Morgunblaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022 _ Jóhann Þór Ólafsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Grindavíkur í körfuknattleik á ný eftir þriggja ára hlé. Hann var áður þjálfari liðsins árin 2015-2019 og undir hans stjórn lék það til úrslita um Íslandsmeistaratit- ilinn árið 2017. Hann var aðstoðar- þjálfari liðsins á síðasta tímabili. _ Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við þrjá af íslenskum lyk- ilmönnum sínum fyrir næsta tímabil. Þeir léku allir stór hlutverk þegar liðið komst í úrslitaeinvígið um Íslands- meistaratitilinn í vor. Það eru þeir Pét- ur Rúnar Birgisson sem samdi til þriggja ára, Sigurður Gunnar Þor- steinsson sem samdi til tveggja ára og Sigtryggur Arnar Björnsson sem gerði eins árs samning. _ Guðrún Brá Björgvinsdóttir er í 30.-37. sæti af 125 keppendum á Opna ítalska meistaramótinu í golfi, eftir að hafa leikið fyrsta hringinn í gær á pari, 72 höggum. Mótið er liður í Evrópu- mótaröðinni. Hún fékk sex fugla og sex skolla á hringnum. Svissnesku systurnar Morgane Métraux og Kim Métraux léku best í gær ásamt Sofie Bringner frá Svíþjóð en þær voru allar á 67 höggum. _ Axel Bóasson er í 7.-8. sæti á Thi- stad Forsikring-golfmótinu sem nú stendur yfir í Álaborg í Danmörku en það er liður í Nordic golf-mótaröðinni. Axel lék á 67 höggum í gær en 72 höggum í fyrradag og er samtals á þremur höggum undir pari vallarins eftir tvo hringi. Bjarki Pétursson lék á þremur yfir pari, er í 31.-40. sæti og komst í gegnum niðurskurðinn. Aron Bergsson var á fimm höggum yfir pari og missti naumlega af því að komast áfram. _ Guðmundur Ágúst Kristjánsson er í 87.-105. sæti af 156 keppendum á Czech Challenge-golfmótinu sem hófst í Tékklandi í gær. Guðmundur lék fyrsta hringinn á 72 höggum, tveimur yfir pari vallarins. _ Eiður Benedikt Eiríksson er hættur störfum sem þjálfari Þróttar úr Vog- um, nýliðanna í 1. deild karla í fótbolta. Eiður tók við liðinu fyrir þetta tímabil en byrjunin hefur verið erfið. Þróttur er með eitt stig eftir fjóra leiki og markatöluna 1:11. Brynjar Gestsson, fyrrverandi þjálfari Þróttar, og Andrew Pew, fyrirliði liðsins, stýra æfingum næstu daga. Tveimur næstu leikjum Þróttar hefur verið frestað, þar sem tveir leikmanna liðsins fóru í landsleiki með Níkvaragva og Trínidad og Tó- bagó. _ Guðmundur Þórarinsson verður ekki áfram í röðum danska knatt- spyrnufélagsins AaB en hann kom þangað í febrúar frá New York City í Bandaríkjunum og samdi til loka tíma- bilsins. Hann náði aðeins að leika sex leiki og yfir- maður íþrótta- mála hjá AaB sagði að meiðsli Guðmundar væru ástæða þess að ákveðið hefði verið að fram- lengja ekki samn- inginn við hann. Eitt ogannað BESTA DEILDIN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Eyjakonur halda áfram að ná áhuga- verðum úrslitum í Bestu deild kvenna í fótboltanum. Þær fylgdu eftir útisigri gegn Breiðabliki og sigri á Þór/KA þar sem þær lentu þremur mörkum undir með jafntefli gegn toppliði Vals á Hlíðarenda í gær, 1:1. Það voru reyndar Valskonur sem náðu því jafntefli naumlega, þar sem Ásdís Karen Halldórsdóttir jafnaði metin í uppbótartíma þegar allt stefndi í sigur ÍBV. Hún fylgdi eftir í markteignum þegar Guðný Geirs- dóttir varði skalla Elínar Mettu Jen- sen af stuttu færi. Rétt eins og gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli á dögunum, skoraði bakvörður sitt fyrsta mark í deildinni fyrir ÍBV. Þá var það Júlíana Sveins- dóttir en í gær var það hin lettneska Sandra Voitane sem nýtti sér slæma sendingu Valskvenna, komst inn í hana og kom Eyjakonum yfir, 1:0. Mark Ásdísar breytti verulega stöðu liðanna en með sigri hefði ÍBV verið komið með þrettán stig og ver- ið aðeins tveimur stigum á eftir Vals- konum í toppsætinu. Jafnteflið þýðir hins vegar að ÍBV situr áfram í sjötta sætinu, fimm stigum á eftir Val sem náði tveggja stiga forystu í deildinni. _ Selfoss er í öðru sæti, tveimur stigum á eftir Val, eftir sigur á KR, 3:1, í leik sem lauk eftir að blað gær- dagsins fór í prentun í fyrrakvöld. KR situr áfram á botninum eftir sex ósigra í fyrstu sjö leikjunum. _ Leikið er þétt á næstu dögum en liðin spila þrjá leiki hvert á þrettán dögum, frá 6. til 19. júní, auk átta liða úrslitanna í bikarnum, áður en sex vikna hlé verður gert á deildinni vegna EM á Englandi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hlíðarendi Eyjakonan Ameera Hussen hefur betur gegn Valskonunni Þórdísi Hrönn Sigfúsdóttur í jafnteflisleik liðanna í gær. Ásdís bjargaði stigi fyrir Val - Jafnaði í blálokin gegn ÍBV, 1:1 Lokaspretturinn hjá íslenska 21-árs landsliðinu í undankeppni EM karla í fótbolta hefst í dag. Íslensku strákarnir eiga eftir þrjá leiki, alla á Víkingsvellinum. Þeir mæta Liechtenstein í dag, Hvíta-Rúss- landi á miðvikudag og Kýpur næsta laugardag. Takist strákunum að vinna alla þrjá leikina gætu þeir komist í lokakeppnina á næsta ári. Leikurinn við Liechtenstein í dag hefst kl. 17 en Ísland vann útileik liðanna 3:0 þar sem Kristian og Ágúst Hlynssynir skoruðu, sem og Brynjólfur Willumsson. Landsleikur á Víkingsvelli Morgunblaðið/Hákon U-21 Ísak Snær Þorvaldsson og Andri Fannar Baldursson á æfingu. Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús freistar þess að komast fyrstur Íslendinga inn á Opna bandaríska meistaramótið í golfi. Hann tekur þátt í úrtökumóti á mánudaginn kemur, 6. júní, en þann dag verða slík mót haldin á ellefu stöðum í Bandaríkjunum, Kanada og Japan. Haraldur keppir í bænum Purchase sem er í New York-ríki. Haraldur hefur einn ís- lenskra karla keppt á risamóti en hann komst á Opna mótið í Skot- landi sumarið 2018, þá í gegnum úrtökumót á Englandi. Reynir að kom- ast á risamótið Ljósmynd/seth@golf.is New York Haraldur Franklín Magn- ús keppir á mánudaginn. VALUR – ÍBV 1:1 0:1 Sandra Voitane 48. 1:1 Ásdís Karen Halldórsdóttir 90. M Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val) Elísa Viðarsdóttir (Val) Elín Metta Jensen (Val) Mist Edvardsdóttir (Val) Guðný Geirsdóttir (ÍBV) Haley Thomas (ÍBV) Júlíana Sveinsdóttir (ÍBV) Olga Sevcoca (ÍBV) Ragna Sara Magnúsdóttir (ÍBV) Sandra Voitane (ÍBV) Dómari: Guðmundur P. Friðbertss. – 7. Áhorfendur: 72. SELFOSS – KR 3:1 1:0 Miranda Nild 16. 2:0 Brenna Lovera 19. 2:1 Bergdís Fanney Einarsdóttir 49. 3:1 Barbára Sól Gísladóttir 57. M Brenna Lovera (Selfossi) Miranda Nild (Selfossi) Sif Atladóttir (Selfossi) Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi) Kristrún Rut Antonsdóttir (Selfossi) Bergdís Fanney Einarsdóttir (KR) Margaux Chauvet (KR) Cornelia Sundelius (KR) Dómari: Birkir Sigurðarson – 7. Áhorfendur: 197. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þor- geir Kristjánsson urðu í gærkvöld þýskir meistarar með Magdeburg en liðið tryggði sér þá titilinn með heimasigri á Balingen, 31:26. Ómar og Gísli voru eins og oft áð- ur í lykilhlutverkum og voru marka- hæstu leikmenn Magdeburg í leikn- um, með sex mörk hvor. Magdeburg náði með þessu átta stiga forskoti á Kiel, sem á þrjá leiki eftir, og getur því ekki lengur jafnað Ómar, Gísla og félaga að stigum. Þetta er aðeins annar meistaratit- illinn í sögunni hjá Magdeburg og í fyrra skiptið, árið 2001, komu Ís- lendingar líka mikið við sögu. Ólafur Stefánsson var aðalmarkaskorari og burðarás liðsins og Alfreð Gíslason var þjálfari liðsins. Glæsilegt tímabil Magdeburg Árangur Magdeburg á tímabilinu er glæsilegur. Liðið hefur unnið 30 leiki af 32 og verið í efsta sætinu frá byrjun tímabilsins. Liðið missti af því að verða Evrópudeildarmeistari annað árið í röð eftir framlengdan úrslitaleik gegn Benfica en vann heimsbikar félagsliða síðasta haust. Ómar og Gísli hafa verið í lykil- hlutverkum. Ómar er eftir leikinn í gærkvöld markahæstur í deildinni með 218 mörk, einu marki á undan Hans Lindberg og átta á undan Bjarka Má Elíssyni, en þeir síð- arnefndu eiga leik til góða á hann. Þýskir meistarar með Magdeburg Ljósmynd/SC Magdeburg Magdeburg Gísli Þorgeir Krist- jánsson er þýskur meistari. FH komst í gærkvöld á topp 1. deildar kvenna í fótbolta með því að vinna auðveldan sigur á Augna- bliki, 5:0, á Kópavogsvelli. HK er þó eina liðið í deildinni sem hefur ekki tapað stigum og getur endurheimt efsta sætið með sigri á Haukum á morgun. Elín Björg Norðfjörð skoraði tvö mörk fyrir FH, Shaina As- houri, Telma Hjaltalín og Berglind Freyja Hlynsdóttir eitt mark hver. _ Tindastóll lagði Víking 2:1 í Fossvogi. Hulda Ösp Ágústs- dóttir skoraði fyrst fyrir Víking en Hannah Cade og Hugrún Pálsdóttir svöruðu og tryggðu Skagfirðingum sigur sem kom þeim upp í þriðja sæti deild- arinnar. _ Mimi Eiden skoraði þrennu fyrir Grindvíkinga sem unnu góðan útisigur á Fjölni í Graf- arvogi, 3:0. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Grafarvogur Laila Þóroddsdóttir úr Fjölni og Sigríður Emma Jónsdóttir úr Grindavík eigast við og Nour Natan Ninir dómari fylgist vel með. FH komst á toppinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.