Morgunblaðið - 14.06.2022, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 14.06.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022 Á fullveldi.is er sagt frá afstöðu Norðmanna til EES annars vegar og fríverslunarsamnings við ESB hins vegar. Þar segir: „Fleiri Norðmenn vilja fríverzlunarsamn- ing við Evrópusambandið en vera áfram aðilar að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES) samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem fyrirtækið Sentio vann fyrir norsku samtökin Nei til EU. Þannig eru 34% hlynnt því að EES-samningnum verði skipt út fyrir fríverzlunarsamning og 27% andvíg því. 38,8% tóku ekki afstöðu með eða á móti. - - - Skoðanakannanir í Noregi hafa ítrekað skilað hliðstæðum niðurstöðum á undanförnum árum. Síðast í febrúar á þessu ári. Hins vegar hafa aðrar kannanir á sama tíma sýnt fleiri hlynnta EES-samningnum þegar einungis hefur verið spurt um afstöðuna til hans og ekki boðið upp á fríverzl- unarsamning sem valkost.“ - - - Þá segir að fleiri hafi „verið and- vígir inngöngu í Evrópusam- bandið en hlynntir samkvæmt öllum skoðanakönnunum í Noregi undan- farin 17 ár en umræðan þar í landi hefur lengi verið á þá leið að valið stæði einungis á milli sambandsins og EES-samningsins.“ - - - Þetta eru athyglisverðar niður- stöður í Noregi og benda til þreytu gagnvart EES-samningnum en þó ekki áhuga á ESB-aðild. Þreytan kann að stafa af því að EES- ríkin hafa ekki gætt hagsmuna sinna sem skyldi. Það er þekkt hér á landi og norska könnunin mætti verða áminning í þeim efnum. Ósló Kannanir benda til þreytu í Noregi gagnvart EES-samningnum. Vilja frekar frí- verslun en EES STAKSTEINAR Reykjavíkurmeistaramót Fáks, hestamannafélags, hófst í gær með glæsilegum töltsýningum, einkum í barna- og unglingaflokki. Þá lauk deginum með skeiðkappreiðum. Um 920 skráningar bárust á mótið og því er um að ræða stærsta hesta- mannamót sem haldið verður á Ís- landi í ár. „Við höfum reynt að finna mót í heiminum sem er af sambæri- legri stærðargráðu en það jafnast ekkert á við þetta,“ segir Hjörtur Bergstað, formaður Fáks. Fyrsti dagurinn gekk eins og í sögu, án seinkana. „Við erum með svo vel þjálfað og gott starfsfólk.“ Mótið stendur yfir í sjö daga og er dagskráin gríðarlega þétt. „Við er- um svo heppin að það er bjart langt fram eftir nóttu á þessum árstíma og þannig getum við látið dagskrána ná fram á kvöld.“ Mótið er opið öllum sem hafa áhuga á að sjá pússaða hesta og prúðbúna knapa leika listir sínar í Víðidal. Kappreiðarnar eru í sérstöku uppáhaldi hjá formann- inum, en hann keppti sjálfur í þeim á árum áður. Í dag verður fjórgang- urinn í brennidepli og áfram á mið- vikudag. Á fimmtudag fer fram for- keppni í fimmgangi og á föstudag verður keppt í gæðingaskeiði en þá hefjast líka úrslit og loks forkeppni meistaraflokks í tölti. „Það jafnast ekkert á við þetta“ - Tölt og kappreiðar í gær - 920 skráningar- Björt kvöld lykilatriði Morgunblaðið/Árni Sæberg Kappreiðar Eftirlætiskeppnisgrein formannsins er kappreiðarnar. Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að fyrir- tæki hafi ekki brotið gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna að lögum um jafna meðferð á vinnu- markaði þar sem brugðist hafi verið við kvörtunum starfsmanns fyrir- tækisins með málefnalegum hætti. Um er að ræða fyrirtæki sem rek- ur fataverslanir. Kona, sem starfar hjá fyrirtækinu, sendi kæru til kærunefndarinnar og kvaðst hafa orðið fyrir endurtekinni kynbund- inni og kynferðislegri áreitni og áreitni vegna trúarskoðana í starfi af hálfu yfirmanns síns frá því að hún hóf þar störf í september 2018. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins boðaði konuna á sinn fund til þess að ræða málin og þar upplýsti hún um meinta áreitni í sinn garð. Fram- kvæmdastjórinn tók lýsingar kon- unnar alvarlega. Hann ráðfærði sig við VR og Vinnueftirlitið til að fá leiðbeiningar og aðstoð við úrlausn málsins og ræddi við yfirmanninn, sem hafnaði ásökununum eindregið. Í kjölfarið stakk frmkvæmdastjór- inn upp á því við báða aðila að hann myndi funda með þeim í þeim til- gangi að reyna að finna lausn á því ósætti sem virtist vera uppi. Konan féllst á það en dró síðan samþykki sitt fyrir slíkum fundi til baka í tölvu- skeyti og lýst því yfir að hún myndi setja fram kvörtun vegna framferðis samstarfsmannsins. Framkvæmda- stjórinn ákvað hins vegar að konan og yfirmaður hennar skyldu ekki sinna starfsskyldum sínum á sömu starfsstöðinni. Niðurstaða kærunefndar jafnrétt- ismála var að fyrirtækið hefði brugð- ist við með málefnalegum hætti og því hvorki brotið gegn lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna né lögum um jafna meðferð á vinnu- markaði. Kærunefndin áréttar í úrskurðin- um að samkvæmt lögum skuli at- vinnurekandi gæta þess að starfsfólk verði ekki beitt órétti í starfi á grundvelli þess að hafa kært eða veitt upplýsingar um kynbundna eða kynferðislega áreitni. Að sama skapi sé atvinnurekanda óheimilt að segja starfsmönnum upp störfum sökum þess að þeir hafi kvartað undan eða kært mismunun og honum beri að gæta þess að starfsmenn verði ekki látnir gjalda þess í starfi að kvartað hafi verið undan eða kærð mismunun eða krafist leiðréttingar á grundvelli laganna. Brást við með mál- efnalegum hætti - Fyrirtæki braut ekki gegn jafnréttislögum Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.