Morgunblaðið - 25.06.2022, Qupperneq 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022
- Fleiri minningargreinar
um Guðnýju Jónu Jónsdóttur
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
hjálpa öðrum, hvort sem það
voru vinir, fjölskylda, systkini,
allir hafa notið góðs af hennar
hjálpsemi og velvild. Það átti
betur við mömmu að vinna fram
eftir en að vakna fyrir allar ald-
ir, enda var kvöldið tíminn sem
hún gat notið þess að vera ein,
þá hafði hún frið út af fyrir sig;
frá erli dagsins, börnum og búi.
Hún var fædd og uppalin í
sveit og það var alltaf sveita-
stelpa í henni. Sveitin og nátt-
úran voru hennar, alltaf fannst
henni best að komast út í nátt-
úruna og njóta. Og nú ákveður
hún að kveðja þennan heim
þegar íslensk flóra skartar sínu
fegursta.
Hvíla í friði, elsku mamma.
Frumburðurinn þinn,
Ásta Valdís Borg-
fjörð Aðalsteins.
Með sorg og söknuð í hjarta
kveð ég elskulega móður mína.
Þetta líf er svo óútreiknan-
legt. Aðeins fjórum dögum áður
en mamma lést, spjölluðum við
saman heillengi um daginn og
veginn. Hún var staðráðin í að
ná sér upp úr veikindunum og
komast aftur heim, vestur í
Reykhólasveitina.
En ég er þakklátur fyrir að
eiga ótal minningar um sam-
verustundir okkar mömmu síð-
ustu 38 árin.
Þær sem standa helst upp úr
eru ferðalögin okkar, bæði inn-
anlands og utan. Betri ferða-
félaga var ekki hægt að hugsa
sér. Mamma gat sagt manni
endalaust af sögum, ljóðum og
fróðleik um gamla tímann og
landið. Síðasta sumar fórum við
Vestfjarðahring á sjómannadeg-
inum og enduðum í veisluhöldum
á Þingeyri hjá Snædísi og fjöl-
skyldu. Þetta þótti mömmu al-
veg frábær ferð en hún hló líka
að æðibunuganginum í mér.
Síðasta ferðalagið sem við
fórum í saman var þegar við tvö
keyrðum frá Þingeyri seinna
um sumarið í blíðskaparveðri og
tókum okkur allann heimsins
tíma í að njóta dagsins. Við
stoppuðum t.d. við Dynjanda,
við Foss í Arnarfirði þar sem
amma fæddist og á Hnjóti hjá
Óskari og Ingu.
Við fórum líka í nokkur
ferðalög út fyrir landsteinana,
m.a. til Kaupmannahafnar, Bel-
fast og Óslóar. Við höfðum látið
okkur dreyma lengi um að
heimsækja ættingja í Kanada
og ætluðum að láta verða af því
í haust að fara á ættarmót þar.
Mikið hefði mömmu þótt það
gaman.
Mamma var svo natin og
barngóð. Hún var alltaf boðin
og búin til að passa ömmustrák-
ana sína, Arnar og Elmar. Þeir
elskuðu ömmu sína svo mikið og
þótti fátt betra en að vera
heima hjá ömmu og leyfa henni
að dekra við sig, en þeir voru
henni svo dýrmætir. Amma
leyfði þeim að bralla svo margt
með sér og eldaði besta matinn
fyrir þá. Núna munum við elda
kubbasteik saman og minnast
ömmu.
Elsku mamma, ég sakna þín
svo mikið og tímanna okkar
saman. Nú veit ég að þér líður
vel og ert komin á vit ævintýr-
anna.
Ég elska þig. Þinn sonur,
Guðmundur Ingiberg
Arnarsson.
Sálm. 10.14
biblian.is
Þú gefur gaum að
mæðu og böli og
tekur það í hönd
þér. Hinn bágstaddi
felur þér málefni
sitt, þér sem hjálpar
munaðarlausum.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
NÍNA ODDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni laugar-
daginn 11. júní. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju þriðjudaginn 28. júní
klukkan 13.
Rósmundur M. Guðnason Helga Sigurðardóttir
Vilmundur G. Guðnason Guðrún Nielsen
Oddur Th. Guðnason Dýrfinna H. Sigurðardóttir
Gunnar Gísli Guðnason Guðlaug Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Útför okkar ástkæra eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
HILMARS ALBERTS ALBERTSSONAR
sjómanns,
Heiðargerði 16, Akranesi,
sem lést á heimili sínu föstudaginn 10. júní,
fer fram frá Stykkishólmskirkju mánudaginn 4. júlí klukkan 14.
Ragna Steinunn Eyjólfsdóttir
Kristvin Ingvi Ingimarsson Guðrún Geirsdóttir
Albert Hilmarsson Bryndís Hrönn Sveinsdóttir
Hjörtur Hilmarsson Kolbrún Diego Halldórsdóttir
Ásdís Lilja Hilmarsdóttir
Signar Kári Hilmarsson Una Guðný Pálsdóttir
Hermína Huld Hilmarsdóttir Þórir Karls Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, systir okkar,
mágkona og frænka,
GUNNHILDUR GUNNARSDÓTTIR
fjármálastjóri,
Algorfa, Spáni, áður Blikahólum 2,
lést á sjúkrahúsi laugardaginn 14. maí.
Minningarathöfn um Gunnhildi fer fram frá
Lindakirkju í Kópavogi þriðjudaginn 28. júní klukkan 13:00
Guy Gevaert
Baldur Gunnarsson
Reynir Ásgeirsson Björg Thomassen
Gunnarr Baldursson
Júlía Leví Baldursdóttir
Björn Þór Reynisson
Róbert Már Reynisson
Einar Þröstur Reynisson
og fjölskyldur
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
ÓLAFS FRIÐRIKSSONAR
húsasmiðs,
Hvassaleiti 56, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til líknardeildar LSH
Kópavogi fyrir einstaka umönnun.
Oddný Snorradóttir
Sigurbjörg Ólafsdóttir Sigurþór Gíslason
Sigríður Ólafsdóttir
Sif Ólafsdóttir
barna- og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
BÖRKUR BENEDIKTSSON
frá Núpsdalstungu í Miðfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
aðfaranótt mánudagsins 20. júní. Hann
verður jarðsunginn frá Melstaðarkirkju í
Miðfirði miðvikudaginn 20. júlí klukkan 14.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Melstaðarkirkju, reikn. 0159-15-200356,
kt. 460269-6019.
Sigrún Kristín Barkardóttir Kristinn Garðarsson
Björn Helgi Barkarson Ólöf Ásdís Ólafsdóttir
afa- og langafabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og bróðir,
BJARKI ÞÓRARINSSON
læknir,
lést föstudaginn 17. júní á hjartadeild
Landspítalans. Útför hans fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 30. júní klukkan 13.
Egill Bjarkason Anna Tomaszewska
Theódóra Bjarkadóttir Johan Wållgren
barnabörn, systkini og aðrir aðstandendur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUNNHILDUR NJÁLSDÓTTIR,
Dúnný,
lést 19. júní.
Útför hennar fer fram frá Hríseyjarkirkju
föstudaginn 1. júlí klukkan 14.
Sólveig Knútsdóttir Wojiciech Barnet
Steinunn Kristín Hauksdóttir
Hanna Hauksdóttir Narfi Björgvinsson
Jenný Hauksdóttir
Hrafnhildur Hauksdóttir Gísli Ingason
Stefán Pétur Hauksson Berglind H. Helgadóttir
Svanhildur Hauksdóttir
ömmu- og langömmubörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
FRIÐRIK SVANUR ODDSSON,
Faxabraut 13, Keflavík,
lést á Hrafnistu, Hlévangi, laugardaginn
11. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hlévangs fyrir einstaka umönnun
og hlýju sem hann naut þar.
Aðstandendur
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
SIGRÚN ÓSK BJARNADÓTTIR,
lést á hjartadeild Landspítalans 17. júní.
Útför fer fram frá Vídalínskirkju
fimmtudaginn 30. júní klukkan 13.
Ellert Baldur Magnússon Helga Hrönn Þorbergsdóttir
Ragna Rut Magnúsdóttir Samúel Gíslason
Berglind Magnúsdóttir Elvar Ingimarsson
barnabörn
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
UNNUR JÓNSDÓTTIR
ljósmóðir,
áður Aflagranda 40,
lést á hjúkrunarheimilinu Grund, Hringbraut,
20. júní síðastliðinn. Útför hennar fer fram
frá Áskirkju föstudaginn 1. júlí klukkan 13.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarsjóð Grundar.
F.h. aðstandenda,
Stefán Kristjánsson
Guðríður Anna Kristjánsdóttir
Kristín Jóna Kristjánsdóttir
Kristján Gerhard
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
GEIR ÁGÚSTSSON
bóndi,
Gerðum, Flóahreppi,
sem lést 17. júní, verður jarðsunginn frá
Selfosskirkju miðvikudaginn 29. júní klukkan 13.
Margrét Jónína Stefánsdóttir
Þórdís Geirsdóttir Þórir Jóhannsson
Kristinn Þór Sigurjónsson
Stefán Geirsson Silja Rún Kjartansdóttir
Hugrún Geirsdóttir Hörður Sveinsson
og barnabörn
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför
yndislegs eiginmanns míns og besta vinar,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
RUNÓLFS HARALDSSONAR,
fyrrverandi bónda á Syðri-Rauðalæk,
síðar til heimilis á Birkivöllum 28.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki heimahjúkrunar,
bráðamóttöku og lyflækningadeildar HSU. Þökkum við félögum
í ljósmyndaklúbbnum Blik fyrir frábæran stuðning í gegnum
tíðina.
Elsie Júníusdóttir
Sigríður Runólfsdóttir Valgeir Harðarson
Valgerður Lára Runólfsdóttir
Ólafía Ósk Runólfsdóttir Þórir Bjartmar Harðarson
og fjölskyldur