Morgunblaðið - 24.06.2022, Side 4

Morgunblaðið - 24.06.2022, Side 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 Aðalfundur í Valsmönnum hf. verður haldinn þriðjudaginn 12. júlí n.k. kl. 09:00 að Hlíðarenda við Laufásveg í Reykjavík. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs. 2. Ársreikningur félagsins ásamt endurskoðunarskýrslu lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um hvernig fara eigi með tap eða hagnað ársins. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5. Kjör stjórnar. 6. Kjör endurskoðanda. 7. Önnur mál a) Tillaga stjórnar Valsmanna hf. um þátttöku í framkvæmd og kostnaði á frágangi bílastæða, göngustíga og tengdra þátta á lóð Knattspyrnufélagsins Vals sbr. samning aðila og Reykjavíkurborgar þar um. Dagskrá, tillögur, ársreikningur, skýrsla stjórnar og skýrsla endurskoðanda vegna ársreiknings, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins að Hlíðarenda við Laufásveg í Reykjavík til sýnis fyrir hluthafa fram að fundinum. Hluthafar sem hyggjast skoða gögnin gefi sig fram við framkvæmdastjóra félagsins, Sigurð Lárus Hólm. Reykjavík, 24. júní 2022 Stjórn Valsmanna hf. AÐALFUNDUR VALSMANNA hf. Willum Þór Þórsson heilbrigðis- ráðherra gaf blóð í gær í Blóð- bankanum. Eins og greint hefur verið frá ríkir neyðarástand hjá Blóðbankanum vegna bágrar stöðu á lager bankans. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Willum gefur blóð en að hans eigin sögn er allt of langt síðan síðast. „Ég hefði viljað gera þetta miklu fyrr,“ sagði Willum við komu í Blóðbankann. Fór vel um hann í stólnum þar sem var tekið úr hon- um blóð og óskaði hann að hann myndi fá svona stól fyrir sig í heilbrigðisráðuneytið og uppskar hlátur viðstaddra. Sagði Willum að blóðgjöf lok- inni að vel staddur lager af blóði hjá Blóðbankanum væri öryggis- mál fyrir samfélagið og að núver- andi blóðgjafar ynnu mikið al- mannaheillastarf. Bætti hann þó við að lífsnauðsynlegt væri að fjölga blóðgjöfum hér á landi. „Við þurfum, með tilliti til tölu- legra staðreynda, augljóslega að fá fleiri með í hópinn,“ sagði Will- um og biðlaði til fólks að skrá sig sem blóðgjafa hjá Blóðbankanum. Í lokin tók Willum einnig fram að stutt væri í breytingar sem munu afnema mismunun gagnvart hin- segin fólki hvað varðar blóðgjöf. Morgunblaðið/Eggert Willum gaf blóð í Blóð- bankanum Rennur blóðið til skyldunnar og segir lífsnauðsynlegt að fjölga blóðgjöfum Tap Reykjavíkurborgar nam á fyrsta fjórðungi þessa árs tæpum 4,8 milljörðum króna, samanborið við tap upp á 4,3 milljarða á sama tíma í fyrra, og eykst um hálfan milljarð á milli ára. Hér er um að ræða rekstur A-hluta borgarinnar, en óendurskoðað rekstraruppgjör var lagt fram í borgarráði í gær. Fjárhagsáætlun borgarinnar gerði ráð fyrir 2,9 milljarða króna tapi á tímabilinu, og nemur tapið því tæpum tveimur milljörðum um- fram það sem gert var ráð fyrir. Tekjur borgarinnar námu á tíma- bilinu 35,3 milljörðum og jukust um 2,9 milljarða á milli ára. Þá eru tekjurnar rúmlega 700 milljónum króna hærri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrargjöld jukust um 2,7 milljarða króna á milli ára og námu 38 milljörðum. Það er um 1,7 millj- örðum króna hærra en fjárhags- áætlun borgarinnar gerði ráð fyrir. Launakostnaður jókst um 1,5 millj- arða króna á milli ára og nam tæp- um 21,4 milljörðum, sem er um 830 milljónum meira en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Í tilkynningu frá borginni kemur fram að frávik í launum sé metið á um 317 milljónir króna sem rekja megi til afleiðinga af heimsfaraldri kórónuveiru í upp- hafi ársins, sem krafðist meiri mönnunar og yfirvinnu en gert var ráð fyrir. A-hluti Reykjavíkurborgar var rekinn með rúmlega 3,8 milljarða króna halla á síðasta ári. Tap Reykjavíkurborgar töluvert umfram áætlanir - Launakostnaður jókst um 1,5 millj- arða á milli ára Morgunblaðið/ Óttar Afkoma Oddvitar núverandi meirihluta í Reykjavíkurborg. Maðurinn, sem handtekinn var í fyrradag vegna skotárásar í Mið- vangi í Hafnarfirði, var úrskurð- aður í Héraðsdómi Reykjaness í gærmorgun til að sæta vistun á við- eigandi stofnun í fjórar vikur. Margeir Sveinsson, aðstoðaryf- irlögregluþjónn hjá miðlægri rann- sóknardeild lögreglu, sagði við mbl.is í gær að rannsókn málsins miðaði vel og að það væri hvorki flókið né umfangsmikið. Margeir sagði ekki tímabært að gefa upp frekari upplýsingar um málið. Það er rannsakað sem til- raun til manndráps. Vistun á viðeigandi stofnun er hliðstætt úrræði við gæsluvarðhald og þurfa því skilyrði fyrir gæslu- varðhaldi að vera uppfyllt svo unnt sé að úrskurða einstakling í slíka vistun. Úrræðinu er því aðeins beitt í undantekningartilfellum. Vistaður á viðeig- andi stofnun Helgi Bjarnason helgi@mbl Forstjóri Hafrannsóknastofnunar vill efna til samtals við sjómenn um ráð- gjöf stofnunarinnar um hámarksafla einstakra nytjategunda fiska. Þor- steinn Sigurðsson forstjóri segir að slíkt samráð hafi verið viðhaft áður og það þurfi að endurvekja. Hann segir þó spurningu hvort það eigi að vera í því formi sem var eða með öðru fyr- irkomulagi. Borið hefur á gagnrýni á þá ráðgjöf sem Hafró kynnti á dögunum. Hún fól meðal annars í sér að draga þurfi úr veiðum á þorski og karfa. Björn Jón- asson, skipstjóri á Málmey SK1, og Ágúst Ómarsson, skipstjóri á Drang- ey SK2, skrifuðu til að mynda grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær, með harðorðri gagnrýni á Hafrann- sóknastofnun. Þar kemur fram að tiltrú sjómanna á að rétt sé að málum staðið, fari síminnkandi. Ráðgjöfin sé, að mati flestra reyndustu skipstjóra og sjómanna landsins, algjört rugl. Björn og Ágúst skora á ráðherra sjávarútvegsmála að kalla nokkra af reynsluboltum sjómannastéttarinnar á sinn fund, kíkja jafnvel í veiðidag- bækur skipanna, og kynna sér raun- veruleikann í lífríki sjávar eins og hann blasi við þeim sem vinna á sjón- um. Þeir nefna að best væri að það leiddi til skapandi samráðsvettvangs á milli skipstjórnarmanna og sér- fræðinga Hafró. Mismunandi sýn á stöðu mála Þorsteinn Sigurðsson tekur undir það sjónarmið að samræðurnar þurfi að vera öflugri, svo menn skilji hver annan. Viðurkennir hann að svo virð- ist, miðað við það sem hann heyri og lesi, að mjög mismunandi sýn sé á stöðu mála, bæði í þorski og karfa. Segist hann hafa rætt þá hugmynd að efna til samráðs, bæði innanhúss hjá Hafró og á fundi hjá Samtökum fyr- irtækja í sjávarútvegi. Segir Þorsteinn að gagnrýni sé af hinu góða. Þó sé mikilvægt að útskýra sjónarmið stofnunarinnar, ekki síst fyrir mönnum sem hafa mikla reynslu og þekkingu, bera saman við þeirra upplifun og útskýra í hverju munur- inn liggur. Sjómenn fullyrða gjarnan að sjór- inn sé fullur af fiski og það segja Björn og Ágúst. Spurður, hvort ekki sé mark takandi á því, segir Þorsteinn að vissulega sé mikið af fiski í sjónum. Það gefi einnig upplýsingar Hafró til kynna. „Málið snýst um hvernig þeirra upplifun er, miðað við okkar tölur. Verkefnið er að skýra það út,“ segir hann. Vill ræða við sjómenn - Skipstjórar telja ráðgjöf Hafró algjört rugl - Forstjórinn hyggst efna til sam- ráðs til að skýra sjónarmið stofnunarinnar og hlusta á sjónarmið sjómanna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.