Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 13

Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 Litur: Hvítur, svartur að innan. Stór sóllúga, bakkmyndavél, Bang & Olufsen hátalarakerfi, Apple Carplay, hiti í öllum sætum, hiti í stýri, fjarstart, lane-keeping system, heithúðaður pallur o. fl. o.fl. 3,5 L V6 Ecoboost 10-gíra, 375 hestöfl, 470 lb- ft of torque, 20” álfelgur 2021 Ford F-150 Platinum Litur: Hvítur/ Svartur að innan (nappa leather) Æðislegur fjölskyldubíll, hlaðinn búnaði. 7 manna bíll,Hybrid Bensín, Sjálfskiptur, 360° mynda- vélar, Collision alert system, Harman/Kardon hljómkerfi, Tölvuskjáir í aftursæti VERÐ aðeins 10.390.000 m.vsk 2022 Chrysler Pacifica Hybrid Limited VERÐ frá 18.500.000 m.vsk Litur: Svartur/ svartur að innan. 10 gíra skipting, auto track millikassi, sóllúga, heithúðaður pallur, rafmagns opnun og lokun á pallhlera, flottasta myndavélakerfið á markaðnum ásamt mörgu fleirra. High Country Deluxe pakki. 2022 Chevrolet High Country VERÐ 15.890.000 m.vsk Spænsk lögregluyfirvöld krefjast þess að þau norsku framselji Spán- verjum Norðmann sem grunaður er um nauðgun í húsbíl við höfnina í Alicante á Spáni haustið 2016. Norð- maðurinn, sem er frá Þrændalögum, neitar sök og kveðst geta fært sönn- ur á að hann hafi verið í Noregi þeg- ar meint nauðgun átti sér stað og undir það tekur norska lögreglan. „Staðan er þannig hjá mér núna að ég er læstur inni í konungsríkinu Noregi,“ segir maðurinn í samtali við norska ríkisútvarpið NRK, „ég get hvergi farið á meðan ég hef þetta hangandi yfir mér,“ segir hann og vísar til þess að hann þorir ekki að yfirgefa Noreg af ótta við að verða handtekinn einhvers staðar en hann er eftirlýstur í ranni spænsku lög- reglunnar. Bendir hinn eftirlýsti á að hvort tveggja vinnutímaútskrift frá vinnu- stað hans og yfirlit bankans yfir kortanotkun hans sýni óyggjandi að hann var í Noregi. Hafi hann verið við störf kvöldið fyrir þann dag sem spænska lögreglan kveður nauðg- unina hafa átt sér stað og einnig að morgni þess dags. Hvorki flug né akstur tækt Segir verjandi mannsins, Brynjar Meling, að miðað við framboð flug- ferða téðan dag sé hreinlega úti- lokað að grunaði hafi átt þess kost að komast frá Noregi til Spánar innan þess tímaramma sem spænska lög- reglan gefur sér og akstur frá heim- ili mannsins í Noregi til Alicante taki 40 klukkustundir. Þrándurinn er með þeim fyrstu sem sætir framsalskröfu eftir að nýr samningur Noregs og Evrópusam- bandsins um handtökutilskipanir tók gildi 1. nóvember 2019 og gerir norskum yfirvöldum kleift að fram- selja ríkisborgara sína til ríkja Evr- ópusambandsins án þess að norskur dómstóll prófi mál þeirra áður. Fyrir gildistöku samningsins framseldu norsk yfirvöld eigin ríkisborgara eingöngu til annarra norrænna ríkja. Héraðssaksóknari Þrændalaga rannsakaði málið sem hér er til um- ræðu þar sem báðir aðilar málsins, grunaði og meint fórnarlamb, eru Norðmenn og lauk þeirri vinnu með því að embættið felldi málið niður. Lögmaður lögregluembættisins á staðnum, Ole Andreas Aftret, segir við NRK að ekki sé hægt að líta fram hjá tímalistunum frá vinnustað mannsins. „Ég hef enga vitneskju um hugs- anlegar frekari upplýsingar sem spænsk yfirvöld hafa undir höndum en út frá þeim sönnunargögnum sem norska lögreglan hefur kynnt sér leggjum við til grundvallar að sú skýring grunaða, að hann hafi ekki verið á Spáni þegar nauðgunin átti sér stað, standist skoðun,“ segir Af- tret. Norska ríkisútvarpið hefur hvorki haft erindi sem erfiði við að ná sam- bandi við spænska lögreglu né dóm- arann þar í landi sem ritar undir handtökuskipunina. atlisteinn@mbl.is Ljósmynd/Wikipedia Alicante Norðmaður liggur undir grun og framsalskröfu spænskra yfirvalda vegna meintrar nauðgunar í Alicante. Vogar sér ekki frá Noregi vegna handtökuskipunar - Vændur um nauðgun á Spáni 2016 en í vinnu sama dag Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Fyrrverandi breskur hermaður, Jor- dan Gatley, er annar Bretinn sem týnir lífi sínu á vígvöllum Úkraínu- stríðsins en Gatley féll fyrir byssu- kúlu þar sem hann tók þátt í vörnum borgarinnar Severódónetsk. Gatley gekk úr breska hernum í mars og hélt til Úkraínu til að leggja lóð sitt á vogarskálar þarlendra við að verjast innrás Rússa í landið. Faðir hans, Dean Gatley, greindi svo frá því á Facebook-síðu sinni að fjöl- skyldunni hefði borist tilkynning um lát hans á föstudaginn og staðfestir breska utanríkisráðuneytið þetta við breska ríkisútvarpið BBC. Ritar faðirinn á síðu sína að sonur hans hafi unnið að þjálfun úkra- ínskra hermanna og haldið til Úkra- ínu að lokinni „vandlegri íhugun“. Míkhailó Podolyak, ráðgjafi Volo- dímírs Selenskís Úkraínuforseta, birti þau ummæli sín á samskipta- miðlinum Twitter að Bretinn ungi hefði verið „sönn hetja“. „Okkur mun aldrei gleymast framlag hans til varna Úkraínu og hins frjálsa heims,“ ritaði ráðgjafinn enn frem- ur. Við herskyldu sína gegndi Gatley yngri stöðu riffilskyttu við þriðja herfylkið í Edinborg í Skotlandi og þurfti, sem fyrr segir, að láta af her- þjónustu til að geta haldið til Úkra- ínu til liðveislu þarlendra. Hörð hríð hefur geisað á götum Severódónetsk síðustu daga og kostað mikið mann- fall úr röðum hvorra tveggja, Úkra- ínumanna og rússneska innrásarliðs- ins. Greindi héraðsstjórinn Serhiy Haídaí frá því í úkraínskum sjón- varpsfréttum að stórskotaárás Rússa hefði valdið stórbruna í efna- verksmiðju í borginni en í kjöllurum hennar hafast 800 óbreyttir borgar- ar við í sprengjubyrgjum, að sögn úkraínskra embættismanna. Harðnar á dalnum Orrustan um Severódónetsk hefur staðið rúma þrjá mánuði og harðnað mjög í kjölfar þeirrar ákvörðunar Rússa að sölsa undir sig austurhér- uðin Lúhansk og Dónetsk frekar en að leggja ofuráherslu á höfuðborgina Kænugarð. Hernám Severódónetsk og nágrannaborgarinnar Lísítjansk yrði stórt skref innrásarhersins í átt að því að hafa tögl og hagldir í Lúhansk-héraðinu. Hinn Bretinn sem týnt hefur lífi sínu á vígvöllum Úkraínu er Scott Si- bley, einnig fyrrverandi hermaður sem hélt til átakasvæðanna sem sjálfboðaliði, og í vor fluttu breskir fjölmiðlar fregnir af því að tveir Bretar til viðbótar, þeir Aiden Aslin og Shaun Pinner, hefðu gefist upp fyrir Rússum þegar þeir urðu skot- færalausir í borginni Maríupól og verið teknir höndum. Samkvæmt því sem faðirinn Dean Gatley ritar á Facebook-síðu sína hafa fjölskyldunni borist ýmsar orð- sendingar frá hópnum sem hermað- urinn fyrrverandi starfaði helst með að vörnum Severódónetsk og honum þar borin vel sagan, sagður hafa búið yfir víðtækri hernaðarlegri kunnáttu og verið hvers manns hugljúfi. „Jor- dan og hópurinn hans gengu með stolti til sinna verka og hann sagði gjarnan við mig að starf þeirra væri háskalegt, en nauðsynlegt. Hann unni starfi sínu og við erum ákaflega stolt af honum,“ ritar faðirinn að auki. Vara við ferðum til Úkraínu Breska utanríkisráðuneytið ræður borgurum sínum eindregið frá því að leggja leið sína til Úkraínu auk þess sem varnarmálaráðuneyti landsins hefur látið í veðri vaka að breskir ríkisborgarar sem halda þangað með það fyrir augum að leggja heima- mönnum lið í stríðinu gerðust hugs- anlega brotlegir við lög og gætu átt ákærur yfir höfði sér. Yfirmaður breska heraflans bað landa sína þess í mars að fara ekki til Úkraínu til þess að taka þátt í stríðsátökum heldur finna aðrar leiðir til að styðja úkraínsku þjóðina á ögurstundu. Annar Bretinn sem fellur í Úkraínu - Fyrrverandi breskur hermaður skotinn til bana - Hætti herþjónustu til að geta barist í Úkraínu Ljósmynd/Facebook Feðgarnir Dean og Jordan Gatley. Sonurinn skráði sig úr breska hernum og hélt ótrauður á úkraínskan vígvöll.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.