Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 4

Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022 Aðalfundur Gigtarfélagsins verður haldinn miðvikudaginn 15. júní kl. 19:30 í húsakynnum félagsins að Ármúla 5 á 2. hæð. Að loknum aðalfundarstörfum mun Rúnar Helgi Andrason sálfræðingur halda fyrirlestur er hann nefnir: „Heilsutengd lífsgæði fólks með langvinna verki.“ Rúnar Helgi starfar í verkjateymi Reykjalundar. Allir velkomnir, Gigtarfélags Íslands. Aðalfundur Gigtarfélags Íslands Miðvikudaginn 15. júní kl. 19.30 Líffræði, tölvuleikjahönnun, íþrótta- og heilsufræði, sköpunar- hreyfing og stafræn tækni eru á meðal þeirra greina sem vekja mikla lukku hjá krökkum sem sækja Háskóla unga fólksins sem var settur í Háskóla Íslands í gær- morgun, að sögn Kristínar Ásu Ein- arsdóttur, skólastjóra Háskóla unga fólksins. Um 250 krakkar á aldrinum 12-14 ára tóku þátt í skól- anum í gær en hann hefur frá árinu 2004 unnið sér sess sem árlegur sumarboði í starfi Háskóla Íslands. „Þetta er mjög skemmtilegt. Við bjóðum upp á fjölmarga áfanga, þar á meðal alþjóðamál þar sem fjallað er um stríð. Við gætum þess að hafa puttann á púlsinum,“ segir Kristín. Nemendur gátu valið á milli 16 stundataflna þar sem þeir fengu innsýn í fjölbreytt fræði og vísindi. Kennsla fór fram fyrir hádegi í tveimur byggingum skólans, Öskju og Odda. Háskóla unga fólksins lýkur svo með grillveislu og loka- hátíð í hádeginu 16. júní. Háskóli unga fólksins kominn á skrið á ný og 250 krakkar skráðir til náms Kynntust spennandi áföngum Morgunblaðið/Hákon Lífríkið Nemendur gátu meðal annars kynnt sér náttúruvísindi og skoðað ýmsar lífverur úr dýraríkinu undir smásjá. Háskóli unga fólksins hefur skipað sér veglegan sess sem árlegur sumarboði í starfi Háskóla Íslands síðan árið 2004. Alls mættu um 250 krakkar á aldrinum 12-14 og skemmtu sér konunglega. Grindhvalir virðast stökkva háhyrn- ingum á flótta með hátterni sínu í hafinu. Þetta sýnir ný rannsókn vís- indamanna við Háskóla Íslands (HÍ). Hún var gerð í nánu samstarfi við hvalaskoðunarfyrirtæki allt í kring- um landið. „Um er að ræða fyrstu rannsókn sinnar tegundar þar sem samskiptum grindhvala og háhyrn- inga við Íslandsstrendur er lýst,“ segir í tilkynningu frá HÍ. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á tíðni grindhvala og há- hyrninga við strendur Íslands. Þar á meðal hvar báðar tegundir var að finna og lýsa samskiptum milli þeirra. Rannsóknir við strendur Spánar og Noregs sýna að þessar tegundir eiga í samskiptum og þær hafa m.a. sýnt að háhyrningar, sem tróna á tindi fæðukeðju undirdjúp- anna, forðast grindhvali og virðast í sumum tilvikum flýja þá á miklum hraða. Gagnasöfnun fólst í því að skrá hvenær sást til tegundanna, bæði af sjó og landi, það er frá Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Gögn í rannsókn- inni ná til áranna 2007-2020 og gagnasöfnun fór fram við Vest- mannaeyjar, í Faxaflóa, Breiðafirði, Steingrímsfirði, Eyjafirði og á Skjálfanda. Grindhvala varð aðeins vart á sumrin og komum þeirra að strönd- um Íslands fjölgaði á rannsóknar- tímanum, sérstaklega sunnan við landið. Oftast sást til þeirra við Vest- mannaeyjar, Breiðafjörð og Stein- grímsfjörð. Háhyrningar sáust hins vegar allt árið. Breytilegt var milli árstíða og staða hversu oft sást til þeirra en rannsakendur urður reglu- lega varir við háhyrninga við Vest- mannaeyjar á sumrin og í Breiðafirði á veturna og á vorin. Grein um rannsóknina birtist ný- lega í vísindatímaritinu Acta Etholo- gica en hún er hluti af doktorsverk- efni Önnu Selbmann í líffræði við HÍ. Rannsóknina vinnur hún undir leið- sögn Filipu Samarra, sérfræðings við starfsstöð Stofnunar rannsókna- setra HÍ í Vestmannaeyjum, Jör- undar Svavarssonar, prófessors við HÍ, og Paul Wensveen, rannsókna- sérfræðings við HÍ. gudni@mbl.is Háhyrningarnir flýja grindhvalina Ljósmynd/Katarína Klementisov Grindhvalavaða Komum grindhvala upp að ströndum Íslands er mögulega að fjölga. Samskipti þeirra við háhyrninga eru líklega flóknari en talið var. - Ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands á samskiptum tveggja hvalategunda við Ísland - Fylgst var með hátterni hvalanna af sjó og landi frá 2007 til 2020 og hegðun þeirra skráð Ljósmynd/Curt Hanson Háhyrningar Tróna á toppi fæðu- keðjunnar en forðast grindhvali. Landsvirkjun hefur hafið umhverfis- matsferli fyrir stækkun Sigöldu- stöðvar um 65 metavött þannig að hún verði 215 MW í uppsettu afli. Það verður gert með því að bæta við fjórðu vélinni. Lögð hefur verið fram matsáætlun vegna verkefnisins. Landsvirkjun hefur kynnt áform um að auka afl þriggja aflstöðva sinna á Þjórsár-Tungnaársvæðinu, það er Sigöldustöðvar, Hrauneyja- fossstöðvar og Vatnsfellsstöðvar. Það verður gert án þess að fram- leiðsla aukist að ráði. Tilgangurinn er að auka sveigjanleika fyrirtækis- ins til að mæta breytilegri eftir- spurn. Kerfið hefur varla náð að anna eftirspurn á álagstoppum og áhyggjur eru um að svo verði næstu árin. Gert er ráð fyrir því í frumvarpi umhverfisráðherra sem er til um- fjöllunar á Alþingi að stækkanir virkjana á þegar röskuðu svæði þurfi ekki að fara til mats í ramma- áætlun. Byggja þarf hús yfir fjórðu véla- samstæðuna í Sigölduvirkjun. Virkj- unin var hönnuð miðað við fjórar vél- ar og því þarf minni framkvæmdir við inntak og frárennsli en ef byggð væri ný aflstöð. helgi@mbl.is Umhverfismat hafið vegna aflaukningar Sigöldustöðvar - Byggja þarf yfir fjórðu vélasamstæðuna en lítið annað Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sigöldustöð Bæta þarf við húsi yfir fjórðu vélasamstæðuna og inntaks- mannvirki og frárennsli í samræmi við viðbótina. Framleiðslan eykst lítið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.