Morgunblaðið - 28.06.2022, Side 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Ingvi Hrafn Óskarsson er lögmaður
nokkurra einstaklinga, sem vilja að
íslenskir viðskiptabankar útskýri
betur í skilmálum lánasamninga
hvernig þeir taka ákvarðanir um
vaxtahækkanir breytilegra fast-
eignalána. Ingvi segir að Héraðs-
dómur Reykja-
víkur hafi ákveðið
að beina lykil-
spurningu í mál-
inu til EFTA-
dómstólsins.
„Héraðsdómur
ákvað að leita
álits EFTA-dóm-
stólsins um skýr-
ingu ákvæðis í til-
skipun um láns-
samninga fyrir
neytendur, þar sem fjallað er um
breytilega vexti á íbúðalánum.
Spurningin, sem héraðsdómari
hyggst beina til EFTA-dómstólsins,
er lykilatriði í málinu. Hún er sú
hvort skilmálarnir uppfylli þá kröfu
sem mælt er fyrir um í tilskipuninni,
um að vera skýrir, aðgengilegir,
hlutlægir og sannprófanlegir fyrir
lántaka,“ segir Ingvi.
Hann segir að úrlausn EFTA-
dómstólsins í málinu kunni að hafa
verulega þýðingu um gildi skilmála
um breytilega vexti sem er að finna í
fasteignalánum neytenda, sem tekin
voru eftir 1. apríl 2017. Þá gengu í
gildi lög nr. 118/2016 um fasteigna-
lán neytenda sem innleiða umrædda
tilskipun.
Beið ekki hnekki
Deilt er um hvort skilmálar bank-
anna um útreikning vaxta standist
lög um neytendalán.
Mbl.is greindi frá því fyrir helgi
að Neytendasamtökin, sem styðja
mál einstaklinganna, hefðu lagt
fram þá kröfu að leitað yrði ráðgef-
andi álits EFTA-dómstólsins vegna
ákvæða verðtryggðs veðskuldabréfs
Arion banka. Þeirri kröfu var hafn-
að.
Ingvi segir að málið hafi ekki beð-
ið hnekki þótt dómurinn hafi ekki
ákveðið að vísa spurningum í öllum
málunum þremur, sem rekin eru
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur, til
EFTA-dómstólsins, eins og krafist
var. Þvert á móti geti aðalmeðferð
farið fram á sama grunni og lagt var
fram í byrjun í þeim málum sem
ekki var vísað til EFTA-dómstóls-
ins. Kröfur neytenda eru í þeim mál-
um, að sögn Ingva, að verulegu leyti
byggðar á þeim fordæmum sem
liggja fyrir hjá Evrópudómstólnum.
Í úrskurði héraðsdóms komi fram að
þessir dómar komi til skoðunar við
úrlausn málsins. „Það hefur veru-
lega þýðingu að horfa til Evrópu-
dómstólsins. Þar hafa fallið margir
fordæmisgefandi dómar um það
hvernig setja skuli fram breytilega
vexti í lánasamningum,“ segir Ingvi.
Miklar kröfur um skýrleika
Ingvi segir að í fordæmum
Evrópudómstólsins séu mjög miklar
kröfur gerðar um skýrleika og þær
aðferðir sem þjónustuveitandi beiti
til að reikna út verðhækkanir.
„Þjónustuveitandi þarf beinlínis að
útskýra hvernig hann reiknar út
breytingar á verði í samningi sem
gerður er til langs tíma. Við teljum
að bankarnir uppfylli ekki þessa
skyldu. Þeir áskilja sér mikið svig-
rúm til þess að breyta vöxtum, án
þess að það byggist á afdráttar-
lausum viðmiðum sem koma fram í
lánssamningi. Þar að auki virðist að-
ferðin sjálf sem þeir beita, líka
breytileg.“
Hann segir að Arion banki hafi
brugðist við í greinargerð sinni með
því að segja að dómar Evrópudóm-
stólsins, sem stefnendur byggja á,
hafi ekki fordæmisgildi hér á landi.
„Þá er skyndilega farið að deila um
hlut sem við töldum að ekki yrði
deilt um. Það er að hluta til tilefni
þess að við óskuðum eftir því í upp-
hafi að dómarinn leitaði til EFTA-
dómstólsins. En í niðurstöðum hans
segir að hann telji næga leiðbein-
ingu felast í dómum Evrópudóm-
stólsins, sem er eins og við gerðum
ráð fyrir strax í upphafi, og þess
vegna sé ekki þörf á því að leita til
EFTA-dómstólsins.“
Ójafnræði í viðskiptum
Ingvi segir að verulegt ójafnræði
sé í lánaviðskiptum milli banka og
neytenda. „Öll skjalagerð er unnin
af bönkunum og sérfræðingum
þeirra. Neytandinn ætti m.a. að hafa
kost á að kanna og ganga úr skugga
um að lánastofnun hafi framkvæmt
skilmálana í samræmi við efni sitt.
Það er óljóst og loðið og erfitt að
festa hönd á, eins og skilmálar bank-
anna eru nú settir fram. Til dæmis, í
skilmálum Landsbankans um vaxta-
breytingar, er vísað almennt til
vaxta Seðlabankans, vaxta á mark-
aði og svo fjármögnunarkjara bank-
ans. Ljóst er að fjármögnun bank-
ans ræðst t.d. af mörgum og ólíkum
þáttum. Ákvæðið er því mjög ógagn-
sætt, þar sem ekki er tilgreint skýrt
viðmið sem neytandinn getur sann-
prófað að bankinn fylgi þegar vaxta-
breytingar eru ákveðnar.“
Ingvi segir að þó sé ekki ómál-
efnalegt að miða við breytingar á
breytilegum vöxtum á lánskjörum
lánveitandandans sjálfs. Þá þurfi að
vera ljóst hvernig það sé reiknað út
og við hvað vextirnir miðast. Annars
hafi lánveitandi ansi mikið sjálf-
dæmi, eins og Ingvi orðar það, um
vaxtaþróunina.
Þýðing fyrir marga
Niðurstaða málsins, sem að
óbreyttu fer fyrir EFTA-dómstól-
inn, getur haft áhrif á lán, sem tekin
hafa verið eftir að lög um fasteigna-
lán tóku gildi árið 2017, að sögn
Ingva.
„Þess vegna hefur framvinda
málsins verulega þýðingu fyrir
marga lántaka.“
Ingvi segir til samanburðar að í
neytendalánum erlendis sé langal-
gengast að föst hlutlæg vaxtaviðmið,
eins og t.d. LIBOR eða stýrivextir
seðlabanka, ótengd lánveitandanum
sjálfum, ráði vaxtabreytingum. „Það
er óvenjulegt, a.m.k. sé litið til
þeirra landa sem við viljum helst
bera okkur saman við, að breytilegir
vextir í neytendalánum ráðist að
meginstefnu af einhliða ákvörðun
lánveitanda sjálfs en ekki hlutlæg-
um viðmiðunarvöxtum sem lánveit-
andinn stjórnar ekki sjálfur.“
Ingvi segir að kallað hafi verið
eftir upplýsingum frá bönkunum um
hvernig þeir reikni vextina út en
hingað til hafi þeir ekki talið sér
skylt að upplýsa um það.
Spurði lykilspurningar
Morgunblaðið/Eggert
Mál Niðurstaða málsins getur haft áhrif á lán, tekin eftir að lög um fasteignalán tóku gildi árið 2017.
- Leita álits EFTA-dómstólsins um skýringu ákvæðis í tilskipun um lánssamn-
inga fyrir neytendur - Hefur verulega þýðingu að horfa til Evrópudómstólsins
Ingvi Hrafn
Óskarsson.
28. júní 2022
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 132.74
Sterlingspund 162.87
Kanadadalur 102.29
Dönsk króna 18.777
Norsk króna 13.388
Sænsk króna 13.063
Svissn. franki 138.7
Japanskt jen 0.9825
SDR 177.21
Evra 139.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 171.2351
Aztiq Pharma Partners og Alvogen
Lux Holdings, eignarhaldsfélög í
meirihlutaeigu Róberts Wessman,
fóru með 76% hlut í Alvotech 16.
júní, daginn sem bréf fyrirtækisins
voru tekin til viðskipta í Bandaríkj-
unum. Róbert er stofnandi og
stjórnarformaður líftæknifyrirtæk-
isins. Þetta kemur fram í hluthafa-
skrá Alvotech sem Morgunblaðið
hefur undir höndum. Bracebridge
Capital, bandarískur vogunarsjóður
með tólf milljarða dala undir sinni
umsjón, er þriðji stærsti hluthafi
fyrirtækisins og fer með 3,5%.
Santo Holding (Deutschland) GmbH
fer með 2% hlut í fyrirtækinu. Jap-
anska lyfjafyrirtækið Fuji Pharma
fer með 1,9% hlut og er fimmti
stærsti hluthafi félagsins. YAS hold-
ing, vogunarsjóður staðsettur í
Sameinuðu arabísku furstadæm-
unum, fer með 1,5% hlut í fyrir-
tækinu. Svissneska heilbrigð-
islausnafyrirtækið Baxter
Healthcare SA, sem er í eigu banda-
ríska risans Baxter International,
sem er metinn á tæpa 34 milljarða
dala, á 1,1% hlut í Alvotech.
Viðskiptavinir Arion banka,
Landsbankans og Artica fara sam-
tals með 3,3% hlut í fyrirtækinu.
Íslenska sameignarhlutafélagið
ATH 20 fer með 1,1% hlut í fyrir-
tækinu. Í nýjasta ársreikningi fyrir-
tækisins má sjá að tveir sjóðir Stefn-
is fara með samtals 46,67% hlut í
ATH 20. Hvalur hf., félag í þriðj-
ungseigu Kristjáns Loftssonar, fer
með 26,67% hlut í sameignarhluta-
félaginu. Tryggingafélagið TM fer
með 13,33%. Lífeyrissjóður Vest-
mannaeyja fer með 6,67% hlut og
var þar með eini lífeyrissjóðurinn
sem var hluthafi Alvotech á fyrsta
viðskiptadegi. Erlenda félagið Q32
Limited fer með jafn stóran hlut og
lífeyrissjóðurinn. Sölubann er á
bréfum félaga Róberts. Því verður
aflétt eftir hálft ár. Þeim er þó ekki
skylt að selja bréfin. logis@mbl.is
Tvö félög fara
með 76% hlut
í Alvotech