Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022
DAGMÁL
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Nýi meirihlutinn í borginni á að
standa sterkur þegar horft er til
borgarstjórnarflokkanna sem að
honum standa. Veik málefnastaða í
samstarfssáttmála kann hins vegar
að reynast honum erfið, að sögn við-
mælenda Dagmála.
Nýr meirihluti í borgarstjórn
Reykjavíkur var kynntur til sög-
unnar á mánudag, þó tæplega kæmi
sú tilkynning mörgum á óvart eftir
það sem á undan var gengið. Í gær
var svo fyrsti fundur nýrrar borgar-
stjórnar haldinn í Ráðhúsinu, þar
sem flokkarnir stilltu upp liði sínu,
en nýi meirihlutinn kynnti auk þess
breytingar á tilhögun og verkaskipt-
ingu ráða og nefnda.
Þeir Stefán Pálsson sagnfræð-
ingur og Þórður Gunnarsson hag-
fræðingur buðu sig báðir fram til
borgarstjórnar í vor en án árangurs,
Stefán fyrir Vinstri græn og Þórður
fyrir Sjálfstæðisflokk. Þeir eru gest-
ir dagsins í Dagmálum, streymi
Morgunblaðsins á netinu, sem opið
er öllum áskrifendum.
Illa til stofnað
Þeir félagar voru ekki hrifnir af
nýja meirihlutanum, á eilítið mis-
munandi forsendum þó. Þórður telur
ekki vel til hans stofnað og gagn-
rýnir þá útilokunarmenningu og
klækjastjórnmál, sem notuð hafi ver-
ið til þess að ná fram þeim meirihluta
sem hinum gamla, fallna meirihluta
hentaði til þess að halda völdum.
Stefán tekur undir það, þó að Vinstri
græn hafi ákveðið að eigin frum-
kvæði að halda sér til hlés í meiri-
hlutaviðræðum. Hann játar að til
greina hafi komið að Vinstri græn
kæmu að þeim meirihluta, sem nú
var myndaður „og þá sem annað
varadekk og það var ekkert spenn-
andi við þá tilhugsun,“ segir Stefán
og minnir á að fyrir flokk eins og
Vinstri græn sé ekki afleitt að vera í
minnihluta. „Miðað við það sem mað-
ur sér af þessum sáttmála meirihlut-
ans eru mikil tækifæri til þess að
berja á honum frá vinstri.“
Þórður segir að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi viljað svara augljósu ákalli
kjósenda um breytingar, en það hafi
ekki gengið eftir, sér í lagi vegna af-
stöðu Viðreisnar, sem hafi skipt um
skoðun 3-4 sinnum á dag.
„Eftir á að hyggja með hliðsjón af
því hvernig Viðreisn keyrði sína
kosningabaráttu, þá átti ekki að
koma á óvart hvernig spilaðist úr
þessum viðræðum. Oddviti Við-
reisnar minntist ekki á Viðreisn í
kosningabaráttunni, hún var bara í
framboði fyrir meirihlutann.“
Vinaklíka
Stefán tekur undir það og segir að
það hafi verið vandamál fyrir flokka
gamla meirihlutans að þeir hafi stað-
ið svo þétt saman út á við að kjós-
endur hafi átt í erfiðleikum með að
greina þá að í kjörklefanum.
„Menn komu meira fram eins og
klíka eða vinahópur frekar en banda-
lag nokkurra flokka. Mér finnst
þetta ekki endilega pólitískt hollt.“
Stefán og Þórður eru á einu máli
um að Dagur B. Eggertsson borg-
arstjóri standi upp sem sigurvegari
þrátt fyrir fylgistap. Þar skipti
reynsla hans öllu máli, ekki síst
þegar hann þyrfti að fást við ný-
græðing í stjórnmálum eins og Ein-
ar óneitanlega væri.
Fádæma kosningasigur Einars
Þorsteinssonar og Framsóknar var
ræddur talsvert, en hann boðaði
miklar breytingar sem óvíst er að
kjósendum hans finnist felast í
meirihluta undir forystu Dags.
Stefán bendir á annað, sem er að
Einar hafi í kosningabaráttu sinni
talað mjög ákveðið um ýmsa hluti
og fest tölu á þeim, svo sem um
fjölda íbúðabygginga á ári. Þess
sjái ekki stað í meirihlutasáttmál-
anum, sem sé þvert á móti fremur
óljós um allt slíkt.
Þórður hendir það á lofti að í
sáttmálanum standi berum orðum
að aðalskipulag til 2040 skuli vera
leiðarljósið um íbúðauppbyggingu,
en samkvæmt því eigi aðeins 1.000
íbúðir að rísa í borginni á ári að
meðaltali og allir séu sammála um
að það sé ekki nóg. „Ég skil ekki í
Framsókn að hafa ekki nýtt samn-
ingsstöðu sína betur.“
Sterkur meirihluti með veik mál
- Erfitt fyrir Einar að boða breytingar með Dag í borgarstjórastóli - Ósannfærandi málefnasáttmáli
- Gömul og frágengin mál kynnt sem ný - Húsnæðismálin óleyst - Tækifæri til gagnrýni frá vinstri
Morgunblaðið/Ágúst Óliver
Dagmál Þórður Gunnarsson hagfræðingur og Stefán Pálsson sagnfræðingur eru gestir dagsins í Dagmálum.
Fyrir fjölskylduna
• Frítt í garðinn fyrir félagsmenn
• 1.250 krónur í öll tæki
• 200 fyrstu gestirnir fá flotta gjöf
• Töframaðurinn Einar Aron skemmtir
• Pylsur og gos fyrir svanga
Hlökkum til að sjá ykkur
SÁÁ býður í Fjölskyldugarðinn
8. júní kl. 17-20