Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.06.2022, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2022 Hafnarfjörður Lofthræðsla hrjáir ekki þessa menn, sem unnu við viðhald á þaki turnsins á Hafnarfjarðarkirkju. Eggert Jóhannesson Ein stærsta breytingin á samsetningu samfélags- ins næstu árin er fólgin í því að íslenska þjóðin er að eldast. Gangi mannfjölda- spá Hagstofu Íslands eftir, verður 20% mannfjöldans eldri en 65 ára fyrir árið 2040 og 25% fyrir 2060. Það fer sem betur fer saman að á sama tíma og við verðum eldri, þá erum við almennt líka sprækari lengur fram á efri ár en áður. Það er auðvitað ekki algilt og við megum ekki gleyma þeim sem hafa unnið erfiðis- og álagsstörf á langri starfs- ævi, sem meðal annars á við um stórar kvennastéttir. En við þurfum breyttar áherslur í þjónustu við eldra fólk, þar sem horft er til heilsueflandi og styðjandi sam- félags. Stjórnvöld vilja marka skýra framtíðarsýn og heildarstefnu, þar sem meðal annars er lögð áhersla á að skipuleggja þjónustuna þannig að eitt þjónustustig taki hnökralaust við af öðru. Skýrt sé hver ber ábyrgð á ákveðnum þjónustuþáttum og veitt sé markviss þjónusta sem byggist á faglegu mati á þörfum hvers og eins. Í þessari viku skrifuðu stjórnvöld, Samband íslenskra sveitarfélaga og Landssamband eldri borgara undir viljayfirlýsingu, þess efnis að ráðast í heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk. Þá höfum við heilbrigð- isráðherra skipað verkefnastjórn með fulltrúum þessara aðila sem ætl- að er að vinna aðgerðaáætlun til fjögurra ára sem lögð verði fram á Alþingi vorið 2023. Í framhaldi af því skal verkefnastjórnin vinna skipu- lega að innleiðingu og framkvæmd áætlunarinnar, m.a. með tillögum um þær breytingar á lögum og reglugerðum sem þarf að ráðast í til að ná fram þeim markmiðum sem sett eru fram. Meira sjálfstæði og lengri tími heima Í starfi verkefnisstjórnar verður lögð áhersla á heildstæða og sam- þætta stuðnings- og heilbrigðisþjón- ustu í heimahúsum, þátttöku og virkni aldraðra og að efla lýðheilsu og forvarnir. Leggja þarf áherslu á heilsu- eflingu eldra fólks, virkniþjálfun, fé- lagslegan stuðning og skimun til að vinna gegn einmana- leika, félagslegri ein- angrun, kvíða og þunglyndi. Þörf er á heildstæðri og sam- þættri endurhæfingu og viðhaldsend- urhæfingu, sem og auknum sveigj- anleika í þjónustu á borð við dagþjálfun. Þá felast mikil tækifæri í betri nýtingu á fjölbreyttri velferðartækni sem og samhæfingu innan og á milli þjónustukerfa til að bæta þjónustu við notendur velferð- arþjónustunnar. Ávinningurinn felst í auknum lífsgæðum og sjálfstæði not- endanna, hagkvæmni, endurskoðun á lausnum og framkvæmd, og minni só- un á tíma og mannafla. Ráðuneytin, sveitarfélögin og hagsmunaaðilar leiða nú saman hesta sína og horfa saman heildstætt á verkefnið, að samþætta þjónustu þvert á velferðar- og heilbrigðiskerfi. Ánægjulegt er að fara í þessar breyt- ingar, því það er til svo mikils að vinna fyrir stóran hóp Íslendinga í dag og fyrir okkur öll á lífsleiðinni. Eldra fólk er fjölbreyttur hópur sem gefur mikið til samfélagsins og hefur mismunandi þjónustuþarfir. Við eig- um að mæta fólki þar sem það er, á þess eigin forsendum. Þannig bætum við þjónustuna um leið og við gerum fólki kleift að taka lengur virkan þátt í samfélaginu. Það er mér ákaflega dýrmætt að geta stuðlað að þessu og bind ég miklar vonir við þetta verk- efni. Eftir Guðmund Inga Guðbrandsson »Eldra fólk er fjöl- breyttur hópur sem gefur mikið til sam- félagsins og hefur mis- munandi þjónustuþarf- ir. Mætum fólki þar sem það er, á þess eigin for- sendum. Guðmundur Ingi Guðbrandsson Höfundur er félags- og vinnumarkaðsráðherra. Betri þjónusta við eldra fólk Nú við þinglok í vor urðu þau gleðilegu tíð- indi að frumvarp dóms- málaráðherra um breyt- ingu á lögum um meðferð sakamála og lögum um fullnustu refsinga (bætt rétt- arstaða brotaþola, fatl- aðs fólks og aðstand- enda) varð að lögum. Nýju lögin fela það m.a. í sér að brotaþola og fyrirsvarsmanni hans er ávallt heimilt að vera viðstaddur lokað þinghald, eða fylgjast með lokuðu þinghaldi í gegnum fjarfundabúnað í dómhúsi þar sem því verður komið við, eftir að hann hefur gefið skýrslu nema dómari telji sérstakar ástæður mæla gegn því. Þá hefur aðgengi að gögnum málsins á rannsóknarstigi verið aukið eða það sama og verjanda stendur til boða. Þá hefur rétt- argæslumanni verið milliliðalaust heimilað að beina spurningum til skýrslugjafa fyrir dómi, að brotaþola verði í ríkara mæli skipaður rétt- argæslumaður við meðferð áfrýjaðra mála og að unnt verði við meðferð máls á áfrýjunarstigi að krefjast ómerkingar á þeim þætti áfrýjaðs dóms sem lýtur að frá- vísun bótakröfu brota- þola þegar ákærði hef- ur verið sýknaður og bótakröfu af þeim sök- um vísað frá dómi. Í öðru lagi fela þau í sér breytingar í því augnamiði að bæta réttarstöðu fatlaðs fólks við meðferð saka- mála hjá lögreglu og fyrir dómstólum. Í þeim efnum er m.a. tryggt að dómari geti ákveðið í vissum til- vikum að skýrsla af fötluðum brota- þola eða vitni verði tekin í sérútbúnu húsnæði sem og að dómari geti kvatt kunnáttumann sér til aðstoðar við skýrslutöku af fötluðu vitni. Þá tryggja nýju lögin að fötluðum sak- borningi og vitni verði heimilt að hafa með sér hæfan stuðningsaðila við skýrslutöku, hvort heldur sem er hjá lögreglu eða fyrir dómi. Í þriðja lagi er stefnt að því með nýju lögunum að bæta réttarstöðu aðstandenda látins einstaklings í þeim tilvikum sem rannsókn lögreglu beinist að dánarorsök hans. Þannig verði aðstandanda heimilt að koma fram sem fyrirsvarsmaður hins látna undir rannsókn málsins hjá lögreglu og að í ákveðnum tilvikum verði unnt að tilnefna fyrirsvarsmanni réttar- gæslumann. Tók breytingum frá fyrra frumvarpi Frumvarpið, sem nú er orðið að lögum, byggðist að hluta á frumvarpi sem samið var af réttarfarsnefnd og lagt fram af dómsmálaráðherra á 151. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Það frumvarp fékk ítarlega umfjöllun allsherjar- og mennta- málanefndar. Við meðferð frum- varpsins nú horfði nefndin til þess máls auk þeirra erinda og umsagna sem bárust við meðferð þess. Ljóst er að frumvarpið hefur tekið breyt- ingum frá eldra máli og tiltaka um- sagnaraðilar m.a. í umsögnum sínum að talsverðar breytingar hafi verið gerðar og góð vinna hafi verið lögð í rökstuðning. Frumvarpinu og mark- miðum þess er fagnað í umsögnum. Meirihluti allsherjar- og mennta- málanefndar er sama sinnis. Ákjósanlegt fyrsta skref Þrátt fyrir að þær umsagnir sem bárust nefndinni hafi að meginstefnu til verið jákvæðar þá komu fram sjónarmið um að ganga hefði átt enn lengra í að tryggja réttarstöðu brota- þola og/eða fara þá leið að veita brotaþola formlega aðild að refsi- þætti sakamáls. Meirihluti alls- herjar- og menntamálanefndar telur þá leið sem farin er í nýju lögunum ákjósanlegt fyrsta skref og ekki til- efni að svo stöddu til að ganga lengra eins og að veita brotaþola aðilastöðu eða aðilastöðu að hluta enda ekki ljóst að slíkt myndi bæta réttarstöðu brotaþola í reynd. Meirihlutinn telur að þegar breytingar eru lagðar til á grónu regluverki þurfi að stíga var- lega til jarðar og sýna aðgát svo unnt sé að tryggja að þær breytingar sem ætlað er að styrkja réttarstöðu brotaþola leiði ekki til þess í reynd að hún verði lakari, t.d. rýri trúverð- ugleika framburðar hans og auki um leið líkur á því að sekur maður kom- ist hjá ábyrgð. Hafa þarf í huga að við rannsókn og meðferð sakamáls ber ávallt að tryggja að sakborningur eða ákærði njóti réttlátrar málsmeðferðar og þeirra réttinda sem honum eru tryggð með lögum, stjórnarskrá og mannréttindaskuldbindingum Ís- lands. Í umfjöllun sinni um frum- varpið tók meirihlutinn tillit til allra þessara sjónarmiða og telur breyt- inguna afar mikilvæga og tímabæra og til þess fallna að bæta réttarstöðu brotaþola til muna. Vettvangur glæps Það er sorglegt að heyra upplifun þeirra huguðu kvenna sem stigu fram og lýstu fálæti réttarkerfisins í herferð Stígamóta fyrr á þessu árið undir heitinu Vettvangur glæps. Konurnar lýstu því hvernig meðferð réttarkerfisins á málum þeirra varð að öðru áfalli í kjölfar ofbeldisins. Þær voru ósáttar við lyktir mála sem annaðhvort var niðurfelling eða sýkna en mest beindist reiðin þó að meðferð réttarkerfisins á þeim sem manneskjum. Þær upplifðu sig úti- lokaðar frá kerfinu með stöðu brota- þola og sem vitni og margar upplifðu sig sem ekkert annað en vettvang glæps. Eins og þær lýsa sjálfar upp- lifun sem endurspeglar hlutgervingu sem kynferðisofbeldið byggist á. Það er von mín og trú að sú breyting sem nú var gerð á lögunum sé stórt og mikilvægt skref til að bæta rétt- arstöðu brotaþola. Eftir Bryndísi Haraldsdóttur » Það er von mín og trú að sú breyting sem nú var gerð á lög- unum sé stórt og mikil- vægt skref til að bæta réttarstöðu brotaþola. Bryndís Haraldsdóttir Höfundur er formaður allsherjar- og menntamálanefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Bætt réttarstaða brotaþola

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.