Morgunblaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022 Tilkynnt hefur verið um fyrri út- hlutun úr Hljóðritasjóði árið 2022. Alls bárust 106 umsóknir frá mis- munandi greinum tónlistar þar sem sótt var um 89,5 milljónir króna. Á vef Rannís kemur fram að í ár hafi Hljóðritasjóður um 75 milljónir króna til umráða „vegna átaks ríkis- stjórnar, sem er tvöföldun frá fyrri árum. Stjórn sjóðsins ákvað að út- hluta um þriðjungi heildarupphæð- arinnar, til að geta betur mætt við- búnum auknum fjölda umsókna síðar á árinu,“ segir í tilkynningu. Þar kemur fram að sjóðurinn veiti að þessu sinni tæplega 29 milljónir króna til styrktar 59 hljóðritunar- verkefnum. Styrkupphæðir nú eru á bilinu 150.000 kr. til 1.200.000 kr. Að með- altali eru styrkirnir um 500.000 krónur. Hæsta styrkinn fær hljóm- sveitin Mahoney ehf./ Móses Hightower, fyrir hljóðritun á sinni fimmtu breiðskífu. Þess má geta að Hljóðritunarsjóður styrkir aðeins verkefni til hljóðritunar á nýrri íslenskri tónlist. Stjórn sjóðsins veit- ir ekki framhaldsstyrki til hljóðritunarverkefna sem þegar hafa verið styrkt af sjóðnum eða áður styrkt af Tónlistarsjóði. Alls var veittur 31 styrkur til ýmiss konar rokk-, hipphopp- og poppverkefna í afar víðum skilningi; átta styrkir til samtímatónlistar af ýmsum toga, fimm styrkir til fjöl- breyttra djassverkefna og fimmtán styrkir til ýmissa annars konar tón- listarverkefna. Meðal þeirra sem hlutu styrk voru Benedikt Hermann Hermannsson, sem fékk 400 þúsund kr. fyrir plötuna Lendingu; Berglind María Tómasdóttir, sem fékk 600 þúsund kr. fyrir plötuna viibru; Gunnar Hilmarsson í Sycamore Tree, sem fékk 900 þúsund kr. fyrir fjórðu plötu hljómsveitarinnar; Högni Egilsson, sem fékk 700 þús- und kr. fyrir plötuna Þoku; Karl Olgeir Olgeirsson, sem fékk 500 þús- und kr. fyrir nýja plötu; Kristín Björk Kristjánsdóttir, sem fékk 700 þúsund kr. fyrir plötuna Yl; Sigur- geir Agnarsson, sem fékk 300 þús- und kr. fyrir plötuna Nánd sem á eru upptökur á verkum fyrir ein- leiksselló; Sóley Stefánsdóttir, sem fékk eina milljón fyrir breiðskífuna Harmóník; Steingrímur Karl Teague, sem fékk 700 þúsund kr. fyrir plötuna Veldisvísur; leikhóp- urinn Stertabenda, sem fékk 700 þúsund kr. til að taka upp söng- leikjatónlistina í leiksýningunni Góðan daginn faggi; Sváfnir Sigurðarson, sem fékk 600 þúsund kr. fyrir þriðju sólóplötu sína og Þorvaldur Gylfason, sem fékk 400 þúsund kr. fyrir plötuna Fleiri söngvar fyrir sópran og tenór. Tæpar 29 milljónir til 59 hljóðritunarverkefna - Styrkupphæðir á bilinu 150.000 til 1.200.000 kr. Högni Egilsson Sóley Stefánsdóttir Berglind María Tómasdóttir Benedikt Hermann Hermannsson Sá furðulegi atburður átti sér stað á sunnudaginn var að karlmaður fleygði tertu í Mónu Lísu í Louvre, dulbúinn sem gömul kona í hjóla- stól. Sem betur fer er hið þekkta verk Leonardos da Vincis varið með þykku gleri og fór því rjóminn aðeins á það en ekki verkið sjálft. Náðu viðstaddir myndum og víd- eóum af glerinu útötuðu í rjóma og var að vanda mikið fjölmenni við málverkið þegar þetta gerðist. Tertukastarinn hvatti viðstadda til að hugsa um jörðina um leið og hann var leiddur á brott af öryggis- vörðum. Í frétt BBC um málið segir að vitni hafi orðið furðu lostin yfir uppákomunni og skal engan undra. Einn safngesta, Luke Sundberg, lýsir atburðinum þannig að við- staddir hafi tekið andköf þegar maður, dulbúinn sem gömul kona, hafi hlaupið að málverkinu fræga og barið í glerið áður en hann mak- aði á það rjómatertu. Réðst að Mónu Lísu með rjómatertu Rjóma-Lísa Símar fóru á loft eftir að rjóma var klínt á öryggisgler Mónu Lísu. Útvarpsþátturinn PartyZone er snúinn aftur á Rás 2 á laugardags- kvöldum eða öllu heldur svokall- aður „spinoff“ þáttur, eða afleggj- ari, sem nefnist Undir diskó- kúlunni. Er honum lýst sem hröðum og hressum og að keyrt sé á dans- smelli fyrir dansþyrsta Íslendinga. „Flestir hlustendur eiga sterkar minningar af dansgólfinu sem þeir tengja við ákveðið tímabil, skemmtistað, ár eða jafnvel árstíð. Við ætlum að sérhæfa okkur í réttu danssmellunum, réttu útgáfunum og horfa á þetta út frá dansgólfinu og plötusnúðabúrinu. Það er hell- ingur af frábærri tónlist sem fólk tengir vel við sem heyrist alltof sjaldan í útvarpi,“ segir í tilkynn- ingu frá þeim PartyZone-mönnum, Helga Má Bjarnasyni og Kristjáni Helga Stefánssyni, en þeir munu sjá um þáttinn sem verður á laugar- dagskvöldum kl. 19.23 til 21.00. Undir diskókúlunni á laugardögum Partípinnar Kristján og Helgi Már. „Að njóta lista á að vera réttur allra, ekki forréttindi fárra,“ segir í til- kynningu frá Listahátíð í Reykjavík sem hefst í dag og stendur til 19. júní. Þar er bent á að á hátíðinni í ár sé mikið úrval ókeypis viðburða úr ólíkum listgreinum, auk þess sem ókeypis sé á alla viðburði í Klúbbi Listahátíðar sem og á opnanir myndlistarsýninga. Meðal ókeypis viðburða má nefna götuleikhúsið Act Red sem sýnt er í miðbæ Reykjavíkur 3. júní og Garðabæ og í Reykjanesbæ daginn eftir. Þar munu hávaxnar undra- verur og glaðværir trommuleikarar skálma um götur og slá tóninn fyrir hátíðina. Um helgina gefst gestum í porti Hafnarhússins tækifæri til að sjá óperuinnsetninguna Sun & Sea, sem vann aðalverðlaunin á Feneyja- tvíæringnum 2019 og hefur farið sigurför um heiminn. Verkið verður endurtekið í sífellu milli kl. 12 og 16 dagana 4. og 5. júní. Í Pósthússtræti við Austurvöll verður í dag opnað ljósmyndaverk Hrafns H. Jónssonar (Krumma) sem nefnist Bótaþegi og fjallar um þann veruleika að vera fatlaður og lifa við fátækt í íslensku velferðarkerfi 21. aldarinnar. Mykki Blanco og Samuel Acevedo sem mynda tvíeykið EXPAT bjóða upp á sýningu í Open, Grandagarði 27, þann 19. júní kl. 21. Tvíeykið blandar „leikrænni ljóðlist úr heimi svartra hinsegin listamanna saman við gotneska þungamálmshefð Mið- og Suður-Ameríku þannig að úr verður kynngimagnaður seiður“, segir í kynningu. Loks má nefna að Listahátíð „býður öllum að stíga inn í sannkall- aða undraveröld á lokadegi hátíðar- innar þegar nýuppgert svæðið í kringum Elliðaárstöð fyllist af furðuverum, tónlistarfólki, sirkus- listafólki, matarvögnum og óvænt- um uppákomum. Þessi spennandi skógarhátíð í dásamlegu umhverfi Elliðaárdals fer fram sunnudaginn 19. júní milli kl. 13 og 16,“ segir í kynningu og er bent á að í Undra- skóginum geti allt gerst. Allar nán- ari upplýsingar um dagskrána má lesa á vefnum listahatid.is. EXPAT Mykki Blanco og Samuel Acevedo bjóða upp á sýningu í Open. Ókeypis viðburð- ir á Listahátíð - Réttur allra, ekki forréttindi fárra Undraskógurinn Staður í Elliðaár- dalnum þar sem allt getur gerst. Heimferð nefnist sýning úr smiðju brúðuleikhópsins Handbendis sem sýnd verður á Listahátíð í Reykjavík dagana 1.-19. júní. Verkinu er lýst sem einstæðri ör-leikhúsupplifun í hjólhýsi fyrir lítinn áhorfendahóp í senn. „Í þessari heillandi sýningu fyrir alla aldurshópa er stuðst við hreyfimyndir, tónlist, leiklist, brúðu- list, hljóð og mynd til að skoða mun- inn á hreyfanlegu heimili sem marga dreymir um og þeirri upplifun að búa á slíku heimili, þvert gegn eigin vilja, í krísuástandi. Áhorfendum er fylgt í gegnum opna sögu sem þeir móta sjálfir um leið og þeir fá að gægjast inn í litla heima, einkalíf annarra, og kanna mörg þúsund ör- stutt augnablik sem flytja okkur aft- ur heim,“ segir í kynningu á vef Listahátíðar. Leikstjóri er Greta Clough, sem jafnframt gerir leik- brúður ásamt Cat Smits. Danshöf- undur er Snædís Lilja. Sýningin gerist í hjólhýsi sem hef- ur ferðalag sitt á Hvammstanga og ferðast um Norður- og Vesturland fram til 14. júní, en ferðalaginu lýk- ur í Reykjavík. Í dag og á morgun verðursýnt í Félagsheimilinu á Hvammstanga milli kl. 13 og 20; um helgina er sýnt á Akureyri milli kl. 10 og 17; 9. júní við Grunnskólann í Búðardal milli kl. 15.30 og 20; 10. júní á Stykkishólmi milli kl. 13 og 20; 11. júní á Grundarfirði milli kl. 13 og 20; 12. júní í Frystiklefanum í Rifi milli kl. 13 og 20; 13. júní á Akranesi milli kl. 13 og 20; 14. júní í Borg- arnesi milli kl. 13 og 20; 17. júní í Iðnó í Reykjavík milli kl. 10 og 17; 18. júní í Gerðubergi milli kl. 10 og 17 og 19. júní í Elliðaárdal milli kl. 10 og 17. Ör-leikhúsupplifun í hjólhýsi - Handbendi með Heimferð á Listahátíð í Reykjavík - Sýnt á Norður- og Vesturlandi og í höfuðborginni Ljósmynd/ Íris Stefánsdóttir Leikendur Sigurður Arent Jónsson, Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Sylwia Zajkowska fara með hlutverkin í brúðusýningunni Heimferð. Snákur nefnist samstarfsverkefni Rauða krossins og Borgarleikhúss- ins sem sýnt er á Nýja sviðinu í kvöld kl. 20. Verkið, sem er um klukkutími í flutningi, snýst um hug- rekki til þess að bera sig eftir björg- inni. „Nú þegar heimurinn þjáist, þurfa mörg okkar að aðlagast nýjum heimkynnum. Þráin eftir því að vera félagslega samþykkt (lesist: að til- heyra, að eignast vini, að vera boðin í eitt helvítis partí) varð sterkari og sterkari meðan á vikulegu leiklistar- námskeiði Rauða krossins stóð. Þess vegna hóf hópur hugrakks fólks á ýmsum aldri og frá ólíkum stöðum að rannsaka hugmyndina um að bjóða sjálft sig velkomið inn í sam- félag, í stað þess að bíða þess að það gerist sjálfkrafa. Við hverfum frá reglum hins hefðbundna vestræna leikhúss. Hér snýst allt um þá til- raun að tengjast, jafnvel þegar það þýðir að taka í sveitta hönd einhvers ókunnugs,“ segir í tilkynningu. Elisabeth Nienhuis leiðir sýning- una en flytjendur eru innflytjendur og hælisleitendur. Sýningin mun vera aðgengileg öllum aldri. Hún er að mestu flutt án orða en þó eru nokkur orð mælt á ensku. Aðgangur er ókeypis en bóka þarf miða á tix.is. Tilraun til að tengjast - Samstarfsverkefni Rauða krossins og Borgarleikhússins Hugrekki Sýningin Snákur er sýnd í Borgarleikhúsinu í kvöld kl. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.