Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 12

Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýr meirihluti Samfylk- ingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar hefur verið myndaður í Reykjavík og hefur þegar tekið til óspilltra málanna við þá miklu breytingu að haga stjórn borg- arinnar nákvæmlega eins og verið hefur undanfarin ár. Þrátt fyrir að gamli meirihlutinn hafi verið felldur situr hann enn með glæ- nýtt varadekk og þrátt fyrir að Samfylkingin hafi misst fimmt- ung fylgis síns situr Dagur B. Eggertsson enn praktuglega á stóli borgarstjóra og það í boði kjósenda Framsóknar, sem vísast voru flestir að kjósa eitthvað ann- að. Það er erfitt að áfellast kjós- endur fyrir klækjastjórnmálin í borgarstjórn Reykjavíkur. Fram- sókn bauð þar fram nýjan mann, nánast óflekkaðan af stjórn- málum, en þó að kosningastefnu- skráin væri hvorki löng né ítarleg, þá duldist engum aðaláhersla Framsóknarflokksins á „breyt- ingar í borgarstjórn“, þar sem oddvitinn Einar Þorsteinsson undirstrikaði sérstaklega ábyrgð Dags borgarstjóra á forystuleysi og stöðnun höfuðborgarinnar. Þennan sama Dag og hann leiðir nú til valda eins og ekkert sé og útskýrir í löngu máli fyrir al- menningi að feli í sér óviðjafn- anlega breytingu. Þegar litið er á málefnasamn- ing hins nýja meirihluta kemur mest á óvart hvað hann er óskýr, loðinn og laus við mælanleg mark- mið. Hann er grautur upphitaðra afganga gamla meirihlutans frá fyrri kjörtímabilum, frágenginna mála, samtínings á forræði ríkis- valdsins, í bland við furðusmáleg mál, sem tæplega eiga erindi í málefnasamning. Mest er gert úr „húsnæðis- átaki“ með úthlutun lóða í Úlfars- árdal, á Kjalarnesi, á Hlíðarenda, í Gufunesi og á Ártúnshöfða, sem allt lá fyrir frá síðasta kjör- tímabili. Í Úlfarsárdal bíða löngu skipulagðar lóðir úthlutunar, á Kjalarnesi auglýsti Dagur nokkr- ar lóðir kortéri fyrir kosningar, að Hlíðarenda ætla einkafjárfestar ekki að lúra á lóðum sínum, í Gufunesi er þegar fyrirhuguð frekari lóðaúthlutun til að þrengja að Sundabraut og ný byggð á Ártúnshöfða var kynnt í upphafi árs 2021. Ekkert af því getur Framsókn þakkað sér og í því felst engin breyting. Ekki heldur að það skuli efnt til samkeppni um skipulag Keldnalands og Keldnaholts, svo þau megi byggja upp samhliða hraðari lagningu borgarlínu. Sú var áætlunin fyrir, nema hvað skipulagssamkeppni er líklegust til þess að tefja fyrir uppbygg- ingu, svo útilokað má heita að þar rísi neitt nema kannski stoppistöð á þessu kjörtímabili. Framsókn getur ekki heldur hreykt sér af stefnu um gerð „húsnæðis- sáttmála“ ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð- inu, en Samfylkingin kynnti þá hugmynd í liðnum apríl. Annað ámóta lof- orð er að hefja skuli gerð umhverfismats vegna Sundabraut- ar, en Vegagerðin kynnti í janúar sl. að sú vinna væri hafin. Sömu sögu má segja um fram- kvæmdanefnd um þjóðarhöll í Laugardal, sem Dagur kynnti með flugeldasýningu í maí, án þess þó að eiga fyrir sínum hluta. Eða glænýtt stefnumið um við- haldsátak vegna myglu, sem reyndar var lagt fyrir borgarráð í fyrra. Hins vegar er í sáttmálanum vikið að annarri myglu, sem er starfsandinn í borgarstjórn. Það er vel til fundið að nýi meirihlut- inn hlutist til um að bæta hann. Í honum sitja þrír flokkar sem beittu útskúfun við myndun meirihlutans og draga þannig tæplega úr skautun í borgar- pólitíkinni, en tveir flokkanna hafa þurft að fá vinnustaðasál- fræðing til þess að reyna að koma á siðuðum samskiptum í eigin röð- um. Megnið af stefnusáttmálanum er þannig gamalt og gallsúrt vín á nýjum belgjum. Ekki þó allt. Þannig á að hækka frístundastyrk upp í 75 þúsund krónur frá 2023, það verður ókeypis í sund fyrir grunnskólakrakka og strætó raunar líka. Í þessu síðastnefnda felst líkast til helsti sigur Fram- sóknar í meirihlutaviðræðunum, því að gamli meirihlutinn lét það verða eitt sitt síðasta verk að fella tillögu þess efnis. Það kann raun- ar að vera til marks um eitthvað, því Strætó er nýbúinn að skera niður þjónustu vegna fjárhags- legra þrenginga, á sama tíma og meirihlutinn, sá gamli og sá nýi, hefur engar áhyggjur af rekstrar- hlið borgarlínu. Dagur sagði réttilega að „þessi samstarfssamningur, þó hann byggi á samstarfi fjögurra flokka, endurspeglar mjög vel áherslur Samfylkingarinnar“. Í hverju felst þá breytingin mikla hjá Framsókn? Dagur mun af veg- lyndi og viðhöfn leggja borgar- stjórakeðjuna á axlir Einari árið 2024, sem mun feta í fótspor fyr- irrennararans það sem eftir lifir kjörtímabils. En það verður Dag- ur sem slær tóninn um stefnu hins nýja meirihluta, ekki Einar. Dag- ur, sem 49% Reykvíkinga vilja allra manna síst sjá á borgar- stjórastóli þessa meirihluta skv. könnun Maskínu; ekki Einar sem 53% vildu sem borgarstjóra. Þess vegna skröltir þessi nýi en gamli meirihluti af stað með herkjum, hvað sem líður öllum varadekkjum. Það er illskiljanlegt hvers vegna Einar gerði ekki ófrávíkjanlega kröfu um að verða borgarstjóri allt kjörtímabilið, í því hefði falist hans eina von um að geta horft framan í kjósendur sem boðberi breytinga. Og nú er vindurinn úr varadekkinu – áður en lagt er af stað. Þegar litið er á mál- efnasamning hins nýja meirihluta kem- ur mest á óvart hvað hann er óskýr, loð- inn og laus við mæl- anleg markmið.} Vindur úr varadekkinu A ldrei vera hortugur við þá sem litlir eru fyrir sér og aldrei hrekkja nokkurt dýr. Þetta setti Halldór Laxness okkur fyrir í gegnum persónur sínar í Sjálf- stæðu fólki. Um lengri tíma var seinni lexían sú sem finna mátti í íslenskri löggjöf um dýravernd. Síðan þá hefur aukin þekking og þrýstingur almennings knúið fram breyt- ingar á dýravelferðarlöggjöf þar sem nú er tíundað með hvaða hætti við tryggjum að dýr séu ekki hrekkt. Líf sem er þess virði að lifa Í dag eru markmið laganna um dýra- velferð frelsin fimm. Að dýr séu, eins og kostur er, laus við hungur og þorsta, óþæg- indi, sjúkdóma og sársauka, laus við ótta og neyð og hafi frelsi til að sýna náttúrulega hegðun. Fyrir tæpum tíu árum mælti ég, sem umhverfisráðherra, fyr- ir umbótalögum á sviði dýravelferðar þar sem tekið var á þessum frelsisþáttum. Með þessum umbótum vildum við sem samfélag tryggja að líf dýra, hvort sem það er búfé, villt dýr eða gæludýr, sem sjá okkur fyrir mat og klæðum, afþreyingu og félagsskap, sé þess virði að því sé lifað. Í kjölfar þessara lagabreytinga hafa orðið miklar framfarir í dýravelferðarmálum. Við gerum í dag ríkar kröfur til bænda um að aðbúnaður og umönnun búfjár sé með þeim hætti að þessi skilyrði séu uppfyllt. Til þess að ná þessum markmiðum hefur verið farið markvisst yfir aðbúnaðarreglugerðir síðustu ár. Eftirlit hefur aukist og það orðið áhættumiðað, þannig að starfsemi sem er sérstaklega áhættusöm er heimsótt tíðar en önnur. Þetta hefur skilað árangri og mun gera það áfram á næstu árum þegar tíma- frestir til aðlögunar renna út. Þá er tryggt að við aflífun í sláturhúsum sé komið í veg fyrir sársauka og ótta. For- senda þess að aflífun sé sæmandi er að við komum fram við dýr af mannúð. Því hversu vel sem dýrin, villt eða alin, hafa lifað á æv- inni þá skipta síðustu mínúturnar í lífi þeirra máli. Það skiptir máli við lífslok að hafa lifað lífi sem var einhvers virði. Dýravelferðarmál eru á réttri leið Við vitum mikið um búfé, um hvernig hægt er að gera aðbúnað í gripahúsum sem bestan og hvernig hægt er að aflífa það á sem mannúðlegastan hátt. Við vitum hins vegar ekki nóg um aflífun villtra dýra. Villt dýr eiga skilið sömu mannúð við aflífun og búfé. Enda gilda lög um dýravelferð um öll dýr. Eðlilegt er því að gera sambærilegar kröfur um aflífun villtra dýra í at- vinnuskyni og gerðar eru um aflífun búfjár í atvinnu- skyni. svandis.svavarsdottir@mar.is Svandís Svavarsdóttir Pistill Að hrekkja aldrei nokkurt dýr Höfundur er matvælaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is S taða Boris Johnsons, for- sætisráðherra Breta, þykir enn vera tvísýn í kjölfar van- trauststillögu sem borin var upp í þingflokki hans í fyrradag, þrátt fyrir að hann hafi staðið hana af sér. Hefur atkvæðagreiðslan, þar sem 211 af þingmönnum Íhaldsflokksins lýstu yfir stuðningi við að Johnson yrði áfram leiðtogi flokksins og 148 lýstu yfir vantrausti á hann, verið sögð „Pyrrhosarsigur“ sem hafi grafið undan getu hans til að leiða rík- isstjórn Bretlands. Johnson og helstu stuðnings- menn hans lögðu áherslu á það í gær að nú væri kominn tími til að slíðra sverðin í flokkadráttum innan Íhalds- flokksins og einbeita sér að þeim mál- efnum sem nú eru efst á baugi í Bret- landi, frekar en að velta sér upp úr veisluhaldamálinu og öðrum slíkum sem andstæðingar Íhaldsflokksins vilji halda á lofti. Andstæðingar Johnsons bæði innan Íhaldsflokksins og utan segja hins vegar að atkvæðagreiðslan sýni að forsætisráðherrann sé rúinn trausti eftir að lögreglan ákvað að sekta hann fyrir veisluhöld á tímum sóttvarnaaðgerða. Kominn með gálgafrest Samkvæmt reglum Íhalds- flokksins má ekki bera fram aðra vantrauststillögu á Johnson innan þingflokksins í heilt ár, og tvö ár eru til næstu kosninga. Forsætisráð- herrann vill því eflaust reyna að nýta þann gálgafrest til þess að sýna að hann geti aftur áunnið sér traust kjósenda. Johnson mun til dæmis á næstu dögum flytja ræðu þar sem hann kynnir aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum, en mikil dýrtíð herj- ar nú á Breta, og hefur verið ákall eft- ir aðgerðum til að styðja við almenn- ing. Þá þykir einnig líklegt að ríkis- stjórnin muni á næstu dögum binda einhliða enda á samkomulag sitt við Evrópusambandið um málefni Norð- ur-Írlands, en það hefur verið nokkur ásteytingarsteinn í samskiptum Breta og sambandsins. Sú aðgerð er einnig sögð líkleg til að falla vel í kramið hjá mörgum á hægri væng Íhaldsflokksins, sem hafa litið á sam- komulagið sem tilraun til þess að að- skilja Norður-Írland frá hinum lönd- unum í breska konungsveldinu. Þá mun Johnson eflaust leggja enn frekari áherslu á aðgerðir sínar í Úkraínustríðinu, þar sem Bretar hafa verið í fararbroddi meðal Evr- ópuríkja við að styðja við bakið á Úkraínumönnum. Sést það einna best í því að Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í gær að hann væri mjög ánægður með að Johnson hefði haldið velli, og sagði forsetinn að Bor- is Johnson væri „sannur vinur Úkra- ínu“. Í erfiðri stöðu Utanríkismál munu þó ekki vega þungt í mati íhaldsmanna þegar kem- ur að því hvort Johnson eigi sér fram- tíð sem leiðtogi, heldur er stóra spurningin í breskum stjórnmálum oftast sú, hvort leiðtoginn geti leitt flokkinn til sigurs í kosningum. Þannig munu flokksmenn horfa sérstaklega til tveggja aukakosninga sem haldnar verða síðar í mán- uðinum. Báðar kosningarnar eru í kjördæmum sem Íhaldsflokkurinn vann í kosningunum 2019, annars vegar í Wakefield, þar sem þingmað- ur flokksins, Imrad Ahmad Khan, sagði af sér eftir að hafa verið dæmd- ur sekur um kynferðisbrot gegn drengjum á táningsaldri, og hins veg- ar í Tiverton og Honiton-kjördæm- inu, en þingmaður þess, Neil Parrish, sagði af sér eftir að hafa verið gripinn glóðvolgur við að horfa á klámefni í þingsalnum. Fyrirfram þætti því lík- legt að Íhaldsflokkurinn myndi missa bæði þingsætin, jafnvel þó að engin veisluhöld hefðu verið haldin í Downingstræti, en víst er að sú stað- reynd mun ekki styrkja stöðu John- sons. Enn enginn arftaki í sjónmáli Það þykir helst reiknast John- son til tekna að arftaki hans er ekki í sjónmáli. Jeremy Hunt, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, og einn þeirra sem greiddu atkvæði með vantrausti, hefur gefið til kynna að hann hafi áhuga á embættinu, en Hunt tapaði fyrir Johnson í síðasta leiðtogakjöri, og þykir skorta kjörþokka. Liz Truss utanríkisráðherra þykir enn of óreynd til þess að geta tekið við valdataumunum, og orðstír Rishi Sunak fjármálaráðherra hefur skaðast vegna skorts á aðgerðum gegn verðbólgunni sem herjað hefur á Breta síðustu mánuði. Það er helst Ben Wallace varnarmálaráðherra sem talinn er geta tekið við keflinu að svo stöddu, en hann hefur þótt standa sig mjög vel í kjölfar innrásar Rússa í Úkra- ínu. Wallace hefur þó lýst því yfir að hann hafi engan áhuga á að flytjast í Downingstræti 10. Johnson gæti því enn verið öruggur í embætti forsætisráðherra, en hann hefur sýnt á ferli sínum að hann hefur níu pólitísk líf. Spurningin vaknar þó hvort hið síðasta verði brátt uppurið. „Pyrrhosarsigur“ forsætisráðherrans AFP/Leon Neal Vígreifur Boris Johnson forsætisráðherra var vígreifur á ríkisstjórnar- fundi í gær eftir að hafa staðið af sér vantrauststillögu þingflokksins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.