Morgunblaðið - 08.06.2022, Side 6

Morgunblaðið - 08.06.2022, Side 6
Ljósmynd/Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir Stóra-Mörk Grasið var vel sprottið og gott útlit með heyfeng. Túnin eru slegin þrisvar yfir sumarið. Á bak við dráttarvélina sér heim að bænum. Þar eru sex íbúðarhús og margbýlt eins og víðar á bæjum undir Eyjafjöllum. Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Við slógum fyrst 29. maí og ég held að einhverjir í Fljótshlíð og Land- eyjum hafi líka byrjað snemma. Nú erum við að byrja aftur að slá og halda áfram heyskapnum,“ segir Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir, bóndi á Stóru-Mörk III undir Eyjafjöllum. Hún segir að þau í Stóru-Mörk hafi áður slegið í maí en sláttur þar hófst nú 20 dögum fyrr en í fyrra, svo dæmi sé tekið. Það var því með fyrra fallinu sem heyannir hófust þetta árið undir Eyjafjöllum. „Þetta lítur rosalega vel út. Það hefur verið mjög hlýtt og gott veður og ekkert hægt að kvarta yfir því. Það mætti ef til vill vera meiri þurrkspá, en það verður bara að hafa það,“ segir Aðalbjörg. Þau í Stóru-Mörk eru með 130 mjólkandi kýr, um 200 aðra nautgripi og einnig 270 vetrarfóðraðar kindur. „Við heyjum öll túnin þrisvar í kýrnar. Við stílum inn á að ná öfl- ugum fyrsta slætti til að næringar- innihald heysins sé gott og reynum að vera með sem best hey. Þannig getum við sparað fóðurbæti sem er orðinn dýr. Það er mikilvægt að hafa kröftugt fóður. Okkur finnst gott gras vera besta uppskriftin í kýrn- ar,“ segir Aðalheiður. Góð tíð og góð spretta í vor „Heyskaparhorfur eru bara góð- ar. Tíðin hefur verið mjög góð og sprettan góð,“ segir Guðmundur Jó- hannesson, ráðunautur hjá Ráðgjaf- armiðstöð landbúnaðarins (RML) á Selfossi. Hann segir að sláttur sé hafinn á nokkrum bæjum undir Eyjafjöllum og á Vesturlandi, bæði í Hvalfjarðarsveit og að minnsta kosti á Jörfa í Kolbeinsstaðahreppi. Skessuhorn.is greindi frá því að sláttur hefði byrjað á Eystra- Miðfelli og Belgsholti í Hvalfjarðar- sveit laugardaginn 4. júní. Víðar á Vesturlandi væri vel sprottið á frið- uðum túnum miðað við árstíma. Guðmundur segir þetta vera með fyrra fallinu því venjulega hafa menn byrjað almennt að heyja um miðjan júní. „Ef viðrar vel og það verður þurrkur reikna ég með að menn fari af stað af fullum krafti næstu daga,“ segir Guðmundur. Sláttur er hafinn og horfur þykja góðar - Tún í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum voru slegin 29. maí 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 Hanskar á lager! Stærðir: • S • M • L • XL Verð kr. 1.477 100 stk í pakka. Kemi | Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is Fjarskiptafyrirtækin eru smátt og smátt að taka út koparlínur fyrir heimasíma landsmanna og færa þá yfir á netið, gegnum svonefnd Voice over IP-kerfi, VoIP. Samskiptastjóri Símans, Guðmundur Jóhannsson, segir að þessari vinnu eigi að vera að fullu lokið fyrir árslok 2023. Áform voru uppi um að taka kerfið út fyrr og að einhverju leyti má rekja það til veirufaraldursins, að sögn Guðmundar. „Við byrjuðum á þeim símstöðvum þar sem fæstir notendur eru og smám saman höfum við verið að fara á stærri stöðvar og þá tekur þetta lengri tíma,“ segir hann og bætir við að auk þess þurfi að upplýsa alla not- endur um fyrirhugaðar framkvæmd- ir. Þá komi upp „jaðartilvik“ sem þurfi að leysa sérstaklega. Að sögn Guðmundar þurfa sím- notendur ekki að aðhafast mikið til að færa sig á milli kerfa og geti notað sömu símtæki áfram. „Við erum bara að leggja niður gamla PSTN-kerfið, sem er búið að þjóna okkur í tugi ára, og erum að taka í notkun nýjustu kynslóð tal- símakerfa sem notar VoIP-kerfið, þannig að símtalið flyst yfir netið en ekki gamla koparkerfið. Eina sem fólk þarf að gera er að láta tengja heimasímann í netbeini, eða router,“ segir hann. Hins vegar þurfa notendur sem búa á svæðum þar sem netsamband er stopult, eða ekki fyrir hendi, að fá lausn sinna mála á annan hátt. „Það eru jaðartilvik, þar sem við- komandi býr á svæði þar sem ekki er netsamband eða slæmt samband. Þá er það leyst með öðrum leiðum. Sett var alþjónustukvöð á Neyðarlínuna, þannig að í jaðartilvikum þar sem er ekkert burðarnet að taka við nýja talsímakerfinu, þá stígur Neyðarlín- an inn og setur upp búnað svo að hægt sé að halda sambandinu inni,“ segir Guðmundur. Gamla símkerfinu lokað á næsta ári - Fastlínusímar munu fara alfarið í gegnum netið Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Fastlínan Skífusímar eru nær horfnir og koparlína á sömu leið. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Skógar landsins komu almennt vel undan vetri, að sögn Þrastar Ey- steinssonar skógræktarstjóra. Hann segir nálaskemmdir, það er nálakal, á furu talsvert áberandi á Vestur- landi og Norðurlandi. Þetta er yfir- leitt afleiðing af saltákomu eftir vestanstorma vetrarins. Nokkr- ir slíkir komu í vetur. Saltið eyðir vaxhúð nál- anna svo þær verða óvarðar og þorna upp. „Það er ótrú- legt hvað furan nær sér alltaf eft- ir þetta. Hún getur verið forljót en svo koma nýju sprotarnir út og þá nær hún sér,“ segir Þröstur. Stafa- furan sem er aðallega notuð hér og aðrar furutegundir líka virðast vera viðkvæmari fyrir þessu en greni- trén. Hann segir að fleiri hvassviðri virðist vera ein helsta afleiðing hnattrænnar hlýnunar hér á landi. Eitthvað var um snjóbrot en ekki jafn mikið og fyrir þremur árum. Ekkert kal var að ráði í trjám á liðnu hausti og engar skemmdir í vor. „Það voraði óvenju áfallalítið og komu engin alvarleg hret eftir að það hlýnaði,“ segir Þröstur. Áætlað er að um sex milljónir trjáplantna verði gróðursettar í sumar. Það er einni milljón fleira en var í fyrra. „Við erum þá komin aftur upp í það sem var fyrir hrun og þetta stefnir bara upp á við. Það er mikið að gera og gróðursetning alveg á fullu núna og gengur vel eftir því sem ég heyri,“ segir Þröstur. Stöðvar sem framleiða trjá- plöntur eru fullnýttar. Ekki er þó beinlínis skortur á trjáplöntum. Ástandið er í lagi hjá smærri gróðr- arstöðvum sem aðallega selja á einkamarkaði. Tvær stórar gróðrar- stöðvar sem framleiða aðallega fyrir stærri verkefni, eins og t.d. hjá Skógræktinni, Kolviði, bændaskóg- rækt og Landgræðsluskógum, eru fullnýttar. Þær eru að auka fram- leiðslugetu sína til að mæta vaxandi þörf fyrir plöntur. Mest plantað af íslensku birki Áfram verður mest gróðursett af íslensku birki. Síðan koma tegundir eins og stafafura, sitkagreni, rússa- lerki og alaskaösp. Mest er verið að bæta plöntum við á eldri skógræktarsvæðum eins og Hekluskógasvæðinu, í Þorláks- skógum, Hólasandi og á fleiri svæð- um sem talsvert er eftir að gróður- setja í. Nokkuð margir nýir samningar hafa verið gerðir við skógarbændur í sveitum landsins. Þar eru að bætast við ný svæði eins og t.d. í Dölunum og í Húnavatns- sýslum. Á þeim tveimur svæðum er hlutfallslega meiri aukning en ann- ars staðar, að sögn Þrastar. Sjávarútvegsfyrirtæki og fleiri fyrirtæki hafa eignast jarðir og eru að fara í skógrækt á eigin vegum til að jafna kolefnisspor sitt. Morgunblaðið/Jim Smart Stafafura Hún vex víða og er falleg þegar árssprotarnir þroskast. Skógarnir komu vel undan vetri Þröstur Eysteinsson - Sex milljón trjám plantað á þessu ári

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.