Morgunblaðið - 08.06.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 08.06.2022, Síða 21
Kaupmannahöfn. Skarphéðinn og Kirstin bjuggu fyrstu árin á Akur- eyri, meðal annars á Kirkjuhvoli, þar sem nú er Minjasafn Akureyrar. Þau fluttu suður til Reykjavíkur 1962, fyrst i Álfheima sem þá voru nokkuð nýbyggðir, en 1974 vestur í Sörla- skjól, þar sem þau bjuggu við sjávar- síðuna í nærri 40 ár. Skarphéðinn býr nú á dvalarheimilinu Grund. Foreldrar Kirstinar voru hjónin Frans Olsen, sýslumaður i Klakksvik í Fuglafirði og loftskeytamaður í Þórshöfn, og Maria Sophia Bærendtsen, húsmóðir. Börn Skarphéðins og Kirstinar eru: 1) Sigurður Skarphéðinsson, f. 7.5. 1957, yfirlæknir á smitsjúk- dómadeild Háskólasjúkrahússins í Óðinsvéum i Danmörku. Kona hans er Else Fredsted Gade, f. 28.3. 1965, yfirlæknir á augnlæknadeild Há- skólasjúkrahússins í Óðinsvéum. Börn þeirra eru Jens Jakob, f. 10.12. 1990, Maria Kristin, f. 11.4. 1993, og Anna Helena, f. 29.3. 1996; 2) Guðrún Skarphéðinsdóttir, f. 5.8. 1963, eðlis- fræðingur og tónlistarkennari, bjó lengst af í Köln i Þýskalandi en flutti til Íslands á þessu ári. Maður hennar var Dr. Aleksandar Stojadinovic, f. 13.11. 1935, d. 30.11. 2021, kjarneðl- isfræðingur. Börn þeirra eru Kirstin Natalja, f. 25.2. 1995, og Vladimir Kjartan, f. 19.10. 1997; 3) María Skarphéðinsdóttir, f. 3.6. 1966, lækn- ir og ráðgjafi við Alþjóðaheilbrigð- ismálastofnunina í Genf. Maður hennar er Michael Gravlund Olsen, f. 20.11. 1959, ljósmyndari. Dóttir þeirra er Sara Maria, f. 8.2. 2012. Bræður Skarphéðins: Dr. Guð- mundur Pálmason, f. 11.6. 1928, d. 11.3. 2004, jarðeðlisfræðingur við Orkustofnun í Reykjavík, og Ólafur Pálmason, f. 10.8. 1934, íslensku- fræðingur og fv. safnstjóri við Seðla- banka Íslands. Foreldrar Skarphéðins voru hjón- in Guðrún Guðmundsdóttir, f. 15.10. 1901, d. 2.2. 1977, húsfreyja, og Pálmi Skarphéðinsson, f. 28.10. 1897, d. 23.7. 1964, húsgagnasmiður. Þau bjuggu lengst af í Reykjavík. Skarphéðinn Pálmason Herdís Ólafsdóttir húsfreyja í Stóra-Skógi Magnús Bjarnason bóndi í Stóra-Skógi í Miðdölum Hugborg Þuríður Magnúsdóttir húsfreyja og ljósmóðir á Hólmlátri, Vatni og í Skörðum Guðmundur Íkaboðsson bóndi á Hólmlátri á Skógarströnd,Vatni í Haukadal og í Skörðum í Miðdölum Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja á Oddsstöðum, Akranesi og í Reykjavík Halldóra Benediktsdóttir húsfreyja á Saurstöðum Íkaboð Þorgrímsson bóndi á Saurstöðum í Haukadal Anna Bjarnadóttir húsfreyja á Svalbarða Pálmi Ólafsson bóndi á Svalbarða í Miðdölum Kristín Pálmadóttir húsfreyja á Oddsstöðum Skarphéðinn Jónsson bóndi á Oddsstöðum Halldóra Jónsdóttir húsfreyja í Stóra-Galtardal Jón Þorgeirsson bóndi í Stóra-Galtardal á Fellsströnd og víðar Ætt Skarphéðins Pálmasonar Pálmi Skarphéðinsson bóndi á Oddsstöðum í Miðdölum, Dal. 1927-30, síðar húsgagnasmiður í Reykjavík DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 „ERTU TIL Í AÐ SEGJA MÉR ÞAÐ AFTUR HVAÐ ÞAÐ ER SEM ÉG GERI HÉR.“ „ÞAÐ MÆTTI HALDA AÐ ÞÚ VÆRIR SÁ EINI Í HEIMINUM SEM HEFUR VERIÐ STUNGINN AF BÝFLUGU Í NEFIÐ.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fara í bað saman og spara heita vatnið. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann EKKI KREMJA MIG! VÓ… HVAÐ NÚ? HELGA! ER ÉGOF SEINN FYRIR EGGJAKÖKU Í MORGUNMAT? JÁ! LÆKNAVAKTIN Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir: Nú er hérna fútt og fjör því farin burt er þokan blaut og jörðin vaknar ung og ör með ólman söng og blómaskraut. Fátækt skáld í fjörið ginnt finnur minnka skuldastress er sólskin líkt og silfurmynt sáldrast yfir skalla þess. Ingólfur Ómar sendi mér póst: „Datt í hug að gauka að þér vísu sem ég gerði einu sinni og á hún vel við núna á þessum fallega lauga- dagsmorgni. Þannig er að ég fékk mér hressilega morgungöngu í þessu fallega veðri og þá kom hún upp í hugann“: Vefur gljáa grund og hól gullnum sáir loga. Blundar láin, sveipar sól safírbláa voga. Einar K. Guðfinnsson sendi mér góðan póst: „Á samfélagsmiðli birt- ist mynd af þremur þekktum norð- lenskum hestamönnum og þeir sagðir „krúttlegir dómarar“. Þetta voru þeir Hinrik Már Jónsson, Magnús Bragi Magnússon og Guð- mundur Þór Elíasson. Skagfirðing- urinn Gísli Rúnar Konráðsson orti af þessu tilefni“: Í blíðunni í Borgarnesi birtust þessir menn, með gamalkunnug glott á fési og glotta sjálfsagt enn. Gísli Rúnar orti á Boðnarmiði: Þetta varð til alveg óvart í göngu- túr fyrr í vikunni: Í löðrandi blíðu ég labbaði hring með lognkyrru Elliðavatni. Gróðurinn ilmaði allt um kring og einhvers staðar var Kjalarnesþing. Nú held ég að hóstinn batni. Ég þakka Einari póstinn. Gunnar J. Straumland skrifar í Boðnarmjöð: Í norðurför okkar hjóna blasti Hrútafjörðurinn við okkur ofan af Holtavörðuheiðinni. Mikið var hún Móðir Jörð máttug er hún þetta bjó. Horfi ég yfir Hrútafjörð, hann er fagur, – tja … og þó! Hrútfirskir vinir mínir fyrirgefa mér vonandi hálfkæringinn. En er hin þingeyska dýrð laukst upp fyrir okkur, nokkuð mörgum kílómetr- um síðar, fylltist ég gamalkunnri þingeyskri hógværð: Fjallið skóp og fjörð og lyng, fagran þjó og herðablað, en þegar hann bjó til Þingeying þótti verkið fullkomnað! Lúðvík B. Blöndal frá Hvammi orti: Þér ég segi það af eigin munni: Þó ei sáttur sért við mann signor áttu að kalla hann. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Sólskin líkt og silfurmynt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.