Morgunblaðið - 25.06.2022, Page 16

Morgunblaðið - 25.06.2022, Page 16
16 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 Hún kveður vel gert við starfs- fólkið og mikið lagt upp úr góðum starfsanda á hótelinu, nýlega hafi starfsfólkinu til dæmis verið boðið í ferð og þá haldið út fyrir höfuðborg- ina í mat og drykk. Hvernig skyldi hún þá kunna við norskan vinnu- markað samanborið við annað sem hún þekkir til, svo sem England? „Ég kann nú betur við mig hérna í Noregi. Hér eru launin mun hærri og allt miklu sanngjarnara í sam- bandi við skipulag vinnunnar. Á hótelinu á Englandi var fólk stund- um á vakt ellefu daga í röð,“ segir Bryndís sem starfaði á Marriott- hóteli í Bristol og sat auk þess sér- stakt stjórnendanámskeið á vegum hótelsins þar sem hún kom hvort tveggja að gestamóttöku og mann- auðsstjórnun. „Hér er líka hlustað á mann og maður fær svo mikinn stuðning í vinnunni, ég get nefnt sem dæmi að mannauðsstjórinn á hótelinu hér að- stoðaði mig við að komast á nám- skeið í vinnurétti samhliða starfinu sem svo skilar sér í að ég get unnið mig hraðar upp,“ segir Bryndís og er beðin að bera saman Norðmenn og Breta. „Það er ekki neitt“ „Þetta eru ólíkar þjóðir, til dæmis var mun erfiðara að kynnast Bret- um þótt við Fridtjof séum bæði mjög opin. Vinnumarkaðurinn er líka mjög ólíkur, Bretar nenna ekki að láta heyra í sér eins og Norð- menn og Íslendingar gera þegar eitthvað er óréttlátt eða ekki í lagi, fólk lætur vaða miklu meira yfir sig. Ekki að það gildi bara um Bretana, auðvitað var ég að vinna með fólki af fleiri þjóðernum sem er kannski ekki vant neinu öðru. Ég var með tíu pund á tímann í móttökunni sem voru eiginlega hæstu launin þar. Það er ekki neitt og ég veit um aðra sem voru með átta pund,“ rifjar Bryndís upp af dvölinni. Fridtjof starfar sem aðstoðaryfir- kokkur á veitingastaðnum Arts í Ósló og sem fyrr segir kynntust þau Bryndís í náminu í Sviss, í smábæn- um Bouveret. „Skólinn er bara nafli alheimsins þar og heldur öllu lífinu þar uppi. „Ég kláraði námið reynd- ar í Mountreux,“ segir Bryndís og kveður íbúa landsins frekar lokaða, að minnsta kosti í smábæjunum. „Þeir vilja helst ekki tala ensku, vilja ekki einu sinni reyna að skilja þig, en mjög skipulagt fólk og þarna er mjög snyrtilegt alls staðar. Ég gæti reyndar vel hugsað mér að búa og vinna í Sviss,“ heldur hún áfram. Kokkurinn frekar „líbó“ Matur er helsta áhugamál Bryn- dísar og Fridtjof. „Við förum mikið út að borða og njótum þess mjög mikið. Erum með lista yfir staði sem við eigum eftir að prófa og leggjum mikið í þessa ástríðu okk- ar.“ Er ekki skelfing að fara með kokki út að borða, er hann ekki síkvartandi yfir eldamennskunni? Bryndís hlær. „Hann er frekar „líbó“ reyndar, hann skilur auðvitað allt umstangið á bak við þessa vinnu þannig að ég held að hann vilji ekk- ert vera of gagnrýninn, ég held að ég sé meira í því og kannski þarf ég að róa mig aðeins niður. En maður lærir mjög mikið á að fara út að borða með honum, hann kann þetta allt svo maður getur bara spurt hann frekar en þjóninn,“ segir hún. „Við erum líka með bát í bústaðn- um og svo er ég að reyna að fá til baka snjóbrettaáhugamálið mitt frá Akureyri, ég var að kaupa mér snjóbretti en hér eru allir á skíðum svo kannski verð ég bara að játa mig sigraða og læra það. Ég fór á bretti um daginn og var ein um það innan um allt skíðafólkið,“ segir Bryndís. Hún reiknar með að búa áfram í Ósló. „Ég kann mjög vel við mig hér, við gætum klárlega bæði fengið góða vinnu á Íslandi og án efa þrif- ist vel þar en við höfum rætt þetta og mér sýnist að við verðum áfram hérna,“ segir Bryndís Ylfa Jóhann- esdóttir, aðstoðargestamóttöku- stjóri á Hotel Bristol. „Bara kölluð Íslendingurinn“ - Endaði í Ósló eftir kynni við Norðmann í Sviss - Þótti vistin döpur hjá Bretum - Mikið lagt upp úr góðum starfsanda á hótelinu - „Vilja helst ekki tala ensku, vilja ekki einu sinni reyna að skilja“ Ljósmynd/Tarik Nascimento Aðstoðarmóttökustjórinn Bryndís Ylfa kann vel við sig í móttökunni á Hotel Bristol í Ósló og ber samstarfsfólki sínu vel söguna þótt dagarnir verði oft langir í annan endann. „Maður verður hrikalega þreyttur stundum og þarf sínar pásur,“ játar hún, en kveður vel búið að starfsfólkinu og andann góðan. Ljósmynd/Nuno Acacio Þótt þú langförull legðir … Bryndís með hópi íslenskra samnemenda í skólanum í Sviss forðum daga. Ljósmynd/Nuno Acacio Uppskera Útskriftin úr skólanum í Sviss. Meginhluti hótelnámsins fór fram í smábænum Bouveret þar sem skólinn er miðpunktur bæjarlífsins. Matgæðingar Bryndís og Fridtjof kynntust á námsárunum í Sviss og hafa ástríðu fyrir góðum mat en hann er aðstoðaryfirkokkur á Arts í Ósló. VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég flutti til Reykjavíkur eftir menntaskólann til að fara í nám og fór þá í hótelstjórnunarnám við Há- skólann í Reykjavík,“ segir Bryndís Ylfa Jóhannesdóttir, 28 ára gömul Akureyrarmær og aðstoðar- móttökustjóri í gestamóttöku Hotel Bristol í norsku höfuðborginni Ósló. Námið á Íslandi leiddi Bryndísi áfram til Sviss þar sem hún lauk BA-gráðu í rekstrarfræðum og hót- elstjórnun og kynntist þar á loka- önninni Norðmanni að nafni Frid- tjof Kringlebotn og tókust með þeim kærleikar. Þau fluttu að námi loknu til Englands til eins árs dval- ar en fundu sig ekki í samfélaginu þar. „Við fengum leiða á því, fannst bara ekkert skemmtilegt að búa á Englandi og hann stakk þá upp á að prófa að fara til Noregs og ég sam- þykkti það hikandi. Talaði nátt- úrulega enga norsku og vissi ekkert hvernig starfsmöguleikar mínir kæmu til með að verða þar, þetta var í janúar 2020, ekki besti tím- inn,“ rifjar Bryndís upp og vísar til þeirra óskapa sem þá skullu á heimsbyggðinni. Flóttinn til Suður-Noregs Hún fékk vinnu sem entist ein- mitt í tvo mánuði, eða þar til Nor- egur skellti öllu í lás í byrjandi far- aldri í mars 2020. „Þetta byrjaði vel hérna samt,“ segir Bryndís sem lét atvinnuleysið ekki slá sig út af lag- inu. „Við forðuðum okkur til Suður- Noregs og unnum þar við að gera upp fjölskyldubústað,“ segir hún frá. Þetta fyrsta starf Bryndísar, þótt stutt væri, var á Thon-hótelinu í Storo í Ósló og má segja að í gegn- um það hafi hún fengið núverandi starf á Bristol. Skólasystir úr nám- inu í Sviss mælti með henni við yfir- mann hennar á Thon. „Svo er hringt í mig í maí í fyrra og þá er það þessi stelpa úr náminu sem mælti með mér. Hún vissi þá af mér hér og bauð mér stöðu vaktstjóra og fimm mánuðum síðar var ég orð- in aðstoðaryfirmaður gesta- móttöku.“ Ber Bryndís samstarfsfólki vel söguna og kveður vistina góða á Bristol. „Ég er eini Íslendingurinn í hópnum núna, reyndar var strákur að sunnan, held ég, að vinna á barn- um en núna er ég ein og er bara kölluð Íslendingurinn,“ segir Bryn- dís og hlær. Álagið er mikið í hótel- bransanum og oft teygist úr vinnu- deginum. „Ég er sjaldan búin klukkan þrjú þótt ég sé að vinna sjö til þrjú, ég er yfirmaður þarna og get ekki bara farið ef allt er á floti,“ segir Akureyringurinn sem enn tal- ar íslensku með fögru norðlensku harðmæli, vel varðveittu. Rótgrónir fastagestir „Maður verður hrikalega þreytt- ur stundum og þarf sínar pásur, ég og yfirmaðurinn minn vinnum kannski aðeins of mikið og erum reyndar báðar veikar núna, búið að vera brjálað að gera upp á síðkast- ið,“ segir Bryndís enda kórónu- faraldur á hröðu undanhaldi og mannlífið að mestu komið í eðlilegt horf á ný. Í viðskiptavinahópi Bristol- hótelsins er norskt viðskiptafólk áberandi og sumir þar svo rótgrónir fastagestir að þeir gista fast mánu- dag til föstudags á hótelinu vikum saman. „Svo erum við reyndar núna að fá mjög mikið af hópum frá Bandaríkjunum sem eru mest áber- andi ferðamennirnir núna en Þjóð- verjar eru líka áberandi gestir,“ segir Bryndís.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.