Morgunblaðið - 28.06.2022, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 28.06.2022, Qupperneq 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 8. J Ú N Í 2 0 2 2 .Stofnað 1913 . 149. tölublað . 110. árgangur . GAGNRÝNI TÆKIFÆRI TIL AÐ ÞRÓA GRÍN HLUTU GULL Á SPÁNI MIKILVÆGUR LEIKUR FYRIR ÍSLAND Á FÖSTUDAG SKÖRUÐU FRAM ÚR 11 KÖRFUKNATTLEIKUR 26HUGLEIKUR DAGSSON 28 Þessar vösku og efnilegu fótboltastúlkur í fimmta flokki ÍA á Akranesi hituðu upp fyrir æfingu með því að stíga léttan dans í takkaskónum. Spennandi fótboltasumar fer von bráðar að hefjast en Ísland á fyrsta leik gegn Belgíu 10. júlí á EM kvenna í knattspyrnu í Englandi. Þá geta þessar ungu stúlkur fengið að fylgjast með fyrirmyndunum sínum keppa. Efnilegar fótboltastúlkur stíga dans fyrir æfingu Morgunblaðið/Eggert _ OECD hefur bent á að Ísland eigi heimsmet í fjölda iðngreina sem krefjast lög- gildingar. Stofn- unin gerði til- lögur til úrbóta. „Þetta er heimsmet sem við eigum ekki að sækjast eftir að eiga. Það býr til óþarfa takmark- anir í atvinnulífinu og dregur úr samkeppnishæfni okkar,“ segir Ás- laug Arna Sigurbjörnsdóttir, há- skóla-, iðnaðar- og nýsköpunar- ráðherra. Í dag er birt í Samráðsgátt stjórnvalda tillaga Áslaugar Örnu að breytingu á reglugerð um lög- giltar iðngreinar. Tillagan felur í sér að sautján iðngreinar verði felldar af lista yfir löggiltar iðn- greinar. Af þeim verði átta felldar undir eða sameinaðar skyldum iðn- greinum. gudni@mbl.is »2,14 17 löggiltar iðn- greinar felldar niður eða þeim breytt Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Meginmunurinn á heimildum norsku öryggislögreglunnar [PST] og íslensku greiningardeildarinnar felst í því að starfsemi PST er skil- greind í norsku lögreglulögunum og þar lögbundið hvaða upplýsingum hún safnar og á hvaða grundvelli,“ segir Runólfur Þórhallsson, aðstoð- aryfirlögregluþjónn í greiningar- deild ríkislögreglustjóra, spurður út í rannsóknarheimildir norskrar og íslenskrar lögreglu og muninn þar á. Runólfur ræðir við Morgunblaðið í dag um nýafstaðna hörmungarat- burði í Ósló um helgina og kveður fulla þörf á að fara yfir rannsókn- arheimildir íslenskrar lögreglu mið- að við núverandi heimsmynd. „Við erum auðvitað ekki alveg á sama stað hvað varðar hryðjuverka- ógn og Noregur og Danmörk og önn- ur nágrannalönd okkar. Við erum ekki með þessa svokölluðu heim- snúnu vígamenn sem skandinavísku ríkin hafa mátt glíma við, fólk sem fer að heiman til að berjast með hryðju- verkasamtökum og kemur svo aftur til heimalandsins. Þetta sjáum við ekki enn þá á Íslandi,“ segir aðstoðaryfir- lögregluþjónninn, inntur eftir því hvort íslensk löggæsla standi höllum fæti miðað við nágrannaþjóðir. Runólfur leggur ríka áherslu á að gamli hugsunarhátturinn, að svona lagað gerist ekki á Íslandi, sé skamm- góður vermir í harðnandi heimi hryðjuverka og ofbeldis. Hann kveður íslenska lögreglu þurfa rýmri heimild- ir til að sinna sínu afbrotavarnahlut- verki sínu og tryggja öryggi alls al- mennings. Ekki hægt að útiloka hryðjuverk á Íslandi - Norðmenn og Danir upplifað erfiðar hryðjuverkaárásir MGetum aldrei útilokað … »6 Ljósmynd/Ríkislögreglustjóri Lögregla Runólfur Þórhallsson að- stoðaryfirlögregluþjónn hjá RLS. _ Miklar mælingar standa nú yfir í Kröflu í tengslum við Evrópuverk- efnið IMPROVE. Í því eru tvær lyk- ileldstöðvar í Evrópu rannsakaðar, Krafla og Etna á Sikiley. Eitt helsta markmið verkefnisins er að varpa nýju ljósi á samband jarðhitasvæð- isins í Kröflu við kviku þar undir. Krafla er ein mest rannsakaða eld- stöð í heiminum. Umfangsmestu þættir rannsókn- arinnar felast í að mæla rafleiðnina nákvæmlega og setja upp þétt net af jarðskjálftamælum. Ætlunin er að fá mynd af því hvernig kvika dreifist undir Kröflu. »10 Morgunblaðið/BFH Kröfluvirkjun Krafla er vel þekkt eldstöð og þar hefur jarðhiti verið virkjaður. Skoða samspil jarðhita og kviku

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.