Morgunblaðið - 28.06.2022, Page 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022
E60
Íslensk hönnun og framleiðsla frá 1960
Mikið úrval lita bæði á
áklæði og grind.
Sérsmíðum allt eftir
pöntunum.
Stóll E60 orginal kr. 44.100
Retro borð 90 cm kr. 156.200
(eins og á mynd)
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Ég veit bara hreinlega ekki hvað ég
á að segja, ég er svo stolt, og það var
ólýsanleg upplifun að heyra íslenska
þjóðsönginn sunginn úr stúkunni,“
segir Elma Rún Kristinsdóttir, höf-
undur dansatriðis sem vann gullverð-
laun sl. sunnudagskvöld á heims-
meistaramóti í danslistum, Dance
World Cup, í San Sebastian á Spáni.
Krakkar á aldrinum fjögurra til tutt-
ugu og sex ára taka þátt í þessu
heimsmeistaramóti og dansarar úr 10
íslenskum dansskólum taka þátt í
keppninni í ár, alls 208 krakkar.
Dansarar siguratriðisins eru tíu
stelpur frá DansKompaníi í Reykja-
nesbæ og þær stigu á pall í flokknum
Children Small Group Song and
dance, þar sem keppendur þurftu
bæði að syngja, dansa og leika á sama
tíma, svo það reyndi á fjölþætta hæfi-
leika þessara ungu listamanna. Níu
atriði kepptu í þessum flokki því fá at-
riði stóðust lágmarkseinkunn í hverju
landi fyrir sig.
Þvert á trú, kyn og húðlit
Rúmlega 300 íslenskir dansarar,
kennarar og fjölskyldur þeirra koma
saman á Spáni til þess að taka þátt í
heimsmeistaramótinu, þar sem yfir
5.000 dansarar frá 37 löndum keppa í
harðri samkeppni um heimsmeist-
aratitla í ýmsum flokkum danslista,
svo sem klassískum ballett, nútíma-
dansi, hipphoppi og mörgum fleirum.
Keppt er í fjórum aldursflokkum,
undir níu ára, undir 13 ára, undir 17
ára og undir 24 ára. Keppnin hófst á
föstudag og stendur í heila viku.
Sigurganga íslenska liðsins hófst
árið 2019 þegar hópur sem saman-
stóð af 228 íslenskum dönsurum
keppti í borginni Braga í Portúgal.
Þar vann íslenska liðið átta medalíur
og þar af eitt gull.
„Hafandi staðið þétt saman í gegn-
um heimsfaraldur er hreinlega frá-
bært að sjá alla dansarana koma sam-
an hérna á Spáni. Allir hafa unnið
hörðum höndum að atriðunum sínum,
dansararnir, kennarar þeirra og
danshöfundar. Þótt allir þessir
krakkar séu frá 10 mismunandi dans-
skólum á Íslandi, þá mynda þau sam-
an íslenskt landslið og keppa sem ein
heild á mótinu. Samstaðan, gleðin og
liðsandinn hjá íslensku keppendunum
er eftirtektarverður og það er dásam-
legt að sjá Ísland skara fram úr í
svona harðri keppni. Til þess að bæta
svo við gleðina og samstöðuna var
frábært að fagna okkar fyrsta heims-
meistaratitli þetta árið á sunnudaginn
var. Aldeilis góð byrjun á keppninni
og mikil lyftistöng fyrir danslistina á
Íslandi. Það er ómetanlegt fyrir þessa
krakka og mikil hvatning að geta
mátað sig við umheiminn með því að
keppa í alþjóðlegri keppni eins og
þessari,“ segir Chantelle Carey,
skipuleggjandi keppninnar á Íslandi,
og bætir við að þetta sýni okkur
hversu mikilvægt er að styðja við
danslistirnar. „Íslenskir dansarar eru
að gera framúrskarandi hluti úti um
allan heim.“
Hún segir mikilvægt og verðmætt
að börn sameinist í listinni þvert á
trú, kyn og húðlit og vísar þar í slag-
orð keppninnar á Spáni: „A truly
magical moment of shared love, pas-
sion, tolerance, kindness and dance.
Make art, not war!“
Hægt er að fylgjast með íslenska
hópnum á @dwciceland bæði á Insta-
gram og Facebook.
Ljósmynd/Dance World Cup
Gull Þessar 10 stelpur lönduðu gulli á heimsmeistaramótinu, Dance World Cup á Spáni, með atriði sínu Yfir Vest-
firðina, en þar þurftu þær að syngja, dansa og leika. Dansarar eru Aðalbjörg Ósk, Andrea Ísold, Bryndís Björk,
Emma Rún, Freyja Marý, Heiðrún Lind, Katla Dröfn, Rebekka Dagbjört, Sonja Rós og Valgerður Pálína.
Lönduðu gulli í dansi á Spáni
- Framúrskarandi árangur ungra íslenskra dansara í sínum flokki - Yfir 5.000 dansarar frá 37
löndum keppa í harðri samkeppni um heimsmeistaratitla - Mikil samheldni í íslenska hópnum
Setningarathöfn Á fyrsta degi var setningarathöfn mótsins haldin og heldur betur stemning í íslenska hópnum. Gaman Skólastjórar og kennarar þeirra dansara sem taka þátt í keppninni.
samning Tálknafjarðarhrepps og
Hörpu.
Samningurinn felur í sér að
Tálknafjarðarhreppur viðurkenni
mikilvægi kvenfélagsins fyrir
fjörðinn og veiti Hörpu afnot af
Vindheimum. „Kvenfélagið gaf
hreppnum húsið Vindheima árið
1978 til afnota sem leikskóla.
Helsti áherslupunkturinn í sam-
starfssamningnum er að við fáum
Vindheima fyrir okkar starfsemi,
s.s. félagsstarf og fundahöld, en
auðvitað þannig að það skarist
ekki við aðra starfsemi í húsinu,“
segir Nancy. Vindheimar eru í
dag nýttir annars vegar sem hús-
næði fyrir starf eldri borgara og
hins vegar er þar félagsmiðstöð
fyrir börn. Leikskólinn á Tálkna-
firði var í húsnæði Vindheima
lengi vel en leik- og grunnskóli
Tálknafjarðarhrepps sameinuðust
undir einu þaki í ágúst árið 2012.
Auk samstarfssamningsins
skrifaði kvenfélagið undir vilja-
yfirlýsingu. Hún felur í sér að
Harpa veiti fjárstyrk í endur-
bætur á lóðinni sem er við hús-
næðið, þannig að yngri börn geta
nýtt sér leikvöllinn þar, og á móti
kemur Tálknafjarðarhreppur með
vinnuframlagið til endurbóta.
Kvenfélagið Harpa á var upphaf-
lega stofnað árið 1962 til að
kaupa félagsheimilið Dunhaga og
þannig efla félagslíf á Tálkna-
firði.
Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson