Morgunblaðið - 01.06.2022, Page 28

Morgunblaðið - 01.06.2022, Page 28
Sviðslistir skipa stórt hlutverk á Listahátíð í Reykjavík sem hefst í dag og lýkur 19. júní. Má af einstökum slík- um viðburðum nefna Every Body Electric, rafmagnað dansverk sem sagt er á vef hátíðarinnar ögra við- teknum hugmyndum um möguleika líkamans og orkuna sem býr í okkur öllum; A Simple Space sem lýst er sem leiftrandi sirkussýningu á heimsmælikvarða; Taylor Mac sem kemur fram í dag og á morgun á stóra sviði Þjóðleikhússins og fléttar saman dragi, tónlist og kímni og Heimferð sem sögð er „einstæð örleikhús- upplifun í húsbíl“ og er fjallað um á bls. 24. Vef hátíðarinnar má finna á slóðinni listahatid.is. Sviðslistir í stóru hlutverki Lundúnum og við streymum þeim beint,“ segir Debora og hvetur gesti til þess að búa til kórónur í tilefni dagsins en þær bestu verði verðlaunaðar. „Þetta er auðvitað að breskri, vinsælli fyrirmynd.“ Klukkan 15 til 16.30 verður hæfileikakeppni, nokkurs konar Britain’s Got Talent, og er óskað eftir að þátttakendur skrái sig á netinu (https://forms.gle/ QzzWGxhCy4xV8xWV8). Debora segir að börnin geti gert það sem þau vilja í allt að þrjár mínútur. „Dóttir mín ætlar til dæmis að dansa enskan vals við strák sem er Breti í aðra ættina eins og hún.“ Síðan verður bingó klukkan 18, spurningakeppni þar sem spurn- ingar tengjast drottningunni (Queen Quiz) klukkan 19.30 og klukkutíma síðar hefst kvöldveislan. Aðgöngumiðinn, sem gildir fyrir te og köku, kostar 1.000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn fimm ára og eldri, en allur hagnaður af skemmtuninni rennur óskertur til Píeta-samtakanna. Miða má kaupa á tix.is (https://tix.is/is/event/13387/ queen-s-platinum-jubilee-celebra- tions/). „Rétt innan við 1.000 Bretar búa á Íslandi og við höfum ekki komið oft saman, en með þessu erum við að reyna að bæta úr því,“ segir Debora. „Samskiptin hafa mest verið á Facebook en þetta er tilvalið tækifæri til þess að sjá and- litin á bak við skrifin og svo viljum við auðvitað líka sjá sem flesta Ís- lendinga.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Elísabet II. Bretadrottning hefur verið við völd í 70 ár og nær þrem- ur mánuðum betur, en hún tók við krúnunni 6. febrúar 1952, og hefur setið lengst allra núlifandi konung- borinna þjóðhöfðingja. Vegna þess- ara tímamóta verður aukafrídagur í Bretlandi í vikunni, frí hjá mörgum frá fimmtudegi til sunnudags, og fjögurra daga hátíð frá og með morgundeginum. Breska sam- félagið á Íslandi tekur þátt í gleðinni í Reykjavík á laugardag og býður öllum sem vilja taka þátt í sérstakri dagskrá á Bruggstofunni við Snorrabraut að slást í hópinn. Fjórar breskar konur að upp- runa, Debora B. Ólafsson, Kathryn Gunnarsson, Elaine McCrorie og Audrey Louise, ákváðu að bjóða upp á þessa dagskrá og hafa skipu- lagt hana. „Við viljum að sjálfsögðu vera með í gleðinni,“ segir Debora. „Þess vegna bjóðum við upp á fjöl- skylduhátíð og ekki aðeins fyrir Breta heldur alla á Íslandi og ég veit að margir Íslendingar hafa mikinn áhuga á bresku konungs- fjölskyldunni og elska drottning- una,“ heldur hún áfram. Debora flutti til Íslands fyrir áratug og vinnur með eiginmanni sínum, Sigurvin Ólafssyni, hjá ferðaskrif- stofunni Nordic Luxury, þar sem hann er leiðsögumaður en hún starfar í söludeild. Fjölbreytt dagskrá Kathryn og Debora fóru yfir lausa enda á veitingastaðnum Apó- teki í fyrradag. „Það hæfir að fá sér síðdegiste á þessum tíma,“ segir Debora og leggur áherslu á að Kathryn, sem flutti til Íslands 2016 og stofnaði fljótlega mannauðsfyrir- tækið Geko, sé aðalsprautan. „Við í Geko aðstoðum fyrirtæki við að byggja upp sterk teymi,“ segir hún. „Hún er límið í hópnum,“ bætir Debora við. Bruggstofan verður opnuð gest- um hátíðarinnar klukkan 14 á laug- ardag. „Þann dag verða tónleikar í Haldið upp á tíma- mót hjá drottningu - Breska samfélagið hérlendis skipuleggur hátíð í Reykjavík Morgunblaðið/Eggert Síðdegiste Kathryn Gunnarsson og Debora Ólafsson á Apóteki. MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 152. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Óli Valur Ólafsson, nítján ára Garðbæingur, var besti leikmaðurinn í fyrstu átta umferðum Bestu deildar karla í fótbolta samkvæmt M-gjöfinni, einkunnagjöf Morgunblaðsins. Óli Valur er í stóru hlutverki hjá Stjörnunni sem hefur komið mjög á óvart með ungt lið og er í öðru sæti deildarinnar. „Við strákarnir þekkjum hver annan mjög vel,“ segir Óli Valur. »22 Nítján ára og er bestur í deildinni ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.