Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur svo margt á þinni könnu að
þú þarft að gæta þess að lofa ekki upp í
ermina á þér. Einhver kemur þér til bjargar í
erfiðum aðstæðum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er ekkert við því að gera þótt þú
fáir ekki öllu ráðið um sérstakt verkefni. Ekki
vera hræddur við að skemmta þér við eitt-
hvað sem virðist ómerkilegt í upphafi.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú færð meiriháttar fréttir sem
lyfta þér upp í hæðir. Viðtökur annarra eiga
eftir að koma þér skemmtilega á óvart.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Rétt er að koma málum á hreint
heima fyrir. Hafðu báða fætur á jörðinni er
þú reynir að rétta fjölskyldunni hjálparhönd.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er til lítils að láta einhver minni-
háttar mál eyðileggja daginn. Gerðu þér far
um að umgangast fólk því aðrir taka eftir
þér og vinir þínir vilja umgangast þig.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú kemst ekki hjá því að taka þátt í
samstarfi í dag svo gerðu þitt besta í stöð-
unni. Tjáðu þig og þér mun líða betur.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er eitt og annað sem þú ert að
kljást við þessa dagana en með réttu hug-
arfari ferðu létt með það. Sýndu samstarfs-
vilja og þolinmæði og reyndu að taka hlutina
ekki of alvarlega.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ert á réttri leið en þarft þó
að vera ákveðinn til að málin gangi hraðar
fyrir sig. Gættu þess að ganga ekki á hlut
annarra.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það hefst ekkert nema menn
séu reiðubúnir að sækja hlutina. Farðu samt
varlega því einhver reynir viljandi að villa þér
sýn.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú hefur haldið þig til hlés í
ákveðnu máli en nú kemstu ekki lengur hjá
því að taka afstöðu og láta hana í ljós við
viðkomandi. Láttu ekki telja þig á neitt sem
þú ert ekki sannfærður um.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú virðist sigla lygnan sjó þessa
dagana og er sjálfsagt að þú njótir þess.
Gættu þess að haga vonum þínum alltaf í
samræmi við það sem þú veist mögulegt.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Eitthvað verður til þess að trufla þitt
daglega mynstur. Reyndu að koma skikki á
hlutina og skila því starfi sem þér er ætlað.
Rebekka hafði umsjón með ferða-
klúbbnum „Úrvalsfólk“ um nokkurt
skeið ásamt Valdísi Jónsdóttur. „Þá
skipulagði ég ferðirnar. Það var allt-
af skemmtilegt að vera fararstjóri
og mér þykir vænt um alla farþeg-
ana sem voru með mér. Eins var
barni. Eitt sinn varð bílslys og ég
þurfti að fara með farþega upp á
spítala í aðgerð. Svo þurfti annar
læknirinn að fara og þá var sagt við
mig: Nú ferð í þú í slopp, setur á þig
húfu og hanska og ég bendi þér á
hvað þú þarft að rétta mér.“
R
ebekka Hólmfríður
Kristjánsdóttir er fædd
14. júní 1932 í Krók 2,
Ísafirði og ólst þar upp
til 14 ára aldurs en flutti
þá til Reykjavíkur. „Það var gott að
alast upp á Ísafirði og mér finnst Ísa-
fjörður fallegasti staðurinn á landinu.
Svo fluttum við mamma mín til
Reykjavíkur og bjuggum í Hátúni.
Þar blasti við völlurinn hjá
Ármanni.“
Rebekka fór að spila sem mark-
vörður hjá Ármanni í handbolta og
vann þar Íslandsmeistaratitil 1948 og
1949. Á þeim árum tók hún einnig
virkan þátt í skátastarfi.
Rebekka lauk grunnskólaprófi á
Ísafirði og gekk síðan í Ingimarsskóla
í Reykjavík og Héraðsskólann á
Laugarvatni.
Rebekka bjó í Vestmannaeyjum
1953-1958, en fluttist þá til Reykja-
víkur og bjó þar til ársins 1987, þegar
hún flutti í Kópavog.
Rebekka vann við ýmis verslunar-
störf á yngri árum og síðar sem tal-
símakona við símstöðina í Vest-
mannaeyjum og hjá Landsímanum í
Reykjavík. „Þar voru allir yfirmenn
þéraðir og mér fannst það skemmti-
legur siður.“ Rebekka var síðan bók-
ari hjá aðalendurskoðun Pósts og
síma.
Hún hóf störf sem fararstjóri hjá
ferðaskrifstofunni Sunnu 1978. Hún
starfaði samfellt við fararstjórn er-
lendis til ársins 2002, fyrir ferðaskrif-
stofurnar Sunnu, Atlantik, og svo Úr-
val, síðar Úrval Útsýn og Vita.
Lengst af starfaði hún á Spáni, bæði
á Mallorka og Kanaríeyjum, en einn-
ig á Ítalíu.
Eftir það annaðist Rebekka í nokk-
ur ár tilfallandi fararstjórn í sérferð-
um, s.s. hópferðum um Evrópu og
siglingum, einkanlega í ferðum eldri
borgara. Á þessum langa starfsferli
nutu þúsundir Íslendinga þjónustu
hennar, leiðsagnar og fræðslu. Hún
var einn fyrsti íslenski fararstjórinn
til að fá fullgilt spænskt starfsleyfi
sem fararstjóri á Spáni til jafns á við
innlenda. „Ég var yfirfararstjóri og
það var mikil ábyrgð. Ég þurfti að
fara með fólk á spítala og hef sagt að
ég hafi gert allt nema að taka á móti
alltaf góð samvinna milli okkar far-
arstjóranna.“
Á síðari árum hefur Rebekka tek-
ið virkan þátt í starfi Hringsins.
Hún stundar postulínsmálun af
miklum krafti og sinnir öðrum
áhugamálum, s.s. ferðalögum er-
Rebekka Hólmfríður Kristjánsdóttir, fyrrverandi fararstjóri – 90 ára
Myndarhópur Barnabörn og barnabarnabörn Rebekku samankomin í janúar 2019.
Fararstjóri í fjörutíu ár
Markvörðurinn Íslandsmeistarar Ármanns í handbolta 1948 – Rebekka
fyrir miðri mynd í fremri röð, í smekkbuxum með hönd á bikarnum. Afmæli Rebekka Kristjánsdóttir.
Hjónin Jóhanna og Einar Birnir fagna 70 ára brúðkaupsafmæli í dag, 14. júní
2022 en þau giftu sig á þessum degi í Lágafellskirkju í Mosfellssveit árið 1952.
Jóhanna Ingimundardóttir er fædd 15.2. 1930 á Hellissandi, dóttir hjónanna
Magnfríðar Sigurlínadóttur og Ingimundar Guðmundssonar sjómanns, sem urðu,
sjúkdóma vegna, að sjá af dóttur sinni í fóstur árið 1937 til öndvegishjónanna
Þórunnar Guðmundsdóttur húsmóður og Kristjáns C. Jónssonar verkamanns í
Reykjavík, en þau urðu fósturforeldrar Jóhönnu.
Einar Birnir er fæddur 30.9. 1930, sonur hjónanna Bryndísar Einarsdóttur Birnir
og Björns Birnir, bænda að Grafarholti í Mosfellssveit. Sagan segir að Einar hafi
aðeins verið nokkurra mánaða gamall þegar afi hans Björn setti hann fyrst á
hestbak. En hestamennskan hefur verið Einari ástríðuáhugamál alla tíð.
Leiðir Jóhönnu og Einars lágu saman í vesturbæ Reykjavíkur árið 1949 og sagan
þeirra er skrifuð í stjörnurnar. Þau búa nú að Árskógum 6 í Reykjavík.
Í upphafi var hestamennska eitt af sameiginlegum áhugamálum þeirra en eftir
því sem börnunum fjölgaði varð minni tími hjá Jóhönnu er hún sinnti börnum og
stóru heimili. Hún lærði snemma að njóta kveðskapar og listar og hefur síðustu
ár verið öflug í tréútskurði.
Einar vann hjá Samvinnutryggingum, SÍS og síðast heildverslun G. Ólafssonar hf.
og var eigandi þess fyrirtækis og formaður í Félagi stórkaupmanna.
Jóhanna og Einar eiga 6 börn og eru afkomendur orðnir 37 talsins og búa í öllum
heimshornum. Þau hafa alla tíð notið þess að heimsækja börn sín og tóku lengst
af virkan þátt í fjölskyldulífi á hverjum stað. Í seinni tíð er mest verið að njóta
samvista og vera þakklát fyrir að halda sínu andlega atgervi við háan aldur.
Árnað heilla
Platínubrúðkaup
Þurrkgrindur
Lauga gi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
60 cm x 3,6 lm, ber 20 kg
Verð kr. 10.980
80 cm x 6,7 lm, ber 20 kg
Verð kr. 11.980
100 cm x 8,5 lm, ber 20 kg
Verð kr. 12.970
Útdraganleg
Verð kr. 7.980
3 stærðir
Vefverslun brynja.is
ve
Opi
ð virk
a
dag
a fr
á 9-
18
lau
. frá
11-
17
Innan-og
utandyra