Morgunblaðið - 08.06.2022, Síða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022
Æ
vintýri Freyju og
Frikka: Drottningin
af Galapagos er létt
og skemmtileg
barnabók með hæfilega spennandi
söguþræði. Aðalpersónurnar, tví-
burarnir Freyja og Frikki, eru ekki
alltaf sannfærandi í orðavali sínu en
tilgangurinn helgar stundum með-
alið og er hann eflaust að
kenna börnum fjölbreyttari
orðaforða.
Sagan segir, eins og titill-
inn gefur til kynna, frá
ævintýrum tvíburanna, sem
fá að fara í óvænt ferðalag
með feðrum sínum til Galapagos-
eyja í Kyrrahafi. Þar komast tvíbur-
arnir í hann krappan þegar þau fer
að gruna að glæpamenn séu staddir
á sama bát og þau.
Frábær túlkun Þuríðar
Um er að ræða hljóðbók eftir Felix
Bergsson í lestri höfundar og Þur-
íðar Blævar Jóhannsdóttur. Það er
alltaf jafn gaman að hlusta á Þuríði
Blævi lesa og stendur hún sig áber-
andi vel við lestur þessarar bókar.
Það er mikil leikgleði í túlkun henn-
ar á Freyju og hún nær að lifa sig
inn í hlutverk hinnar 11 ára gömlu
hressu stelpu, án þess að innlifunin
hljómi þvinguð. Túlkun Felix á
Frikka er líka góð, þótt hann nái
ekki alveg sömu hæðum og Þuríður
Blær, en þetta er svo sem ekki
keppni.
Bókin er lífleg og framleiðendur
hennar eru ekki hræddir við að
teygja formið, jafnvel alveg að jaðr-
inum; þar sem hljóðbókin og
útvarpsleikhúsið mætast. Þannig
heyrast fleiri hljóð en einungis þau
sem Freyja og Frikki gefa frá sér og
söguheimurinn lifnar enn betur við
en ella.
Söguþráðurinn er nokkuð vel
fléttaður, sumpart óvæntur og þótt
spenna geri vart við sig er hún ekki
svo mikil að lítil eyru fari
yfir um. Persónur Freyju
og Frikka eru skemmtilega
ólíkar. Hann er rólegur
bókaormur en hún er fjörug
og á erfitt með að sitja kyrr.
Eflaust geta margir krakk-
ar speglað sig í þessum persónum og
jafnvel fundið í þeim jákvæðar fyrir-
myndir sem læra að nota kosti sína
og galla til góðra verka.
Á heildina litið er Ævintýri
Freyju og Frikka: Drottningin af
Galapagos fínasta bók, ekkert meist-
arastykki en án efa mun hún halda
flestum barnseyrum, sem á hana
hlýða, sperrtum.
Leikkona Þuríður Blær
Jóhannsdóttir.
Eyru barna
munu sperrast
Barnabók
Ævintýri Freyju og Frikka:
Drottningin af Galapagos
bbbbn
Eftir Felix Bergsson.
Höfundur les ásamt Þuríði Blæ Jóns-
dóttur. Storytel, 2021. 118 mín.
RAGNHILDUR
ÞRASTARDÓTTIR
BÆKUR
Höfundur Felix
Bergsson.
Sýningin Spor og þræðir verður
opnuð á morgun, fimmtudaginn 9.
júní, kl. 20 í Listasafni Reykjavík-
ur að Kjarvalsstöðum. Ólöf Kristín
Sigurðardóttir, safnstjóri Lista-
safns Reykjavíkur, og Vigdís
Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi
Listahátíðar í Reykjavík, opna
sýninguna en sýningin er hluti af
hátíðinni.
Á sýningunni má sjá verk 14
íslenskra samtímalistamanna sem
eiga það sameiginlegt að sauma út
eða nýta nál og þráð í listsköpun
sinni. Í tilkynningu frá safninu
segir að sýnendur líti ýmist til for-
tíðar og vinni með arfleifð hand-
verks og hefðar eða nýti nálina til
að prófa sig áfram í framsæknum
tilraunum í bland við aðra miðla. Á
sýningunni megi sjá ný og nýleg
verk eftir fjölbreyttan hóp lista-
manna, bæði fulltrúa yngri kyn-
slóðarinnar sem og reyndari lista-
menn sem þegar hafi sett mark
sitt á íslenska myndlistarsenu. Þau
eigi það öll sameiginlegt að hafa
tekið ástfóstri við nálina sem verk-
færi og hún skipi veigamikinn sess
í listsköpun þeirra. Verkin endur-
spegli mikla breidd í inntaki þar
sem glímt sé við djúpstæð sam-
félagsmein samhliða ljóðrænu
hversdagsins og ljúfsárri
nostalgíu.
Vinsælt tól
„Saumnálin hefur alla tíð verið
vinsælt tól til listsköpunar og list-
skreytinga. Hún hefur einkum ver-
ið í höndum kvenna sem hafa lagt
rækt við að viðhalda gömlum hefð-
um í handverki sem og þróað nýj-
ar og skapandi leiðir til úrvinnslu
með nál og þráð. Útsaumur var
ásamt útskurði langalgengasti mið-
ill listamanna á Íslandi fram að 20.
öld. Þá vék hann tímabundið fyrir
annarri tækni en gekk í endurnýj-
un lífdaga sem hluti af kvenrétt-
indabaráttu 8. áratugarins og þró-
un femínískrar myndlistar. Í dag
sjáum við enn fjölbreyttari merki
um endurkomu útsaums inn á
vettvang myndlistar. Ekki bara
hér á landi, heldur í alþjóðlegri
samtímalist. Hvað veldur þessum
aukna áhuga og sýnileika? Hvað
knýr samtímalistamenn til þess að
taka sér nál í hönd við gerð verka
sinna?“ segir í tilkynningu.
Listafólkið, sem á verk á sýning-
unni, er Agnes Ársælsdóttir, Anna
Líndal, Anna Andrea Winther,
Eirún Sigurðardóttir, Erla Þór-
arinsdóttir, Guðrún Bergsdóttir,
G. Erla – Guðrún Erla Geirsdóttir,
Guðný Rósa Ingimarsdóttir, James
Merry, Kristinn G. Harðarson,
Kristín Gunnlaugsdóttir, Loji
Höskuldsson, Petra Hjartardóttir
og Rósa Sigrún Jónsdóttir. Sýn-
ingarstjórar eru Birkir Karlsson
og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir.
Í tilkynningu segir að sýningin
endurspegli vaxandi áhuga á hand-
verki, þar sem á undanförnum
árum hafi orðið algengara að lista-
menn víða um heim noti þessa
hefðbundnu aðferð handverksins
til að skapa fjölbreytt og spenn-
andi listaverk. Sýningin stendur til
18. september.
Saumað Verk eftir James Merry, „Nike / Jöklasóley“, frá árinu 2015.
Endurspeglar vaxandi
áhuga á handverki
- Sýningin Spor og þræðir opnuð á morgun í Listasafni
Reykjavíkur - 14 samtímalistamenn sem nýta nál og þráð
Eirún
Sigurðardóttir
Kristín
Gunnlaugsdóttir
Rósa Sigrún
Jónsdóttir
Loji
Höskuldsson
Sænski kvikmyndaleikstjórinn
Lukas Moodysson vinnur nú að
framhaldi á kvikmyndinni vinsælu
Tillsammans. Frá þessu greinir
SVT. Þar kemur fram að nýja
myndin, sem nefnist Tillsammans
99, gerist 1999 eða 24 árum eftir að
fyrri myndinni lauk, en áfram er
fylgst með sömu persónum.
„Tillsammans 99 á að verða sorg-
legasta gamanmynd í heimi. Hún á
að fjalla um það að eldast, horfa
aftur, eftirsjá eftir öllu og engu,
andvökunætur og söknuð eftir
manneskju sem maður hefur ekki
hitt í tuttugu ár, um þrá til fortíðar
og þrá eftir ókominni framtíð,“ er
haft eftir Moodysson á SVT. Till-
sammans, sem frumsýnd var árið
2000, fjallaði um fólk sem bjó sam-
an í kommúnu á áttunda áratug síð-
ustu aldar. Meðal leikara voru Lisa
Lindgren, Ola Rapace og Michael
Nyqvist, sem lést langt fyrir aldur
fram árið 2017. Stefnt er að því að
frumsýna framhaldsmyndina Till-
sammans 99 á næsta ári.
Framhald Moodyssons á Tillsammans
Gleði Stilla úr myndinni Tillsammans.
Ættingjar ísraelska rithöfundarins
Ehuds Yonays hafa farið í mál við
framleiðanda kvikmyndarinnar
Top Gun: Maverick, Paramount
Pictures, fyrir brot á höfundarrétti.
Yonay skrifaði greinina Top Guns
fyrir tímaritið California sem fyrri
myndin, Top Gun, frá árinu 1986,
var byggð á og sló í gegn, líkt og
framhaldsmyndin. Segir á vef BBC
að Paramount hafi ekki tryggt sér
réttinn áður en ráðist var í gerð
framhaldsmyndarinnar. Yonay lést
í fyrra en ekkja hans og sonur, Shos
og Yuval, segja Paramount hafa
leitt það hjá sér að ganga aftur frá
höfundarrétti. Engin svör hafa
komið frá Para-
mount, önnur en
þau að lögsóknin
eigi sér ekki
lagastoð en Shos
og Yuval fara
fram á hluta
hagnaðar af
myndinni. Top
Gun: Maverick
hefur slegið í
gegn og verið sú
tekjuhæsta það sem af er ári. Hefur
myndin skilað um 548,6 milljónum
dollara í miðasölu, jafnvirði um
71,8 milljarða króna, á þeim tíu
dögum sem hún hefur verið sýnd.
Paramount lögsótt vegna Top Gun
Tom Cruise, stjarna
Top Gun: Maverick.
Góð heyrn glæðir samskipti
Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is
Pantaðu tíma í
HEYRNAR
GREININGU
Nánari upplýsingar í síma 534 9600 eða á heyrn.is
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki
fást í vefverslun heyrn.is