Morgunblaðið - 08.06.2022, Side 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022
Glaðningur fyrir tvo, Rómantík á flottu hóteli, Dekurstund,
Gourmet á glæsilegum veitingastað, Bröns fyrir tvo
og Kósý kvöld eru meðal vinsælla Óskaskrína.
Gefðu upplifun í öskju.
Fæst í Pennanum Eymundsson, Hagkaup og á oskaskrin.is.
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
ÓSKASKRÍN
GEFUR SVOMARGT
Enn greinast á bilinu 100-150
covid-smit daglega hér innanlands.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
segir í samtali við Morgunblaðið að
stór hluti þeirra sem greinast sé
ferðamenn. Koma smitin oftast í
ljós er þeir þurfa að ná í vottorð til
að fara úr landi, fara í sýnatöku og
greinast þá jákvæðir.
Þórólfur segir fjölda innanlands-
smita hins vegar ekki mikinn.
„Þetta er búið að vera svona mjög
lengi, svo fer þetta niður kannski í
50-60 smit, sérstaklega um helgar
þegar við höfum tekið færri sýni,
og svo fer þetta aftur upp,“ segir
hann og bætir við að það séu fáir
sem veikjast alvarlega vegna fjölda
bólusetninga.
„Það eru mjög fáir alvarlega
veikir, það eru til dæmis bara tveir
inniliggjandi á Landspítalanum
með covid,“ sagði Þórólfur enn
fremur.
Fjöldi Covid-19 smita frá 1. maí
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2.
maí júní
Heimild: covid.is
Staðfest smit 7 daga hlaupandi meðaltal
162
191
38
175
150
125
100
75
50
25
0
Fleiri covid-smit
vegna ferðamanna
- Fjöldi innanlandssmita ekki mikil
Steinþór Stefánsson
steinthors@mbl.is
„Það er ofboðslega mikilvægt að
upplýsingar til fólks um heilbrigð-
isþjónustu séu ábyggilegar og
öruggar og að fólk fari á réttan
stað. Þetta er mjög mikilvægur
punktur í kerfinu, að fólk sé ekki að
fara á rangan stað og valda þannig
aukakostnaði fyrir það sjálft sem og
fyrir samfélagið. Þess vegna er lagt
töluvert upp úr svona upplýsingum
og það er það sem við erum að
reyna að gera og höfum að stefnu
hjá okkur,“ segir Óskar Reykdals-
son, forstjóri Heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins, í samtali við
Morgunblaðið um flutning síma-
ráðgjafar hjá Læknavaktinni til
Heilsugæslunnar.
Öllum boðið starf
Hann segir að með þessum um-
mælum sé hann ekki að segja að
starfsemi Læknavaktarinnar hafi
ekki verið í lagi heldur sé um að
ræða þróunarmál. Flutningur starf-
seminnar sé til samræmingar og
einföldunar fyrir landann og að
hugmyndin með þessum flutningum
sé betri þjónusta. Aðspurður segir
Óskar að hjúkrunarfræðingar á
Læknavaktinni muni fá vinnu hjá
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins
ef þeir vilja.
„Við erum að leita okkur að
hjúkrunarfræðingum eins og aðrir
og erum að fara yfir það hvernig
það gengur upp. En öllum þessum
hjúkrunarfræðingum er að sjálf-
sögðu boðið starf. Þetta er allt sam-
an mikilvægt fólk með verðmæta
þekkingu sem gæti nýst okkur, eng-
in spurning,“ segir hann.
Flutningur sé til samræmingar
- Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir hjúkrunarfræðinga á Læknavaktinni geta fengið
vinnu á heilsugæslustöðvum ef þeir vilji - Verið sé að einfalda upplýsingaþjónustu til almennings
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Læknavaktin Öllum hjúkrunarfræðingum þar hefur verið sagt upp.
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid hófu í gær
tveggja daga opinbera heimsókn til Vestfjarða og höfðu gert
víðreist strax á fyrri degi er falast var eftir tíðindum af þeim
síðdegis. Hjónunum var vel tekið í hvívetna, heimsóttu þau leik-
skólabörn og tóku lagið með þeim en jafnframt eldri borgara,
þar á meðal Karl Sigurðsson, elsta karlmann landsins, 104 ára
gamlan, sem kvaðst ætla sér minnst tvö ár í viðbót hérheims og
ku að auki aðhyllast knattspyrnuliðið Derby County. Enn frem-
ur var blásið til samkomu í Edinborgarhúsinu á Ísafirði í gær
með ræðuhöldum og fleiru og afhenti Guðni ljósmynd að gjöf
frá heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar, forverans á Bessa-
stöðum, vestur á firði. Þá heimsóttu hjónin nokkur fyrirtæki og
stofnanir, meðal annars Heilbrigðisstofnun Vestfjarða þar sem
stjórnendur sem vistmenn voru teknir tali, auk þess að kynna
sér nýsköpun vestur á fjörðum.
Deginum í gær lauk svo með skólaslitum Grunnskólans á Ísa-
firði en í dag er förinni heitið til Þingeyrar og Suðureyrar með
ekki minni dagskrá en fyrri daginn.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Aldursforsetinn Forsetahjónin á tali við elsta karlmann landsins, Karl Sigurðsson á Ísafirði, 104 ára. Heilbrigðismálin krufin Með stjórnendum Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða.
Forsetahjónin heimsóttu elsta karlmann landsins