Morgunblaðið - 03.06.2022, Page 11
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hópbílar Ágúst Haraldsson við rúturnar á plani fyrirtækisins í Hafnarfirði.
„Ferðaþjónustan er komin á fullt,
sem kallar á að við stækkum flota
okkar,“ segir Ágúst Haraldsson,
rekstarstjóri Hópbíla. Fyrirtækið
fékk á dögunum afhenta tvo nýja
hópferðabíla af gerðinni VDL; ann-
an 57 farþega en hinn fyrir 63 far-
þega. Af síðarnefndu stærðinni fóru
einnig tveir bílar til dótturfyrirtækis
Hópbíla, Reykjavík Sightseeing.
Rútur af gerðinni VDL eru fram-
leiddar í Hollandi og hafa komið
sterkar inn að undanförnu, skv. upp-
lýsingum frá Vélrás ehf. sem er með
Íslandsumboð fyrir þessari tegund.
Alls eru 9 bílar af þessari tegund
komnir í flota Hópbíla.
„Við val á bílum horfum við meðal
annars til þess að vel fari um far-
þega, svo sem að Wi-Fi tenging sé
um borð. Einnig þurfa bílarnir að
vera eyðslugrannir og krafan er
sömuleiðis að útblástur sé í lág-
marki,“ segir Ágúst Haraldsson.
Í flota Hópbíla eru í dag alls um
200 bílar til fólksflutninga, litlir sem
stórir. Slíkt er nauðsyn, því sem
verkefnin eru fjölbreytt.
„Akstur í dagsferðum í tengslum
við komur stóru skemmiferðaskip-
anna með kannski 2.000-3.000 far-
þega um borð, er mikilvægur þáttur
í starfi okkur. Á allra stærstu dögum
yfir sumarið, þegar nokkur skip eru
í höfn á sama tíma, í Reykjavík og
Hafnarfirði, þarf í raun allar til-
tækar rútur í landinu,“ segir Ágúst
Haraldsson. sbs@mbl.is
Kaupa nýjar rútur
- Hópbílar velja VDL - Ferðaþjón-
ustan á fullt - Flotinn er fjölbreyttur
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Áhugavert efni bókarinnar fellur
vel að þeim markmiðum sem við
fylgjum í skólastarfinu,“ segir Hilm-
ar Már Arason, skólastjóri í Snæ-
fellsbæ. Nýlega kom út Árbók
Ferðafélags Íslands 2022 – Undir
jökli frá Búðum að Ennisfjalli. Sögu-
sviðið er samkvæmt því utanvert
Snæfellsnes, hörfandi jökullinn að
meðtalinni náttúru og byggð þar í
kring í úfnu hrauni við klettótta
strönd sem hafið kemur að með ógn-
arkrafti. Höfundur bókarinnar er
Sæmundur Kristjánsson á Hellis-
sandi, að frátöldu því að Daníel
Bergmann skrifar kafla um náttúru
og fuglalíf. Bókin er 264 blaðsíður, í
harðspjöldum og vönduð að allri
gerð eins og jafnan er í þessari út-
gáfu sem á sér 95 ára sögu.
Fræðsla um nærumhverfið er
hluti af skólastarfinu, en í Grunn-
skóla Snæfellsbæjar er þetta
áhersluþáttur í starfinu. Átthaga-
fræði er þar kennd skv. námskrá
skólans og skólastefnu og er kynnt á
vefsetrinu atthagar.is.
„Ég veit ekki til þess að stefna lík
þessari gildi við neinn annan skóla á
landinu. En reynslan er góð,“ segir
Hilmar skólastjóri.
Til lífs og lærdóms
Námið í átthagfræði er fléttað inn
í almennt starf og hinar ýmsu náms-
greinar. Þá er farið í skipulagðar
vettvangsferðir til lífs og lærdóms,
svo sem í gönguferðir, fyrirtæki
heimsótt, hvalaskoðun og fleira slíkt.
Allt er þetta svo skv. deildaskiptingu
skólans skv. aldri nemenda og
starfsstöðvum sem eru þrjár, það er
í Ólafsvík, á Hellissandi og á Lýsu-
hóli á sunnanverðu Nesinu.
„Alls eru nemendur við skólann
um 220. Þar af er um þriðjungur af
erlendum uppruna sem hefur gert
starfið hér fjölbreyttara á svo marg-
an hátt,“ segir Hilmar.
Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri FÍ, mætti í Snæ-
fellsbæ í vikunni og afhenti skól-
anum góðan stafla af bókinni.
Félag allra landsmanna
„Við viljum vera félag allra lands-
manna og hafa góð tengsl við fólk, til
dæmis á þeim svæðum sem ferðir
okkar eru um og sagt frá í bókum
okkar. Að því leyti var mikilvægt að
koma hingað í dag, segir Páll.
Árbækurnar fara til gjafa til
krakka sem eru að ljúka grunnskóla-
náminu og hafa náð góðum árangri.
Nokkur eintök verða svo á bókasöfn-
um skólans og munu þar nýtast vel,
m.a. við kennslu.
Árbókin hentar vel til
náms í átthagafræði
- Vegleg bókagjöf FÍ til Grunnskóla Snæfellsbæjar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gjöf Hilmar Már Arason skólastjóri, til vinstri, veitti bókunum viðtöku frá
Páli Guðmundssyni, framkvæmdastjóra FÍ. Lengst til hægri Vilborg Lilja
Stefánsdóttir, en hópinn mynda annars nemendur í efstu bekkjum skólans.
Bárðarlaug Náttúruvætti og einn margra merkra staða við Snæfellsjökul.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022
295
Vinnuvettlingar
PU-Flex
Öflugar Volcan
malarskóflur
á frábæru
verði
frá 365
Glærir ruslapoka
Ruslapokar 120L
Ruslapokar 140L
Sterkir 10/50stk
1.995
Strákústar
mikið úrval
Öflug
stungu-
skófla
Garðverkfæri í miklu úrvali
Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur,
balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar.........
Léttar og góðar hjólbörur
með 100 kg burðargetu
999Barna-
garðverk-
færi
frá 395
Ruslatínur
frá 295
Úðabrúsar
í mörgum stærðum
frá 995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fös. kl. 9-18, lau. kl. 10-17, sun. kl. 12-16
Garðslöngur
í miklu úrvali
Hrífur
Greinaklippur
frá 585
Burstar framan
á borvél 3 stk.
Mikið úrval af
garðstömpum
Fötur í
miklu úrvali
frá1.495
Laufhrífur
Icelandair fagnar í dag 85 ára afmæli,
en fyrirtækið rekur sögu sína aftur til
stofnunar Flugfélags Akureyrar árið
1937. Í mars 1940 var nafni þess
breytt í Flugfélag Íslands. Árið 1973
sameinaðist félagið Loftleiðum og
nafni þess breytt í Flugleiðir, sem síð-
ar tók upp nafnið Icelandair.
Að baki Icelandair og forverum
þess liggur heilmikil saga, sem ein-
kennist bæði af stórum sigrum og
miklum skakkaföllum, en hér stendur
félagið enn 85 árum síðar. Bogi Nils
Bogason, forstjóri Icelandair, segir í
samtali við Morgunblaðið að það sem
fyrst og fremst hafi einkennt fyrir-
tækið, sé frumkvöðlaandi þess starfs-
fólks sem hefur starfað fyrir félagið í
gegnum tíðina.
„Það er ástæða þess að flugfélag
sem stofnað var árið 1937 er enn
starfandi í dag,“ segir Bogi Nils.
„Fyrirtækið og starfsfólk þess í
gegnum tíðina hefur gengið í gegnum
ýmislegt á 85 árum en staðist þær
áskoranir vel. Nú erum við í mikilli
sókn, eftir því sem áhrif heimsfarald-
ursins minnka."
Bogi Nils segir að í dag verði fagn-
að, bæði með starfsfólki og farþegum
en allir farþegar sem fljúga með fé-
laginu í dag fá 1.937 vildarpunkta í til-
efni dagsins.
Viðskiptamódel sem virkar
Bogi Nils segir að Ísland sé vel
staðsett á milli Evrópu og Norður-
Ameríku og sú sérstaða hafi verið fé-
laginu mjög heilladrjúg, enda byggi
það leiðakerfið á því að tengja álf-
urnar tvær. Það leiðarkerfi, í þeirri
mynd sem við þekkjum í dag, var tek-
ið upp árið 1987, eftir að ný flugstöð
var opnuð í Keflavík. Fram að því
hafði félagið flogið bæði til Evrópu og
vestur um haf, en ekki eftir því leiða-
kerfi að tengja heimsálfurnar saman.
„Leiðakerfið, sem er hjartað í okk-
ar rekstri, hefur gert okkur kleift að
bjóða öflugar tengingar til og frá Ís-
landi, yfir Atlantshafið og hér innan-
lands. Það hefur jafnframt verið for-
senda þess að byggja hér upp
ferðaþjónustu allan ársins hring en
þar vorum við í fararbroddi með fjár-
festingu í innviðum, nýsköpun og
uppbyggingu hótela um allt land.
Með þessu hefur Icelandair lagt mik-
ið af mörkum til íslensks samfélags
og efnahags,“ segir Bogi Nils.
„Við horfum bjartsýn til framtíðar.
Hér eftir sem hingað til sjáum við
mikil tækifæri í viðskiptamódeli okk-
ar og hlökkum til að halda merkjum
Íslands áfram á lofti um allan heim
næstu 85 árin.“ gislifreyr@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Flugrekstur Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir frumkvöðlaanda
starfsfólkis félagsins hafa einkennt félagið alla tíð.
Icelandair fagnar
85 ára afmæli
- Fagnað með starfsfólki og farþegum