Morgunblaðið - 03.06.2022, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 2022
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Jessenius Faculty of Medicine í
Martin Slóvakíu heldur netpróf í
læknisfræði (online) 9 júlí.
Umsóknarfrestur til 27 júní.
www.jfmed.uniba.sk/en
uppl. kaldasel@islandia.is
og 820 1071
University of Veterinary medicine
and Pharmacy.
Dýralæknaskólinn í Košice Slóvakíu
heldur inntökupróf á netinu (online).
23 júní. Umsóknarfrestur til 9 júní.
www.uvlf.sk/en Þeir sem hafa
lokið landbúnaðarháskólunum eiga
möguleika á að fá hluta af sínu námi
metið. Upplýsingar
kaldasel@islandia.is og 8201071
Mercedes Benz 519 CDi Kipper
4x4. Sk. 08.2021 til sölu. Ekinn 900
km. Sjálfskiptur. Sturtar á þrjá vegu.
Dráttarbeisli 3.5 ton. Vel útbúinn.
Uppl. 8201071
kaldasel@islandia.is
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Salavegur 2, Kópavogur, fnr. 224-9428 , þingl. eig. S12 Fasteig-
nafélag ehf, gerðarbeiðandi Skatturinn, þriðjudaginn 7. júní nk. kl.
10:00.
Sléttahraun 23, Hafnarfjörður, fnr. 207-8916 , þingl. eig. Gunnar
Ragnar Gunnarsson, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., þriðjudaginn
7. júní nk. kl. 10:30.
Vesturtún 49B, 90% ehl. gþ. Garðabær, fnr. 223-0695 , þingl. eig.
Rafn Guðmundsson, gerðarbeiðandi Skatturinn, þriðjudaginn 7.
júní nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
2 júní 2022
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14.45-15.30.
Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími. 411-2600.
Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 10 gönguhópur frá Jóns-
húsi, kl. 13-15 félagsvist í Jónshúsi, kl. 13-16 Smiðjan opin, allir vel-
komnir.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn-
unni. Leikfimihópur frá kl. 10-10.30. Hið vinsæla prjónakaffi frá kl. 10-
12. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Hið vinsæla prjónakaffi frá kl.
10-12. Allir velkomnir.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Handa-
vinna, opin vinnustofa frá kl. 10. Brids kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30–
12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Korpúlfar Borgum Pílukast í Borgum kl. 9.30. Gönguhópar frá Borg-
um og inni í Egilshöll kl. 10, tveir styrkleikaflokkar svo að allir finna
göngu við sitt hæfi. Brids kl. 12.30. Hannyrðahópur kl. 12.30. Góða
helgi. Gleðin býr í Borgum.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni, Föstudagshópur í
handverksstofu kl. 10.30-11.30. Opin handverksstofa kl. 12.30-14. Leik-
listarhópur (lokaður hópur) kl. 14.30-17 og síðan er vöfflukaffið á
sínum stað frá kl.14.30-15.30. Allar nánari upplýsingar í síma 411-
9450. Allir hjartanlega velkomnir til okkar :)
Seltjarnarnes Kaffikrókur í Skólabraut kl. 9. Á milli kl. 9.30 og 11.30 í
dag er opið hús og vöfflusala í Valhúsaskóla til styrktar flóttafólki frá
Úkraínu. Nemendur sýna afrakstur vetrarins og hvetja ykkur endilega
til að mæta. Síðasti skráningardagur í hvítasunnuferðina er í dag.
Skráning og upplýsingar í síma 8939800.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
fasteignir
✝
Einar Ottó Ein-
arsson fæddist á
Akranesi 14. apríl
1957. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Vesturlands á Akra-
nesi 21. maí 2022.
Foreldrar hans voru
hjónin Sigríður
Jónsdóttir, f. 6. apríl
1918, d. 20. febrúar
2018, og Einar Ottó
Jónsson, f. 27. októ-
ber 1913, d. 11. apríl 2002. Einar
var yngstur fimm systkina: 1)
Sævar, f. 16. desember 1937, d.
23. júní 2000. 2) Valdís, f. 2. mars
1942. 3) Guðbjörg, f. 23. febrúar
1944. 4) Jón Ármann, f. 27. júlí
1946.
Eftirlifandi eiginkona Einars
er Anna Guðfinna Barðadóttir, f.
24. september 1962. Þau giftu sig
3. nóvember 2018 eftir 25 ára
sambúð. Börn þeirra eru: 1) Berg-
lind Hrönn Einarsdóttir, f. 28.
október 1993, í sam-
búð með Daníel
Frey Jónssyni. Þau
eiga soninn Veigar
Orra, f. 2021. 2)
Katrín Eva Ein-
arsdóttir, f. 11. jan-
úar 2002. 3) And-
vana drengur, f.
2006.
Einar ólst upp á
Akranesi og bjó þar
með Önnu og dætr-
um þeirra, lengst af í Akurprýði
sem bræðurnir, Einar og Jón, og
pabbi þeirra byggðu. Einar var
menntaður vélvirki og vann við þá
iðn alla sína tíð, síðast hjá Meitli
GT Tækni á Grundartanga. Einar
var mikill bílaáhugamaður og átti
meðal annars Unimog sem hann
og Jón, bróðir hans, breyttu í hús-
bíl. Hann var mikill dýravinur og
var í hestamennsku í yfir tuttugu
ár. Útför Einars fer fram frá
Akraneskirkju 3. júní 2022 kl. 13.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svífi sorg mitt hjarta,
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Takk fyrir samfylgdina, elsku
vinur.
Hvíl í friði.
Þín
Anna.
Elsku pabbi minn er farinn frá
okkur allt of snemma, eftir erfið
veikindi. Það var svo margt sem
hann átti eftir að gera. Hann átti
eftir að ferðast til Bandaríkjanna,
eða Ameríku eins og hann sagði.
Hann átti eftir að eyða fleiri sum-
ardögum að bardúsa í garðinum
og hvíla sig svo í pottinum á sól-
ríku sumarkvöldi. Hann átti eftir
að fara í fleiri sólarferðir til Spán-
ar, þar sem hann og mamma gátu
flatmagað við sundlaugarbakkann
tímunum saman. En fyrst og
fremst átti hann eftir að eiga
fleiri góð ár með okkur fjölskyld-
unni og sérstaklega litla afa-
stráknum sínum.
Pabbi bar afatitilinn stoltur í
átta mánuði. Við munum sjá til
þess að hann fái að heyra sögur
af afa sínum og skoða myndir af
honum. Þeir hefðu verið svo góðir
saman. Sá stutti hlaupandi á eftir
afa sínum í stóra garðinum í Ak-
urprýði. Ég efast ekki um að allar
græjurnar hans pabba hefðu vak-
ið lukku hjá litlum manni. Við
minnumst tímans sem þeir fengu
saman með hlýju í hjarta.
Pabbi var ekki bara góður afi,
hann var góður í ansi mörgu og
hann var besti pabbi sem nokkur
getur óskað sér. Hann var svo
hlýr og ljúfur, vildi allt fyrir alla
gera og var fljótur að stökkva til
ef einhver þurfti aðstoð. Hann var
svokallaður „altmuligmand“ en
eins og orðið gefur til kynna var
ekkert sem pabbi gat ekki gert,
hvort sem það var að smíða pall
eða skipta um lagnir. Hann var
ótrúlega handlaginn og einstak-
lega nákvæmur og vandvirkur.
Hann var líka mesti snyrtipinni
sem ég hef kynnst. Hann eyddi
ekki miklum tíma í eldhúsinu en
það sem hann bakaði og eldaði
gerði hann fullkomlega. Vöfflu-
uppskriftin hans er sú allra besta,
ásamt kalda brauðréttinum,
brúnuðu kartöflunum og bollu-
dagsbollunum.
Pabbi var einn þolinmóðasti
maður sem ég hef kynnst. Hann
leyfði mér alltaf að taka þátt í því
sem hann var að gera. Á yngri ár-
um var ég alltaf velkomin með
honum í heimsóknir. Hann leyfði
mér að vera með sér í garðinum
og ég fékk að sitja aftan á fjór-
hjólinu. Hann hafði alltaf tíma
fyrir mig og ég er mjög þakklát
fyrir það. Það breyttist ekkert
þegar ég eltist. Hann gaf sér allt-
af góðan tíma til að koma í heim-
sókn til mín, stelast í Lindor-mol-
ana með einum kaffibolla og ef
mig vantaði aðstoð eða ráð var
hann snöggur að bregðast við því,
enda með eindæmum hjálpsamur.
Þegar ég kom í heimsókn í Ak-
urprýði eftir að ég flutti að heim-
an spurði pabbi alltaf þegar ég
var að fara heim hvort ég væri að
fara alveg strax, jafnvel þótt
klukkan væri að ganga tíu um
kvöld. Hann gaf sér alltaf tíma
fyrir fólkið sitt.
Elsku pabbi. Það er óbærilega
sárt að horfast í augu við þá stað-
reynd að þú sért farinn frá okkur.
Ég veit ekki hvern ég á að
hringja í til að fá ráðleggingar en
þú hafðir alltaf svör á reiðum
höndum. Ég mun sakna þess
meira en orð fá lýst og að hitta
þig ekki heima í Akurprýði. Ég
ylja mér við ljúfar minningar sem
við eigum saman á þessum erfiðu
tímum. Þú lifir áfram í hjörtum
okkar og verkum.
Takk fyrir allt, elsku pabbi
minn.
Þín dóttir,
Berglind Hrönn.
Elsku besti pabbi minn. Það er
ólýsanlega erfitt að sætta sig við
þá staðreynd að þú sért ekki
lengur með okkur. Þú kenndir
mér svo margt og það mætti
segja að þú hafir kennt mér allt
sem ég veit. Þú kenndir mér með-
al annars hvernig á að skipta um
dekk og að bóna bíl. Þú kenndir
mér á fjármál eftir þinni bestu
vitund og hvernig á að slá garðinn
okkar með fína sláttutraktornum
þínum sem þér þótti svo vænt
um. Þú kenndir mér að vera
snyrtipinni en það er eiginleiki
sem allir sem þekktu þig hefðu
verið sammála um.
Þú varst gull af manni enda
varstu alltaf reiðubúinn að hjálpa
og leiðbeina öllum. Við eigum
margar skemmtilegar og dýr-
mætar minningar en þær sem
standa einna helst upp úr eru all-
ar utanlandsferðirnar til Spánar
þar sem þú gast legið endalaust á
sundlaugarbakkanum í sólbaði,
ferðalögin í fellihýsinu þar sem
við fórum alltaf í sund og í fjall-
göngur, hjólaferðirnar, allir sól-
ardagarnir þar sem við lágum á
pallinum og létum sólina sleikja
okkur og allir ferðirnar til
Reykjavíkur þar sem við enduð-
um oft góða verslunarferð á Pizza
Hut. Ekki má gleyma hefðinni
okkar á Írskum dögum þar sem
er við létum okkur aldrei vanta á
sandkastalakeppnina og þegar að
við lentum í 2. sæti á Akranes-
mótinu í fjölskylduflokki í bad-
minton. Ég gæti talið upp heilan
helling af minningum en það sem
skiptir mestu máli er að þær eru
margar og mun ég ylja mér við
þær þar til minn tími kemur.
Þú hafðir alltaf mikinn áhuga á
lífi okkar systranna og spurðir oft
hvernig okkur hefði gengið í skól-
anum eða vinnunni. Þú varst allt-
af svo ánægður þegar við fengum
góðar einkunnir og yfirhöfuð þeg-
ar okkur gekk vel í lífinu og ég
mun halda áfram minni braut
með það að markmiði að gera þig
stoltan.
Takk fyrir að vera alltaf til
staðar fyrir mig og takk fyrir að
vera duglegur að hrósa mér þeg-
ar ég áorkaði einhverju því ég
hefði ekki getað það án þín. Takk
fyrir allt elsku pabbi, þín verður
sárt saknað.
Þín
Katrín.
Vinur okkar og vinnufélagi,
Einar Ottó Einarsson, er fallinn
frá, alltof fljótt, eftir illvíg veik-
indi.
Okkar kynni hófust er Einar
kom til starfa á vélaverkstæði á
Grundartanga, fyrst hjá Íslenska
járnblendifélaginu og síðar hjá
Meitli GT-tækni.
Við vinnufélagarnir minnumst
hans sem ljúfs og gamansams
manns sem ekkert aumt mátti
sjá.
Einar var mikill nákvæmnis-
maður, sérstaklega þrifinn og allt
varð að vera í röð og reglu. Við
fengum að vita af því ef eitthvað
vantaði upp á slíkt.
Öryggismálin voru honum hug-
leikin og gegndi hann trúnaðar-
störfum fyrir vinnufélagana sem
öryggistrúnaðarmaður.
Við samstarfsfélagarnir þökk-
um þér samfylgdina.
Vottum Önnu og fjölskyldunni
allri innilega samúð okkar.
Blessuð sé minning Einars
Ottós.
Hvíldu í friði vinur.
Björn (Bjössi J.)
Einar Ottó
Einarsson
Það er erfitt að
trúa þeirri stað-
reynd að þú, elsku
Elín Björg, sért
horfin okkur í þessu jarðlífi. Þrátt
fyrir erfiða baráttu við illvígan
sjúkdóm bar maður alltaf þá von í
brjósti að sigur væri hægt að
vinna, en staðreyndin var því mið-
ur önnur. Tengdadóttur okkar
kynntumst við Sigurbjörg Jóna
fyrst að einhverju marki þegar
stoltir foreldrar, Elín og Logi,
Elín Björg
Guðjónsdóttir
✝
Elín Björg
Guðjónsdóttir
fæddist 17. ágúst
1970. Hún lést 12.
maí 2022.
Útför Elínar
Bjargar fór fram
30. maí 2022.
komu norður til Ak-
ureyrar á aldamóta-
árinu með nokkurra
mánaða frumburð-
inn, Guðjón Ara, og
dvöldu þar með okk-
ur þegar ný öld hélt
innreið sína. Hvern
hefði grunað að sam-
skipti okkar við
elskulega Ellu yrðu
aðeins 22 ár.
Ella var ætíð
hrókur alls fagnaðar. Svo lifandi
og skemmtileg, og hver hreifst
ekki af hennar lifandi og dillandi
hlátri? Við Sigurbjörg Jóna áttum
margar ánægjustundir hér heima
og einnig úti á landi með fjöl-
skyldunni, m.a. í sumarbústað eða
í styttri ferðum austur fyrir fjall.
Það verður gott að ylja sér við
minningar um þær stundir.
Ekki er hægt að gleyma því
hversu frábær mamma hún var.
Hélt börnunum Guðjóni Ara og
Evu við námið án þess að beita
þar miklum þrýstingi. Þess þurfti
ekki, nærtækt að minnast þess að
Guðjón Ari varð dúx vorið sem
hann varð stúdent frá Verslunar-
skólanum. Mikið var Ella stolt af
syninum þann dag. Bæði Guðjón
Ari og Eva Björg hafa auk þess
gefið út bækur, er það ekki gott
dæmi um frábært atgervi þeirra?
Ella var einnig svo hlý og nær-
gætin þegar eitthvað bjátaði á,
engin læti, allt tekið af mikilli
skynsemi og yfirvegun, engin
vandamál svo stór að ekki væri
hægt að takast á við þau.
Ella var vinsæll grunnskóla-
kennari og íþróttakennari, það
geta samkennarar hennar vottað
og stór vinahópur víða um land.
Ella tók miklu ástfóstri við Ítalíu,
ferðaðist þangað með vinum og
samkennurum og þangað ætlaði
hún svo sannarlega oft að ferðast í
framtíðinni.
Við Sigurbjörg Jóna vorum
sannarlega lánsöm að eignast
svona góða, skynsama og elsku-
lega tengdadóttur, og þau sam-
skipti héldu áfram þótt þau Logi
slitu sambúð. Sambandið við
börnin rofnaði ekki, enda hafa þau
ætíð kallað okkur ömmu og afa,
og vonandi verður svo um alla
framtíð.
Við sendum ættingjum og vin-
um innilegar samúðarkveðjur,
góð og falleg kona er fallin frá allt
of snemma.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Geir Agnar
Guðsteinsson.
Ástkær pabbi, tengdapabbi og afi okkar,
GUÐMUNDUR BRYNJÓLFSSON
flugvirki, Garðatorgi 7,
lést á Landspítalanum í Fossvogi aðfaranótt
miðvikudagsins 25. maí.
Útför fer fram í Vídalínskirkju föstudaginn
3. júní klukkan 13.
Hjalti Guðmundsson Sigrún Ýr Svansdóttir
Brynhildur Guðmundsdóttir Örlygur Auðunsson
barnabörn