Morgunblaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.06.2022, Blaðsíða 18
✝ Auður Magn- úsdóttir fædd- ist 12. apríl 1924 á Útnyrðingsstöðum í Vallahreppi í Suð- ur-Múlasýslu. Hún lést á Droplaugar- stöðum 11. maí 2022. Foreldrar henn- ar voru Magnús Þorsteinsson, bóndi í Höfðaseli, Vall- arhreppi í Suður-Múlasýslu, f. 14. nóvember 1898, d. 16. októ- ber 1959 á Seyðisfirði og Ólína Vilborg Sigurðardóttir frá Útnyrðingsstöðum, f. 20. maí 1897, d. 16. apríl 1924. Auður ólst upp hjá hjónunum Nikulási Jónssyni og Guðrúnu Guðmundsdóttur á Gunnlaugs- stöðum á Fljótsdaglshéraði. Systkini Auðar samfeðra: Ragnar Benedikt Magnússon, f. 27. maí 1921, d. 15. maí 2010, Guðrún Magnúsdóttir, f. 11. Brynjólfur Ari. Börn Brynjólfs eru Hrafnkell Líndal og Arnar Lubozar; Helga Sigurðardóttir, hennar börn eru Huginn og Heiður. 3) Ásta Guðbjörg, f. 6. janúar 1952, gift Arnóri Árna- syni, f. 6. júlí 1952. Börn þeirra eru: Sigurður Snorri, Stefanía Embla. Börn hennar eru Kjart- an og Egill; Árni, hans börn eru Sara, Erla og Kári; Kolbeinn, hans barn er Luna. 4) Stúlka Rögnvaldsdóttir, f. 6. janúar 1952, d. 6. janúar 1952. 5) Arn- aldur Austdal, f. 8. september 1957, kvæntur Patrinu Rögn- valdsson, f. 21. febrúar 1957. Börn þeirra eru: Elísabet Mary, hennar börn eru Birgir Örn, Árni Bergur og Kristján Kári; Bríet Ósk, hennar börn eru Arn- aldur og Birkir; Kristín Mar- grét, hennar barn er Tómas Helgi. Auður fór til náms við Hús- mæðraskólann á Hallormsstað. Flytur síðan með eiginmanni sínum til Seyðisfjarðar. Eftir að fjölskyldan flutti til Reykjavík- ur, vann hún lengst af við versl- unarstörf og heimaþjónustu. Útför Auðar fór fram í kyrr- þey að hennar ósk þann 27. maí 2022 frá Fossvogskapellu. október 1926, d. 19. febrúar 2017, Niku- lás Magnússon, f. 10. september 1928, d. 8. febrúar 1997. Bróðir sam- mæðra: Jón Ólafs- son, f. 8. desember 1922, d. 14. júlí 1946. Eiginmaður Auðar var Rögn- valdur Sigurðsson trésmíða- meistari frá Austdal, f. 20. júlí 1923 á Seyðisfirði, d. 28. nóv- ember 1990. Börn Auðar og Rögnvaldar eru: 1) Þórunn Oddný, f. 2. sept- ember 1944. Hennar dóttir er: Auður Rögn. Börn Auðar eru Bjarnveig Birta, hennar dætur eru Auður Lóa og Heiða Theó- dóra; Þórir Snær, Fróði Reyr og Uni Dagur. 2) Fjóla Sigurveig, f. 20. september 1949. Hennar börn eru: Rögnvaldur Freyr, og Elsku góða mamma mín er farin. Þú, sem hafðir svo góða og ljúfa nærveru. Börnin og barnabörnin sóttust eftir og elskuðu að vera í návist þinni. Öll löðuðust þau að hlýju þinni, góðri lund og einstökum húmor. Allir voru jafnir fyrir þér, þú gerðir aldrei upp á milli. Börnin kunnu svo vel að meta glensið og gamanið hjá þér. Það virtist alltaf vera sól hjá þér í Hörðalandinu. Það var alltaf notalegt að fara út í garðinn á pallinn, og njóta sólarinnar með ís og góðgæti. Þangað var ljúft að koma og fá sér gott kaffi úr Espressó könn- unni þinni. Þú varst svo lánsöm að eiga einstaklega góða ná- granna, sem veittu þér mikinn stuðning. Þú fæddist í gamla torfbænum á Útnyrðingsstöðum á Völlum og nýfædd varst þú sett í fóstur á Gunnlaugsstöðum á Fljótsdals- héraði, eftir lát móður þinnar. Þar bjóst þú við ást og umhyggju fósturforeldra þinna. Ung fórstu til náms við Húsmæðraskólann á Hallormsstað, þar sem þú áttir góðar stundir og til urðu skemmtilegar minningar. Síðar fluttuð þið faðir minn með frum- burð ykkar í fjörðinn fagra, Seyðisfjörð. Börnin urðu fjögur. Gott var að alast upp við leik og störf, fara í berjamó og synda í ám og lækj- um að ógleymdum heyskapnum. Alltaf var farið var með gott nesti og auðvitað mjólk á gler- flösku. Að því kom að fjölskyldan flutti suður. Við systkinin fórum í framhaldsskóla. Þú fórst að vinna við verslunarstörf í Reykjavík. Síðustu áratugina bjóst þú í Fossvoginum, þar sem sólin byrjar alltaf snemma að skína og lóan að að syngja. Elsku mamma, ég kveð þig með sárum söknuði, þegar þú ert nú horfin úr lífi okkar. Ég vil enda á þessum orðum: Ég horfi ekki á hið sýnilega, heldur hið ósýnilega. Hið sýnilega er stundlegt, en hið ósýnilega eilíft“ (Síðara Korintubréf 4-18) Kveðja, þín dóttir, Fjóla. Þú Þú hlærð, svo himnarnir ljóma. Á heillandi dans minna öll þín spor. Orð þitt er ilmur blóma, ást þín gróandi vor, sál þín ljósið, sem ljóma vefur löndin og bræðir hjarnið kalt. Í hvílunni engin jafn-sólhvít sefur, - þú gefur og gefur – allt. (Davíð Stefánsson) Takk fyrir allt sem þú hefur gefið okkur elsku mamma mín. Þórunn. Elsku amma mín, það er erfitt að hugsa til þess að ég muni ekki hitta þig aftur í þessu lífi. En þinn tími var kominn og ég veit að þú skilur sátt við. Það var alltaf gott að vera með þér og svo stutt í glensið og gleðina. Í Hörðalandi áttir þú notalegt heimili og þegar ég kom varstu aldrei lengi að bera á borðið eitt- hvert góðgæti. Á góðviðrisdögum settumst við út á litla pallinn þinn og nutum veðurblíðunnar í Fossvoginum, þú framreiddir ís og drykki í gegnum gluggann og þar gátum við setið og spjallað um allt milli himins og jarðar, oft bættust fleiri á pallinn og köll- uðum við heimilið litlu umferð- armiðstöðina. Þú naust þess að fylgjast með fuglunum fyrir utan gluggann þinn og varst mikill dýravinur og náttúruunnandi. Inn við beinið varstu sveitastelpa og hafðir gaman af hvers kyns flandri um sveitir landsins og fór ég nokkrar slíkar ferðir með þér og afa. Þú sagðir stundum að þú vildir að þú værir létt á fæti því þá gætirðu farið upp fjöll og firnindi. Ég er viss um að nú hoppar þú um sum- arlandið með afa. Sjálf keyrðir þú bíl til 92 ára og varst dugleg að skutlast á milli staða. Þú varst listræn og skilur eftir þig fallega handavinnu, en þú gerðir sem minnst úr verkum þínum, varst alltof hógvær. Elska þig elsku amma mín, þú ert og verður fyrirmynd mín. Auður Rögn. Fyrstu minningarnar um ömmu voru heima hjá henni og Rögnvaldi afa í Iðufellinu. Afi var að troða í pípuna og leggja kapal en amma að steikja kleinur eða taka slátur. Amma gerði bestu kleinurnar og bestu pönnukök- urnar (upprúllaðar með sykri). Amma var líka mikil listakona og prjónaði svo fallegar lopa- peysur á okkur barnabörnin og seinna barnabarnabörnin. 93 ára gömul prjónaði hún svo fallegt teppi handa frumburðinum mín- um þegar hann kom í heiminn. Þessar prjónagersemar verða varðveittar um ókomna tíð. Þrátt fyrir alla hæfileikana sem amma bjó yfir var hún ein- staklega hógvær. Eitt sinn þegar ég var að vinna að skólaverkefni í mastersnáminu mínu langaði mig að taka stutt viðtal við ömmu. Hún var nú ekki alveg til í það en lét að lokum tilleiðast. Sagan var austan af Héraði þeg- ar amma var lítil og ferðaðist á sleða yfir Lagarfljótið. Frásögn- in lifnaði við hjá ömmu og ég hugsaði til alls þess sem amma hafði upplifað enda lifað tímana tvenna. Á sumrin þegar vel viðraði var alltaf svo hlýtt og notalegt á pall- inum í litla garðinum hennar ömmu í Hörðalandinu. Það var bruggað kaffi og með því og sör- verað út um gluggann. Oftar en ekki lumaði hún á frostpinna í ís- skápnum handa þeim litlu enda var amma svo barngóð. Hún hafði endalausa þolinmæði og skipti sjaldan skapi. Ósjaldan var hlegið þegar skipst var á sögum úr hversdagslífinu. Þegar við frænkurnar vorum litlar höfðum við líka gaman af að heimsækja ömmu, kíkja í fata- skápinn hennar og klæða okkur upp. Fengum okkur síðan göngu- túr sem gamlar, virðulegar kon- ur í Hörðalandinu. Það var alltaf svo notalegt að hittast í litlu íbúð- inni hennar ömmu sem samt rúmaði svo marga, allir voru vel- komnir. Það er mikill söknuður að henni ömmu minni (eða löngu eins og hún var einnig oft kölluð) en minningarnar lifa áfram. Minningar og hugsanir eldast, alveg eins og manneskjur. En sumar hugsanir eldast ekki og vissar minningar fölna aldrei (Haruki Murakami). Helga Sigurðardóttir. Elsku Auður amma, við kveðj- um þig og þökkum fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Minningarnar um þig ylja okkur um hjartarætur og munu lifa með okkur alla tíð. Þegar við hugsum um þig þá er gleði, þakk- læti og hamingja okkur efst í huga. Þú varst svo góð, trygg, hjálpsöm og hugulsöm og hafðir óbilandi trú á okkur systrum. Þar sem við sitjum saman við að skrifa þessi orð, brosum við að minningum um skondnar uppá- komur, enda var alltaf stutt í hlátur og húmor með þér. Þú brunaðir um götur bæjarins á rauða Skódanum þínum og leyfð- ir okkur jafnvel að keyra hann þegar við vorum nýkomnar með bílpróf. Á meðan sast þú sallaró- leg í framsætinu. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til þín í Hörðaland. Þú bauðst upp á ýmsar heimagerðar kræsingar, eins og súkku- laðiköku, pönnukökur og kakó með rjóma og afsakaðir alltaf að veitingarnar væru ómerkilegar eða bara samtíningur. Á jólunum gátum við systur verið vissar um að fá sendingu af heimatilbúnum loftkökum, það þótti okkur svo vænt um. Alltaf gátum við stólað á símtal frá þér á afmælisdögum okkar og barna okkar. Þú hafðir svo mikinn áhuga á að fylgjast með lífi okkar og varst svo barn- góð. Þú varst einstaklega lagin í höndunum og prjónaðir á okkur vettlinga, sokka, húfur, peysur og ungbarnateppi og föndraðir tækifæriskort. Samband okkar við þig var alltaf sérstakt og vorum við mikl- ar ömmustelpur. Þú ert fyrir- mynd okkar í lífinu og okkar heitasta ósk er að verða eins og þú þegar við verðum ömmur, svona ekta amma eins og þú varst. Elsku amma, við kveðjum þig með miklum söknuði, en um- fram allt hlýjum minningum sem við geymum í hjarta okkar. Bríet Ósk Arnaldsdóttir, Elísabet Mary Arnalds- dóttir og Kristín Mar- grét Arnaldsdóttir. Elsku amma. Það er komið að kveðjustund. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til þín og ávallt vel tek- ið á móti manni. Afkomendurnir eru margir, barnabörn, lang- ömmubörn og langalangömmu- börn. Þú varst hlý og nærgætin og sýndir þínum mörgu afkom- endum áhuga og skilning og vild- ir heyra hvað um væri að vera í lífi hvers og eins. Þú tókst öllum eins og þeir eru því fordómalaus- ari manneskja var vandfundin. Þú varst alltaf létt í lundu og hafðir húmor, ekki síst fyrir sjálfri þér. Þín verður sárt sakn- að og við erum þakklát fyrir öll árin sem við áttum með þér. Með þessu ljóði eftir Einar M. Jónsson sendum við þér okkar hinstu kveðju. Eg á ekki gull til að gefa þér né glitrandi perlur. En hvar sem þú fer yfir hauður og lá, mun hugur minn oftsinnis dvelja þér hjá. Þá bið ég þér heilla sem bezt eg má. Eg bið þess, að vonin sé vegstjarna þín, og veiti þér dýrðlegust fyrirheit sín. Og söngfugla bið eg að syngja þér lag um sumurin blíðu og vorlangan dag. Og angandi blæ, er um háloftin fer, hann bið eg að strjúka um vangann á þér og hvísla í eyra þér kveðju frá mér. Sigurður Snorri, Embla, Kolbeinn og Árni. Lengi hélt maður að langamma væri eilíf. Hún kom keyrandi í 90 ára afmælisveisl- una sína og bjó ein í eigin íbúð í Hörðalandi langt fram yfir 96 ára afmælið sitt. Hörðaland var um áraraðir miðstöð móðurfjölskyld- unnar en þar bjó hún á jarðhæð og átti garð þar sem veðráttan var einfaldlega betri en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Ég á þess vegna ófáar minningar úr Hörðalandinu þar sem ég flat- maga í sumaryl við fuglasöng og lágan óm úr útvarpinu, hvar langa ber mér kræsingar í röðum út um gluggann og afsakar í sí- fellu hversu lítilfjörlegar veiting- arnar séu. Langa hafði tvímælalaust lifað tímana tvenna en dvaldi lítið við fortíðina. Hún tók nýjum tímum opnum örmum, var alltaf með puttann á púlsinum og með öllu fordómalaus. Umfram allt var langa umhyggjusöm og lét sig sína nánustu mikið varða. Sann- kölluð ættmóðir. Ég vona að einn daginn verði ég það líka, að heimilið mitt verði miðstöð fjöl- skyldu minnar og ég geti verið til staðar eins og langa var alltaf. Ég er heppin að hafa haft löngu allan þennan tíma, þótt hún væri ekki eilíf. Ég sakna hennar en hugga mig við margar góðar minningar og að nú flat- magi hún í sumarlandinu við fuglasöng og lágan óm úr útvarp- inu. Bjarnveig Birta Bjarnadóttir. Auður Magnúsdóttir 18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022 ✝ Guðmundur Brynjólfsson fæddist í Reykjavík 21. apr- íl 1953. Hann lést 25. maí 2022. Guðmundur var sonur Brynjólfs Vilhjálmssonar, f. 25.1. 1934, d. 10.8. 2010, og Huldu Bergmann Guð- mundsdóttur, f. 8.11. 1934, d. 28.12. 2004. Guðmundur var elstur þriggja bræðra. Bræður hans eru: 1) Gísli Brynjólfsson, f. 15.12. 1959, giftur Jónínu Margréti Ingólfsdóttur, f. 28.6. 1960. 2) Skúli Brynjólfs- son, f. 16.2. 1973. Guðmundur var giftur Björk Hjaltadóttur, f. 29.5. 1954, d. 12.8. 2018. Guðmundur og Björk eign- uðust 2 börn: 1) Hjalti Guð- mundsson, f. 8.11. 1974, giftur Sigrúnu Ýri Svansdóttur, f. 21.2. 1984. Börn Hjalta frá fyrra hjónabandi: a) Lena Björk Hjaltadóttir, f. 26.6. 1996, í sambúð með Arnari Bergmanni Róbertssyni, f. 15.8. 1997, b) Aníta Hjalta- dóttir, f. 23.7. 2004, c) Ka- milla Hjaltadóttir, f. 6.10. 2006. Börn Sigrúnar Ýrar frá fyrra hjónabandi: d) Þórhildur Stella Gunnars- dóttir, f. 31.7. 2008, e) Hugrún Birna Gunnars- dóttir, f. 11.2. 2010. Börn Hjalta og Sigrúnar: f) Kristófer Páll Hjaltason, f. 3.3. 2015, g) Hulda Hjaltadóttir, f. 12.3. 2021. 2) Brynhildur Guðmunds- dóttir, f. 19.11. 1976, gift Ör- lygi Auðunssyni, f. 5.3. 1974. Sonur Brynhildar og Örlygs er Guðmundur Thor Örlygs- son, f. 13.8. 2007. Guðmundur ólst upp á Fáfnisnesi í Skerjafirði. Hann hóf sína skólagöngu í Miðbæjarskólanum. Guðmundur hóf nám í fram- reiðslu í Grillinu á Hótel Sögu en lauk því ekki. Hann lærði einnig húsgagnasmíði við Iðn- skólann í Reykjavík og lauk því. Guðmundur fer aftur í nám og nú við flugvirkjun. Guðmundur lærði við Spartan School of Aeronautics í Tulsa Oklahoma. Útför fer fram í Vídalíns- kirkju í dag, 3. júní 2022, klukkan 13. Enginn er tilbúinn að setjast niður og skrifa svona grein um pabba, tengdapabba og afa en okkur langar þó að minnast hans með nokkrum orðum. Pabbi var elskulegur og hlýr, strangur og skoðanastór. Hann var fyrirmynd okkar í svo ótal mörgu. Hann var staðráðinn, frá unga aldri, í því að sjá vel fyrir fjölskyldu sinni. Hann menntaði sig vel og starfaði við sitt fag í u.þ.b. 30 ár. Hann ferðaðist með okkur vítt og breitt og kynnti okkur fyrir þeim dásamlega heimi sem flug og ferðalög eru. Pabbi eignaðist fallegan hóp barnabarna, átta samtals, og honum þótti óendanlega vænt um þau. Þau eiga öll eftir að minnast hans og sakna. Á sínum yngri árum var hann uppátækjasamur, höfum við heyrt, en þó alltaf ábyrgur. Hann fékk snemma mikinn áhuga á bílum og átti alltaf fal- lega bíla, sem þóttu eftirtekt- arverðir og fengur hvers sem fékk að kaupa þá bíla sem hann ákvað að selja. Pabbi var mikið snyrtimenni og lét sér annt um að koma vel fram og fyrir. Hann var mentor af Guðs náð og það heyrum við gjarnan frá fyrrverandi sam- starfsmönnum hans. Pabbi og mamma áttu gott líf saman í 50 ár, hófu samband sitt ung en hurfu frá okkur allt- of fljótt. Við minnumst pabba með þessum texta: Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Hjalti, Brynhildur, Sigrún Ýr, Örlyg- ur og barnabörn. Guðmundur Brynjólfsson hóf störf hjá tækniþjónustu Flug- leiða 1986 sem flugvirki. Kom þá strax í ljós að hann var mik- ill fagmaður. Viðhald og við- gerð á hreyflum flugvéla varð sérgrein hans og varð hann einn mesti sérfræðingur fé- lagins í þeim fræðum. Það var síðan 1990 sem mál skipuðust á þann veg að segja þurfti upp stórum hópi flugvirkja hjá Flugleiðum og var Guðmundur í þeim hópi starfsmanna. Lágu þá leiðir Guðmundar út í heim þar sem hann starfaði lengst af í Lúxemborg. Það var síðan í ágústmánuði 1995 sem Guð- mundur kom aftur til Icelanda- ir og hóf þá störf á hreyflaverk- stæði félagsins. Síðar varð hann hópstjóri í stórskoðunum, þar sem hæfileikar hans nýtt- ust við að leiða og leiðbeina hópi yngri starfsmanna. Guð- mundur lét af störfum sem flugvirki hjá Icelandair vegna aldurs í apríl 2020, eftir um 30 farsæl ár í starfi. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast Guðmundi 1999, þegar ég hóf störf hjá Icelandair. Strax frá fyrsta degi var hann boðinn og búinn að aðstoða og leiðbeina, hvort sem um var að ræða fagleg málefni eða félagsmál flug- virkja. Það hefur verið ómet- anlegt leiðarljós í starfi að hafa fengið leiðsögn hjá gæðamanni eins og Guðmundi Brynjólfs- syni. Margar góðar minningar koma upp í hugann þegar litið er til baka, en mér er minn- isstætt ferðalag okkar Guð- mundar til Kaupmannahafnar þar sem við þurftum að skipta um hreyfil á einni flugvél Ice- landair við krefjandi aðstæður. Þar leiddi hann verkefnið áfram af einstakri fagmennsku og um leið mikilli yfirvegun. Í þessari ferð fékk ég að kynnast öllum bestu kostum Guðmund- ar. Síðasta minning mín um Guðmund er þegar við sátum saman á svölum á heimili hans í Garðabæ eftir að hann lét af störfum og rifjuðum upp liðna tíma. Í þessu síðasta samtali okkar notaði hann tækifærið enn og aftur til að gefa mér holl ráð í starfi. Allan starfstíma sinn hjá Ice- landair var Guðmundur í hlut- verki leiðtoga, þar sem hann leiddi vinnu flugvirkja, hvort sem var á hreyflaverkstæði eða í stórskoðunum. Því hlutverki sinnti Guðmundur af miklum áhuga og alúð. Hann naut mik- illar virðingar meðal vinnu- félaga. Hans er sárt saknað. Við vottum fjölskyldu og vin- um okkar dýpstu samúð. Fyrir hönd vinnufélaga, Hörður Már Harðarson. Guðmundur Brynjólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.