Morgunblaðið - 14.06.2022, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022
„ÓKEI, Í SÍÐUSTU VIKU VORUÐ ÞIÐ
AÐ VELTA ÞVÍ FYRIR YKKUR HVERNIG
SKIPURITIÐ LITI ÚT BERSTRÍPAÐ.“
„HVÍ SAGÐIRÐU AÐ ÉG VÆRI SAKLAUS ÞAR SEM
ÉG HEFÐI VERIÐ AÐ BRJÓTAST INN ANNARS
STAÐAR? ERTU EKKI LÖGFRÆÐINGUR? “
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... skylda sem ber
umbunina í sjálfri sér.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
„KÆRA SPYRÐU HUNDINN,
HVER ER BESTA KVIKMYND
ALLRA TÍMA?“
VOFF! VOFF!
VOFF! VOFF!
GÆTIRÐU VERIÐ AÐEINS NÁKVÆMARI
EN „ÞESSI MEÐ HUNDINUM“?
ÉG GET EKKI SOFIÐ! EKKI ÉG
HELDUR!
VIÐ GÁTUM HELDUR
EKKI SOFIÐ!
lendis og golfiðkun. „Það er komið
ár síðan ég hætti golfinu, en ég fer
alltaf á miðvikudögum í postulíns-
málun og fer upp í sumarbústað. Ég
heyri vel og sé vel og keyri ennþá
bílinn.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Rebekku er Sig-
urður R. Guðjónsson, f. 16.6. 1933,
rafverktaki og kaupmaður. Re-
bekka var gift Guðjóni Pálssyni, f.
23.8. 1929, d. 16.4. 2014, hljóðfæra-
leikara og tónlistarkennara. Þau
slitu samvistum 1958. Rebekka var
einnig gift Jóhanni Ara Hróalds
Guðmundssyni, f. 25.3. 1925, d.
29.10. 2009, innheimtustjóra hjá
Pósti og síma. Þau slitu samvistum
1986.
Börn Rebekku eru 1) Páll Guð-
jónsson viðskiptafræðingur, f. 16.12.
1950, býr í Kópavogi; maki: Ingi-
björg Flygenring; 2) Fanný Guð-
jónsdóttir, heilbrigðisgagnafræð-
ingur, f. 22.11. 1952, býr í Kópavogi;
maki: Þorsteinn Höskuldsson; 3)
Herjólfur Guðjónsson, húsasmíða-
meistari, f. 17.8. 1954, býr í Garða-
bæ, maki Anna Kristín Fenger; 4)
Jón Jóhannsson, rekstrarfræðingur,
f. 17.11. 1964 , býr í Kópavogi, maki:
Ásta Þóra Valdimarsdóttir; 5) Sig-
ríður Jóhannsdóttir, f. 8.9. 1967, býr
í Reykjavík. Barnabörnin eru 13 og
barnabarnabörnin 16.
Systkini Rebekku voru Hanna
Helga Kristjánsdóttir, f. 12.8. 1918,
d. 15.7. 1938, Margrét Kristjáns-
dóttir, f. 1.2. 1921, d. 12.9. 1999, Jón-
ína Kristjánsdóttir, f. 3.5. 1922, d.
1.10. 2018, og Magnús Jakob Krist-
jánsson, f. 10.1. 1925, d. 22.10. 1941.
Foreldrar Rebekku voru Kristján
Guðlaugur Einarsson, f. 5.1. 1892 í
Hattardal í Álftafirði, d. 24.3. 1979,
sjómaður á Ísafirði, og Katrín
Hólmfríður Magnúsdóttir, f. 5.10.
1897 í Purkey á Breiðafirði, d. 14.3.
1990, húsfreyja á Ísafirði.
Rebekka
Hólmfríður
Kristjánsdóttir
Katrín Elísabet Jónasdóttir
húsfreyja á Hellu
Helgi Bjarnason
bóndi á Hellu á Fellsströnd
Helga Helgadóttir
húsfreyja á Ísafirði
Magnús Guðbrandsson
skipstjóri á Ísafirði
Katrín Hólmfríður Magnúsdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Sigríður Magnúsdóttir
húsfreyja á Neðri-Yxnakeldu
Guðbrandur Guðmundsson
bóndi á Neðri-Yxnakeldu
í Breiðavíkurhreppi, Snæf.
Margrét Jónsdóttir
húsfreyja á Svarfhóli
Jón Björnsson
bóndi á Svarfhóli í
Álftafirði, Ísafjarðardjúpi
Jónína Gróa Jónsdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Einar Sigurðsson
vinnumaður í Ögri, síðar í Bolungarvík
Kristín Ólafsdóttir
húsfreyja á Strandseljum
og Hjöllum
Sigurður „Probbi“ Þorsteinsson
bóndi á Strandseljum og Hjöllum
í Skötufirði, Ísafjarðardjúpi
Ætt Rebekku Hólmfríðar Kristjánsdóttur
Kristján Guðlaugur Einarsson
sjómaður á Ísafirði
Á Boðnarmiði yrkir Guðmundur
Arnfinnsson „Sjómannalof“:
Sjómenn færa björg í bú,
bæta kjör og þjóðarhag,
flottir bæði fyrr og nú,
fagna skulum þeim í dag.
Halda þeir um höfin blá,
hróður landans bera vítt,
reyna mátt við reiðan sjá,
Ránardætur óttast lítt.
Sjómannslífið dýrka og dá
dáðrakkir í hverri raun,
virðingu og vegsemd fá,
verðskulda hin æðstu laun.
Tryggvi Jónsson skrifar:
„Þar sem skrokkurinn er sífellt
að kvarta og segist vera orðinn
eldri en sálin, þá skottaðist ég til
doksa og bar mig aumlega því af
slæmri reynslu þá hef ég komist að
því að það borgar sig ekki að bera
sig mannalega þegar maður á í við-
skiptum við þá ágætu menn og kon-
ur.
Þeim viðskiptum lauk með
myndatöku, blóðprufu og litlum
bláum pillum“:
Horfinn þróttur, horfið þrek
heldur bústinn kviður.
Fæturnir sem fúið sprek
fúnar geðið niður.
Grána hærur, gleymast spor
gigtin leiða veldur.
Eldist kallinn, ekkert þor,
orðin næstum geldur.
Lyftist sálin líknar þraut
líkt og sumarylur.
Leiði og drungi líða á braut,
eftir litlar bláar pillur.
Ólafur Stefánsson svaraði með
góðum óskum:
Gleði á ný hjá garpi finn
gamla flóir saftin.
Úr pilluglasi pótensinn
piltur fær og kraftinn.
Magnús Geir Guðmundsson kvað:
Það eflaust er sagt með sann,
seint ég betur að gái
að alltaf hún elti mann,
Elli kerling og nái!
Ingunn Björnsdóttir svaraði:
Gleðstu við þá góðu frétt
að göfugt man þig elti.
þótt aðrar konur, alveg rétt,
þér ei fyrir sér velti.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á sjómannadaginn
og horfið þrek