Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 10
Guðrún Sigríður Arnalds gsa@mbl.is Framvæmdir á lóðinni við Valhöll eru hafnar og hafa nú þegar trén sem umkringja lóðina fengið að fjúka. Þórður Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir við Morgunblaðið að enn sem komið er gangi allt eftir áætlun. „Framkvæmdir ganga vel, en það má gera ráð fyrir því að svona upp- bygging taki um 18 til 24 mánuði þótt það geti vel verið að þeir verði sneggri að þessu.“ bætir Þórður við. Umræddar framkvæmdir eru til uppbyggingar skrifstofubyggingar og íbúðarhúsnæðis við Háaleitis- braut 1, en þær voru samþykktar á fundi skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkurborgar í lok ársins 2019. Valhöll er á lóðinni en þar má finna skrifstofur Sjálfstæðisflokks- ins auk tannlæknastofu. Framkvæmdir á lóðinni munu taka mið af þéttingu byggðar því við Valhöll eru nú 88 bílastæði en þau verða 125 og hjólastæðum fjölgar úr engu í 115. Húsið verður 5.000 fm, með 48 íbúðum og byggt á 5-6 hæðum. Framkvæmdir hafnar við Valhöll - Vel gengur að byggja - Búist við framkvæmdum í 18 til 24 mánuði Morgunblaðið/Björn Jóhann Framkvæmdir Þessi steinn fær að fjúka seinna meir í framkvæmdunum. Morgunblaðið/Eggert Valhöll Búið er að rífa allmörg tré sem umkringdu lóðina. Framkvæmdir eru nýhafnar og eru enn á áætlun. Tölvuteikning/THG Arkitektar Bolholt Svona á húsið að líta út þegar framkvæmdum lýkur, en á hægri hönd sést skuggamynd af Valhöll. 10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 Sumar- verkin Sími 581 4000 | solarehf.is | solarehf@solarehf.is Samkeppnishæf verð, fagmennska og áratuga þekking. Bílaplön, stéttar, klæðningar, gluggar, bílastæðahús. Ekkert verkefni er okkur ofviða. Hitanum var nokkuð misskipt milli landshluta í gær en á meðan sólin lék við íbúa á suðvesturhorninu var kalt loft yfir landinu fyrir norðan og gránaði í fjöll í Vaðlaheiði. „Það er mjög kalt loft yfir landinu og verður svoleiðis núna en tekur upp að mestu leyti yfir daginn á morgun. Verður jafnvel kalt aðfara- nótt laugardags líka en síðan er þetta líklega búið,“ sagði veðurfræð- ingur hjá Veðurstofu Íslands þegar blaðamaður sló á þráðinn í gær. „Þetta gerist alltaf annað slagið þeg- ar gengur í kalda norðanátt eins og núna. Hún er nokkuð hvöss og við búum bara svo norðarlega á kúlunni að þetta getur gerst annað slagið.“ Búast má við keimlíku veðri í dag nema það dregur úr vindi. Heitast verður á Suðurlandinu með allt að 13 stiga hita en svalast fyrir norðan þar sem gera má ráð fyrir smávægi- legri rigningu á láglendinu en slyddu til fjalla. Hiti fer varla yfir sjö gráður. Morgunblaðið/Margrét Þóra Svalt Búast má við svipuðu veðri fyrir norðan á morgun. Snjókoma daginn fyrir Jónsmessu - Spáð er keimlíku veðri á morgun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.