Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 14

Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 14
14 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 Faxafeni 14 108 Reykjavík www.z.is NÝ́ SENDING AF CAWÖ LÚXUS HANDKLÆÐUNUM Laugardaginn 21. maí skrifaði Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður með meiru, grein í Morgunblaðið undir fyrirsögninni Sögulegt heillaskref í NATO. Þar segir Björn og er skýjum of- ar: „NATO-atburða- rásin í Finnlandi og Svíþjóð undanfarnar vikur er skólabók- ardæmi um vel heppnaða fram- kvæmd á flóknum og viðkvæmum lýðræðislegum ákvörðunum.“ Hér er að sjálfsögðu vísað til þess að sænska ríkisstjórnin hefur fengið stuðning þingsins til að fara með Svíþjóð inn í hernaðarbandalagið NATÓ og rjúfa þar með langa hlut- leysishefð Svía. Hve raunsönn sú hlutleysisstefna hefur verið síðustu árin er svo álitamál en staðreyndin er engu að síður sú að utan NATÓ hafa Svíar staðið. Sögulega heillaskrefið of viðkvæmt fyrir lýðræðið? Sama á við um Finna. En í Finn- landi skal einnig stigið hið „sögulega heillaskref“, sem Björn Bjarnason nefnir svo. Hinar „viðkvæmu lýð- ræðislegu ákvarðanir“ eru ekki lýð- ræðislegri en svo að í hvorugu land- inu, hvorki í Svíþjóð né Finnlandi, stendur til að komast að niðurstöðu lýðræðislega með því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu. Hugsanlega yrði það of viðkvæmt en varla of lýð- ræðislegt. Einu sinni var … Sú var tíðin að Svíþjóð var ímynd ríkis sem lagði upp úr sjálfstæðri hugsun, var hlutlaust í þeim tilgangi, og stóð utan hernaðarbandalaga. Svíþjóð bjó vissulega við ýmsar mót- sagnir, gagnrýndi stríð en seldi vopn. Og þar var að sjálfsögðu að finna allt hið pólitíska litróf. Yfir- höndina höfðu þó lengi vel öfl sem vildu félagslegt réttlæti heima fyrir og í heiminum öllum. Og þegar Pi- nochet keyrði Chile undir ok fasisma áttu pólitískir flóttamenn þaðan at- hvarf í Svíþjóð. Þetta átti líka við um Kúrda sem flúðu undan ofsóknum í Tyrklandi en þar skal þó hafður fyrirvari á. Kúrdarnir áttu nefnilega lengi við and- streymi að etja í Sví- þjóð, var jafnvel borið á brýn að hafa myrt Olov Palme forsætisráð- herra árið 1986 þótt það hafi ekki átt við rök að styðjast. Margir grunuðu pólitíska and- stæðinga Kúrda um að hafa viljað koma á þá óorði með ósönnum og rætnum söguburði. Skipulegur undirróður í stórvelda- pólitík er ekki nýr af nálinni. Mannréttindi Kúrda verði skiptimynt Nú eru Kúrdar aftur á dagskrá í Svíþjóð. Það gerðist samhliða því að Svíar lýstu því yfir að þeir vildu komast í NATÓ. Gott og vel sagði Erdogan Tyrklandsforseti – eða á þá leið – en þá þurfið þið að makka rétt við mig gagnvart Kúrdum. Forkólfar NATÓ brugðust við í snarhasti og sögðu eftir „þreifingar“ að sátt muni án efa nást. Þetta stað- festi svo forsætisráðherra Svíþjóðar Magdalena Andersson sem segist hafa átt gott samtal við Erdogan um þessi efni. Hún kvaðst vongóð um að málin leystust enda líti Svíar á bar- áttusveitir Kúrda sem hryðjuverka- menn. Í yfirlýsingu ráðherrans seg- ir: „Ég lagði á það áherslu að Svíþjóð fagni því að geta átt sam- starf í baráttunni gegn alþjóðlegum hryðjuverkum og ég ítrekaði að Sví- þjóð styddi baráttu gegn hryðkju- verkum og að PKK skuli vera skil- greint sem hryjðuverkasamtök.“ Ekki ný afstaða í Svíþjóð Og til áréttingar tvítar síðan utan- ríkisráðherrann Ann Linde, að af- staða sænskra yfirvalda hvað bar- áttu Kúrda varðar sé ekki ný af nálinni, sænsk stjórnvöld hafi skil- greint PKK sem hryðjuverkamenn þegar á níunda áratugnum, og sé allt óbreytt hvað það varðar: „Vegna þeirra rangfærslna sem víða hafa komið fram um (Svíþjóð og) PKK, þá minni ég á að (sænska) rík- isstjórnin undir forsæti Olovs Palme var fyrst (eftir þeirri tyrknesku) að skilgreina PKK sem hryðjuverka- samtök, þegar árið 1984. … ESB fylgi í kjölfarið árið 2002 … Þessi af- staða hefur ekki breyst.“ En það sem er þó nýtt … Mikið rétt þetta er ekki ný af- staða. Það sem er þó nýtt er að heimurinn hefur breyst á þeim tæp- lega fjörutíu árum síðan baráttu- sveitir Kúrda komust í ónáð. Til upprifjunar: Í áratugi, en með hléum þó, hefur verið háð borg- arastyrjöld í Tyrklandi eða allar göt- ur frá því gömlu nýlenduveldin skiptu þessum hluta heimsins niður með eigin hagsmuni að leiðarljósi og reglustiku að vopni. Um tíma stóð reyndar til af þeirra hálfu að Kúrdistan yrði sjálfstætt ríki en frá því var horfið til að frið- mælast við ríkjandi stjórnvöld í þessum heimshluta sem nú var verið að teikna upp á nýjan leik eftir heimsstyrjöldina fyrri. Kúrdum meinuð sjálfstjórn og sviptir mannréttindum Í Tyrklandi var Kúrdum meinuð sjálfstjórn og sviptir mannrétt- indum, á meðal annars bannað að tala móðurmál sitt. Þeir voru einnig beittir ofbeldi í Írak, Íran og Sýr- landi. Leiðir skildi í baráttu Kúrda í Írak annars vegar og með Kúrdum í Tyrklandi og Sýrlandi hins vegar og hefur upp á síðkastið verið vík milli vina. En undir lok áttunda áratug- arins risu Kúrdar í Tyrklandi upp enn einu sinni. Kúrdíski verka- mannaflokkurinn, PKK, var stofn- aður 1978 og var hann pólitískur armur vopnaðra átaka af hálfu Kúrda. Árið 1999 var Abdúllah Öcalan foringi flokksins handsamaður í Ke- nya á leið til Suður Afríku í boði Nel- son Mandela sem þá var orðinn for- seti lands síns. Að handtökunni stóðu tyrkneska, bandaríska og ísr- aelska leyniþjónustan. Áður höfðu Sýrlendingar sem skotið höfðu skjólshúsi yfir Öcalan verið þving- aðir til að gera hann útlægan. Í fangelsi síðan 1999 Allar götur síðan hefur Öcalan setið á bak við lás og slá á Imrali eyju í Marmarahafinu undan Ist- anbúl. Á árunum 2013 til 2015 voru fangelsisdyrnar opnaðar til hálfs og stýrði Öcalan þá friðarviðræðum þaðan. Þær lofuðu góðu og óx gengi kúrdíska HDP flokksins sem nú var kominn til sögunnar sem eins konar pólitísk regnhlíf Kúrda og annarra lýðræðislegra fylkinga. Þetta skap- aði bjartsýni á friðsamlega lausn en samhliða þessari jákvæðu þróun missti valdaflokkur Erdogans hins vegar meirihluta sinn. Þá var aftur skellt í lás á Imrali eyju og Öcalan einangraður þar á ný; var hann þó löngu hættur að biðja um sjálfstætt ríki og talaði fyrir samningum og friði. Nú þótti hættan sem af honum stafaði vera friðar- og samkomulags- vilji hans! Þess má geta að með- ferðin á Öcalan gengur þvert á al- þjóðlegar mannréttinda- skuldbindingar en því miður er það komið undir hagsmunum ríkjandi afla í heiminum hve stíft skuli fylgja þeim. Í því efni gildir eitt hér og ann- að þar. Tímamótadómur í Belgíu Ákveðin tímamót urðu í ársbyrjun 2020 þegar æðsti áfrýjunardómstóll Belgíu kvað upp úr með það að rangt væri að skilgreina félaga í PKK flokknum lengur sem hryðjuverka- menn enda tæki engin mannrétt- indastofnun í Evrópu undir það að flokkurinn falli undir þá skilgrein- ingu. Hann hafi hins vegar tengst hernaði i borgarastyrjöld engu síður en tyrkneski herinn. Munurinn á því að vera skilgreind sem hryðjuverka- samtök og stríðsaðili er meira en lít- ill. Hryðjuverkamaður er algerlega réttlaus og það sem meira er, allir sem honum tengjast fremja þar með glæp. Stríðsaðilar eru hins vegar jafn réttháir. Séu framdir stríðs- glæpir skulu hinir seku svara til saka, sá aðili stríðsátakanna sem sekt sannast á – ekki aðeins annar aðilinn eins og verið hefur enda tyrkneski herinn laus allra mála í viðureign sinni við „hryðjuverka- menn.“ Þá er þess að geta að þeir sem eru skilgreindir sem hryðjuverkamenn verða landlausir hvarvetna sem þeir stíga fæti í ríkjum sem samþykkja slíkar skilgreiningar. Hvað Kúrdana áhrærir tekur brennimerking þeirra sem hryðjuverkamenn til NATÓ- ríkjanna, aðildarríkja Evrópusam- bandsins og nokkurra ríkja sama sinnis á vettvangi alþjóðastjórn- mála. Það er því mikill barningur fyrir Kúrda í þessum ríkjum að færa sönnur á að þeir hafi engin tengsl átt við PKK og bráðum ef til vill við HDP flokkinn líka gangi áform um að banna hann eftir. Segja dómstól grafa undan lög(reglu)! Stjórnvöld í Tyrklandi viðurkenna ekki niðurstöðu hæstaréttar Belgíu. Það gerir NATÓ heldur ekki. Ráða- menn í Belgíu fylgja þeirri línu sem NATÓ leggur og segja dóminn grafa undan lögum og reglu! Þess má geta að systursamtök PKK í Norður Sýrlandi YPG, Sjálfs- varnarsveitir Kúrda, voru líka á lista yfir hryðjuverkasamtök þar til Bandaríkjamenn töldu þau geta þjónað sér um skeið í baráttu við ísl- amista. Bandaríkjamenn höfðu að vísu stutt ISIS með vopnum og fjár- munum á meðan það gagnaðist þeim en síðan var tekinn annar kúrs þegar ISIS fór að ná undir sig olíulindum í Norðaustur-Sýrlandi og Norð- vestur-Írak. Hagsmunagæslan er alltaf á sínum stað. Við þessi tíma- mót var YPG tekið af hryðjuverklist- anum – um sinn. Er Erdogan að tala til Washington? Og reyndar gott betur því 9. maí sl. ákváðu Bandaríkjamenn að enn skyldi YPG séð fyrir vopnum við lít- inn fögnuð í Ankara. Þetta hefur reyndar áður gerst en þess jafnan gætt að vopnin séu fyrst og fremst fallin til að beita í návígi en ekki til að hrinda stórskotaárásum og loft- árásum tyrkneska hersins. En mér þykir það verðugt til umhugsunar hvort harka Erdogans gegn Svíum og Finnum nú tengist þessu, að hann sé í rauninni að tala við Washington og ná stöðu gagnvart ráðamönnum þar. Hentistefna Bandaríkjamanna er reyndar með ólíkindum, notfæra sér baráttusveitir Kúrda þegar hent- ar en hreyfa aldrei mótmælum gegn ofbeldi á hendur Kúrdum, segja að þeir „virði að það séu Tyrkir sem beri ábyrgð á eigin þegnum og við syrgjum þá Tyrki sem PKK fellir,“ eins og Jeffrey Flake nýr sendiherra Bandaríkjanna í Tyrklandi orðaði það í viðtali við ríkisfjölmiðil þar í landi nýlega. En látum slíkar vanga- veltur liggja á milli hluta svo og stríðsglæpi tyrkneska hersins sem á þessari stundu herjar á byggðir Kúrda í landamærahéruðum Tyrk- lands, Íraks og Sýrlands. Það er stærra mál en svo að rúmist hér. Lágt risið á Svíum og lítið tilefni til að fagna En þá aftur að Svíþjóð og fullyrð- ingum ráðamanna um að allt sé óbreytt varðandi afstöðu sænskra stjórnvalda til baráttu Kúrda í Tyrk- landi og Mið-Austurlöndum. Ekki ætla ég að efast um að það sé rétt. En á hinn bóginn hallast ég að því að Svíþjóð Palmes hefði horft til breyt- inga í Tyrklandi, stöðugt grófari mannréttindabrota af hálfu stjórn- valda þar, tugþúsunda í fangelsum vegna skoðana sinna, ótvíræðra stríðsglæpa að mati mannréttinda- samtaka og nú árása á byggðir Kúrda utan landamæra Tyrklands. Þrátt fyrir eyðileggingu og mann- dráp fær þessi grimmilegi hernaður enga athygli heimsfjölmiðlanna. Ef afstaða Svía, yfirlýsingar for- sætisráðherra og utanríkisráðherra Svíþjóðar eru mátaðar inn í þetta samhengi verður risið á þeim ekki ýkja hátt. Eftir Ögmund Jónasson » Þrátt fyrir eyðilegg- ingu og manndráp fær þessi grimmilegi hernaður enga athygli heimsfjölmiðlanna. Ögmundur Jónasson Höfundur er fyrrverandi dómsmálaráðherra. Skref en varla heillaskref Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.