Morgunblaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022 Þýskaland B-deild: Coburg – Nordhorn............................. 31:28 - Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fjögur mörk fyrir Coburg sem er í 11. sæti af 20 liðum þegar tvær umferðir eru eftir. E(;R&:=/D Ítalía Undanúrslit, þriðji leikur: Dethrona Tortona – Virtus Bologna 69:77 - Elvar Már Friðriksson var ekki í leik- mannahópi Dethrona Tortona. _ Virtus Bologna vann einvígið 3:0 og er komið í úrslitaeinvígið um ítalska meistara- titilinn. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Besta deild kvenna: Þórsvöllur: Þór/KA – Keflavík ................. 18 Þróttarvöllur: Þróttur R. – Stjarnan.. 19.15 Varmá: Afturelding – Breiðablik ........ 19.15 Selfoss: Selfoss – KR............................ 20.15 2. deild kvenna: Ásvellir: KÁ – KH ................................ 19.15 Í KVÖLD! _ Rúnar Ingi Erlingsson hefur fram- lengt samning sinn við körfuknatt- leiksdeild Njarðvíkur um tvö ár. Rúnar gerði kvennalið Njarðvíkur að Íslands- meistara á síðustu leiktíð, þrátt fyrir að liðið væri nýliði í efstu deild. _ Enski miðjumaðurinn Alex Oxlade- Chamberlain er á förum frá enska knattspyrnufélaginu Liverpool. Ox- lade-Chamberlain kom til Liverpool frá Arsenal árið 2017. Leikmaðurinn var í aukahlutverki hjá Liverpool á nýliðinni leiktíð og var aðeins níu sinnum í byrj- unarliði í ensku úrvalsdeildinni. _ Brynjar Atli Bragason, varamark- vörður Breiðabliks í knattspyrnu, hef- ur skrifað undir nýjan samning við fé- lagið. Nýi samningurinn gildir út keppnistímabilið 2024. Brynjar Atli er 22 ára gamall og kom til Breiðabliks frá Njarðvík. _ Handknattleikskonan Sara Odden hefur yfirgefið Hauka og samið við þýskt félag. Er um mikla blóðtöku að ræða fyrir Hauka þar sem Sara hefur verið markahæsti leikmaður liðsins síðustu tvö tímabil. Vísir greindi frá. _ Danska knattspyrnufélagið Lyngby, sem Freyr Alexandersson þjálfar, er að ganga frá kaupum á framherjanum Mathias Kristensen frá Nykøbing. Kristensen átti afar gott tímabil með Nykøbing í dönsku 1. deildinni á leik- tíðinni og skoraði 18 mörk og var markahæstur allra í deildinni. Freyr stýrði Lyngby upp í efstu deild á dögunum og tekur Kristensen með sér í deild þeirra bestu. Kaupin þýða aukna samkeppni fyrir Sævar Atla Magnússon en Sævar skoraði fjögur mörk og lagði upp þrjú til við- bótar með Lyngby á leiktíð- inni. Eitt ogannað BESTUR Í MAÍ Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is „Okkur í liðinu hefur gengið vel, við höfum náð að spila vel saman og ég er mjög sáttur við eigin frammi- stöðu,“ sagði Óli Valur Ómarsson, 19 ára hægri bakvörður Stjörnunnar, í samtali við Morgunblaðið en hann er leikmaður maímánaðar að mati blaðsins, eftir að hann vann sér inn níu M í átta fyrstu umferðum Bestu deildar karla í knattspyrnu. Eins og fram kom í blaðinu í gær, var Óli valinn besti leikmaðurinn í áttundu umferð deildarinnar. Hann skoraði glæsilegt sigurmark Stjörn- unnar gegn ÍBV á sunnudaginn, sitt fyrsta mark í efstu deild, og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína hjá Morg- unblaðinu. Óli Valur lék á yngri árum framar á vellinum, síðast á síðasta tímabili þegar hann lék nokkrum sinnum sem kantmaður. „Í yngri flokkunum spilaði ég allt- af frammi eða á kantinum og svo þegar Óli Jó tók við, man ég að mér var fyrst spilað í bakverðinum og svo þegar Ejub [Purisevic] tók við sem aðstoðarþjálfari, byrjaði ég á kantinum fyrst. Svo meiddist Heiðar [Ægisson] og þá fór ég í bakvörðinn og hef verið þar síðan. Mér líður bara mjög vel þar,“ útskýrði hann. Stjarnan hefur vakið athygli fyrir vaska framgöngu á tímabilinu, enda í 2. sæti Bestu deildarinnar um þess- ar mundir. Það er ekki síst vegna þess að fjöldi ungra og uppalinna leikmanna Stjörnunnar á við Óla Val, Adolf Daða Birgisson, Ísak Andra Sigurgeirsson og Eggert Ar- on Guðmundsson hafa verið í stórum hlutverkum hjá liðinu, auk þess sem Guðmundur Baldvin Nökkvason hefur látið að sér kveða í nokkrum leikjum. Þessir strákar eru allir fæddir árin 2003 og 2004. Kemur frá Álftanesi „Við erum uppaldir Stjörnumenn. Við erum búnir að spila mjög lengi saman allir strákarnir og þekkjum hver annan mjög vel, myndi ég segja,“ sagði Óli Valur sem lék sinn fyrsta leik í efstu deild 16 ára gamall gegn ÍBV í lokaumferð tímabilsins 2019. Nú eru leikir hans með liðinu í deildinni orðnir 33 talsins. Hann spilaði 17 leiki í fyrra og hefur leikið alla átta leikina í ár. Hann byrjaði þó að spila í fótbolta í yngri flokkunum í nágrannasveit- arfélaginu, sem nú er reyndar hluti af Garðabæ. „Já, ég og Adolf erum frá Álfta- nesi og skiptum yfir til Stjörnunnar þegar við byrjum í ellefu manna bolta í 4. flokki. Hann er einu ári yngri en ég en við skiptum á sama aldri,“ sagði hann. Óli Valur skipti undir lok árs 2015 og Adolf Daði í upphafi árs 2017. Stjarnan vill alltaf vera í toppbaráttu Spurður hvort það hafi komið honum og liðsfélögum hans í Stjörn- unni á óvart, hve vel liðinu hefur gengið hingað til, sagði Óli Valur: „Við erum ekkert endilega að pæla í því. Við erum bara búnir að vera duglegir að æfa og mætum svo í hvern leik, klárir í slaginn. Við reyn- um bara að vinna leiki.“ Bætti hann því við að Stjarnan vilji vitanlega halda sér í toppbar- áttu en að það sé þó ekki eina mark- miðið. „Okkur langar náttúrlega alltaf að vera í toppbaráttu en mark- miðið er meira að bæta okkur leik eftir leik. Skila betri frammistöðu og taka einn leik í einu, ég held að það sé það sem við einbeitum okkur mest að.“ Markmiðið að verða atvinnumaður Óli Valur var á dögunum valinn í U21-árs landsliðið í fyrsta sinn. „Það kom alveg smá á óvart en ég hafði alveg pælt í því. Ég var mjög spenntur að fá að vita hvernig valið væri,“ sagði hann og bætti því við að honum þætti verkefnið með liðinu, þrír heimaleikir í undankeppni EM 2023, mjög spennandi. Íslenska liðið á fram undan þrjá heimaleiki, gegn Liechtenstein, Hvíta-Rússlandi og Kýpur, en þeir fara allir fram á Vík- ingsvellinum dagana 2., 8., og 11. júní. Það er hins vegar ekkert nýtt fyr- ir Óla að klæðast landsliðsbúningi Íslands. Hann á þegar 20 leiki að baki með yngri landsliðunum og spilaði fyrst með U15 ára landslið- inu haustið 2017 og síðast með U19 ára landsliðinu þegar það lék í milli- riðli Evrópumótsins í lok mars á þessu ári. Að lokum var Óli Valur spurður að því hver framtíðarmarkmið hans sem knattspyrnumanns væru: „Mig langar að verða atvinnumaður. Það er langtímamarkmið og aðalmark- mið mitt.“ Þótti honum líklegra að hann gæti skapað sér feril sem at- vinnumaður í stöðu bakvarðar. „Eins og staðan er núna er það þannig,“ sagði Óli Valur Ómarsson að lokum í samtali við Morgun- blaðið. „Við strákarnir þekkjum hver annan mjög vel“ - Óli Valur Ómarsson er fremstur í flokki ungu leikmannanna í Stjörnuliðinu Morgunblaðið/Óttar Geirsson Bestur Óli Valur Ómarsson á fullri ferð í leik Stjörnunnar gegn ÍBV, þar sem hann tryggði Garðabæjarliðinu sigur með glæsilegu marki. Óli Valur fékk níu M samtals í átta fyrstu leikjum Stjörnunnar í Bestu deildinni. Óli Valur Ómarsson, hægri bakvörður Stjörnunnar, fékk níu M í einkunna- gjöf Morgunblaðsins í átta fyrstu umferðum Bestu deildar karla í fótbolta 2022, fleiri en nokkur annar leikmaður deildarinnar. Þessi nítján ára gamli piltur er því útnefndur leikmaður maímánaðar hjá blaðinu, þótt fyrstu leik- irnir hafi reyndar farið fram í apríl. Óli fékk tvisvar tvö M fyrir frammi- stöðu sína og fimm sinnum eitt M. Einkunnir leikmanna í þessum fyrstu átta umferðum ráða liðsvalinu sem sjá má hér fyrir ofan. Óli Valur er eini leikmaðurinn sem fékk samtals níu M en á hælum hans komu þrír sóknar menn sem allir fengu átta M, þeir Ísak Snær Þorvaldsson og Jason Daði Svanþórsson úr Breiðabliki og Emil Atlason úr Stjörnunni. Breiðablik á flesta leikmenn í ellefu manna úrvalsliðinu, enda er Kópa- vogsliðið með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar að þessum átta umferð- um loknum. Auk Ísaks og Jasonar er miðvörðurinn Damir Muminovic í lið- inu og þá er Höskuldur Gunnlaugsson á varamannabekknum. Alls hefur 21 leikmaður í deildinni fengið fimm M eða fleiri í einkunn hjá Morgunblaðinu í fyrstu átta umferðunum og sautján þeirra eru í úrvals- liðinu hér fyrir ofan. Sindri Kristinn Ólafsson úr Keflavík er síðan efstur markvarða deildarinnar með fjögur M. Jason Daði hefur tvisvar verið valinn besti leikmaður umferðar hjá blaðinu og þeir Ísak Snær, Óli Valur, Emil, Stefán Árni Geirsson úr KR, Oliver Stefánsson úr ÍA og Helgi Guðjónsson úr Víkingi einu sinni hver. Breiðablik hefur fengið langflest M samtals eða 55. Stjarnan er með 45, Víkingur 45, KR 39, Valur 39, KA 37, Keflavík 36, FH 34, Fram 34, ÍBV 25, Leiknir R. 24 og ÍA hefur fengið fæst M eða samtals 23. vs@mbl.is Lið maímánaðar hjá Morgunblaðinu í Bestu deild karla 2022 VARAMENN: Höskuldur Gunnlaugsson 6 1 Breiðablik Eiður Aron Sigurbjörnsson 6 2 ÍBV Felix Örn Friðriksson 6 1 ÍBV Júlíus Magnússon 6 Víkingur Ísak Andri Sigurgeirsson 5 2 Stjarnan Tryggvi Hrafn Haraldsson 6 1 Valur Nökkvi Þeyr Þórisson 5 3 KA 4-3-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 2 Fjöldi sem leik- maður hefur fengið 2 Sindri Kristinn Ólafsson Keflavík Damir Muminovic Breiðablik Hólmar Örn Eyjólfsson Valur Óli Valur Ómarsson Stjarnan Kennie Chopart KR Fred Saraiva Fram Matthías Vilhjálmsson FH Jason Daði Svanþórsson Breiðablik Kristall Máni Ingason Víkingur Emil Atlason Stjarnan Ísak Snær Þorvaldsson Breiðablik 2 2 1 1 2 2 1 22 4 4 9 7 6 6 6 7 8 8 7 8 Óli Valur fékk níu M í fyrstu 8 umferðunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.