Morgunblaðið - 28.06.2022, Side 15

Morgunblaðið - 28.06.2022, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022 Noregur Í Karls Jóhanns-götu í Osló voru margir á ferð á sunnudaginn. Mættu þangað til að sýna sig og sjá aðra og ná úr sér hrolli eftir ódæðisverkið sem framið var í borginni aðfaranótt laugardags, sem bæði skók og skelfdi. Viðsjár eru áfram í borginni og lögregla er á hæsta viðbúnaðarstigi með tilliti til hryðjuverkahættu. Biðlað er til þess að fjölmennar útisamkomur verði ekki haldnar. Sigurður Bogi Stríðið í Úkraínu hefur eðlilega upp- tekið hugi fólks og fjölmiðla eftir að hafa varað í fjóra mánuði. Nú er hins vegar víða farið að gæta þreytu um leið og margir spyrja: Hvernig getur þessi hildarleikur tek- ið enda? Framkvæmdastjóri NATO gerir því skóna að stríð þetta geti varað árum sam- an. Víst er að enginn sér fyrir um lyktir þess og eftirleikurinn mun eflaust lengi minna á sig. Yfirvof- andi er stórfelld hungursneyð víða vegna skorts á hveiti og og fleiri lífsnauðsynjum, m.a. í fátæktar- löndum Afríku. Þar leggst á eitt viðskiptabann Vesturlanda gegn Rússlandi og tundurduflagirðingar Úkraínumanna til varnar úti fyrir Ódessu við Svartahaf. Úr heimi minninga Samskipti Rússa við nágranna sína hafa löngum verið hluti af flók- inni sögu og ættu því átök á þess- um slóðum ekki að koma mönnum í opna skjöldu. Norðurlandabúum eru þar eðlilega efst í huga sam- skipti Rússa við Eystrasaltsríkin. Svo vill til að undirritaður kynntist þeim með óvenjulegum hætti fyrir um aldarþriðjungi, nánar tiltekið í sumarbyrjun 1990. Fram að þeim tíma fóru samskipti flestra Íslend- inga við Sovétríkin fram um hefð- bundna farvegi, m.a. gegnum sendi- ráðið í Moskvu; fáir aðrir en starfsmenn á flutningaskipum lögðu leið sína til borga við aust- anvert Eystrasalt. Frá árinu 1983 átti ég sem þingmaður sæti í utanríkismála- nefnd Alþingis og í Norðurlandaráði frá 1988-1995. Þar kynnt- ist ég m.a. finnskum þingmönnum sem helst höfðu samskipti í austurátt, m.a. við sov- étlýðveldið Eistland. Í Sovétríkjunum var, undir lok níunda ára- tugarins, vaxandi gerj- un á valdatíma Gor- batsjovs. Almenningur í Eystrasaltsríkjunum var vaknaður til vitundar um breytt andrúmsloft og sóknarfæri fyrir sjálfstæðishugmyndir. Mig fýsti að kynnast þessum aðstæðum af eigin raun og fékk frá finnskum þing- mönnum uppgefin nöfn stjórnmála- manna í Tallinn, sem ég hafði hug á að fræðast af, sem og nafn Tönu Laak, forstjóra eistneska skipa- félagsins, sem þá sá um ferjusigl- ingar til Helsinki og Stokkhólms. Kona mín Kristín var með í ferð- inni. Laak beið okkar við landgang- inn í Tallinn og bauð fram aðstoð sína. Það var komið kvöld og við hröðuðum okkur á hótel. Eftirminnilegur dagur Næsta dag, föstudaginn 22. júní 1990, leiði ég til vitnis dagbók mína, þar sem stendur: „Risið á 9. tíma á Palace hóteli. Fréttir um landskjálfta í Íran og samþ. þýsku þinganna um samein- ingu og Oder-Neisse. Eftir morg- unverð hringdi Tönu Laak og greindi frá dagskrá: 1) Fórum með honum 10:15 til forseta æðstaráðs Eistlands, Arn- old Rüütels. Ræddum við hann í klst. og 15 mín. 2) Hittum í hádegi í þinghúsinu á Domberget Rein Veideman þing- mann, sem er varaform. Sós. dem. 3) Heilsuðum á eftir forsætisráð- herra, samgöngurh. og dómsmála- rh. 4) Ræddum í klst. við Indrek Toome, formann utanríkismála- nefndar þingsins (Supreme soviet) og áður forsætisráðherra. 5) Skoðunarferð í 2 ½ tíma um Tallinn undir leiðsögn Toomas Sos- nitski starfsmanns Eastline. Hist á eftir á hóteli. Gönguferð um gamla bæinn, sem er mikill fjársjóður. 6) Snætt vel og til náða þreytt eftir góðan dag. 23.“ Daginn eftir tókum við járn- brautarlest til Leningrad, sem enn bar það nafn, og héldum þaðan með finnskri ferðaskrifstofu til baka heimleiðis. Mánudaginn 2. júlí 1990 sat ég fund utanríkismálanefndar Alþing- is. Þar dreifði ég og fylgdi úr hlaði frásögn um ferðina til Eistlands, sem einnig fjölmiðlar greindu frá næstu daga. – Heimkominn sendi ég Rüütel, forseta Eistlands, væn- an pakka af ritum um starfsemi Norðurlandaráðs og um Ísland, sem hann heimsótti 14 árum síðar, 2004, þá sem forseti lýðveldisins Eistlands. Eystrasaltsríkin og Kaliningrad En hverfum þá til nútíðar. Eðli- legt er að Eystrasaltsríkin hafi áhyggjur af vaxandi spennu í kjöl- far innrásar Rússa í Úkraínu. Öll eru þau þó í NATO, sem á að vera þeim trygging fyrir að ekki verði hróflað við landamærum þeirra eða öryggi vegna samskipta í austurátt. Spennan tengist fyrst og fremst svokallaðri Suwalki samgönguæð á landamærum Litháens og Póllands til Kaliningrad svæðisins, sem var hluti af Sovétríkjunum og nú Rúss- landi, samkvæmt samningi frá 12. september 1990, upphaflega með rætur í Potsdam-sáttmálanum frá 1945. Litháen gaf nýlega út til- skipun um að óheimilt verði að flytja vissar vörur um þessa land- leið, og er það liður í stuðningi við málstað Úkraínu. Þessu hafa rúss- nesk stjórnvöld, sem vænta mátti, mótmælt harðlega og gæti þetta mál átt eftir að draga dilk á eftir sér. Um er að ræða vörur sem eru liður í viðskiptahömlum ESB gagn- vart Rússlandi. Hálmstrá Selenskís: Úkraína í ESB Rússar hafa undanfarið sótt fram og náð á sitt vald stórri sneið af Austur-Úkraínu auk Krímskaga, héruðum sem þeir hafa lengi gert kröfu til og notið til þess stuðnings hluta íbúa þessara svæða. Fljótt á litið mætti ætla að það væri sú fórn sem Úkraínu væri gjört að færa til að koma á friðarsamningi við Rúss- land. Ekkert slíkt er þó til umræðu af þeirra hálfu og lái þeim hver sem vill, eftir það sem á undan er gengið. Meginkrafa þeirra er, nú sem fyrr, að fá þungavopn til að geta staðist rússneskum her- sveitum snúning, að því viðbættu að fá vilyrði ESB um að gerast um- sóknarríki að bandalaginu. Fyrra atriðið endurspeglar vonina um að standast Rússaher snúning til lang- frama. Hið síðara er hálmstrá sem van der Leyen hefur rétt að Sel- enskí og kostar ESB lítið. Sá fjöldi ríkja, sem þegar er á boðslista sem aðildarríki að ESB og hefur verið það árum og áratugum saman, seg- ir allt sem segja þarf um það hversu innihaldslaus slík samþykkt væri af hálfu ESB. Þar við bætist það mat margra sérfróðra á við- skiptalífi Úkraínu, að leitun sé að spilltara efnahagskerfi en þarlend- is. Álit úr danska blaðinu Information Í danska blaðið Information skrifar Jakob Skaarenborg fróðlega pistla um stríðið í Úkraínu. Hann er sagnfræðingur og landfræð- ingur, sem starfað hefur í ald- arfjórðung sem sérfræðingur hjá rannsóknadeild danska hersins (Forsvarets efterretningstjeneste). Í grein þann 30. maí sl. segir hann að vopnasendingar til Úkraínu vestan að valdi bara fleiri dauðs- föllum og eyðileggingu. „Við höfum málað okkur út í horn. Vesturveld- unum mistókst að koma í veg fyrir stríðið og nú birtast afleiðingarnar í hrörnandi heimsbúskap og hung- urdauða fjölda fólks.“ Sama blað hefur eftir honum i uppslætti 21. júní sl.: Vopnasendingar til Úkra- ínu valda bara fleiri dauðsföllum og eyðileggingu og koma í veg fyrir friðarviðræður sem leitt geti til stríðsloka. Rússar hafa aldrei verið öflugir í upphafi stríðs, en þeir eru meistarar í að þreyta andstæðing- inn og það er einmitt það sem nú er að gerast.“ segir Skaarenborg. Í ritstjórnargrein Morgunblaðs- ins 21. júní sl. um Úkraínustríðið segir: „Baráttan um Úkraínu er nú á ögurstund.“ Mörgum myndi létt ef sú stund reyndist skammt und- an. Eftir Hjörleif Guttormsson »Hvernig getur þessi hildarleikur tekið enda? Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Úkraínustríðið: Tvísýnar horfur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.