Morgunblaðið - 08.06.2022, Page 20
S
karphéðinn Pálmason er
fæddur á Oddsstöðum í
Miðdölum í Dalasýslu 7.
júní 1927. Hann varð því
95 ára í gær. Skarphéðinn
fluttist við 3 ára aldur á Akranes og
bjó þar til 8 ára aldurs. Hann flutti
þá til Reykjavíkur og ólst upp lengst
af á Bergstaðastræti 51.
Á sumrin dvaldist Skarphéðinn í
sveit hjá móðursystur sinni, á bæn-
um Litla-Fjalli i Mýrasýslu. Einnig
eitt sumar að Grenjum við bakka
Langár.
Skarphéðinn gekk í Austurbæj-
arskóla og síðar Miðbæjarskóla og
hélt þaðan til náms við Mennta-
skólann i Reykjavík. Þaðan útskrif-
aðist hann sem stúdent 1948. Vegna
góðs árangurs í stærðfræði og eðl-
isfræði var hann styrktur til náms í
fjögur ár við Kaupmannahafnarhá-
skóla. Í Hafnarháskóla lagði Skarp-
héðinn stund á stærðfræði, eðlis-
fræði og efnafræði og útskrifaðist
sem cand. mag. 1954.
Eftir námið fluttist Skarphéðinn
til Íslands og hóf kennslu við
Menntaskólann á Akureyri, þar sem
hann kenndi til 1962. Hann var Ful-
bright-styrkþegi við Brown-háskóla
1959-60. Skarphéðinn kenndi stærð-
fræði og eðlisfræði við Mennta-
skólann í Reykjavík í rúm 40 ár eða
frá 1962-2003. Hann var einnig próf-
dómari við verkfræðideild Háskóla
Íslands í um 30 ár.
Skarphéðinn aðstoðar ennþá
barnabörnin í stærðfræði og eðlis-
fræði. Hann smíðar og sker út og tók
á árum áður námskeið í húsgagna-
smíði. Hann er líka áhugamaður um
bókband, skák, ljósmyndun, teikn-
ingu og ættfræði. Hann á líka nokk-
urt safn bóka um Kaupmannahöfn
og er vel að sér um sögu borgar-
innar. „Ég er núna að binda inn
tímarit sem heitir Heimilispóst-
urinn. Svo ræð ég krossgátur. Ég
ræð alltaf sunnudagskrossgátur
Morgunblaðsins.“
Fjölskylda
Eiginkona Skarphéðins var Kirst-
in Olsen, f. 4.9. 1930, d. 14.3. 2018,
sagnfræðingur og bókasafnsfræð-
ingur frá Færeyjum. Þau kynntust í
Skarphéðinn Pálmason, fv. stærðfræðikennari við Menntaskólann í Reykjavík – 95 ára
Bókbindarinn Gísli Páll Gíslason, forstjóri Grundar, tekur við setti af Grundarpóstinum innbundnum af Skarphéðni.
Kenndi í MR í fjörutíu ár
Kaffi Vest Skarphéðinn ásamt Sigurði syni sínum og börnum hans 2019. Kennarinn. Skarphéðinn.
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
• Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun
• Tilbúið til matreiðslu á 3-5 mínútum
• Afkastamikið og öflugt
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Ytra byrði hitnar ekki
• Færanlegt á meðan það er í notkun
• Innra byrði má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir
• Mikið úrval aukahluta
STÓRSNIÐUGT GRILL
Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á FASTUS.IS/LOTUSGRILL
30 ÁRA Sunneva er Hafnfirð-
ingur en býr í Garðabæ. Hún er
hjúkrunarfræðingur frá HÍ og
er teymisstjóri í heimahjúkrun
hjá heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins. Áhugamál Sunnevu
eru hreyfing og íþróttir, hjúkr-
un og hundurinn hennar, Jakob.
FJÖLSKYLDA Sunneva er í
sambúð með Rúnari Krist-
mannssyni, f. 1993. Hann er
markaðsstjóri nokkurra fyrir-
tækja. Dóttir þeirra er Iðunn, f.
2021. Foreldrar Sunnevu eru
Ingibjörg Júlía Þorbergsdóttir,
f. 1963, yfirbókari hjá 66° Norð-
ur, og Gunnar Örn Steinarsson,
f. 1963, rafvirkjameistari, kenn-
ari og sæðingameistari. Þau eru
búsett í Hafnarfirði.
Sunneva Björk Gunnarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Gerðu þér ekki upp hugmyndir um
menn eða málefni fyrr en þú hefur kynnt
þér allar aðstæður. Mundu að hóf er best á
hverjum hlut.
20. apríl - 20. maí +
Naut Hafðu auga með öllum smáatriðum,
hvort sem þér finnst þau skipta einhverju
máli eða ekki. Reyndu því að hafa allt á
hreinu bæði í starfi og leik.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Viðkvæm vandamál koma upp og
krefjast allrar þinnar athygli. Líttu á sam-
hengi hlutanna með bros á vör og þá geng-
ur þér allt í haginn.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Nú er nauðsyn að þú takir af skarið
og nýtir forystuhæfileika þína. Ekki óttast
að axla aukna ábyrgð nú því þú munt auð-
veldlega standa undir henni.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú hefur átt erfitt með að einbeita
þér í vinnunni að undanförnu og þarft að
beita þig meiri aga. Leggðu þig fram.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hlýtur ekki þann stuðning og að-
stoð sem þú væntir frá öðrum. Hafðu hægt
um þig þar til öldurnar lægir.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Einhverjir hnökrar koma upp í vinnunni
og valda þér bæði áhyggjum og leiðindum.
Leggðu þig fram um að verða við óskum
sem á þínu færi er að uppfylla.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Sú vinna sem þú hefur lagt á
þig að undanförnu mun bera árangur.
Gættu tungu þinnar því hverju orði fylgir
ábyrgð og töluð orð verða ekki aftur tekin
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Haltu fast í trú þína á það að
þú sért á réttri leið. Leiðindamál leysist af
sjálfu sér þegar nýjar staðreyndir koma
fram í dagsljósið.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Hugsaðu vel um hvernig þú
gætir bætt samskipti þín við aðra. Leggðu
þig fram um að sinna smáatriðunum um
leið og þú reynir að afkasta sem mestu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þótt þér finnist best að starfa
einn eru nú þær blikur á lofti að þú ættir að
leita samstarfs við félaga þína. Hlustaðu
þótt þig langi ekki til þess.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Reyndu nú að vinna draumum þín-
um brautargengi því þú hefur byrinn með
þér. Vertu því með opinn huga þegar þú
ferð út að kynnast fólki.
Til hamingju með daginn
Garðabær Iðunn Rúnarsdóttir fæddist
13. júlí 2021 kl. 08.14 á Landspítalanum.
Hún vó 3.638 g og var 49 cm löng. For-
eldrar hennar eru Sunneva Björk Gunn-
arsdóttir og Rúnar Kristmannsson.
Nýr borgari