Morgunblaðið - 28.06.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
Metnaðarfull sigurtillaga að upp-
byggingu í Akranesbæ mun bjóða
upp á byggingu hótels með útsýni að
Snæfellsjökli, mögulegt baðlón,
strand- og göngustíga og blandaða
byggð íbúða- og atvinnuhúsnæðis.
Þetta er fyrirhugað á Breiðinni á
Akranesi, neðst á Skipaskaga. Til-
lagan, Lifandi samfélag við sjó, sem
kom frá arkitektastofunni Arkþing/
Nordic og Eflu verkfræðistofu,
hlaut fyrsta sæti í hugmynda-
samkeppni um framtíð svæðisins og
um leið 15 milljónir króna í verð-
laun.
Breið þróunarfélag efndi til sam-
keppninnar með það að markmiði að
byggja upp Breiðina og styðja við
atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á
Akranesi til framtíðar. Samtals bár-
ust 24 tillögur frá yfir 50 aðilum, að
miklum meirihluta frá alþjóðlegum
arkitekta-, hönnunar- og skipulags-
stofum. „Við erum mjög spennt fyr-
ir möguleikunum sem þessar til-
lögur færa okkur. Nú höfum við
unnið síðan í júní 2020 með Brimi að
því að efla atvinnustarfsemi við
Breiðina og hluti af því verkefni var
að fara í gang með hugmyndasam-
keppnina,“ segir Sævar Freyr Þrá-
insson, bæjarstjóri á Akranesi. „Við
sjáum þarna fyrir okkur verkefni
sem geta stuðlað að rannsóknar- og
vísindastarfsemi, heilsutengdri
ferðaþjónustu og starfsemi sem
tengist höfninni. Síðast en ekki síst
höfum við möguleika á að vera
fremst í flokki þegar kemur að bar-
áttu við loftslagsvandann og verk-
efni tengd því,“ segir hann.
Bærinn hefur þegar laðað að sér
fólk á heimsmælikvarða á því sviði,
frá loftslagsfyrirtækinu Running
Tide. Fyrirtækið hefur starfsemi á
Akranesi í sumar. Meðal annars
stendur til að fyrirtækið rannsaki og
framleiði þörunga til kolefnis-
bindingar í hafi.
Breið þróunarfélag efndi til sam-
keppninnar og voru niðurstöður
dómnefndarinnar kynntar í Haf-
bjargarhúsinu að Breiðargötu í gær.
Dómnefnd valdi sigurtillöguna Lif-
andi samfélag við sjó, þar sem hún
taldi hana skýra og látlausa, auk
þess sem hún legði til blandaða upp-
byggingu á Breiðinni. „Atvinnu-
svæði er byggt upp ofan við Steins-
vör og núverandi byggingar eru
endurnýttar. Útisvæði við vörina
virkar sannfærandi, með veitinga-
sölu og annarri starfsemi,“ segir í
niðurstöðum dómnefndarinnar.
Tengir nýja byggð við sjóinn
Segir þar einnig að íbúabyggðin
sé fjölbreytt og að þróa mætti hús-
gerðir enn frekar með tilliti til þétt-
leika og skjólmyndunar.
Lagt er til að lagður verði strand-
stígur umhverfis nýju byggðina og
að hann verði tengdur við fjöl-
breytta uppbyggingu og afþreyingu
við sjóinn. Þá er lagt til að annar
stígur liggi í gegnum hverfið frá
norðri til suðurs og tengist leik-
svæðum, gróðurhúsi og veitinga-
torgi. „Staðsetning hótels og bað-
lóns sunnarlega á nesinu virkjar það
svæði vel og býður upp á spennandi
þróunarmöguleika. Styrkur tillög-
unnar er einfaldleiki með skýru
samgönguneti og góðum tengingum
við sjóinn,“ segir í niðurstöðunum.
Telur dómnefndin tillöguna jarð-
bundna og raunsæja, auk þess sem
mannvirki við Skarfavör og Steins-
vör sem gangi að sjá fram, þurfi að
skoða með tilliti til ágangs sjávar.
Önnur verðlaun hlaut tillaga án
titils frá finnsku arkitektastofunni
Muuan, með aðstoð frá teiknistof-
unni Arkitektur-Verkfræði-Hönnun
og þriðju verðlaun hlaut Breiðin til
framtíðar frá hollensku hönnunar-
stofunni Super World VOF.
Vinningstillagan Tillagan var kynnt í gær í Hafbjargarhúsinu að Breiðargötu.
Morgunblaðið/Eggert
Verðlaunahafar Fulltrúar Arkþings/Nordic og Eflu verkfræðistofu tóku við fyrstu verðlaunum.
Breiðin Gert er ráð fyrir blandaðri byggð íbúða- og atvinnuhúsnæðis á svæðinu og strandstíg umhverfis byggðina.
Hótel, baðlón og íbúðir í kortunum
- Metnaðarfull
áform í Akranes-
bæ - Strand-
stígur umhverfis
nýja byggð
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Bjargey er heiti á nýju meðferðar-
heimili, sem formlega var opnað að
Laugalandi í Eyjafjarðarsveit í gær
að viðstöddu fjölmenni.
Ásmundur Einar Daðason,
mennta- og barnamálaráðherra, opn-
aði heimilið með því að klippa á borða,
þann fyrsta að sögn sem hann hefur
klippt á í sinni ráðherratíð.
Honum til halds og trausts við þá
athöfn voru Ólöf Ásta Farestveit, for-
stjóri Barna- og fjölskyldustofu, og
Ólína Freysteinsdóttir, forstöðumað-
ur Bjargeyjar, en hún er með BA-
próf í nútímafræðum og MA í fjöl-
skyldumeðferð og náms- og starfs-
ráðgjöf.
Auk hennar starfa sem stendur níu
aðrir með fjölbreytta reynslu og
menntun á heimilinu. Starfsemin
hófst 1. júní og er rými fyrir fjóra til
fimm á heimilinu hverju sinni.
Öll þrjú lýstu yfir ánægju sinni
með nafnið og heimilið í stuttum ræð-
um, en nafnið kom fram í draumi,
sem Íslendingar kunna yfirleitt vel að
meta. Nafnið Bjargey vísaði til styrk-
leika og trausts og ætti því vel við.
Sérhæfð meðferð veitt
Fram kom einnig í ávörpum að
miklar vonir eru bundnar við starf-
semi heimilisins og að hún muni bera
góðan árangur. Meðferðarheimilið er
ríkisrekið langtímameðferðarheimili,
ætlað stúlkum og kynsegin einstak-
lingum. Meginmarkmið með starf-
semi þess er að veita sérhæfða með-
ferð vegna alvarlegra hegðunar-
erfiðleika, vímuefnaneyslu og
meintra afbrota. Ólína sagði að horft
yrði til þess einnig að veita aðstand-
endum þjónustu, enda langt í frá auð-
velt hlutskipti sem þeir fengju. Allt
meðferðarstarfið væri unnið í sam-
starfi við þá, því meginmarkmiðið
væri að styðja skjólstæðingana til
þess að geta farið aftur heim til fjöl-
skyldna sinna.
Sérhæft fyrir stúlkur og kynsegin
- Meðferðarheimilið Bjargey var opnað í húsakynnum Laugalands í Eyjafjarðarsveit í gær - Rík-
isrekið langtímameðferðarheimili ætlað stúlkum og kynsegin - Miklar vonir bundnar við starfsemina
Morgunblaðið(Margrét Þóra
Athöfn Ásmundur Einar ráðherra klippti á borða og opnaði Bjargeyju.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Laugaland Bjargey verður í húsakynnum Laugalands í Eyjafjarðarsveit.