Morgunblaðið - 24.06.2022, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022
_ Handknattleikskonan Ragnheiður
Sveinsdóttir er gengin til liðs við upp-
eldisfélag sitt, Hauka, á nýjan leik og
hefur samið til tveggja ára. Hún er 28
ára og leikur á línunni og spilaði með
Haukum frá 2010 til 2019 en lék síðan
í hálft þriðja ár með Val. Á síðasta
tímabili lék Ragnheiður 25 af 29 leikj-
um Vals í deild og úrslitakeppni.
_ Kvennalið Vals í körfuknattleik hef-
ur fengið til liðs við sig portúgalskan
bakvörð, Somone Costa, sem kemur
frá Uniao Sportiva í heimalandi sínu.
Somone skoraði þar 11 stig, tók fjögur
fráköst og átti tvær stoðsendingar að
meðaltali í leik á síðasta tímabili en lið
hennar hafnaði í öðru sæti. Hún hefur
einnig leikið með Nottingham Wild-
cats á England og með bandarísku há-
skólaliði.
_ Sigurður Víðisson hefur verið ráð-
inn þjálfari KV sem leikur í 1. deild
karla í fótbolta en hann tekur við af
Sigurvin Ólafssyni sem hætti hjá fé-
laginu á dögunum til að taka við sem
aðstoðarþjálfari hjá FH. Sigurður er 57
ára og á langan feril að baki í þjálfun,
sérstaklega í meistaraflokki kvenna
þar sem hann þjálfaði FH, HK/Víking,
Fjölni og Augnablik á árunum 2002 til
2016.
_ Enska knattspyrnufélagið New-
castle keypti í gær enska landsliðs-
markvörðinn Nick Pope af Burnley fyr-
ir tíu milljónir punda og samdi við
hann til fjögurra ára.
_ Kylfingarnir Andri Þór Björnsson
og Guðmundur Ágúst Kristjánsson
deila 36. sæti með fjölmörgum öðrum
eftir fyrsta hringinn á Blot Open de
Bretagne-golfmótinu sem hófst í
Frakklandi í gær. Þeir léku hringinn á
69 höggum, einu höggi undir pari vall-
arins. Mótið er liður í Áskorenda-
mótaröð Evrópu.
_ Kylfingurinn Aron Snær Júlíusson
er í tíunda sæti eftir tvo hringi á UNI-
CEF-meistaramótinu í golfi sem nú
stendur yfir í Lübker Sand í Dan-
mörku. Aron lék á 71 höggi á öðrum
hring í dag, einu undir pari vallarins,
og er samtals á þremur höggum undir
pari eftir tvo hringi og deilir tíunda
sætinu með tveimur öðrum kepp-
endum en mótið er liður í Nordic Golf-
mótaröðinni. Aron Bergsson, Gísli
Sveinbergsson og Hákon Harðarson
eru einnig á meðal keppenda á mótinu
en þeir komust ekki í gegnum niður-
skurðinn í dag og hafa því lokið
keppni.
_ Ragnhildur Kristinsdóttir og Perla
Sól Sigurbrandsdóttir komust í 64
manna úrslit á Opna áhugamanna-
mótinu í golfi sem stendur yfir í Hun-
stanton á Englandi. Perla, sem er í
544. sæti á heimslista áhugamanna,
tapaði naumlega fyrir Ingrid Lindblad
frá Svíþjóð, sem er í öðru
sæti listans, og Ragn-
hildur, sem er í 324
sæti heimslistans tap-
aði fyrir Celinu Sattel-
kau frá Þýskalandi
sem er í 84. sæti.
Þær Jóhanna Lea
Lúðvíksdóttir,
Andrea Björg
Bergs-
dóttir og
Hulda
Clara Gests-
dóttir féllu fyrr
úr keppni á
mótinu.
Eitt
ogannað
Aldís Ásta Heimisdóttir, landsliðs-
kona í handknattleik úr KA/Þór, er
gengin til liðs við sænska úrvals-
deildarfélagið Skara og hefur sam-
ið við það til tveggja ára. Félagið
skýrði frá þessu í gær en það hafn-
aði í sjötta sæti sænsku úrvalsdeild-
arinnar á nýliðnu tímabili.
Aldís Ásta er 23 ára leikstjórn-
andi og hefur verið í stóru hlut-
verki hjá KA/Þór undanfarin ár,
m.a. þegar félagið varð Íslands-
meistari árið 2021. Hún kom í
fyrsta skipti inn í íslenska lands-
liðið á síðasta ári.
Aldís Ásta farin
til Svíþjóðar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Svíþjóð Aldís Ásta Heimisdóttir
leikur með Skara næstu tvö árin.
Víkingar mæta meistaraliði An-
dorra, Inter d’Escaldes, í úrslitaleik
forkeppni Meistaradeildar karla í
fótbolta á Víkingsvellinum í kvöld.
Sigurliðið mætir Svíþjóðarmeist-
urum Malmö í 1. umferð undan-
keppninnar í Meistaradeildinni en
tapliðið fer yfir í 2. umferð Sam-
bandsdeildar Evrópu og mætir þar
Pyunik frá Armeníu eða CFR Cluj
frá Rúmeníu. Inter vann La Fiorita
frá San Marínó 2:1 í hinum undan-
úrslitaleik forkeppninnar og hefur
áður unnið Evrópuleiki gegn HB frá
Færeyjum og Teuta frá Albaníu.
Úrslitaleikur
á Víkingsvelli
Morgunblaðið/Hákon
Mark Víkingar fagna einu mark-
anna gegn Levadia á þriðjudaginn.
UPPRUNI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Liðin tíu, sem skipa Bestu deild
kvenna í fótbolta árið 2022, notuðu
205 leikmenn í fyrstu tíu umferðum
Íslandsmótsins. Þar af fengu 170
leikmenn að spila einn eða fleiri leiki
í byrjunarliði en 35 komu við sögu
sem varamenn í einum eða fleiri
leikjum.
Af þessum 205 leikmönnum eru 77
uppaldir hjá viðkomandi félagi. Af
þeim fengu 53 tækifæri í byrjunar-
liði uppeldisfélagsins í fyrstu tíu um-
ferðunum en 24 komu inn á sem
varamenn.
_ ÍBV hefur alið upp flesta leik-
menn sem nú spila í deildinni, 15
talsins. Tólf þeirra léku með liðinu í
fyrstu tíu umferðunum, átta þeirra í
byrjunarliði, og þá leika Eyjakon-
urnar Clara Sigurðardóttir með
Breiðabliki, Elísa Viðarsdóttir með
Val og Sóley Guðmundsdóttir með
Stjörnunni.
Allar tólf íslensku konurnar, sem
hafa spilað með ÍBV á tímabilinu,
eru uppaldar hjá félaginu en hinar
níu, sem hafa komið við sögu á tíma-
bilinu, koma erlendis frá.
_ Breiðablik kemur næst með 14
uppalda leikmenn í deildinni. En það
ótrúlega við það er að í þessum tíu
umferðum hefur aðeins einn uppal-
inn leikmaður Breiðabliks verið í
byrjunarliði Kópavogsfélagsins. Það
er fyrirliðinn Ásta Eir Árnadóttir.
Fjórar hafa komið við sögu sem
varamenn en hinar níu leika allar
með öðrum liðum í deildinni.
Þar af þrjár með Val, sem þýðir að
Valsliðið hefur notað fleiri leikmenn
sem hafa alist upp hjá Breiðabliki en
á Hlíðarenda.
_ Einu uppöldu leikmennirnir
sem hafa komið við sögu hjá Val eru
Elín Metta Jensen og Sigríður Th.
Guðmundsdóttir, tveir leikmenn af
nítján. Samt hafa tíu leikmenn í
deildinni alist upp hjá Val en átta
þeirra leika með öðrum liðum. Sem
dæmi leika fleiri Valskonur með
Þrótti en með Val.
_ Síðan er staðan hjá Akureyr-
arliðinu Þór/KA afar áhugaverð. Af
18 leikmönnum sem liðið hefur notað
eru 13 uppaldir Akureyringar, sjö
hjá Þór og sex hjá KA, og tólf þeirra
hafa verið í byrjunarliði. Alls hafa 20
leikmenn, uppaldir á Akureyri, leikið
í deildinni í ár, 11 frá KA og níu frá
Þór.
_ Þá er Selfoss eina félagið, fyrir
utan ÍBV, þar sem uppaldir leikmenn
eru meira en helmingur þeirra sem
hafa komið við sögu í deildinni í ár.
_ En í raun eiga flestir leik-
menn í deildinni rætur sínar að
rekja til Bandaríkjanna. Af 42 er-
lendum leikmönnum í deildinni í
ár eru nítján konur frá Bandaríkj-
unum, auk þess sem margar
þeirra sem koma frá öðrum lönd-
um hafa farið í gegnum banda-
ríska skóla áður en þær komu til
Íslands. Ástralskar konur eru
næstflestar, fjórar talsins, og svo
þrjár frá Lettlandi, sem allar leika
með ÍBV.
Flestar koma þær frá ÍBV
- Uppaldir leikmenn í Bestu deild kvenna eru 77 af 205 í fyrstu 10 umferðunum
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Eyjakonur Allar íslensku stúlkurnar í liði ÍBV eru uppaldar í Eyjum.
Hvaðan koma leikmennirnir í Bestu deild kvenna 2022
Valur (19)
Breiðablik 3, Valur 2,
Afturelding 2, Bandaríkin
2, Haukar 2, Fylkir 2, KS
1, ÍBV 1, Þór 1, KA 1, KR 1,
Venesúela 1
Breiðablik
(22)
Breiðablik 5, Höttur 2,
Bandaríkin 2, Fjarða-
byggð 1, KA 1, Valur 1,
Úkraína 1, Belgía 1, FH 1,
Afturelding 1, Ástralía 1,
Stjarnan 1, ÍBV 1, Tinda-
stóll 1, KFR 1, Haukar 1.
Stjarnan (22)
Stjarnan 7, KR 2,Víkingur
Ó.2, Guyana 1, Breiðablik
1,Valur 1, ÍBV 1, Sindri
1, Þór 1, Nýja-Sjáland 1,
Fjölnir 1, Grótta 1, FH 1,
Bandaríkin 1.
ÍBV (21)
ÍBV 12, Lettland 3,
Bandaríkin 3, Þýskaland
1, Rúmenía 1, Svíþjóð 1.
Þróttur R.
(19)
Þróttur R. 7, Valur 3,
Bandaríkin 2, Fylkir
1, Fjölnir 1, Haukar 1,
Fjarðabyggð 1, Ástralía 1,
HK 1, Breiðablik 1.
Selfoss
(19)
Selfoss 10, Keflavík 2,
Taíland 2, Bandaríkin 2,
FH 1, Höttur 1,Ægir 1.
Keflavík
(19)
Keflavík 9, Breiðablik 2,
Bandaríkin 2, Slóvenía
1, Grindavík 1, Brasilía
1, Danmörk 1, Spánn 1,
Reynir S. 1.
Þór/KA
(18)
Þór 7, KA 6, Víkingur R. 1,
Grindavík 1, Tindastóll 1,
Bandaríkin 1, Völsung-
ur 1.
KR (23)
KR 7, KA 3, Breiðablik 2,
Ástralía 2, ÍA 2, Selfoss
1, Bandaríkin 1, Svíþjóð
1, Afturelding 1, BÍ 1,
Stjarnan 1, Serbía 1.
Afturelding
(23)
Afturelding 5, Fylkir 3,
Valur 3, Bandaríkin 3,
Víkingur R. 2, Breiðablik
2, Jamaíka 1, BÍ 1, ÍA 1,
Belgía 1, Spánn 1.
Heildarfjöldi (byrjunarlið + varamenn)
ÍBV 15 (11+4)
Belgía 1
Brasilía 1
Danmörk 1
Grótta 1
Guyana 1
HK 1
Jamaíka 1
KFR 1
KS 1
Nýja-Sjáland 1
Rúmenía 1
Sindri 1
Slóvenía 1
Úkraína 1
Venesúela 1
Völsungur 1
Þýskaland 1
Ægir 1
Reynir S. 1 (0+1)
Serbía 1 (0+1)
Heildarfjöldi (byrjunarlið + varamenn)
Ástralía 4
FH 3
Höttur 3 (3+1)
ÍA 3 (2+2)
Lettland 3
Víkingur R. 3 (2+1)
Haukar 3 (2+1)
Fjarðabyggð 2
Fjölnir 2
Grindavík 2
Spánn 2
Taíland 2
Tindastóll 2
Víkingur Ó. 2 (1+1)
BÍ 2 (1+1)
Heildarfjöldi (byrjunarlið + varamenn)
Valur 10 (8+2)
Þór 9 (8+1)
Afturelding 9 (7+2)
Stjarnan 8 (3+5)
Þróttur R. 7 (5+2)
Fylkir 5 (4+1)
Heildarfjöldi (byrjunarlið + varamenn)
Bandaríkin 19 (18+1)
Breiðablik 14 (9+5)
KA 11 (10+2)
Keflavík 11 (8+3)
Selfoss 11 (7+4)
KR 10
Heildarfjöldi (byrjunarlið + varamenn)