Morgunblaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2022
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
“Top Gun: Maverick is outstanding.”
“Breathtaking”
“It’s the BEST MOVIE OF THE YEAR!”
“Might be the best movie in 10 years.”
“Top Gun: Maverick is fantastic.” “Best Action Sequel Of All Time”
“What going to the movies is all about”
“You must see this one in the theater.”
“a must see!”
U S A TO D AY
72%
Empire Rolling StoneLA Times
STÓRKOSTLEG NÝ FJÖLSKYLDUMYND
ÚR TÖFRAHEIMI HARRY POTTER.SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
BENEDICT
CUMBERBATCH
ELIZABETH
OLSEN
chiwetel
ejiofor
BENEDICT
WONG
xochitl
gomez
MICHAEL
STÜHLBARG
RACHEL
MCadams
96%
Empire
The Playlist BBC The sun
Total FilmRogerEbert.com
John, Rufus og líka Judy
Ljósmyndir/Juliette Rowland
Vinir John Grant og Rufus Wainwright náðu vel saman á tónleikunum í Silfurbergi á sunnudag, 29. maí.
undir lokin og tóku þeir tvö lög sam-
an. Smullu saman eins og flís við rass,
kannski fullvel því þetta eru býsna
líkir tónlistarmenn í grunninn. Grant
þó mun meira að daðra við hljóm
níunda áratugarins með sínum hljóð-
gervlum en þetta kvöld ákvað hann
að flytja lög sem hentuðu betur með
flygli og án hljómsveitar. Kynnti
Grant til sögunnar samstarfsmann
sinn „Kormak“ sem er þá væntanlega
Kormákur en frekari deili kann ég
ekki á þeim ágæta manni sem stóð sig
þó vel. Örlítið fannst mér hans hljóð-
gervlaleikur keppa við flygilinn hjá
Grant og líklega eitthvert hljóðstill-
ingarklúður þar á ferð sem bætt var
úr fljótlega. Grant var ekki alveg í
sínu besta formi heldur, klikkaði á
dýpstu nótunum í einu lagi og sló
stundum heldur þungt á lykla slag-
hörpunnar.
Mörg frábær lög tók hann þetta
kvöld, líkt og Wainwright, og má til
dæmis nefna „Marz“ af Queen of
Denmark og „The Cruise Room“ af
nýjustu plötu hans, Boy from Michi-
gan , sem er hin prýðilegasta, líkt og
allar fyrri plötur Grants reyndar, og
„Grey Tickles, Black Pressure“ af
samnefndri plötu.
Eftir stutt hlé mætti svo aðal-
stjarnan, Wainwright, í himinbláum
jakkafötum og skellti sér beint í
fyrsta lag af miklum krafti og öryggi.
Eftir gott úrval eigin laga tók hann
syrpu helgaða Judy Garland, lög sem
finna má á tónleikaplötunni Rufus
Does Judy at Carnegie Hall. Syrpa
þessi var fulllöng fyrir minn smekk
og á heildina litið voru tónleikarnir of
langir, eins og sjá mátti af tíðum
salernisferðum tónleikagesta. Eitt
lag reyndi sérstaklega á þolinmæðina
en í því liðu margar sekúndur á milli
píanótóna, svo margar að það varð á
endanum spaugilegt. Hið dásamlega
„Going to Town“ flutti Wainwright
svo undir lokin en þar fer sannkallað
gæsahúðarlag. Að öllu samanlögðu
var þetta eftirminnilegt kvöld með
frábærum listamönnum.
»
… hér var kominn
mikill fagmaður,
söngurinn fallegur og
kraftmikill líkt og píanó-
leikurinn.
Raddfagur Wainwright við flygilinn í Silfurbergi. Kraftmikill Grant þandi raddböndin, eins og sjá má.
AF TÓNLIST
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tvö sjarmatröll tróðu upp í
Silfurbergi Hörpu sunnudags-
kvöldið 29. maí. Aðalnúmerið
var hið ástsæla bandarísk-kanadíska
söngvaskáld Rufus Wainwright en
um upphitun sá okkar ástsæli John
Grant sem er ekki enn kominn með ís-
lenskan ríkisborgararétt, ótrúlegt en
satt, og vakti Wainwright einmitt at-
hygli á því á tónleikunum. „Veitið
honum íslenskan ríkisborgararétt,“
hvatti Wainwright íslensk stjórnvöld
við mikinn fögnuð tónleikagesta.
Óhætt að taka undir þau orð, er ekki
tími til kominn? Koma svo!
Wainwright fæddist árið 1973,
sonur alþýðutónlistarfólksins Kate
McGarrigle og Loudons Wainwrights
og tónlistarferilinn hóf hann aðeins 13
ára. Þá fór hann í tónleikaferðir með
móður sinni, systur og frænku sem
skipuðu hljómsveitina McGarrigle
Sisters and Family. Tengsl
Wainwrights við norðurameríska
alþýðutónlist voru því býsna sterk í
æsku og fram á fullorðinsár en þegar
sólóferillinn hófst fór hann í aðra átt
og er hvað þekktastur fyrir angur-
værar ballöður sínar, hugvekjandi
texta og dálæti á söngleikjatónlist og
óperum.
Wainwright á sér dyggan hóp
aðdáenda víða um lönd og á tónleik-
unum í Silfurbergi var staddur hópur
sem keypt hafði sérhannaða tónleika-
ferð eða -pakka til Íslands með skoð-
unarferðum, máltíðum og öllu tilheyr-
andi, eins og hann minntist á sjálfur.
Skal engan undra þar sem maðurinn
er hinn viðkunnanlegasti og auðvitað
frábær tónlistarmaður, eins og von-
andi sem flestir vita og Ísland auðvit-
að líka geggjað.
Frá fyrstu stundu var ljóst að
hér var kominn mikill fagmaður,
söngurinn fallegur og kraftmikill, líkt
og píanóleikurinn. Wainwright sló á
létta strengi og spjallaði við tónleika-
gesti af og til og gerði góðlátlegt grín
að dapurlegustu lögum sínum. Og þau
voru mörg þetta kvöld, kannski
aðeins of mörg þar sem tónleikarnir
stóðu yfir í rúmar tvær klukkustund-
ir, fyrir utan auðvitað upphitun Johns
Grants. Grant var kallaður upp á svið