Morgunblaðið - 14.06.2022, Page 32
myntaráðs Íslands. Þá eigi hann og
reki sína eigin netverslun sem sér-
hæfi sig í innflutningi á þekktum
pólskum merkjavörum. „Líf mitt
hefur alfarið snúist um viðskipti
undanfarin ár og námið í Wharton er
eðlilegt framhald.“ Áður en hann
einbeitti sér alfarið að öllu sem við-
kemur viðskiptum og viðskiptafræði
var hann í íþróttum, spilaði fótbolta
með Breiðabliki í tíu ár, æfði box og
skák.
Fimm virtustu viðskiptaháskólar í
Bandaríkjunum buðu Mateusz
skólavist og í páskafríinu í apríl fór
hann með föður sínum vestur um haf
til þess að kynna sér þá betur.
„Þetta eru mjög flottir skólar og
upplifunin var ótrúleg, eins og í
kvikmynd. Ég valdi Wharton enda
hefur skólinn alltaf verið drauma-
skólinn minn og er talinn besti við-
skiptaháskóli í heimi.“
Lokamarkmið Mateusz, sem á 19
ára afmæli í dag, er að stofna eigið
alþjóðlegt fyrirtæki. Hann segir að
fyrirtæki á Wall Street í New York
sækist eftir útskrifuðum nemendum
frá Wharton sem og bandarískir
bankar og önnur stórfyrirtæki. „Mig
hefur alltaf langað að stofna mitt
eigið fyrirtæki en fyrst hef ég hug á
að prófa að vinna í einhverju flottu
fyrirtæki, hvort sem það er á Íslandi
eða í Ameríku, áður en ég fer mínar
eigin leiðir.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Síðsumars byrjar Mateusz Piotr
Jakubek nám í Wharton, viðskipta-
skóla Pennsylvaníuháskólans í
Bandaríkjunum, og er hann fyrsti
Íslendingurinn um árabil til að fá
inngöngu í skólann. Hann var á staf-
rænni viðskiptalínu á viðskiptabraut
í Verzlunarskóla Íslands og braut-
skráðist sem stúdent með 9,4 í með-
aleinkunn á dögunum. „Ég ætla að
leggja áherslu á eignastýringu, fjár-
festingarbankastarfsemi og mögu-
lega viðskiptalögfræði,“ segir hann.
Wharton er talinn einn virtasti
viðskiptaháskóli heims og ekki
hlaupið að því að fá inngöngu. Mat-
eusz bendir á að 55.000 umsóknir
hafi borist og aðeins 4,4% verið boð-
in skólavist, en á meðal útskriftar-
nema má nefna Elon Musk, Warren
Buffett og Donald Trump. Þegar
Mateusz var á fyrsta ári í VÍ áttaði
hann sig á mikilvægi skólans og seg-
ist þá hafa tekið stefnuna á að verða
þar nemandi.
„Wharton varð draumaháskólinn
minn og ég gerði allt sem ég gat,
bæði innan Versló og utan, til að
komast inn í hann.“
Drifkraftur frá foreldrunum
Mateusz fæddist á Íslandi en for-
eldrar hans fluttu hingað með tvær
hendur tómar frá litlum bæ skammt
frá Gdansk í Póllandi. Þau reka
pólsku nýlendu- og matvöruversl-
anirnar Mini Market en þar hefur
Mateusz ásamt bróður sínum oft að-
stoðað foreldra sína eftir skóla og
um helgar.
„Þegar ég var krakki fylgdist ég
með pabba í búðinni, hvernig hann
vann stanslaust og spjallaði við við-
skiptavini sína líkt og við fjölskyldu-
meðlimi. Þessi mikli drifkraftur for-
eldra minna hefur örugglega haft
áhrif á mig og hvatt mig áfram í
starfi sem og námi, þaðan fékk ég
áhuga á viðskiptum,“ segir Mateusz.
Undanfarin ár hefur hann unnið
með náminu hjá ýmsum fyrir-
tækjum, eins og til dæmis hjá grein-
ingarfyrirtækinu Jakobsson Capital,
nýbankanum Indó og Kontakt fyrir-
tækjaráðgjöf. Hann segir að til þess
að kynnast viðskiptalífinu enn frek-
ar hafi hann gefið sig fram í stjórn
félaga og sé meðal annars í stjórn fé-
lagsins Ungra fjárfesta og Raf-
Lífið snýst um viðskipti
- Mateusz fyrsti Íslendingurinn um árabil í nám í Wharton
Á draumastaðnum Mateusz Jakubek fyrir utan Wharton í Bandaríkjunum.
Ef þú hefur ekki heimsótt Færeyjar
nýlega skaltu láta verða að því.
Þangað er heillandi að koma,
stórbrotið landslag, gott vegakerfi,
góður matur og rómuð gestrisni
eyjaskeggja.
Ferðaskrifstofa eldri borgara býður sérferð fyrir eldri
borgara til Færeyja dagana 22.-26. ágúst. Flogið frá
Keflavík með Atlantic Airways og gist á hinu glæsilega
Hótel Brandan 4* Fararstjóri: Gísli Jafetsson.
Innifalið í verði: Flug báðar leiðir frá Keflavík til Færeyja.
Gisting á Hótel Brandan 4* í 4 nætur, morgunverður og
kvöldverður alla daga. Auk þess skoðunarferðir til Götu,
Klaksvíkur, Fuglafjarðar, Gásadals og víðar. Heimsókn í
Norðurlandahúsið og einnig að Kirkjubæ þar sem
hádegisverður er snæddur í elsta timburhúsi sem búið
er í í Evrópu.
*Aukagjald fyrir einbýli: 39.500 kr.
FÆREYJAR
með flugi 22.-26. ágúst
Verð kr. 199.900 á mann m.v. gistingu í tvíbýli*
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu
eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301,
einnig með tölvupósti í gegnum netfangið
hotel@hotelbokanir.is og á
www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is
Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750
Hótel Brandan
Sérferð
eldri borgara
Það er mikil
stemning í
okkar ferðum
Örfá sæti
laus
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 165. DAGUR ÁRSINS 2022
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 776 kr.
Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr.
PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr.
„Líðanin er bara geggjuð. Það er gaman að vinna Aal-
borg loksins einu sinni í úrslitaleik á þessum þremur
árum sem ég var hérna,“ sagði Viktor Gísli Hall-
grímsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, sem á
sunnudaginn varð danskur meistari með GOG eftir sig-
ur á Aroni Pálmarssyni og samherjum hans í Aalborg í
úrslitaleik á útivelli en það var kveðjuleikur hans með
liðinu. »26
Kveður GOG sem danskur meistari
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kvennakór Hornafjarðar heldur vortónleika í Guðríðar-
kirkju í Reykjavík í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20. Kórinn
fer í beinu framhaldi í söngferðalag til Bretlands og
syngur í borgunum Bournemouth og Pool 19. júní. Í til-
kynningu frá kórnum kemur fram að hann sé þekktur
sem „baráttukór eftir að hafa sungið á og vakið athygli á
einbreiðum brúm í Sveitarfélaginu Hornafirði“ en
kvennakórinn söng við formlega athöfn Vegagerðarinnar
þegar tvíbreið brú við Steinavötn í Suðursveit var tekin í
notkun. Stjórnandi er Heiðar Sigurðsson sem hefur út-
sett og samið mörg þeirra laga sem kórinn flytur.
Vortónleikar fyrir söngferðalag