylgi. Guðjón leggur áherslu á að bíllinn lífgi upp á tilveruna og ýti undir ánægjuna sem fylgi Liverpool- liðinu. „Hummer og humar eiga til dæmis samleið og því er gjarnan boðið upp á humar og humarsúpu fyrir leiki,“ segir hann. Þrír leikmenn Liverpool, Steve McManaman, Patrick Berger og Vladimir Smicer, hafa áritað bílinn. „Menn tengdir klúbbnum komu í heimsókn fyrir fjórum árum og sögðu ekkert mál að bæta um bet- ur,“ segir Guðjón. „Þeir buðu okkur að senda bílinn til Liverpool til að láta alla leikmennina árita hann.“ Stuðningsmenn Liverpool hafa myndað mjög sterkt samfélag í Reykjanesbæ. „Sverrir Þór Sverr- isson og Brynjar Hólm Sigurðsson eru í forsvari fyrir aðstöðu okkar og hafa gert upp húsnæði sem ákveðnir stuðningsmenn notfæra sér sem Liverpool-aðstöðu.“ Hóp- urinn sé með Facebook-síðu, eigi orðið bílinn og hann sé notaður við öll möguleg tækifæri. „Við höfum fengið ósk um að fá hann lánaðan í brúðkaup og ónefnd persóna hefur beðið um að fá hann vegna eigin jarðarfarar, hvenær sem hún verð- ur, þannig að hlutverkin eru mörg og mismunandi og verða um ókomna framtíð.“ Hann leggur áherslu á að bíllinn sé mikilvægt púsl í sögunni og tengingunni við Liverpool. „Hann er enn ein skraut- fjöðurin í Liverpool-samfélagið okk- ar. Hofið er húsið og aðstaðan uppi er musterið, sem við köllum Litla- Anfield.“ Hummer í rétta litnum er eitt helsta táknið - Sérstakur Liverpoolbíll vegna viðburða á Litla Anfield Tákn Vladimir Smicer áritar bílinn. Guðjón Vilhelm Sigurðsson til vinstri. Liverpool-bíllinn Eftirlíking Evrópubikarsins er á húddinu, merki félagsins blasir við að aftan og að sjálfsögðu er Hummerinn fagurrauður. Ármúla 10 ) 568 9950 duxiana.comHáþróaður svefnbúnaður Náttúruleg efni, einstakt handverk og PASCAL gormakerfið gera rúmin okkar að athvarfi fyrir stöðugan gæðasvefn. FRUMKVÖÐLAR SÍÐAN 1926 Klæðskerasniðin þægindi LAUGARDAGUR 28. MAÍ 148. DAGUR ÁRSINS 2022 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.330 kr. Áskrift 8.383kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is „Fyrir mig er þetta mjög stórt. Ég er auðvitað Selfyss- ingur og heima er alltaf hér. Það er bara beint frá hjart- anu. Að geta haldið þetta mót hér á Selfossi er stór- kostlegt og ég ber mikið þakklæti í brjósti, að þetta geti orðið að veruleika,“ segir frjálsíþróttaþjálfarinn Vésteinn Hafsteinsson sem er mættur með tvo af bestu kringlukösturum heims á Selfoss Classic-mótið sem fram fer á Selfossi í dag. »41 Bestu kastararnir keppa á Selfossi ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.