Morgunblaðið - 28.06.2022, Síða 13

Morgunblaðið - 28.06.2022, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022 2013 2018 Reki ehf • Skemmuvegur 46 • 200 Kópavogur • Sími 562 2950 www.reki.is Við sérhæfum okkur í síum í allar gerðir véla Eigum til flest allar gerðir af síum á lager Áratuga reynsla í þjónustu við íslenskan iðnað Samkomulag náðist í gær á G7-ráð- stefnu helstu iðnríkja heims í Schloss Elmau í Þýskalandi, um að loka glufum í innviðauppbyggingu þróunarlanda og styrkja alþjóða- hagkerfið og vöruflutningaleiðir. Er þarna um að ræða framhald þess sem rætt var á G7-ráðstefnunni í Cornwall á Englandi í júní í fyrra, þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti og aðrir leiðtogar á ráðstefnunni sammæltust um að skapa öfluga og heildstæða innviði til að mæta þörf- um lág- og meðaltekjuríkja. Nýja innviðaáætlunin gengur undir heitinu PGII. Gert er ráð fyrir að kostnaður við hana hlaupi á hundruðum milljarða dala, enda er henni ætlað að auka til muna lífs- gæði þeirra sem hve höllustum fæti standa á jarðkringlunni. Samkvæmt frumdrögum er gert ráð fyrir að 600 milljörðum dala hafi verið varið í PGII árið 2027 og munu þeir fjár- munir koma víða að, svo sem frá þró- unarbönkum, ríkissjóðum og öðrum fjárveitum. Mun Biden senn gefa út viljayfir- lýsingu, þar sem meginþættir PGII- áætlunarinnar verða tíundaðir. Þeir snúast einkum um að ná tökum á hnattrænni hlýnun, tryggja orku- öryggi heimsins, þróa vöruflutninga- leiðir sem byggjast á hreinni orku, koma upp flutningaleiðum sem hafa lágmarkskolefnislosun í för með sér, tryggja öruggt streymi upplýsinga, opin stafræn samfélög og ótalmargt annað. Með þessu hyggst Biden sýna fram á hvernig milljóna dala fjár- festingar geta skilað sér margfalt og hundruð milljóna orðið að millj- örðum. AFP/Lukas Barth G7 Joe Biden Bandaríkjaforseti brosir sínu blíðasta á ráðstefnunni. G7-ríkin þétta innviði - Ný áætlun kostar hundruð milljarða dala - Tryggja orkuöryggi og upplýsingaflæði og þróa vöruflutningaleiðir Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Talið er að eitt þúsund manns hafi verið staddir í verslunarmiðstöð í Kremenchuk í Úkraínu miðri þegar tvö rússnesk X-22-flugskeyti hæfðu bygginguna í gær, með þeim afleið- ingum að minnst 14 manns létust og tugir hlutu sár af. Tjáðu úkraínskir stríðsglæpasak- sóknarar breska dagblaðinu The Guardian að lík hinna látnu hefðu fundist í rústum miðstöðvarinnar og minnst 40 manns væri saknað eftir að skeytin skullu á húsinu. Svo mikill eldur kviknaði við sprenginguna að 300 slökkviliðsmenn voru rúma fjóra tíma að ráða niðurlögum hans. Svitlana Rybalko, upplýsinga- fulltrúi Almannavarna Poltava-hér- aðs, sagði ómögulegt að segja til um raunverulegan fjölda látinna. „Við vitum ekkert hve margir eru fastir í rústunum, hugsanlega eru mun fleiri látnir,“ sagði Rybalko við The Guardian í gær. Kaldhæðni örlaganna Björgunarfólk vann sleitulaust í alla nótt við að leita lifenda í rústum verslunarmiðstöðvarinnar. „Við fundum þó nokkur lík en ekki er ör- grannt um að fleiri liggi fastir undir rústunum,“ sagði Oleksii, slökkvi- liðsmaður númer 46, í gær. Við aft- anskæru í gær lýstu flóðljós björg- unarsveita sviðnar rústir verslunar- miðstöðvarinnar upp og hópar aðstandenda horfinna viðskiptavina miðstöðvarinnar biðu þess sem verða vildi skammt undan. Þykir það til marks um kaldhæðni örlaganna að flugskeytunum var skotið á verslunarmiðstöðina sama dag og leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims ræddu á G7-ráðstefnunni í Þýskalandi hvernig refsa mætti Rússum fyrir innrás þeirra í ná- grannaríkið, auk þess sem því var lýst þar yfir að samstaða með Úkra- ínu stæði svo lengi sem þörf væri á. Var því enn fremur lýst þar yfir að allar árásir Vladimírs Pútíns Rúss- landsforseta á óbreytta borgara væru hreinir stríðsglæpir. „Við munum ekki unna okkur hvíldar uns Rússland lætur af grimmdarlegu og glórulausu stríði sínu við Úkraínu,“ sagði í yfirlýsingu G7-leiðtoga en merkja mátti aukna hörku í flugskeytaárásum Rússa á nágrannaríkið í aðdraganda G7-ráð- stefnunnar. Flaugum var til dæmis skotið að Kænugarði, auk þess sem 20 skeyti bárust frá rússnesku her- liði á landsvæði Hvíta-Rússlands. „Hernámsliðið skaut á verslunar- miðstöðina þar sem meira en þúsund óbreyttir borgarar voru staddir. Miðstöðin logar, björgunarfólk berst við elda, fjölda fórnarlamba er vart hægt að gera sér í hugarlund. Enn láta Rússar dáðleysi sitt bitna á óbreyttum borgurum. Engin von er um siðprýði og manngæsku úr þeirri átt,“ ritaði Volódímír Selenskí Úkra- ínuforseti á samskiptamiðilinn Tele- gram í gær. Rangfærslurnar margar Kallaði forsetinn Rússland stærstu hryðjuverkasamtök heims- byggðarinnar. „Gervöllum heimin- um ætti að vera það ljóst að kaup eða flutningur rússneskrar olíu, viðskipti við rússneska banka, skatt- og aðrar greiðslur til rússneska ríkisins jafn- gilda því að greiða hryðjuverka- mönnum fé,“ sagði Selenskí. Engin viðbrögð við árásinni hafa borist frá Kreml, sem áður hefur þó lýst því yfir að Rússar geri ekki at- lögur að óbreyttum borgurum af ráðnum hug. Dmitry Polyansky, að- stoðarsendiherra Rússa hjá Samein- uðu þjóðunum, sagði að frásagnir Úkraínumanna af árásinni á versl- unarmiðstöðina væru hlaðnar rang- færslum. „Við skulum bíða yfirlýsingar frá varnarmálaráðuneyti okkar en engu að síður eru rangfærslurnar margar. Þetta er einmitt það sem stjórnin í Kænugarði þarfnast til að vekja at- hygli rétt fyrir ráðstefnu Atlants- hafsbandalagsins [sem hefst í Madr- íd á Spáni í dag].“ Verslunarmiðstöð í rústum - Að minnsta kosti 14 taldir af eftir flugskeytaárás Rússa - Skothríðin hert í aðdraganda G7-ráðstefn- unnar - Kveðast ekki unna sér hvíldar uns Rússar vægja - Sækist eftir athygli fyrir NATO-ráðstefnu AFP/Almannavarnir Úkraínu Undinn málmur Vitað er um 14 dauðsföll eftir flugskeytaárás Rússa á verslunarmiðstöð í Úkraínu í gær. Bretinn Gary Hunt er nífaldur meist- ari klettadýfingakappleiks, sem kenndur er við orkudrykkinn Red Bull og hefur verið nánast óskoraður á toppnum þar síðan árið 2009. Hunt er hins vegar ekki albreskur lengur, þar sem hann hefur að auki hlotið franskan ríkisborgararétt og telst nú borgari beggja vegna Ermarsundsins. „Ég hef verið búsettur í Frakklandi svo lengi að mér þykir hálfundarlegt að æfa með sama fólkinu daginn inn og út og ferðast svo héðan til að keppa undir merkjum annars lands,“ lét hann hafa eftir sér í fjölmiðlum um helgina. Hunt hefur haft orð á sér fyr- ir að opna nýja vídd í klettadýfingum og finna stöðugt upp á nýjum klækj- um til að skjóta keppinautum sínum ref fyrir rass, með góðum árangri. Svifið um loftin blá í hinni annáluðu borg elskenda Dýfinga- keppni nautsins AFP/Julien De Rosa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.