Morgunblaðið - 25.06.2022, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
25. júní 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 133.33
Sterlingspund 163.02
Kanadadalur 102.87
Dönsk króna 18.807
Norsk króna 13.356
Sænsk króna 13.069
Svissn. franki 138.1
Japanskt jen 0.9844
SDR 177.72
Evra 139.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 170.9337
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ferran Soriano, forstjóri City Foot-
ball Group, eiganda Englandsmeist-
ara Manchester City og tíu annarra
fótboltaliða víðsvegar um heiminn,
segist sjá tækifæri í íslenskum fót-
bolta. „Ég sé tækifæri hér og það er
ein ástæða fyrir því að ég er hingað
kominn. Hér er mikil ástríða fyrir fót-
bolta og þjálfun góð. Víða í nágranna-
löndunum sjá foreldrar um þjálfun
yngri flokkanna en hér eru menntað-
ir þjálfarar við störf,“ segir Soriano.
Lofaði að koma með bikarinn
Stutta sagan af komu hans til
landsins er sú að hann hitti íslenska
Manchester City-aðdáendur á vellin-
um og lofaði að koma til landsins með
meistarabikarinn ef liðið ynni ensku
deildina. „Þannig að hingað er ég
kominn með bikarinn meðferðis og
hef notað tækifærið til að funda með
KSÍ, hitta forsvarsmenn nokkurra
fótboltafélaga og ræða við aðila í við-
skiptalífinu. Ég er að skima eftir
tækifærum fyrir City Football Group
og leitast við að auka vinsældir og
sýnileika Manchester City á Íslandi.
Ég mun hitta aðdáendaklúbb Man-
chester City í kvöld [í gærkvöldi] og
eyða svo helginni hér með fjölskyld-
unni.“
Spurður að því hvað Íslendingar
gætu gert til að byggja upp fótbolt-
ann í landinu segir Soriano að styrkja
þurfi fótboltafélögin. Þau séu grunn-
urinn að öllu. „Það þarf að finna leið
til að félögin geti vaxið og hægt sé að
fjárfesta meira í starfinu.“
Soriano segir að tvo umdeilda hluti
sé hægt að hugsa sér fyrir lang-
tímaþróun fótboltaumhverfisins.
„Annað er að breyta lögum svo hægt
sé að hleypa fjárfestum að félögun-
um. Það eru mikil tækifæri fólgin í
fótbolta sem afþreyingu í framtíð-
inni,“ útskýrir Soriano. „Fótboltalið
geta vaxið mjög að verðmæti.“
Hinn möguleikinn væri að sameina
íslenskan fótbolta við deildir annars
staðar á Norðurlöndunum. „Slík
sameining á hollensku og belgísku
deildinni til dæmis er í skoðun.“
Eftirspurn eykst
Soriano segir að eftir því sem milli-
stéttin stækki í heiminum aukist eft-
irspurn eftir afþreyingu. Íþróttir séu
vinsæl afþreying og fótbolti sé ein
mest vaxandi íþróttagrein í heimin-
um. „Verðmæti bandarískra íþrótta-
liða hefur vaxið um 15-25% árlega
síðustu 20 ár. Fjárfestar sem keyptu
NBA-körfuboltalið fyrir 20 árum á
100 milljónir Bandaríkjadala geta
selt það í dag á tvo milljarða dala.“
Eins og Soriano útskýrir eru bein-
ar útsendingar á íþróttaviðburðum
mikið gæðasjónvarpsefni og nokkuð
sem fær fólk til að kaupa áskriftir.
Hann segir að bandarískir fjárfestar
hafi verið atkvæðamiklir í Evrópu á
síðustu misserum. „Ef við berum evr-
ópsk fótboltalið saman við körfubol-
talið í bandarísku NBA-deildinni þá
eru evrópsku liðin ódýr. Þau kosta
kannski 1-2 sinnum tekjur en NBA-
lið kostar kannski 5-10 sinnum
tekjur. Ástæðan fyrir því er einkum
deildaskiptingin. Evrópsku liðin geta
fallið niður um deild og tekjur minnk-
að mikið. Í NBA er aldrei hægt að
falla niður um deild.“
Soriano, sem hefur verið við
stjórnvölinn hjá City Football Group
í tíu ár, segir aðspurður að vel gangi
að byggja upp Manchester City-
vörumerkið á heimsvísu enda sé „var-
an“ söluvænleg. „Ef horft er á síðustu
tíu ár er Manchester City besta liðið
á alla mælikvarða. Flestir bikarar,
flest mörk skoruð, flest stig unnin,
o.s.frv.“
Hann segir að stefnan sé ávallt sett
á að spila góðan fótbolta og vinna
leiki. Það eigi við um öll liðin í eigu
City Football Group. „Við köllum það
fallegan fótbolta. Það snýst um að
halda boltanum innan liðsins, spila
framarlega á vellinum og sækja, þó í
því geti falist áhætta. Þetta er viðhorf
okkar gagnvart boltanum og lífinu
sjálfu.“
City Football Group er stórt félag.
Árstekjur þess nema um einum millj-
arði dala og starfsmenn eru fjögur
þúsund. Félagið er með starfsemi í 14
löndum. Hluthafar eru þrír. Newton
Investment and Development LLC
frá Abu Dhabi á meirihlutann, banda-
ríska fjárfestingarfélagið Silver Lake
á 14,54% og China Media Capital
(CMC) Consortium í Kína á 8,24%.
664 milljarða dala verðmat
Soriano segir að síðasta verðmat
félagsins sé fimm milljarðar dala,
eða 664 ma.kr. „Okkar eigendur eru
allt einkafjárfestar sem horfa til
þess að auka virði fyrirtækisins til
framtíðar.“
Um tekjur félagsins segir So-
riano að þær séu þrískiptar. Að-
gangseyrir, sjónvarpsréttir og miðl-
ar og svo varningur og kostun.
Aðgangseyrir er minnsti hlutinn af
þessu þrennu eða um 20%. Vaxtar-
möguleikarnir liggja í hinu tvennu
að sögn Soriano.
Spurður um næsta tímabil segir
Soriano að hann hafi væntingar um
að gera jafn vel og á því sem nú er
nýlokið. „Við unnum deildakeppn-
ina í fimm löndum af ellefu. Auk
þess komst liðið okkar á Spáni, Gi-
rona FC, upp í efstu deild. Enn-
fremur komumst við með sjö lið í
millilandakeppnir, eins og Meist-
aradeildina. Þetta var besta tímabil
okkar til þessa.“
Manchester City hefur enn ekki
unnið Meistaradeild Evrópu en So-
riano hefur trú á að það gerist einn
daginn. Hann missi þó ekki svefn út
af því. „Það þarf smá heppni til
þess,“ segir hann að lokum.
Leitar tækifæra á Íslandi
fyrir City Football Group
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bolti Árstekjur City Football Group nema um einum milljarði dala og starfsmenn eru fjögur þúsund.
- Forstjórinn lofaði aðdáendum að koma með enska meistarabikarinn til landsins
Fasteignir
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
544 5151
tímapantanir
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Endurvinnslan hf. óskar eftir
500 – 800 m2 atvinnuhúsnæði
Endurvinnslan hf. óskar eftir húsnæði til kaups eða leigu,
ca 500 – 700 m2með góðri lofthæð og innkeyrsluhurð/ar kostur.
Nánar tiltekið er óskað eftir húsnæði fyrir flöskumóttöku
miðsvæðis í Reykjavík til að þjónusta Reykjavík vestan Elliðaár.
Húsnæðið þarf að hafa bílastæði fyrir um 15+ bifreiðar.
Athugið að rekstri fylgir eitthvert ónæði og hávaði.
Skrifstofur eða íbúðir á efri hæðum húsnæðis því óæskilegar.
Tekið við ábendingum í tölvupósti - helgi@evhf.is eða
símleiðis í S: 8605103