Morgunblaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Fánar
Sólarfilmur
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
Aðalfundur SÁÁ
Aðalfundur SÁÁ verður haldinn þriðjudaginn
21. júní kl. 17:15 á Hilton Reykjavik Nordica
við Suðurlandsbraut.
Dagskrá fundarins er:
1. Skýrsla stjórnar
2. Reikningar samtakanna lagðir fram
3. Lagabreytingar
4. Kosning í stjórn
5. Ákvörðun félagsgjalda
6. Önnur mál
SÁÁ
Efstaleiti 7
103 Reykjavík
Sími 530 7600
saa@saa.is
www.saa.is
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Erlent handverksfólk kl. 10-12. Handavinna kl. 12-16.
Pútthópur kl. 13. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Heitt á könnunni.
Kaffisala kl. 14.45-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600.
Boðinn Ganga / stafganga kl. 10. Stólaleikfimi kl. 13. Brids og kanasta
kl. 13.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.30-11.
Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Myndlistar-
hópurinn Kríur kl. 12.30-15.30. Heimaleikfimi á RÚV kl. 13-13.10.
Bónus-rútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Bókabíllinn kl.
14.45.
Garðabær Kl. 9 pool-hópur í Jónshúsi, kl. 11 stóla-jóga í Sjálands-
skóla, kl. 10 gönguhópur frá Jónshúsi, kl. 13-16 Smiðja opin, allir vel-
komnir.
Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn-
unni. Inni-og útifjör (með kennurum) frá kl. 9.30-10.20. Listaspírur kl.
13. Allir velkomnir
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Brids kl.
13. Bingó kl. 13.15. Útileikfimi með Carynu kl. 13.30, allir velkomnir.
Hádegismatur kl. 11.30–12.30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður.
Samfélagshúsið Vitatorgi Heitt á könnunni. Opin handverksstofa
kl. 9-12. Hópþjálfun í setustofu kl. 10.30-11. Bókband í smiðju kl. 13-
16.30. Opin handverksstofa kl. 13-16 og síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Allar nánari upplýsingar í síma 411 9450. Öll hjartanlega velkomin til
okkar :)
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 7.10. Kaffi í
króknum á Skólabraut kl. 9. Pútt á Skólabraut kl. 10.30. Stutt ganga frá
Skólabraut kl. 13. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Minnum á
bingóið nk. fimmtudag kl. 13.30. Allir velkomnir. Athugið þið sem
skráð eru í ferðina á Langjökul fimmtudaginn 16. júní, að lagt verður
af stað frá Skólabraut kl. 9. Klæðum okkur eftir veðri.
FINNA.is
alltaf - alstaðar
mbl.is
✝
Hedwig Franz-
iska Elisabeth
Meyer fæddist í
Rechterfeld í Nied-
ersachsen-héraði í
Þýskalandi 25.
mars 1929. Hún
lést á Skjóli 27.
apríl 2022.
Foreldrar henn-
ar voru Johann
Carl og Bernar-
dine Meyer. Hed-
wig er fimmta í röð fjórtán
systkina. Eftirlifandi systkini
hennar eru öll búsett í Þýska-
landi. Hedwig ólst upp í Rech-
terfeld en þurfti ung að standa
á eigin fótum, enda systkina-
hópurinn stór.
Hedwig kom til Íslands 1956
sem au pair. Hún var au pair
hjá fjölskyldu á Hólatorgi 6.
Sinnti þar börnum og aðstoðaði
Hansdóttur sjúkraliða og áttu
þau saman einn son, Hilmar
(Andra) Meyer Hilmarsson, f.
21. maí 1995.
Þegar Hedwig öðlaðist ís-
lenskan ríkisborgararétt varð
hún að taka upp íslenskt nafn
og fékk þá nafnið Heiða Karls-
dóttir en hún var alltaf kölluð
Heddý. Seinna meir, þegar
mátti breyta þessu, þá breytti
hún nafninu sínu til baka í
fæðingarnafn sitt en sleppti
Franziskunafninu.
Hedwig og Guðmundur hófu
búskap á Kárastíg 1 í Reykja-
vík og ráku þar matvöruversl-
un ásamt föður Guðmundar.
Hún vann líka á Landakotsspít-
ala sem gangastúlka á skurð-
stofudeild. Hedwig var lærð
saumakona og vann við það í
Þýskalandi og á Íslandi, m.a.
hjá Andersen og Lauth og var
yfirmaður hjá saumastofu Hag-
kaups. Hún tók að sér kjóla-
saum heima fyrir meðan hún
sinnti heimilisstörfum.
Hedwig var sungin sálu-
messa í Landakotskirkju 12.
maí 2022, í kyrrþey.
á heimilinu.
Hún kynntist
Guðmundi Kristni
Guðjónssyni kaup-
manni og þau gift-
ust. Guðmundur
Kristinn lést 3.
mars 2013. Hedwig
og Guðmundur
eignuðust tvo syni:
1) Guðjón Karl bif-
vélavirkjameistari,
f. 30. október 1960.
Hann er í sambúð með Ástríði
Ólafíu Jóndóttur (Ástu Lóu)
tanntækni. Börn hennar eru: a)
Steinunn Þuríður, gift Gísla
Stein og synir þeirra eru Eyþór
Kári og Viktor Númi. b) Helga
Hrund, dóttir hennar er Natalía
Rún. 2) Hilmar Bernard tann-
læknir, f. 13. ágúst 1962, d. 23.
febrúar 1995. Hann var í sam-
búð með Kolbrúnu Steinunni
Fallin er frá okkar ástkæra
Hedwig Meyer, sem kom til Ís-
lands árið 1956 í þeim tilgangi að
hjálpa til við stórt heimili okkar á
Hólatorgi 6 í Reykjavík. Þegar
hún lenti á Reykjavíkurflugvelli
tók Nonni frændi á móti henni.
Hann var klæddur í Hekluúlpu
með hettuna niður á nef. Henni
leist ekki alveg á hann og varð
hálfsmeyk en þegar hún kom
heim og sá börnin sofandi varð
hún strax rólegri.
Við systkinin nutum þess að
hafa hana hjá okkur þar sem hún
gekk í öll verk heimilisins. Hún
var einstaklega myndarleg og
vandvirk. Ekki nóg með að hún
hafi sinnt hefðbundnum heimilis-
störfum heldur saumaði hún líka
föt á okkur meðan hún dvaldi hjá
okkur og svo heilmikið eftir að
hún hætti í vistinni. Má þar
nefna fermingarkjóla, frakka á
Denna úr gömlum frakka af
pabba og svo síðast en ekki síst
brúðarkjól á Oddnýju. Hún var
guðmóðir hennar. Hedwig og
Dóa systir sem lést fyrir rúmu
ári voru alveg sérstakar vinkonur
og hittust oft. Hún bauð okkur
systkinum og mökum oft í mat og
síðast þegar hún varð níræð fyrir
3 árum.
Það var alltaf líf og fjör í kring-
um Hedwig og gaman að vera
með henni. Hún hafði einstakan
húmor. Hún kom oft á Hólatorgið
í heimsókn meðan mamma var á
lífi og kom með systkini sín þegar
þau komu í heimsókn til hennar.
Mamma var nefnilega snjöll í að
læra tungumál og hafði lært
dönsku, ensku og frönsku en réð
svo til okkar þýskar stúlkur til að
læra þýsku og það gekk mjög vel.
Hvernig fann mamma þessa
frábæru konu? Jú, það var með
auglýsingu í þýsku safnaðarblaði
og tekið fram að um fjölskyldu
biskupsins væri að ræða. Jóhann-
es Gunnarsson, þáverandi kaþ-
ólski biskupinn, var bróðir afa
okkar Friðriks, sem bjó á heim-
ilinu.
Hedwig kynntist manni sínum
Guðmundi hér á Íslandi sem varð
okkur til happs, því að hún
ílengdist hér á landi. Þau bjuggu
sér fyrst heimili á Kárastíg í fjöl-
skylduhúsi þar sem líka var
verslun sem fjölskyldan rak.
Við vottum fjölskyldunni okk-
ar dýpstu samúð. Megi hið eilífa
ljós lýsa henni um aldir alda.
Jóhannes, Bjarni, Oddur,
Friðrik, Oddný, Þorgerður
og Guðmundur Halldórsbörn.
Hedwig Elísabet
Meyer
Þú félagi, vinur, þín för
enduð er
á framandi ströndu að
landi þig ber.
Við syrgjum og gleðjumst hér saman
um stund,
en seinna við mætumst á annarri
grund.
Þó leið okkar skilji og lund okkar sár
þú læknað það getur og þerrað hvert
tár.
Þú bæn okkur kenndir við biðjum þig
nú
að breyta þeim harmi í eilífa trú.
(EBV)
Fyrstu kynni mín af Guðmundi
Inga voru árið 2011. Ég var þá
nýbúinn með Háskólann á Hólum
í Hjaltadal og nýráðinn atvinnu-
og ferðamálafulltrúi í Rangár-
þingi og Mýrdal. Gjörsamlega
blautur á bak við eyrun í stjórn-
sýslugeiranum. Ég var heppinn
að Guðmundur tók mér svona vel
og að hann var andstæðan við
mig – rólegur og yfirvegaður. Allt
sem hann gerði yfirfór hann og
yfirfór aftur. Guðmundur var
mér sannarlega stoð og stytta í
mínu starfi. Þar sem skrifstofan
mín var á Hellu leitaði ég langoft-
ast til hans af þeim sveitarstjór-
um sem ég vann með ef ég þurfti
álit eða ráð.
Guðmundur Ingi
Gunnlaugsson
✝
Guðmundur
Ingi Gunn-
laugsson fæddist
14. september
1951. Hann lést 4.
júní 2022. Útför
Guðmundar Inga
fór fram 10. júní
2022.
Guðmundur bjó
yfir mikilli visku –
hafði unnið í veit-
ingageiranum,
rekið vinsælan
veitingastað á Sel-
fossi auk þess sem
hann kom að hót-
elstjórnun auk
þess að vera sjóað-
ur í sveitarstjórn-
armálum.
Margar ferðir
átti ég upp á skrifstofu til að
hitta Guðmund með eitthvað
sem ég þurfti leiðbeiningar við
og hann úttalaði sig aldrei um
hlutina fyrr en hann var búinn
að kynna sér málið frá öllum
hliðum.
Leiðir okkar lágu svo síðar
saman þegar við báðir vorum
bílstjórar hjá Kynnisferðum.
Guðmundur byrjaði á eftir mér
en mikið svakalega var hann
fljótur að ná tökum á starfinu.
Alltaf með sitt á hreinu og vissi
hvað hann átti að gera.
Guðmundur hafði skoðanir
og hann var mjög fylginn sér í
þeim. Virkur var hann á Fa-
cebook þar sem hann krufði
málefni líðandi stundar. Ekki
var ég alltaf sammála honum en
hann ávann sér traust og virð-
ingu, burtséð frá skoðunum sín-
um.
Ég kveð þennan samferða-
mann minn með sorg og veit að
hann er kominn á betri stað. Ég
sendi ég ástvinum hans mínar
dýpstu samúðarkveðjur.
Eymundur Gunnarsson,
fv. atvinnu- og ferða-
málafulltrúi í Rang-
árþingi og Mýrdal.
Látinn er eftir
snarpa sjúkdóms-
legu einstakur vin-
ur, Ragnar G.
Kvaran.
Ragnar og
Hrefna eiginkona hans voru
okkur hjónum nánir vinir alla
tíð. Þrátt fyrir að þau dveldu
langdvölum erlendis rofnaði
aldrei sá þráður sem tengdi okk-
ur saman. Fjör og uppátæki
fyrstu búskaparáranna breyttist
í einlæga vináttu og gleði yfir
öllum þeim samverustundum
sem við nutum.
Ragnar var einstakur maður
og fyrir mér var hann fjölgáf-
aður heimsborgari. Glögg-
skyggnt náttúrubarn þegar
hann umgekkst hrossin, hag-
mæltur og listrænn, einstakur
húmoristi og gleðigjafi á góðri
stund. Betri dansherra gat mað-
ur ekki óskað sér. Hann hafði
þann eiginleika að gefa sig að
öllum jafnt, ungum sem öldnum.
Hann átti til óborganlega uppá-
tektasemi sem öllum kom í gott
skap. Eitt sinn er þau Hrefna
komu í matarboð til okkar Árna
á Birkimelnum gerði hann mér
þann grikk að mæta með hálft
yfirskeggið rakað af. Ég tók
ekki eftir neinu á meðan aðrir
hlógu að þessu glensi.
Flugið átti hug Ragnars og
því helgaði hann alla starfsævi
sína. Lengst starfaði hann hjá
Cargolux og bjó fjölskyldan því í
Lúxemborg í fjölda ára. Við Árni
áttum ótal gleðistundir með
Ragnar G. Kvaran
✝
Ragnar G.
Kvaran fæddist
11. júlí 1927. Hann
lést 1. júní 2022. Út-
förin fór fram 13.
júní 2022.
Ragnari og Hrefnu
á ferðalögum um
Evrópu þar sem
þau kynntu fyrir
okkur klassíska
byggingarlist,
menningu og mat,
margt okkur fram-
andi og nýtt. Aðrir
rekja flugferil
Ragnars betur en
ég, en það veit ég að
Ragnar var traust-
ur og farsæll flugstjóri alla tíð.
Minnisstæð er koma þeirra
Ragnars og Hrefnu í töðugjöld á
túnið í Söðulsholti, fljúgandi á
gulri TF-KAK og okkur var svo
sannarlega létt þegar hún sveif á
loft yfir stóðhestagirðinguna.
Þegar Árni minn lauk prest-
skap sjötugur reyndist Ragnar
betri en enginn. Hann gaf Árna
gamalt golfsett og tók hann með
sér nær daglega í golf og sund.
Þeir félagarnir spiluðu nánast
allt árið á Hvaleyrarholtinu og
síðan var tekinn sundsprettur í
Kópavogslauginni. Árni hætti í
golfinu vegna sjóndepru, sagðist
slá svo langt að hann sæi ekki
boltann lengur, en Ragnar hélt
áfram. Ragnar hélt heilsu og
þreki ótrúlega lengi. Manni
fannst nánast að elli kerling ynni
ekki á honum.
Ragnar mátti þola mikið and-
streymi í veikindum Hrefnu og
andláti hennar. Það að missa tvo
syni sína væri síðan mörgum
óbærilegt. Þrek hans var mikið
að takast á við þetta allt.
Önnu dóttur Ragnars bið ég
Guðs blessunar svo og öllum
hans afkomendum, ættingjum,
tengdafólki og vinum.
Hvíl þú í friði, kæri vinur.
Rósa Björk
Þorbjarnardóttir.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minning-
argreinum til birtingar í öðrum miðl-
um nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir
að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst
og viðeigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig
er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á
útfarardegi verður greinin að hafa borist
eigi síðar en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting
dregist, enda þótt grein berist áður en
skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í
Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000
slög. Ekki er unnt að senda lengri grein.
Lengri greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur.
Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð-
una.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar
eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar