Morgunblaðið - 14.06.2022, Blaðsíða 26
DANMÖRK
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Viktor Gísli Hallgrímsson, lands-
liðsmarkvörður í handknattleik,
varð um helgina danskur meistari
með liði sínu GOG eftir að liðið
hafði betur gegn Aroni Pálmarssyni
og félögum í Aalborg, þar sem Arn-
ór Atlason er aðstoðarþjálfari, í
æsispennandi úrslitaeinvígi.
GOG vann annan leik liðanna í
Álaborg á sunnudag, 27:26, eftir að
fyrri leiknum á heimavelli GOG
hafði lokið með 25:25-jafntefli á
miðvikudag. Einn sigur reyndist
nóg til þess að tryggja titilinn.
„Þetta er mjög skrítið kerfi
hérna í Danmörku. Við þurftum
þrjú stig þannig að það dugar að
taka jafntefli og sigur,“ útskýrði
Viktor Gísli í samtali við Morg-
unblaðið. Hann var vitanlega í skýj-
unum með sigurinn enda um fyrsta
danska meistaratitil GOG í 15 ár að
ræða.
Liðið vann tvöfalt á tímabilinu
þar sem það stóð einnig uppi sem
deildarmeistari. „Líðanin er bara
geggjuð. Það er gaman að vinna
Aalborg loksins einu sinni í úrslita-
leik á þessum þremur árum sem ég
var hérna. Það er góð tilfinning,“
sagði Viktor Gísli sem verður 22
ára í næsta mánuði og á að baki 35
A-landsleiki fyrir Íslands hönd.
Náðu loks að skáka Aalborg
Sigurinn um helgina var sérlega
sætur þar sem GOG hefndi til að
mynda fyrir tap gegn Aalborg í bik-
arúrslitum í apríl síðastliðnum en
GOG og Aalborg hafa elt grátt silf-
ur saman undanfarin ár. „Já klár-
lega. Við töpuðum líka á móti þeim í
undanúrslitunum um danska
meistaratitilinn í fyrra.“
Að sögn Viktors Gísla hefur
danski meistaratitillinn mikla þýð-
ingu fyrir fólk á svæðinu en GOG
leikur heimaleiki sína í smábænum
Gudme sem tilheyrir Svendborg-
sveitarfélaginu á eyjunni Fjóni.
„Það er fólk bæði í Gudme og
Gudbjerg sem styður okkur. GOG
stendur fyrir Gudme Oure Gud-
bjerg, sem eru þrír litlir bæir sem
eru svona kjarninn, en svo eru líka
margir í Svendborg sem styðja okk-
ur,“ útskýrði hann.
Hefði ekki getað endað betur
Þriggja ára dvöl Viktors Gísla
hjá GOG er nú lokið en hann er bú-
inn að semja við franska stórliðið
Nantes. Hann sagði það ánægjulegt
að hafa endað dvölina í Danmörku á
meistaratitlinum.
„Já það er bara geggjað. Þetta
hefði ekki getað endað betur. Ég
hefði í rauninni ekki getað beðið um
betri leið til að kveðja.“
Spurður hvenær hann haldi
formlega til Nantes sagði Viktor
Gísli: „Við byrjum að æfa 20. júlí
þar en ég er ekki alveg kominn með
dagsetninguna á því hvenær ég fer
sjálfur út. það verður bara einhvern
tímann fyrir það.“ Fyrst flytur
hann heim til Íslands áður en hann
flytur búferlum til Frakklands. „Ég
flyt eftir þrjá daga til þess að koma
mér heim sem fyrst.“
Vonast eftir
Meistaradeildarsæti
Á nýafstöðnu tímabili hafnaði
Nantes í öðru sæti frönsku 1. deild-
arinnar á eftir París Saint Germain.
Ekki er enn komið á hreint hvort
Nantes fylgi PSG í Meistaradeild
Evrópu en félagið mun í það
minnsta láta á það reyna.
„Þeir eru að berjast um að fá
„wildcard“-sæti til þess að komast í
Meistaradeildina. Ég held að það sé
mjög langt síðan franska deildin
hefur bara verið með eitt lið í
Meistaradeildinni þannig að ég er
bjartsýnn á að liðið muni fá þetta
„wildcard“-sæti,“ sagði Viktor Gísli.
Hann greindi frá því að samn-
ingur sinn við Nantes væri til
næstu þriggja ára. Samningur
Viktors Gísla við GOG var einnig til
þriggja ára og kvaðst hann afar
spenntur fyrir nýrri áskorun.
„Ég er mjög spenntur. Ég hlakka
til að prófa eitthvað nýtt eftir að
hafa verið hérna í Danmörku. Þetta
var alltaf planið, að fara eitthvað
annað eftir þrjú ár hérna, þannig að
það er gott að uppfylla það mark-
mið,“ sagði Viktor Gísli að lokum í
samtali við Morgunblaðið.
Gaman að vinna þá loksins
- Dvöl Viktors hjá GOG lauk með dönskum meistaratitli eftir útisigur á Aalborg
- Fyrsti meistaratitillinn í 15 ár - Spenntur fyrir nýrri áskorun hjá Nantes
Meistarar Viktor Gísli Hallgrímsson, hvítklæddur, fagnar meistaratitlinum með þremur samherjum sínum í GOG.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2022
2. deild kvenna
Álftanes – Fram........................................ 0:3
Staðan:
Grótta 4 3 1 0 20:2 10
Fram 3 3 0 0 9:0 9
KH 3 2 1 0 11:5 7
ÍR 3 2 1 0 7:4 7
Sindri 4 2 0 2 7:12 6
Völsungur 2 1 1 0 3:2 4
ÍH 4 1 1 2 10:12 4
ÍA 2 1 0 1 2:3 3
Álftanes 4 1 0 3 8:11 3
Hamar 3 0 1 2 2:6 1
Einherji 3 0 0 3 2:9 0
KÁ 3 0 0 3 3:18 0
Þjóðadeild UEFA
B-deild, 2. riðill:
Ísland – Ísrael........................................... 2:2
Staðan:
Ísrael 3 1 2 0 6:5 5
Ísland 3 0 3 0 5:5 3
Albanía 2 0 1 1 2:3 1
Rússlandi var vísað úr keppni og fellur í C-
deild.
Leikir sem eftir eru:
24.9. Ísrael – Albanía
27.9. Albanía – Ísland
A-deild, 1. riðill:
Danmörk – Austurríki ............................. 2:0
Frakkland – Króatía ................................ 0:1
_ Danmörk 9, Króatía 7, Austurríki 4,
Frakkland 2.
C-deild, 3. riðill:
Kasakstan – Slóvakía ............................... 2:1
Aserbaídsjan – Hvíta-Rússland.............. 2:0
_ Kasakstan 10, Slóvakía 6, Aserbaídsjan
4, Hvíta-Rússland 2.
Undankeppni HM karla
Úrslitaleikur um sæti á HM:
Ástralía – Perú ........................ (0:0) 5:4 (víti)
Bandaríkin
Chicago – Orlando Pride........................ 1:0
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Orlando Pride.
Svíþjóð
Eskilstuna – Örebro ................................ 2:0
- Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leik-
inn með Örebro.
Vináttulandsleikur karla
Albanía – Eistland.................................... 0:0
50$99(/:+0$
_ Guðlaug Edda Hannesdóttir hafn-
aði í 31. sæti í keppni 55 sterkustu þrí-
þrautarkvenna heims á heimsmeist-
aramótaröðinni í þríþraut í Leeds á
Englandi um helgina. Hún vann sig
upp alla keppnina, var í 45. sæti eftir
sundið, í 37. sæti eftir hjólreiðarnar og
að lokum í 31. sæti eftir hlaupið þar
sem hún náði sínum besta tíma í þrí-
þraut, hljóp fimm kílómetra á 17,30
mínútum. Hún fær fyrir þennan árang-
ur stig inn á nýjan úrtökulista fyrir Ól-
ympíuleikana 2024.
_ Giorgio Chiellini, fyrirliði ítölsku
Evrópumeistaranna í knattspyrnu á
síðasta ári, hefur samið við Los Angel-
es FC til ársloka 2023 en félagið stað-
festi þetta í gær. Chiellini er 37 ára og
kvaddi Juventus í vor eftir átján ár þar
og lék kveðjulandsleik sinn með Ítalíu
á dögunum þegar liðið mætti Argent-
ínu á Wembley. Chiellini lék samtals
561 mótsleik með Juventus og 117
landsleiki fyrir Ítalíu.
_ Írski körfuboltamaðurinn Taiwo
Badmus sem lék með Tindastóli á síð-
asta keppnistímabili hefur samið að
nýju við Skagfirðinga um að leika
áfram með þeim næsta vetur.
Badmus, sem er 28 ára gamall fram-
herji og landsliðsmaður Írlands, fædd-
ur í London, var í stóru hlutverki hjá
Tindastóli í vetur þegar liðið komst í
úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratit-
ilinn en mátti sætta sig við ósigur
gegn Val í oddaleik.
Eitt
ogannað
Ólafur Andrés Guðmundsson lands-
liðsmaður í handknattleik er á för-
um frá Montpellier í Frakklandi
eftir aðeins eitt tímabil með liðinu.
Ólafur kom þangað frá Kristian-
stad í Svíþjóð síðasta sumar en
missti mikið úr vegna meiðsla og
lék ekkert með liðinu á seinni hluta
tímabilsins, eftir að hafa leikið með
íslenska landsliðinu á EM í Ung-
verjalandi í janúar. Ólafur hefur
verið orðaður við Kolstad í Noregi
en þangað fara bæði Janus Daði
Smárason og Sigvaldi Björn Guð-
jónsson fyrir næsta tímabil.
Ólafur farinn frá
Montpellier
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Reyndur Ólafur Guðmundsson
hefur leikið 137 landsleiki.
Portúgalska knattspyrnufélagið
Benfica staðfesti í gær að samið
hefði verið við Liverpool sem kaup-
ir framherjann Darwin Núnez fyrir
64 milljónir punda. Samkvæmt
enskum fjölmiðlum hefur hann þeg-
ar samið við Liverpool til sex ára.
Núnez er 22 ára gamall Úrúgvæi og
skoraði 34 mörk í 41 mótsleik fyrir
Benfica á nýliðnu tímabili. Tvö
gegn Liverpool í Meistaradeildinni
og alls sex í keppninni. Þá hefur
Núnez skoraði tvö mörk í fyrstu ell-
efu landsleikjum sínum fyrir Úrú-
gvæ.
Staðfestu söl-
una til Liverpool
AFP/Patricia De Melo Moreira
Liverpool Darwin Núnez er á leið-
inni til Englands í sumar.
Danir og Króatar berjast um sæti í
undanúrslitum Þjóðadeildar UEFA
í fótbolta á meðan heimsmeistarar
Frakklands eru neðstir í A-riðli, án
sigurs, og gætu hæglega fallið nið-
ur í B-deildina.
Danir sigruðu Austurríki, 2:0, á
heimavelli í gærkvöld þar sem Jo-
nas Wind skoraði fyrra markið á
21. mínútu og lagði það seinna upp
fyrir Andreas Skov Olsen á 37. mín-
útu.
Króatar gerðu góða ferð til
Frakklands þar sem þeir hefndu
fyrir tapið í úrslitaleik HM 2018 í
Rússlandi og sigruðu Frakka 1:0
með marki frá Luka Modric úr víta-
spyrnu strax á fimmtu mínútu
leiksins eftir að brotið var á Orel
Grinfeld.
Eftir fjórar umferðir af sex eru
Danir með 9 stig, Króatar 7, Aust-
urríkismenn 4 og Frakkar 2 stig.
Króatar eiga eftir heimaleik sinn
við Dani og útileik við Austurríki
en Frakkar eiga eftir að spila
heima við Austurríki og mæta Dön-
um á útivelli í lokaleiknum.
AFP/Franck Fife
Mark Luka Modric skorar sigurmark Króata gegn Frökkum úr vítaspyrnu
á Stade de France og Frakkar geta nú ekki lengur unnið keppnina.
Danir eru efstir
en Frakkar neðstir