Morgunblaðið - 28.06.2022, Qupperneq 8
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Ólafsvík Á myndinni eru gefendurnir, Páll Sigurvinsson og Hanna Björk
Ragnarsdóttir, ásamt Vagni Ingólfssyni, formanni Skógræktarfélags Ólafs-
víkur, og fleirum sem tóku þátt í að planta keisaraöspunum 200.
Ólafsvík | Skógræktarfélagi Ólafs-
víkur var gefin góð gjöf í síðustu
viku, er hjónin Páll Sigurvinsson
og Hanna Björk Ragnarsdóttir
færðu félaginu 200 keisaraaspir.
Vagn Ingólfsson, formaður félags-
ins, tók á móti gjöfinni.
Vagn sagði við fréttaritara
Morgunblaðsins að félagið kynni
virkilega að meta gjöfina og að
gott væri að hafa keisaraaspir á
ræktarlandi félagsins, þar sem
mikil selta og vindur gengi oft þar
yfir.
Aspirnar voru gróðursettar
samdægurs af hópi frá Skógrækt-
arfélagi Íslands, með styrk frá
Snæfellsbæ. Meðal þeirra voru er-
lendir sjálfboðaliðar, sem koma
gagngert til landsins til að planta
trjám víðs vegar um land. Fyrir
þeim hópi fór Narfi Hjartarson
skógfræðingur. Komu sjálfboðalið-
arnir frá Ítalíu, Spáni og Póllandi.
Fengu 200 keisara-
aspir að gjöf
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Samtök atvinnulífsins fjölluðu á
dögunum um þjónustukönnun
sem gerð var fyrir Sjúkratrygg-
ingar Íslands um heilsugæslustöðvar
á höfuðborgarsvæð-
inu. Þar segir að al-
mennt beri fólk
traust til heilsu-
gæslustöðva á höf-
uðborgarsvæðinu en
þó veki athygli „að
einkareknar heilsu-
gæslustöðvar raða
sér í efstu sætin þegar kemur að
ánægju með þjónustuna. Þá njóta
þær einnig meira trausts.“
- - -
Í umfjöllun SA segir einnig:
„Einkareknar heilsugæslu-
stöðvar komu til fyrir örfáum árum
en lagaumgjörð um þær er ströng.
Þannig verða eigendur að starfa á
stöðvunum upp að vissu marki og
arðgreiðslur úr rekstrinum eru
óheimilar. Þá búa þær við ákveðnar
takmarkanir umfram ríkisrekna
heilsugæslu, þær þurfa að kaupa
tryggingar fyrir reksturinn og
greiða eigin ábyrgð, lúta annarri
verðskrá á rannsóknum hjá Land-
spítala og fá ekki endurgreiðslu á
virðisaukaskatti í samræmi við rík-
isreknar stofnanir.“
- - -
Þá er minnt á það að samningar
einkarekinna heilsugæslu-
stöðva renni út í lok ágúst næstkom-
andi. Augljóst er að reynslan af
þessari starfsemi er góð og miklu
skiptir að um hana verði settur
rammi sem auðveldar þetta rekstr-
arform.
- - -
Að því þarf raunar að huga á
fleiri sviðum heilbrigðisþjón-
ustunnar. Ríkið er þar of umsvifa-
mikið og einkaaðilar fá of lítið svig-
rúm. Í ljósi sívaxandi kostnaðar við
heilbrigðiskerfið og þess hagræðis
sem unnt er að ná fram með fjöl-
breyttari rekstrarformum er þýð-
ingarmikið að hraðar verði unnið í
þessum efnum.
STAKSTEINAR
Willum Þór
Þórsson
Mikið traust til
einkarekstrarins
Í þessari viku verður byrjað að loka
fyrir rafmagn hjá þeim sem ekki hafa
valið sér nýjan raforkusala. Hópurinn
telur tæplega 700 manns víðs vegar af
landinu.
Að sögn Lovísu Árnadóttur, upp-
lýsingafulltrúa Samorku, gerist það
ekki lengur sjálfkrafa að fólk fái raf-
orkusala við íbúðakaup, heldur þarf
það að velja sér fyrirtæki. Þeir sem
koma nýir inn á íbúðamarkaðinn eða
hafa tekið sér 90 daga hlé frá honum
hafa núna 30 daga til að velja sér raf-
orkusala.
Að sögn Lovísu vita ekki margir af
þessu fyrirkomulagi. Áður fyrr sá
kerfið til þess að fólk fékk raforkusala
ef það valdi sér hann ekki. Nú hefur
kerfið verið dæmt ólögmætt af úr-
skurðarnefnd raforkumála. Núna
starfar Orkustofnun eftir nýrri reglu-
gerð sem gefur fólki 30 daga frá not-
endaskiptum á raforkumæli. „Ástæð-
an fyrir því að það er verið að loka hjá
fólki er sú að dreifiveitum er óheimilt
samkvæmt lögum að afhenda rafork-
una ef samningur er ekki til staðar.“
Aðspurð býst hún við því að veiturnar
fái mestu viðbrögðin frá fólki þar sem
lokað verður fyrir rafmagnið, enda er
kostnaðarsamt að opna það aftur.
Hún segir aðeins taka örfáar mínútur
að velja sér raforkusala og hvetur fólk
til að gera það sem fyrst.
Lokað fyrir rafmagn hjá 700 manns
- Gerist ekki lengur sjálfkrafa og fáir
vita af þessu nýja fyrirkomulagi
Morgunblaðið/Ari Páll
Orka Mikið var hringt í þjónustuver
Veitna í gær eftir fregnirnar.
SKVÍSAÐU ÞIG UPP
FYRIR SUMARIÐ
STÆRÐIR 1428
Bikiní toppur
6.990 kr
Stærðir 42-54
Sundbolur
9.990 kr
Stærðir 42-58
Sundbolur
12.990 kr
Stærðir 42-58
Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
SU ÖT
Frábært úrval af fatnaði í stærðum 42-58
Þú getur skoðað úrvalið og
pantað í netverslun www.curvy.is
Afgreiðslutímar í verslun Curvy
í Hreyfilshúsinu við Grensásveg
Alla virka daga frá kl. 11-18
og Laugardaga frá kl. 11-16