Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 11
11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022
CHERRYBLOSSOMEAUDE TOILETTE
Umvefðu þig blómum
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Auk þessarra þriggja orkukosta
leggur meirihluti nefndarinnar til að
28 virkjanakostir, sem dagað hafa
uppi í nýtingarflokki, verði færðir í
biðflokk. Allt eru þetta orkukostir
sem Orkustofnun lagði fram til mats
að eigin frumkvæði, án þess að
nokkurt orkufyrirtæki hefði óskað
eftir því eða unnið að þróun þeirra.
Verkefnisstjórnir hafa flokkað þá í
biðflokk vegna þess að gögn hefur
skort til að leggja mat á hugmynd-
irnar.
Meirihluti nefndarinnar leggur til
að Búrfellslundur, sem er hugmynd
Landsvirkjunar að vindorkuveri við
Búrfellsvirkjun samkvæmt nýrri út-
færslu, verði færður úr biðflokki í
nýtingarflokk. Nefndin bendir á að
fram hafi komið ábendingar um að
þessi kostur hefði ekki þau víðtæku
áhrif á ferðamennsku sem mat verk-
efnisstjórnar byggðist í raun á. Tel-
ur meirihlutinn að Búrfellslundur
geti verið mikilvægur hluti þess að
tryggja betur nýtingu þeirra vatns-
aflsvirkjana sem fyrir eru á svæðinu
auk þess sem hann renni styrkari
stoðum undir orkuöryggi.
Fimm kostir úr vernd
Meirihlutinn leggur til að virkj-
anakostirnir fjórir í Héraðsvötnum,
meðal annars hugmyndir að Skata-
staðavirkjun og Villinganesvirkjun,
verði færðir úr verndarflokki yfir í
biðflokk. Sömuleiðis Kjalölduveita.
Nefndin telur að þörf sé á end-
urmati verkefnisstjórnar á orku-
kostum í Héraðsvötnum og því land-
svæði sem þeir tilheyra. Meðal
annars hafi of mikið verið gert úr
neikvæðum áhrifum virkjana á vist-
gerðir. Nauðsynlegt sé að eyða
óvissu um raunveruleg áhrif virkj-
anakostanna áður en ákvörðun verði
tekin um nýtingu eða vernd.
Kjalölduveita í Þjórsá var ekki
metin með hefðbundnum hætti af
verkefnisstjórn, á þeim forsendum
að hún væri sami kostur og Norð-
lingaölduveita sem flokkuð hafði ver-
ið í verndarflokk. Fékk Kjalöldu-
veita því sömu örlög. Landsvirkjun
hefur lagt áherslu á að þetta sé nýr
kostur, neðar í ánni, sem ekki hafi
áhrif á Þjórsárver. Meirihluti nefnd-
arinnar telur mikilvægt að hafið sé
yfir vafa að veitan hafi fengið full-
nægjandi meðferð og óskar eftir að
ráðherra tryggi það.
Auk þeirra breytinga sem hér
hafa verið raktar, leggur meirihluti
nefndarinnar til að beðið verði með
friðlýsingu verndarsvæða í Skjálf-
andafljóti sem verkefnisstjórn lagði
til, þar til mati á friðlýsingu heilla
vatnasviða er lokið og lög um vernd-
ar- og orkunýtingaráætlun hafi verið
endurskoðuð. Deilur hafa verið um
það hversu víðtæk verndarsvæði
megi vera, þótt einhver orkukostur
innan þeirra hafi fengið flokkun í
verndarflokk. Orkukostir í Skjálf-
andafljóti eru flokkaðir í verndar-
flokk en meirihlutinn telur ekki til-
efni til að gera breytingar á þeirri
flokkun.
Vinnu við mat verði hraðað
Loks beinir meirihlutinn því til
ráðherra að endurmati á þeim átta
virkjanakostum, sem lagt er til að
flytjist í biðflokk, verði hraðað í með-
förum verkefnisstjórnar ramma-
áætlunar og þeir fái afgreiðslu eins
fljótt og auðið er. Einnig verði unnið
að friðlýsingu landsvæða sem
ástæða þykir til að friðlýsa gegn
orkuvinnslu, samkvæmt verndar-
flokki áætlunarinnar.
Fulltrúar stjórnarflokkanna í um-
hverfis- og samgöngunefnd standa
að meirihlutaálitinu, fyrir utan ann-
an af tveimur fulltrúum VG, Bjarna
Jónsson.
Stjórn Land-
verndar tel-
ur að til-
lögur
meirihluta
umhverfis-
og sam-
göngu-
nefndar um
breytingar á
rammaáætl-
un 3 uppfylli
ekki væntingar um faglegar eða
vel rökstuddar breytingar.
Stjórn Landverndar fagnar
því í tilkynningu að Alþingi virð-
ist loks hafa í hyggju að ljúka
við gerð rammaáætlunar 3.
Hins vegar uppfylli fyrirliggj-
andi nefndarálit ekki væntingar
um faglegar eða vel rökstuddar
breytingar á niðurstöðu verk-
efnisstjórnar rammaáætlunar
frá árinu 2016. „Náttúruvernd á
Íslandi yrði fyrir þungu höggi,
nái hugmyndir meirihluta um-
hverfis- og samgöngunefndar
Alþingis um afgreiðslu 3.
áfanga rammaáætlunar fram að
ganga.“
Ekki fagleg vinnubrögð
Fram kemur það álit að almennt
hafi verndargildi íslenskrar
náttúru aukist á undanförnum
árum, auk þess sem vitund um
mikilvægi og gildi víðerna hafi
vaxið. Umhverfis- og sam-
göngunefnd hafi fært nokkra
kosti, sem taldir voru hafa hátt
verndargildi, í biðflokk, svæði
þar sem verndargildi hefur vax-
ið á þeim sex árum sem liðin
eru síðan verkefnisstjórn
rammaáætlunar 3 skilaði af sér.
Telur stjórn Landverndar ljóst
að fagleg vinnubrögð hafi ekki
verið í fyrirrúmi hjá meirihluta
nefndarinnar, heldur hafi önnur
sjónarmið ráðið för.
Þungt högg á
náttúruvernd
LANDVERND
Landslag Fossar
eru oft þrætuepli.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Forsætisráðherra telur að horfa
þurfti til minni áfanga í rammaáætl-
un en gert hefur verið, eins og raun-
ar kemur fram í nefndaráliti meiri-
hluta umhverfis- og samgöngu-
nefndar. Forystumaður úr meiri-
hluta sveitarstjórnar Skagafjarðar
fagnar tillögum meirihluta umhverf-
is- og samgöngunefndar Alþingis um
breytingar á stöðu Héraðsvatna í til-
lögum verkefnisstjórnar ramma-
áætlunar 3.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra svaraði fyrir tillögu meirihluta
umhverfisnefndar um breytingar á
tillögum verkefnisstjórnar um
rammaáætlun 3 í óundirbúnum fyr-
irspurnartíma á Alþingi í gærmorg-
un. Hún sagðist hafa haft af því
þungar áhyggjur, þegar ekki hafi
tekist að ljúka afgreiðslu ramma-
áætlunar á undanförnum árum. Nú
sé hún lögð fyrir í fjórða skipti. Hún
kvaðst taka mark á samþingmönn-
um sínum úr öllum flokkum sem hafi
rætt nauðsyn þess að horfa þurfi til
minni áfanga, eins og gert sé í nefnd-
arálitinu.
Hlustað á heimamenn
„Við erum ánægð með að það skuli
hafa verið hlustað á okkur, að faghóp-
ar 3 og 4 verði látnir ljúka sinni
vinnu, og á meðan verði orkukost-
urinn í biðflokki,“ segir Gísli Sigurðs-
son, formaður byggðaráðs Skaga-
fjarðar, um þær tillögur meirihluta
umhverfis- og samgöngunefndar að
flytja orkukosti Héraðsvatna úr
verndarflokki í biðflokk.
Sveitarstjórnin hefur gert at-
hugasemdir við að orkukostirnir hafi
verið settir í verndarflokk án þess
að fullt mat að lögum hafi farið
fram. Segir Gísli að það sé síðan
annað mál hvernig flokkunin verði
að lokum og hvort áhugi sé á að
virkja ef orkukostir á þessu svæði
komist í nýtingarflokk.
Gísli segir að orku skorti í Skaga-
firði vegna lítillar flutningsgetu
byggðalínunnar og lítils aðgangs að
orku heima í héraði.
Telur að horfa þurfi til minni
áfanga í rammaáætlun
- Formaður byggðarráðs Skagafjarðar fagnar breytingum
Morgunblaðið/Þorkell
Flúðasiglingar Jökulsárnar á vatnasviði Héraðsvatna eru vinsælar til flúða-
siglinga. Aðallega tvö fyrirtæki í Skagafirði gera út á þá starfsemi.