Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 11
FRÉTTIR 11Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
Vesti • Kjólar Peysur
Bolir • Jakkar • Blússur
Buxur • Pils
SUMAR-
VÖRUR
Vinsælu velúrgallarnir
Nýjir litir - Stærðir S-4XL
Einnig stakar velúrbuxur
í svörtu, gráu og dökkbláu
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Harðir götubardagar geisa enn í
Severodonetsk, einu síðasta vígi
Úkraínumanna í Lúhansk-héraði, en
Rússar sögðust í gær hafa náð valdi
yfir öllum íbúðahverfum borgarinn-
ar. Hafa Úkraínumenn hins vegar
tekið sér vígstöðu í iðnaðarhverfi
hennar og næstu úthverfum að sögn
Sergei Sjoígu, varnarmálaráðherra
Rússlands, en þar á meðal er ná-
grannaborgin Lísítsjansk.
Volodimír Selenskí, forseti Úkra-
ínu, sagði hins vegar í fyrrakvöld að
varnarlið borgarinnar væri enn að
berjast, þrátt fyrir að þeir ættu við of-
urefli liðs að etja. Væru Rússar þó
enn að senda herlið til þess að freista
þess að hertaka borgina alla. Misvís-
andi fregnir bárust yfir hvítasunnu-
helgina um stöðuna, og sögðust báðar
fylkingar hafa sótt fram í borginni.
Denis Púsjilín, leiðtogi aðskilnaðar-
sinna í Donetsk-héraði, staðfesti í
gær að Roman Kutusov, undirhers-
höfðingi Rússa, hefði fallið um
helgina í orrustu, en Púsjilín sendi þá
fjölskyldu hans og vinum samúðar-
kveðjur sínar og sagði að Kutusov
hefði sýnt „í verki hvernig eigi að
þjóna föðurlandi sínu“.
Hafa Rússar nú misst á bilinu 9-14
hershöfðingja í Úkraínu frá því að
innrásin hófst. Hafa rússnesk stjórn-
völd enn ekki viðurkennt að Kutusov
sé fallinn.
Minni á orrustur fyrra stríðs
Orrustan um Donbass-héruðin er
nú farin að minna á skotgrafahernað
fyrri heimsstyrjaldar að sögn Justins
Crumps, framkvæmdastjóra hug-
veitunnar Sibylline, en hann sagði við
breska ríkisútvarpið BBC í gær að
varnaraðilinn virtist hafa yfirhöndina
hverju sinni í bardögunum í héraðinu.
Crump sagði að hann teldi að
Rússar hefðu vindinn ögn meira í
bakið en Úkraínumenn, en að ávinn-
ingum þeirra fylgdi mikið mannfall.
Þá þyrftu þeir að hertaka Donbass-
héruðin í heild sinni til þess að geta
lýst yfir sigri. Sagðist Crump eiga
von á að ef það næðist myndu Rússar
næst reyna að hertaka Saporisjía-
borg, en þeir ráða yfir megninu af
héraðinu sem borgin tilheyrir. Þá yrði
að gera ráð fyrir að þeir myndu aftur
reyna að hertaka Karkív, sem og
Ódessu, en að ekkert væri víst í hern-
aði.
Crump sagði jafnframt að frá
sjónarhóli Úkraínumanna væru þau
vopn sem vesturveldin ætla að senda
engar töfralausnir, þar sem úrslit orr-
ustunnar yltu ekki lengur á því hver
ætti nákvæmari vopn. Vísaði Crump
þar meðal annars til meðaldrægra
eldflaugakerfa, sem bæði Bandaríkja-
menn og Bretar ætla sér að senda til
Úkraínu, en þeim er ætlað að hjálpa
Úkraínumönnum að þagga niður í
eldflaugakerfum Rússa.
Þá sagði Crump að hvorki Rússar
nú Úkraínumenn gætu sætt sig við
víglínuna eins og hún lægi nú, og
væru því líkur á að skotgrafahernað-
urinn myndi vara nokkuð enn.
Spurning um viljastyrk
Hernaðarsagnfræðingurinn Ro-
bert W. Kagan líkti orrustunni um
Donbass einnig við orrustur fyrri
heimsstyrjaldar, en hann ritaði í tíma-
ritið Time í gær að orrustan snerist
nú að mestu leyti um það hvort Rúss-
ar eða Úkraínumenn hefðu meiri
viljastyrk.
Lýsti Kagan hertækni Rússa á
þann veg að þeir beittu nú stórskota-
liði til að eyða öllu í vegi sínum, svo að
rússneskir fótgönguliðar, sem hefðu
glatað miklu af bardagaanda sínum,
gætu gengið nánast óáreittir í það
sem eftir stæði.
Varaði Kagan við endurteknum
köllum eftir vopnahléi á Vesturlönd-
um, eða að fólk léti glepjast af meintri
„velgengni“ Rússa í orrustunni um
Severodonetsk, sem væri hilling ein.
„Áhlaup Rússa í Lúhansk er örvænt-
ingarfullt veðmál einræðisherra, sem
hefur sett það síðasta sem hann á í
sóknarkrafti til að brjóta vilja óvina
sinna til að halda stríðinu áfram,“
sagði Kagan.
Benti hann á að fall Severodonetsk
opnaði ekki nýjar leiðir fyrir Rússa til
að sækja fram, og sagði hann að ef
Úkraínumenn gætu staðið af sér
storminn ættu þeir enn góða mögu-
leika á að standa uppi sem sigurveg-
arar í stríðinu.
Veiti Rússum óþarft lögmæti
Stjórnvöld í Kænugarði mótmæltu
í gær ákvörðun Alþjóðakjarnorku-
málastofnunarinnar IAEA að senda
teymi til kjarnorkuversins í Sapor-
isjía, sem er hið stærsta í Evrópu, en
það er nú á valdi Rússa.
Rafael Grossi, framkvæmdastjóri
IAEA, sagði á Twitter-síðu sinni að
ferðin væri í bígerð og að Úkraínu-
menn hefðu beðið um hana. Energo-
atom, kjarnorkumálastofnun Úkra-
ínu, mótmælti því hins vegar og sagði
að ekki yrði hægt að heimsækja verið
fyrr en Úkraínumenn hefðu aftur náð
því á sitt vald.
Sagði í tilkynningu stofnunarinnar
að hún teldi að yfirlýsing IAEA færði
rússneska hernámsliðinu „lögmæti og
samþykki fyrir gjörðum þeirra,“ en
Rússar hafa hótað því að skera á raf-
magn frá verinu til Úkraínu nema
stjórnvöld í Kænugarði borgi Rússum
fyrir framleiðslu þess.
Verið framleiddi fyrir innrásina um
fimmtung af allri raforku Úkraínu-
manna, og um helming af þeirri orku
sem kjarnorkuver landsins framleiða.
Vilja kyrrsetja einkaþotur
Bandaríska dómsmálaráðuneytið
tilkynnti í gær að það vildi leggja hald
á tvær flugvélar í eigu rússneska ólíg-
arkans Rómans Abramovits, fyrrver-
andi eiganda knattspyrnufélagsins
Chelsea, en þeim var flogið til Rúss-
lands fyrr á árinu þrátt fyrir að refsi-
aðgerðir Bandaríkjanna legðu bann
við því.
Andrew Adams, yfirmaður stýri-
hóps ráðuneytisins um aðgerðir gegn
rússnesku ólígörkunum, sagði að von-
in væri sú að aðgerðin gegn Abramo-
vits myndi hvetja til þess að ólígark-
arnir myndu fjarlægjast stjórnvöld í
Kreml.
Hvorug vélin er nú innan seilingar
bandarískra stjórnvalda, þar sem
önnur vélin er talin vera enn í Rúss-
landi, en hin er sögð vera mögulega í
Dúbaí. Engu að síður sagði Adams að
ráðuneytið myndi fylgjast grannt
með ferðum vélanna, og leggja hald á
þær ef kostur gæfist á.
Þá fyrirskipaði hæstiréttur Fiji-
eyja að snekkjan Amadea, sem er í
eigu rússneska milljarðamæringsins
og stjórnmálamannsins Suleimans
Kerimovs, yrði afhent bandarískum
yfirvöldum, en hún hefur verið kyrr-
sett á eyjunum frá í apríl.
Eyjarnar hafa hins vegar þurft að
greiða rekstrarkostnað snekkjunnar,
sem er umtalsverður, og sagði í niður-
stöðu hæstaréttar að haldlagning
snekkjunnar hefði kostað ríkisstjórn-
ina fúlgur fjár. Bandarísk stjórnvöld
hafa heitið því að greiða Fiji-eyjum
kostnaðinn til baka.
AFP/Aris Messinis
Stórskotahríð Eldflaugavagn á vegum Úkraínuhers skýtur á vígi Rússa í Donbass-héruðunum.
Enn harðir götubardagar
- Enn einn hershöfðingi Rússa sagður fallinn - Orrustan um Donbass minni mest á orrustur fyrri
heimsstyrjaldar - Úkraínumenn mótmæla ákvörðun IAEA - Snekkja afhent Bandaríkjamönnum
Haukeland-sjúkrahúsið í Bergen í
Noregi, ferjuútgerðin Fjord Line og
fleiri aðilar í norsku viðskiptalífi hafa
tekið höndum saman við að senda
tvær sérútbúnar bifreiðar með kældu
geymslurými til Póllands sem ætlað
er að flytja fallna úkraínska hermenn
af vígstöðvunum í átt að hinstu hvílu,
því tala látinna er ekki það eina sem
hækkar í Úkraínu, það gerir hitastig-
ið einnig með komu sumars.
„Líkin eru flutt með vörubílum og
þau rotna,“ segir Paal Christian
Mowinckel í samtali við norska rík-
isútvarpið NRK en þeir Tor Fredrik
Müller starfa við rekstur fasteigna í
Noregi. Hafa þeir komið að því að
fjármagna og festa kaup á kæli-
bifreiðunum svo flytja megi hermenn
af vígvellinum „með reisn“, eins og
Müller orðar það.
Þeir Mowinckel hafa unnið ötullega
að söfnun fjár til handa stríðshrjáðri
Úkraínu og söfnuðu meðal annars
rúmri milljón norskra króna í maí
með göngu í átakinu „100.000 skref
fyrir Úkraínu“ en norsk milljón svar-
ar til tæplega 15 milljóna íslenskra
króna.
Ferjur Fjord Line flytja bifreið-
arnar sérútbúnu frá Noregi og til að
nota ferðina fara þær fullar af bráða-
aðstoðarbúnaði til Úkraínu, svo sem
blóðpokum. Sjúkrahúsið leggur sitt
lóð á vogarskálarnar með því að gefa
búnað.
„Við hendum svo miklum búnaði á
norskum sjúkrahúsum sem kominn
er fram yfir lokadagsetningu á notk-
un,“ segir Jon Wigum Dahl, deildar-
stjóri alþjóðasamvinnudeildar
Haukeland, „renni umbúðir út í júní
skiptir það engu máli, þær verða
teknar í notkun tafarlaust [í Úkra-
ínu].“ atlisteinn@mbl.is
Senda bifreiðar
til líkflutninga
- Kælibifreiðar frá Noregi til Úkraínu
AFP
Kistuburður Sumarhitinn torveldar
flutning hinna látnu í stríðinu.