Morgunblaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022 GOLD Sölustaðir: Apótek, almennar verslanir. Mest selda liðbætiefni á Íslandi Sérvalin blanda bætiefna fyrir liðina. Inniheldur virkt og uppbyggilegt kondrótín, kollagen og kalk fyrir bein og brjósk. Njóttu sumarsins eymslalaus. NUTRILENK Jón Magnússon, fv. þingmaður, vekur athygli á að nú nálgast verðbólga í helstu viðskiptalönd- um Íslands óðfluga tveggja stafa tölu og lætur einnig finna fyrir sér á Ís- landi. Hann óttast að það dragi úr áhrifum af viðleitni Seðlabanka þegar „ríkisstjórnin er upptekin við að prenta peninga, sem innistæða er ekki fyrir“. - - - Jón bætir við að ríkisstjórnin mætti hafa í huga að sé fólki borgað fyrir ekki neitt með pen- ingaprentun, þá sé verðbólga óhjá- kvæmilegur fylgifiskur. Það sé að- eins spurning um tíma. - - - Verðbólga dregur úr kaupmætti launa og leiðir til gengisfell- ingar íslensku krónunnar. Verð- tryggð lán hækka og vextir óverð- tryggðra lána hækka líka og hjá því verður ekki komist í slíku ástandi. Þetta er eitt alvarlegasta vanda- málið sem blasir við þjóðinni.“ - - - Jón segir að þingmönnum væri nær að taka á þessum aðsteðj- andi vanda og sleppa gagnslausum og innistæðulausum upphróp- unum. - - - Því miður er stjórnarandstaðan upptekin við að reyna að auka fátækt í landinu og valda auknum erfiðleikum í velferðar- kerfinu með því að opna landa- mærin upp á gátt. - - - Kemur á óvart að Viðreisn, en einkum (þó) Flokkur fólksins skuli taka þátt í þessum leik, sem er ætlaður til að öll vinna í sam- bandi við vandaða málsmeðferð varðandi hælisleitendur verði gerð að engu.“ Jón Magnússon. Ónýtt uppistand STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, fór í opinbera heimsókn í Skaftárhrepp í gær. Heimsókninni lauk í gærkvöldi með samkomu í fé- lagsheimilinu Kirkjuhvoli á Kirkju- bæjarklaustri, sem Skaftárhreppur stóð fyrir. Fyrr um daginn hafði Guðni átt fund með nýkjörinni sveitarstjórn hreppsins og setið málstofu um sókn- arfæri í sveitarfélaginu. Forsetinn fór einnig í heimsókn í nokkur fyrirtæki á svæðinu, m.a. Klausturbleikju sem starfað hefur í mörg ár. Sömuleiðis fór Guðni til fundar við eldri kynslóðina í hjúkr- unar- og dvalarheimilinu Klaustur- hólum. Þá hitti hann nemendur Kirkjubæjarskóla og leikskólans Kærabæjar. Eliza Reid var á sama tíma stödd í Heidelberg í Þýskalandi, sem heiðursgestur á bókmenntahátíð. Guðni heimsótti íbúa Skaftárhrepps Ljósmynd/Skrifstofa forseta Íslands Skaftárhreppur Guðni hlustar hér á Bjartmar Pétursson, einn eigenda Klausturbleikju, segja frá starfsemi fyrirtækisins við Teygingalæk. Flugvél Niceair, af gerðinni Airbus 319, var í fyrsta sinn flogið í gær- morgun frá Akureyri til Kaup- mannahafnar. Félagið mun standa fyrir flugi tvisvar í viku til Kaup- mannahafnar, jafnoft til London og einu sinni í viku til Tenerife. Áður en farþegum var hleypt um borð klipptu á borða í flugstöðinni þau Þorvaldur Lúðvík Sigur- jónsson, framkvæmdastjóri Niceair og einn stofnenda félagsins, og Ást- hildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri. Breiður hópur fyrirtækja, ein- staklinga og stofnana á Norður- landi stendur að Niceair, en enginn hluthafa á meira en 6,5% hlut. Meðal hluthafa eru KEA, Höldur, Kaldbakur, Norlandair, Armar, Ferðaskrifstofa Akureyrar, Norð- urböð, brugghúsið Kaldi og kæli- smiðjan Frost. Ferðaþjónustan á Norður- og Austurlandi bindur miklar vonir við flugið frá Akureyri, bæði fyrir íbúa á svæðinu og erlenda ferða- menn. Fyrsta flug Niceair til Kaupmannahafnar Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Akureyri Þorvaldur Lúðvík og Ásthildur Sturludóttir klipptu á borða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.