Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 2
Gunnhildur Sif Oddsdóttir
gunnhildursif@mbl.is
Tveggja daga fundur varnarmála-
ráðherra Norðurhópsins svonefnda
hófst í Reykjavík í gær. Ísland fer
með formennsku í hópnum um þess-
ar mundir en hann er vettvangur
fyrir reglubundið samráð líkt þenkj-
andi ríkja um öryggis- og varnar-
tengd málefni, að því er kemur fram
í tilkynningu.
Tólf ríki eiga aðild að Norður-
hópnum: Norðurlöndin, Eistland,
Lettland, Litáen, Þýskaland, Hol-
land, Pólland og Bretland.
Í tengslum við fundinn stóðu Al-
þjóðamálastofnun Háskóla Íslands,
Varðberg, utanríkisráðuneytið og
sendiráð Bretlands á Íslandi að mál-
stofu um varnar- og öryggismál á
Hilton í gær. Þar var Ben Wallace,
varnarmálaráðherra Bretlands,
aðalræðumaður.
„Við verðum að hjálpa og styðja
við Úkraínu í sumar,“ sagði Wallace
á fundinum sem fjallaði um blikur á
lofti í Evrópu í dag. Á fundinum fór
Wallace yfir næstu skref í tengslum
við stuðning við Úkraínu.
„Við verðum að sjá til þess að
Úkraína komist í gegnum sumarið.
Við verðum að sjá til þess að Úkra-
ínumenn hafi sterka samningsstöðu
en séu ekki í stöðu þar sem byssu sé
miðað að höfði þeirra,“ sagði Wal-
lace.
Varnir með Dönum
Varnarmálaráðherrarnir áttu
vinnufund í Hörpu í gærkvöldi. Við
það tækfæri undirrituðu ráðherrar
Íslands og Danmerkur, Þórdís Kol-
brún R. Gylfadóttir og Morten Bods-
kov, samning um varnarsamstarf
landanna.
Morgunblaðið/Hákon
Móttaka Þórdís Kolbrún smellir kossi á kinn Bens Wallace, varnarmálaráðherra Breta, í Hörpu í gærkvöldi.
„Verðum að styðja
við Úkraínu í sumar“
- Varnarmálaráðherrar Norðurhópsins funda í Reykjavík
Varnir Varnarmálaráðherrar Dan-
merkur og Íslands rita undir samn-
ing um varnarsamstarf.
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022
TENERIFE
FJÖLSKYLDAN SAMAN Í SÓL
27. JÚNÍ - 05. JÚLÍ
HG TENERIFE SUR 3*
ÍBÚÐ MEÐ 1 SVEFNHERBERGI
VERÐ FRÁ84.500 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 108.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
27. JÚNÍ - 05. JÚLÍ
ADRIAN ROCA NIVARIA 5*
JUNIOR SVÍTA MEÐ HÁLFU FÆÐI
VERÐ FRÁ164.900 KR
Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 182.500 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR. BÓKAÐU ÞITT SÆTI Á UU.IS
V
IN
S
Æ
LT
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Mikael Mikaelsson, umsjónarmaður
með samevrópsku samstarfi á sviði
loftslagsmála fyrir alþjóðlega vísinda-
og nýsköpunardeild breskra stjórn-
valda, hefur hlotið orðuna og nafn-
bótina MBE af hendi bresku krún-
unnar. „Member of the Most
Excellent Order of the British Emp-
ire“ eins og hún kallast í fullri lengd
og er þriðja æðsta viðurkenning sem
breska krúnan veitir á eftir nafnbót-
unum CBE og OBE, þó að undan-
skildum öðlunum drottningar.
„Þetta er ein þessara konunglegu
orða sem veittar eru tvisvar á ári, á
nýársdag og afmæli drottning-
arinnar,“ segir Mikael í samtali við
Morgunblaðið en hann starfar í
breska sendiráðinu í sænsku höfuð-
borginni Stokkhólmi.
Verkefni æ alþjóðlegri
„Þessi vísinda- og nýsköpunardeild
bresku ríkisstjórnarinnar, sem ég
starfa við, tilheyrir tveimur ráðu-
neytum, utanríkisráðuneytinu annars
vegar og hins vegar viðskipta-, orku-
og iðnaðarráðuneytinu,“ útskýrir
orðuhafinn nýbakaði, „undanfarin ár
hef ég leitt þetta alþjóðlega samstarf
okkar á sviði vísinda, tækni og ný-
sköpunar og þess sem kallast „net-
zero transition“ [færsla til kolefnis-
hlutleysis], verkefni mín hafa svo orð-
ið æ alþjóðlegri síðustu ár,“ heldur
Mikael áfram sem sjálfur er reyndar
býsna alþjóðlegur.
„Ég er með íslenskan og sænskan
ríkisborgararétt, faðir minn er kín-
verskur en ég er fæddur og uppalinn
á Íslandi og á íslenska móður,“ út-
skýrir Mikael sem í grunninn er
taugalífeðlisfræðingur og hóf há-
skólanám sitt í sálfræði á Íslandi þar
sem hann bjó til 25 ára aldurs. „En
undanfarin sjö-átta ár hef ég verið að
sérhæfa mig á sviði orku-, umhverfis-
og loftslagsmála, tekið fjölda nám-
skeiða á því sviði og mér er veitt þessi
orða nú fyrir aðkomu mína að al-
þjóðlegu samstarfi á vettvangi lofts-
lagsmála. Mér þykir þessi málaflokk-
ur ákaflega brýnn, hef mikinn áhuga
á honum og hef því einbeitt mér æ
meira að loftslagsmálum síðustu ár,“
segir orðuhafinn.
– Hvaða þýðingu skyldi þessi virta
breska orða hafa fyrir vísindamann
svo margra og ólíkra greina?
„Þetta er auðvitað mjög mikill
heiður og ég var hreinlega orðlaus
þegar ég frétti af þessu. Eins hef ég
notið þess að fá að starfa með einu
fremsta vísindafólki heims á sviði
orkumála og loftslagsvísinda, vinna
markvisst að aðgerðaáætlunum til að
draga úr koltvísýringslosun, og fjöl-
margt samstarfsfólk mitt hefði klár-
lega verðskuldað þessa orðu meira en
ég,“ svarar Mikael og bætir því við af
hógværð að hann hafi í raun bara ver-
ið svo heppinn að fá að starfa með
fólki sem hafi haft mætur á framlagi
hans á sviði loftslagsmála.
„Ég var hrein-
lega orðlaus“
- Íslendingur fær bresku MBE-orðuna
Orðuhafi Mikael Mikaelsson fær
MBE-orðu frá bresku krúnunni.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
var kallað út í gærkvöldi vegna
eldsvoða í húsi á milli Lambhaga
og verslunarinnar Bauhaus. Varð-
stjóri hjá slökkviliðinu sagði
skömmu eftir útkall að líklega
væri um yfirgefið hús að ræða en
síðar kom í ljós að Fisfélag
Reykjavíkur hefur notað hluta
hússins sem geymslu. Húsið var
mannlaust þegar eldurinn kom
upp og engan sakaði. Upptök elds-
ins eru í rannsókn.
Allt tiltækt lið slökkviliðsins,
frá þremur stöðvum, var kallað
út, en í fyrstu var talið að um
sinubruna væri að ræða. Mikinn
reyk lagði frá húsinu, sem sást
vel úr Grafarholti, Grafarvogi og
víðar.
Slökkviliðsmönnum tókst fljót-
lega að ráða niðurlögum eldsins,
eftir að á vettvang var komið.
Þakplötur voru rifnar af til að
komast að glæðunum. Húsið er
mikið skemmt, ef ekki ónýtt.
Morgunblaðið/Ari Páll Karlsson
Bruni Slökkviliðsmenn á þaki hússins skammt frá Lambhaga að kæfa eldinn.
Eldur í mannlausu
húsi í Úlfarsárdal
- Allt tiltækt slökkvilið kallað út