Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 Jóna Gréta Hilmarsdóttir jonagreta@mbl.is „Sirkuslist hérlendis á sér mjög stutta sögu en hér hefur orðið mikil og ör þróun á stuttum tíma,“ segir Eyrún Ævarsdóttir, listrænn stjórnandi fyrstu íslensku sirkus- listahátíðarinnar sem fer fram um helgina, 25. og 26. júní, í Elliðaár- stöð í Elliðaárdal og í Hafnarþorp- inu í Kolaport- inu. Tvær af fimm sýningum hátíðarinnar eru ókeypis en tak- markaður miða- fjöldi er á alla viðburði. Miða- sala fer fram á Tix.is. „Sirkuslista- hátíð er saman- safn af ólíkum sirkussýningum, námskeiðum og ýmsum viðburðum sem tengjast sirkuslist. Á hátíðinni verður lögð áhersla á samtímasirkus og sirkus sem sviðslist en ekki klassískan sirkus, sem er það sem flestir hugsa um þegar þeir heyra orðið sirkus. Á Flipp festival ætlum við kynna það nýja sem er að gerast í sirkus og þá þróun sem hefur átt sér stað í sirkusheiminum und- anfarið,“ segir Eyrún. Fimm sýningar eru á dagskrá hátíðarinnar. Íslensku sýningarnar eru Grímuverðlaunasýningin Allra veðra von, Mikilvæg mistök er fyrir yngstu áhorfendurna og vorsýning Æskusirkusins. Erlendu sýning- arnar eru Þrjár systur eftir eist- neska sirkushópinn Big Wolf Company og upplifunarsýningin Arcade Delight eftir danska hópinn Dynamo Workspace. „Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi á Flipp festival. Við erum með fjölskylduvæna dagskrá í Ell- iðaárstöðinni. Tvær útisýningar henta öllum aldri og ein er sér- staklega hugsuð fyrir börn þriggja til sex ára. Áhorfendur geta síðan spreytt sig sjálfir á námskeiðum og opnum sirkussmiðjum á milli sýn- inga í Elliðaárstöð en einnig verður í boði krílasmiðja, beint eftir sýn- inguna Mikilvæg mistök, sem er hugsuð fyrir yngstu áhorfendurna,“ segir Eyrún. Að sögn Eyrúnar verður Arcade Delight haldin í Kolaportinu og rýminu umbreytt í heim frá átt- unda áratugnum sem áhorfendur 18 ára og eldri geta tekið þátt í. „Arcade Delight verður eins konar „upplifunar-hjólaskauta-partí- sirkus-kabarett.“ Áhorfendur geta þar farið á hjólaskauta eða búning, prófað spilabása, fengið sér klipp- ingu eða andlitsmálningu og á með- an er kabarett-sirkussýning og tón- leikar í gangi,“ segir Eyrún. Flipp festival er haldin af sirkus- listafélaginu og félagasamtökunum Hringleik, sem að sögn Eyrúnar er vettvangur sem er ætlað að styrkja sirkusmenninguna með því að bjóða upp á erlendar og íslenskar sýn- ingar og aðra viðburði. Samkvæmt Eyrúnu hefur Hringleikur unnið ýmis samstarfverkefni með menn- ingarhátíðum eins og Barnamenn- ingarhátíð og Listahátíð Reykja- víkur og BRAS á Austurlandi. Eyrún segir markmið Hringleiks vera að styrkja stoðirnar, svo að sirkusinn geti þrifist á Íslandi og því alltaf nóg að gera hjá þeim. „Við í Hringleik rekum líka Æsku- sirkusinn sem er starf fyrir börn og unglinga sem hefur staðið fyrir ýmsum námskeiðum fyrir allan ald- ur. Við erum líka núna komin með tímabundið æfingahúsnæði á Sæv- arhöfða, sem er á vegum Reykja- víkurborgar. Þannig getum við stutt við sirkuslist hérlendis, með því að bjóða upp á almennilega að- stöðu fyrir sirkusfólk.“ Þema Flipp festival er spurn- ingin „Er þetta hægt?!“ sem Eyrún segir að vísi í algeng viðbrögð áhorfenda við sirkuslistum og vangaveltur Hringleiks um hvort hægt sé að halda úti sirkus á Ís- landi. „Ég hef dálítið gaman af þessu þema, af því að í sirkusnum er bæði upplifun áhorfandans oft: „Vá, er þetta hægt?“ og á æfingum er maður sjálfur sífellt að ögra sér og ganga lengra en maður taldi sig geta. Sirkuslistafélögin sem koma að hátíðinni, við í Hringleik og þrjú erlend samstarfsfélög, eru öll markvisst að reyna koma sirkusi fyrir í okkar menningarumhverfi. Við í Hringleik veltum fyrir okkur spurningum eins og: Er hægt að vera með sirkusmenningu þar sem búa aðeins 360 þúsund manns? Við höfum verið í miklum húsnæðiserf- iðleikum og erum núna í tíma- bundnu húsnæði. Þema hátíðar- innar sækir því innblástur í þessar þrautir. Við erum alltaf að hugsa hvernig við getum fett okkur og brett til að passa inn í þá innviði og þær aðstæður sem standa okkur til boða.Við höfum því verið með útisýningar, verið í tjaldi og sett upp sýningar í leikhúsi. Hug- myndin á bak við þemað felst því líka í eftirfarandi spurningu; Er hægt að halda úti sirkus á Ís- landi?“ Spurð um við hverju megi búast af sirkuslist á Íslandi í framtíðinni, segir Eyrún: „Það hefur orðið mjög ör þróun og margt áhugavert fólk og efni er að koma fram. Við höldum áfram að vera skapandi í okkar aðstæðum og það hefur gengið ótrúlega vel. Það er í raun- inni magnað að við séum komin á þann stað að geta haldið fyrstu ís- lensku sirkuslistahátíðina. Mér finnst þó mest spennandi að geta boðið erlendum hópum hingað og kynnt erlendan samtímasirkus fyr- ir íslenskum áhorfendum og um leið sýnt að íslensk sirkuslist sé hluti af þeim heimi. Við erum svo líka með eitt mjög spennandi verk- efni, sem við fengum nýlega styrk fyrir undir heitinu Mega What? Starfsemin er því á mikilli ferð og ég vona að hún haldi áfram að vaxa.“ Fyrsta ís- lenska sirkus- listahátíðin - „Er hægt að halda úti sirkus á Íslandi?“ spyrja meðlimir Hringleiks Skemmtun Þrjár systur, eftir eistneska sirkushópinn Big Wolf Company, er ein af fimm sýningum á dagskrá sirkuslistahátíðarinnar Flipp Festival. Sirkus Upplifunarsýningin Arcade Delight eftir danska sirkushópinn Dynamo Workspace fer fram í Kolaportinu. Eyrún Ævarsdóttir Zoiu, stillir hún upp saman hópi listamanna sem hún hefur kynnst. Ég mun einnig taka þátt í stærra verkefni á hennar vegum í október þar sem ég verð með stærri verk og gjörninga. Hún er vel tengd í Úkra- ínu og sendiherra Úkraínu verður að sjálfsögðu á opnuninni,“ segir Snorri. Hann sýnir málverk á bátnum og aðrir listamenn sem taka þátt í sýn- Myndlistarmaðurinn Snorri Ás- mundsson tekur nú þátt í sýningu myndlistarkonunnar Zoiu Skoropa- denko á fljótabáti í París sem hófst í gær og lýkur á sunnudag. Nefnist sýningin nefnist Zoia’s Ark, þ.e. Örkin hennar Zoiu og hefur lista- konan safnað saman stórkostlegum listaverkum til að sýna í bátnum, að því er segir í tilkynningu. Báturinn er af þeirri gerð sem kölluð er pé- niche á frönsku og er tilgangurinn að bjarga hinni stórkostlegu list frá margvíslegri ógn. Snorri segir Skoropadenko kraft- mikla, úkraínska listakonu sem bú- sett sé í París og Mónakó og hafi staðið fyrir ýmsum myndlistarsýn- ingum og -gjörningum í gegnum tíðina. „Ég kann að meta eldmóð hennar og kraft. Ég rakst á hana í Mexíkó og hún hafði svo samband við mig þegar hún var í Los Angel- es fyrir nokkrum árum þegar ég dvaldist þar. Mér þótti bara spenn- andi að taka þátt í þessum verk- efnum sem hún stendur fyrir, ekki síst núna þegar stríðið er í Úkraínu. Á þessari sýningu, Örkin hennar ingunni og vinna með ólíka miðla myndlistar, á borð við málun, grafík og stafræna list, eru Daniel Leigh- ton, Heather Lowe, Antoine Poupel, Philippe Daurios, Clem Chambers, Linda McCluskey, Berengere Bain- vel, Nobuki Hizume, Vallauris Dale Dorosh, Bernard Vitour, Anthony Alberti, Gerard Pettiti, Kyiv Olesya Dzhurayeva, að ógleymdri Zoiu Skoropadenko sjálfri. Vinir Snorri og Zoia Skoropadenko í Los Angeles fyrir fimm árum. Snorri á Örkinni hennar Zoiu Hróarskeldutónlistarhátíðin í Dan- mörku hefst í dag, laugardaginn 25. júní. Hátíðin er sú stærsta á Norðurlöndunum og einnig með þeim stærstu í Evrópu og þar hafa ótal stórstjörnur komið fram í gegnum árin. Eftirvæntingin er mikil, enda hátíðinni verið aflýst síðastliðin tvö ár. Dagskráin er ekki af verri end- anum í ár og ýmis þekkt nöfn þar að finna. Þeirra á meðal eru Post Malone, Dua Lipa og Robert Plant, fyrrum söngvari Led Zeppelin, sem fram kemur ásamt blágresisstjörn- unni Alison Krauss. Þá má einnig nefna Megan Thee Stallion, Kacey Musgraves og Tyler, the Creator sem og hljómsveitirnar The Smile, Haim og The Stokes. Af dönskum listamönnum má helst nefna Jada og Thomas Helmig. Þrátt fyrir að tónlistaráhugafólk og aðrir skemmtanaglaðir Danir gleðjist yfir því að loks eigi að halda Hróarskelduhátíðina á ný hefur umræðan í dönskum fjöl- miðlum snúist talsvert um áhyggjur lögreglu og skipuleggjenda af þeim fjölda kynferðisbrota sem tilkynnt hafa verið á hátíðinni undanfarin ár. Hafa menn sérstakar áhyggjur af því í hve mörgum tilfellum hafi ekki tekist að finna gerandann. Í von um að sporna við þessari þróun, hafa skipuleggjendur hátíð- arinnar gripið til þess ráðs að út- deila aðvörunararmböndum til þeirra sem verða uppvísir að því að fara yfir mörk annarra gesta. Þeir geta einnig átt á hættu að vera reknir af hátíðinni. AFP/Julien de Rosa Stjarna Dua Lipa er meðal hápunkta. Eftirvænting og áhyggjur á Hróarskeldu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.