Morgunblaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022
RARIK ohf | www.rarik.is
Opin hús hjá RARIK í tilefni af 75 ára afmæli
Miðvikudaginn 15. júní verða opin hús á völdum starfsstöðvum RARIK víðsvegar um landið í tilefni af 75 ára
afmæli fyrirtækisins. Þámunu starfsmenn RARIK taka ámóti gestum og kynna aðstöðu og starfsemi fyrirtækis-
ins á hverjum stað og bjóða upp á kaffi og aðrar veitingar. Viðskiptavinir, eldri starfsmenn og aðrir velunnarar
RARIK eru sérstaklega velkomnir.
Opnu húsin verða frá kl. 16:00 til 18:00 á eftirtöldum stöðum:
Borgarnes: Sólbakki 1 | Stykkishólmur: Hamraendar 2 | Blönduós: Ægisbraut 3 | Sauðárkrókur: Borgartún 1a
Akureyri: Óseyri 9 | Þórshöfn: Langanesvegur 13 | Egilsstaðir: Þverklettar 2-4 | Fáskrúðsfjörður: Grímseyri 4
Hornafjörður: Álaugarvegur 11 | Hvolsvöllur: Dufþaksbraut 12
Verið velkomin og fagnið með okkur merkum áfanga í sögu RARIK.
Kjörstjórn þjóðkirkjunnar hefur til-
kynnt að af 25 tilnefningum til
vígslubiskups á Hólum verði tveir
prestar í kjöri, sr. Gísli Gunnarsson
í Glaumbæ og sr. Þorgrímur Daní-
elsson á Grenjaðarstað. Tilnefningu
lauk 24. maí sl. og kosning mun
fara fram dagana 23. til 28. júní
næstkomandi. Munu Gísli eða Þor-
grímur taka við af Solveigu Láru
Guðmundsdóttur.
Gísli hefur verið sóknarprestur í
Glaumbæ frá árinu 1982, auk þess
að sinna Sauðárkróki og fleiri sókn-
um í Skagafirði. Þorgrímur hefur
sinnt prestsstörfum frá 1993, fyrst í
Neskaupstað en frá 1999 á Grenj-
aðarstað í Aðaldal, auk þess að hafa
leyst af í öðrum sóknum, nú síðast á
Akureyri.
Kosið verður um
Gísla og Þorgrím
Gísli
Gunnarsson
Þorgrímur
Daníelsson
Heiðrún Helga
Bjarnadóttir
Back hefur verið
skipuð sóknar-
prestur Borgar-
prestakalls í
Vesturlandspró-
fastsdæmi. Frá
þessu er greint á
vef þjóðkirkj-
unnar. Tekur
Heiðrún við af
sr. Þorbirni Hlyni Árnasyni.
Hún er fædd árið 1982, alin upp
í Borgarnesi fram á unglingsár.
Heiðrún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri. Hún
er með BA-próf í guðfræði frá HÍ
og lauk þar mag.theol-prófi í febr-
úar sl. Hún hefur lengi starfað
með flóttafólki og innflytjendum,
bæði í Sjanghæ og Kaupmanna-
höfn. Um þessar mundir sinnir
Heiðrún starfi verkefnastýru um
móttöku flóttafólks frá Úkraínu á
Bifröst.
Heiðrún prestur
á Borg á Mýrum
Heiðrún Helga
Bjarnadóttir Back
Tekið var í gær á móti tveimur
hundum á nýrri einangrunarstöð
Matvælastofnunar, sem er á Kjal-
arnesi. Eru þeir fyrstu gæludýrin í
eigu flóttafólks frá Úkraínu sem
tekið er á móti. Von er á fleiri dýr-
um á komandi vikum.
Svandís Svavarsdóttir matvæla-
ráðherra veitti undanþágu í mars
til að flóttafólk frá Úkraínu gæti
tekið á móti gæludýrum sínum að
lokinni nauðsynlegri einangrun,
bólusetningum og meðhöndlun.
Getur þessi einangrunarstöð tekið
á móti alls fjórum köttum og 22
hundum.
Gæludýr flótta-
manna í einangrun
Enn er staðan alvarleg í Blóðbank-
anum og bráðvantar blóð í öllum
flokkum. Gaf bankinn nýverið út
neyðarkall og gildir það enn.
Svo vill til að í dag er alþjóðlegi
blóðgjafardagurinn, 14. júní. Dag-
urinn er haldinn í nafni og til heið-
urs blóðgjöfum um allan heim, sem
af óeigingirni gefa blóð sitt og blóð-
hluta sem síðan er veitt til þeirra
sem þurfa lífsnauðsynlega á því að
halda, eins og það er orðað í til-
kynningu frá Blóðbankanum. Í til-
efni dagsins mun Willum Þór Þórs-
son heilbrigðisráðherra gefa blóð.
Margir þættir skýra sára vöntun
á blóði. Aukið álag er á heilbrigð-
iskerfinu, m.a. vegna aukins fjölda
ferðamanna og umgangspesta.
Samkvæmt upplýsingum frá Blóð-
bankanum hefur síðan í október í
fyrra verið óvenjumikil þörf fyrir
blóð. Á sama tíma hafa orðið afföll
í hópi blóðgjafa í kjölfar Covid-
faraldursins; Blóðbankabíllinn hef-
ur ekki verið í rekstri og sam-
félagslegar breytingar hafa orðið í
kjölfar heimsfaraldurs. Þá fara
blóðgjafar í sumarfrí eins og aðrir
landsmenn, bæði innanlands og er-
lendis.
Heilbrigðisráðuneytið, Landspít-
ali og Blóðbankinn hvetja allan al-
menning til að taka þá ákvörðun að
slást í hóp blóðgjafa og leggjast
þannig á árar með heilbrigðiskerf-
inu. Vikulega þarf bankinn á 200-
250 blóðgjöfum að halda um land
allt.
Bankann vantar meira blóð
Morgunblaðið/Eggert
Blóð Mikil vöntun er á blóði í heilbrigðiskerfinu og hefur Blóðbankinn sent
út neyðarkall á sama tíma og alþjóðlegi blóðgjafardagurinn er haldinn.
- Alþjóðlegi blóðgjafardagurinn í dag - Heilbrigðisráð-
herra mun gefa blóð - Þörf fyrir 200-250 blóðgjafa á viku