Morgunblaðið - 25.06.2022, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 25.06.2022, Qupperneq 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 2022 » IceDocs-heimildar- myndahátíðin hófst á Akranesi með formlegri opnun á miðvikudagskvöld og lýkur henni á morgun, 26. júní. Allar kvikmynda- sýningarnar fara fram í Bíóhöllinni á Akranesi en aðrir viðburðir verða haldnir víðs vegar í bæn- um. Fjöldi heimildar- mynda er á dagskrá hátíðarinnar, íslenskar og erlendar, eins og sjá má á vef hátíðarinnar á slóðinni icedocs2022.eventive.org. Fjalla þær um allt milli himins og jarðar. Hátíðin er nú haldin í fjórða sinn og hefur hún frá upphafi verið haldin á Akranesi. Heimildarmyndahátíðin IceDocs var sett á Akranesi í fyrrakvöld Ljósmynd/Gunnlöð Jóna Tónlist Tónlistar- og vídeólistamaðurinn Die Goldstein framdi gjörning og fylgdust gestir einbeittir með. Setning Eliza Reid forsetafrú er verndari IceDocs og setti hátíðina. Kvikmyndagerðarkonur Yrsa Roca Fannberg og Marta Andreu á spjalli. Nikka Gunnhildur Vilhjálmsdóttir þandi harmonikkuna við opnun. Hress Stefán Ingvar Vigfússon og Hólmfríður María Bjarnardóttir. Rósa, Rímsen og Tríó Zimsen munu syngja, kveða og leika á hljóðfæri á morgun, sunnudag, kl. 16 í Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði. Segir í tilkynningu að undan- farin ár hafi fjölskylda Rósu Jóhannesdóttur komið fram á ýmsum stöðum, leikandi á fiðlur, harmonikku, ukulele og píanó, ásamt því að syngja og fara með kveð- skap. Börnin kalla sig Tríó Zimsen og syngja lög í þremur röddum og mæðgur syngja dúetta saman. Inn í tónlistar- dagskrána fléttast kveð- skapur, oftast eftir fjöl- skylduföðurinn Helga Zimsen en einnig eftir önnur skáld. Aðgangs- eyrir er kr. 3.000. Tón- leikarnir eru haldnir til styrktar Hallgrímskirkju í Saurbæ. Rósa, Rímsen og Tríó Zimsen Fjölskylda Rósa, Helgi og börn. Myndlistarmað- urinn Stefán Jónsson opnar sýningu í dag í Pálshúsi á Ólafs- firði. Stefán stundaði mynd- listarnám í Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands og School of Visual Arts í New York, þaðan sem hann útskrif- aðist með MFA-gráðu árið 1994. Á myndlistarsýningunni, sem ber titilinn Það kalla ég rart, sýnir Stef- án um 50 myndir og 15 bómullar- boli sem hann hefur búið til á síð- astliðnum 15 mánuðum. Öll verkin sýna fugla sem eru algengir í ís- lenskri náttúru. Verkin voru unnin út frá ljósmyndum sem skornar eru í vínylfilmu og límdar á tréplötur eða pressaðar á pappír eða bómull- arboli. Titill sýningarinnar er fenginn úr Íslandsklukkunni eftir Halldór Laxness og lýsir viðbrögðum Jóns Guðmundssonar Grindvíkings þeg- ar Jón Hreggviðsson tjáir honum að sést hafi fuglar í loftinu á Ís- landi. Sýningin stendur til 25. júlí. Stefán Jónsson sýnir í Pálshúsi Hani, eitt af verkum Stefáns Jónssonar. Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) auglýsa eftir rekstraraðila til að reka heilbrigðisstofnun á Vífilsstöðum sem hefur það hlutverk að starf- rækja almenna líknardeild ásamt bráðaþjónustu fyrir aldraða. Um er að ræða tvískipta öldrunarþjónustu: Annars vegar er um að ræða almenna líknardeild fyrir allt að 24 einstaklinga á hverjum tíma á fyrstu og annarri hæð hússins. Hins vegar er um að ræða bráðadeild á þriðju hæð hússins fyrir allt að 16 einstaklinga sem þarfnast skammtíma innlagnar vegna versnandi ástands og fara heim að meðferð lokinni. Fjárveiting til verkefnisins á ársgrundvelli, á verðlagi ársins 2022, er 854,8 mkr. þar af er reiknað með að 115,4 mkr. fari í leigu húsnæðisins. Um þjónustuna gilda, sjá gögn hér https://island.is/s/sjukratryggingar/vifilsstadir-tilbod 1. Almennir skilmálar Sjúkratrygginga Íslands um kaup á heilbrigðisþjónustu. 2. Kröfulýsing fyrir líknarþjónustu og bráðainnlagnir aldraðra 3. Samningsdrög Gerður verður leigusamningur við rekstraraðila um afnot af Vífilsstaðaspítala undir starfsemina. Ríkið leggur til húsbúnað og lækningartæki og verður eigandi þess. Rekstraraðili mun geta átt aðkomu að gerð búnaðar- og tækjalista. Gengið er út frá samningi til fjögurra ára með gildistöku 1. október 2022. Áhugasamir aðilar eru beðnir um að senda útfyllt tilboðshefti https://island.is/s/sjukratryggingar/ vifilsstadir-tilbod á netfangið: innkaup@sjukra.is, þar sem fram kemur hvað bjóðandi er tilbúinn að starfrækja mörg rými af hvorri gerð fyrir þá fjárveitingu sem upp er gefin fyrir verkefnið. Hlutföllin milli tegunda rýma skulu vera sambærleg og að ofan greinir. Þá skal bjóðandi samhliða tilboði senda SÍ kynningu á fyrirtækinu, lýsingu á gæðastefnu, gögn sem staðfesta fjárhagslegt hæfi og upplýsingar um hvernig uppfylla á kröfur sem koma fram í gögnum um verkefnið. Fyrirspurnir má senda á ofangreint netfang. Frestur til að til að senda inn tilboð er til kl.13:00 þann 15. júlí 2022. Taka tilboða: SÍ munu taka hagstæðasta tilboði, þ.e. frá þeim bjóðanda sem er tilbúinn að starfrækja flest rými fyrir uppgefna fjárhæð að öllum skilyrðum uppfylltum. Séu tvö eða fleiri tilboð jafngild mun hlutkesti ráða því við hvern verður samið. SÍ áskilja sér rétt til að hafna öllum tilboðum séu þau ófull- nægjandi eða umfram kostnaðarmat SÍ pr. rými.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.