Morgunblaðið - 28.06.2022, Side 18

Morgunblaðið - 28.06.2022, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022 ✝ Stella Aðal- steinsdóttir fæddist á Hrauni í Tálknafirði í Barðastrandar- sýslu 22. október 1958. Hún lést á heimili sínu 9. júní 2022. Foreldrar Stellu voru Ingibjörg Þor- steinsdóttir hús- freyja, f. 24. októ- ber 1912, d. 26. febrúar 2009, og Aðalsteinn Einar Einarsson, sjó- maður og bóndi, f. 5. desember 1907, d. 1. febrúar 1984. Systkini Stellu, börn Ingi- bjargar og Aðalsteins, eru: Birgir, f. 11. ágúst 1939; Þor- steinn, f. 26. desember 1943; Guðrún, f. 30. júní 1949; Ingi- bergur, f. 22. október 1950, d. 24. apríl 2017. Stella giftist Erni Þórissyni, þar sem hún kynntist Erni, síð- ar eiginmanni sínum. Stella hætti háskólanámi eftir eitt ár og hélt áfram starfsferli hjá ýmsum fyrirtækjum, m.a. SS, Húsasmiðjunni og Háskóla Ís- lands, gjarnan í bókhaldi og launavinnslu. Fyrir 15 árum hóf hún störf hjá Umhverfisstofnun sem sérfræðingur í launamál- um. Stella gaf sig að sundi, úti- vist, fjallgöngum og alls konar hreyfingu. Hún unni bóklestri. Hún ferðaðist víða um heim og leitaðist stöðugt við að bæta tungumálakunnáttu sína af þeim tilefnum. Auk þess hafði hún mikinn áhuga á matargerð og garðyrkju. Stella ræktaði fjölmarga vinahópa, var öflugur liðsmaður í félagsstarfi, hvort sem það var í fjölmennum fé- lögum, vinnustöðum eða fá- mennum vinahópum hjónanna. Árlega heimsótti hún sitt gamla uppeldisheimili á Hrauni í Tálknafirði. Kveðjustund Stellu fer fram í Bústaðakirkju í dag, 28. júní 2022, klukkan 13 og er opin öll- um vinum og ættingjum. f. 3. janúar 1958, hinn 15. júní 1989. Börn þeirra eru Svava iðjuþjálfi og stundakennari, f. 5. desember 1987, og Snorri tölvunar- fræðingur, f. 19. september 1990. Sambýliskona Snorra er Nína Lea Z. Jónsdóttir, BS í rafmagnsverk- fræði, f. 17.4. 1995. Stella ólst upp á Tálknafirði til fjórtán ára aldurs er hún fór til Stykkishólms til að læra und- ir landspróf. Hún lauk stúdents- prófi á málabraut frá Mennta- skólanum á Ísafirði árið 1977 og fluttist fljótlega til Reykjavíkur og hóf vinnu á skrifstofu Slát- urfélags Suðurlands. Árið 1980 hóf Stella nám í enskum bók- menntum við Háskóla Íslands, Við buðum hvort öðru gjarn- an góða nótt með kossi eða koss- um og í síðasta sinn urðu koss- arnir sex talsins, því einhvern veginn fundum við á okkur bæði tvö að kveðjustundin var komin, líkaminn búinn að gefast upp, þótt andinn væri sterkur. Við Stella kynntumst í ensku- námi í Háskólanum 1981. Um veturinn horfði ég oft til þess- arar myndarlegu stúlku, hún vakti athygli mína, sótti ekki alla tíma, enda í skólanum með- fram fullri vinnu, einn fárra nemenda. Í gleðskap að loknum vorprófum kynntumst við loks- ins betur og lengi var okkar lag Psycho Killer með Talking Heads, sem var spilað oftsinnis fyrstu vikuna. Eitt leiddi af öðru, sambandið varð fast og stúlkan kynnt fyrir móður minni, sem samstundis sam- þykkti Stellu, þótt hún yrði nokkrum sinnum uppvís að því að rugla uppvaxtarheimili Stellu á Tálknafirði saman við Fá- skrúðsfjörð. Fyrsta barnið, Svava, fæddist að morgni dags eftir að við Stella höfðum horft á teikni- myndir Andrésar Andar og hlegið okkur í gegnum fyrstu hríðarverkina. Annað barnið, Snorri, fæddist auðveldar, eig- inlega á örskotsstundu og það fyrsta sem þú sagðir var: Þetta tók ekki langan tíma! Uppeldi og þroski barnanna lenti á þér, vinna og áhugamál mín voru í fyrsta sæti lengi og er það með eftirsjá að maður sér sinn van- þroska mörgum árum síðar. Við vorum samhent í að byggja upp heimili, búa börnum góðar aðstæður, njóta hvers- dagslegra hluta jafnt sem stórra atburða, jazztónleika, NBA- leikja, leiksýninga og ferðalaga víða um heim. Jól og áramót og afmælisdagar fjölskyldunnar voru stóru viðburðirnir. Einn gamlársdag þegar ég ætlaði að amerískri fyrirmynd að hafa kalkún í fyrsta sinn, þá munaði litlu að illa færi því fuglinn var keyptur frosinn samdægurs í Hagkaup! Stella leysti það, fór til nágranna í kjallaranum og sat í nokkra klukkutíma við ör- bylgjuofninn að þíða skepnuna og úr varð dýrindis matur um kvöldið! Alls staðar söfnuðust að henni kunningjar og vinir, hún alltaf tilbúinn að fórna sér í lítil sem stór störf til að fólki gæti liðið vel og notið sín. Áhugamálin voru bóklestur, matargerð, ferðalög, útivist, gönguferðir, hreyfing, félagsstörf og almenn mannrækt. Bóklesturinn svo ákafur að algengt var að hún læsi 70-80 bækur á ári og hún skráði dagbók í þrjátíu ár. Fyrir 10 og hálfu ári hætti hún áfeng- isneyslu, því hana langaði ekki lengur að missa völdin á sjálfri sér. Edrúmennskan var liður í mannrækt hennar og hún var stolt af því, kannski jafn stolt og ég var af henni. Fyrir 12 mánuðum síðan við fengum sjúkdómsgreiningu á mæði sem plagaði Stellu eftir stutta fjallgöngu með fjölskyld- unni um hvítasunnuhelgina í fyrra. Þrátt fyrir að ljóst væri að samveran yrði ekki löng eftir greiningu, héldum við í vonina um lengri tíma saman. Hún var þrjósk, sagði við lækna að hún ætlaði að sjá fyrsta barnabarnið okkar fæðast í nóvember, en því miður hlýðir erfiður sjúkdómur engu. Stella var skírð í höfuðið á stjörnu af föður sínum sjómann- inum og svo sannarlega var hún mitt leiðarljós. Missirinn er mik- ill og gleðin líka yfir minningum um ástríka stúlku, konu og móð- ur. Þinn Örn. Félagslyndi, víðsýni, þakklæti og lífsgleði einkenndu mömmu mína alla tíð. Ég mun leitast við að hafa þau orð að leiðarljósi í lífinu, nú þegar hún hefur yf- irgefið þennan heim. Mamma myndaði tengsl við fólk hvert sem hún fór. Hún við- hélt og tilheyrði vinahópum sem urðu til á hverjum vinnustað, skóla og út frá ólíkum áhuga- málum. Hún lagði sig fram um að leggja á minnið afmælis-, brúðkaups- og hátíðardaga þess- ara einstaklinga og skyldfólks þeirra, löngu fyrir tíma áminn- inga Facebook. Hún var dugleg að senda kveðjur í tilefni dags- ins og var umhugað um líf alls þessa fólks. Stundum tók þetta talnaminni út yfir allan þjófa- bálk, eins og þegar hún hafði nýlega skráð inn nýjan starfs- kraft í launavinnslukerfið hjá Umhverfisstofnun. Síðar í vik- unni rakst hún á nýtt andlit og var fljót að óska viðkomandi til hamingju með afmælið sem hafði verið nokkrum dögum fyrr, enda mundi hún þá kenni- tölu nýja samstarfsfélagans og vildi gjarnan bjóða viðkomandi velkominn í starfshópinn. Mamma var með eindæmum víðsýn og með opinn hug gagn- vart fjölbreytileika mannlífsins. Við fjölskyldan höfum töluvert rætt heimsmálin við eldhúsborð- ið og mamma tekið þátt í um- ræðum tengt fólki af erlendum uppruna, með mismunandi færn- iskerðingar, kynvitund eða kyn- hneigð. Hún stóð með mannrétt- indabaráttu þessara hópa. Mamma er í raun sú eina sem ég hef kynnst á hennar aldri, sem aldrei hefur verið annað en opin fyrir allri flórunni. Mamma var mikill náttúru- unnandi, ræktaði garðinn sinn, gekk á fjöll og jarðtengdi sig í berjamó fyrir vestan. Hún var í góðu formi og heilsuhraust. Það kom okkur því verulega á óvart fyrir nákvæmlega ári síð- an, þegar hún varð skyndilega mæðin og greindist með fjórða stigs lungnakrabbamein. Það hefur gengið á ýmsu síðan, en hún hélt alltaf í þakklætið fyrir alla litlu hlutina í hversdegin- um. Mamma var lífsglöð með eindæmum og hafði ótal við- burði, listasýningar, leikhús og vinahittinga sem hún vildi sækja, allt fram á síðasta dag. Hún naut lífsins og alls sem það hafði að bjóða. Einn stærsti vendipunktur- inn í sambandi okkar mæðgna var það að hún hætti að drekka áfengi á afmælisdaginn minn fyrir tíu og hálfu ári síðan. Hún var stolt af þessum persónu- lega sigri þótt hún talaði ekki mikið um hann. Á þessum árum höfum við náð aukinni nánd og notið samvista við hvor aðra. Skemmst er frá því að segja að við tókum tvær hringferðir um landið 2020 og 2021 og fengum samt aldrei nóg af hvor ann- arri. Ég vildi að við hefðum fengið lengri tíma saman. Ég er fegin að ég flutti aftur heim síðustu jól til að safna fyrir íbúð og að- stoða í veikindunum. Þetta hef- ur verið hvað allra erfiðasta verkefni sem okkur hefur verið úthlutað. Ég er þakklát fyrir samverustundirnar og minning- arnar allar. Ég vildi að mamma hefði fengið að lifa það að verða amma því hún hefði brillerað í því langþráða hlutverki. Ég verð dugleg að segja barna- barninu frá ömmu Stellu. Takk fyrir ferðalagið saman. Þín, Svava og bumbubúinn. Það er með sorg í hjarta sem ég sest niður við tölvuna til þess að setja á blað nokkur minningarorð um hana elsku Stellu systur. Það má segja að á yngri ár- um okkar Stellu hafi samvera okkar ekki verið mjög mikil þar sem aldursmunur okkar er níu ár. Þegar ég var fjórtan ára fer ég í skóla fjarri heimabyggð og hún hefur sína skólagöngu. Þannig var það á þessum árum að þá þurfti að fara að heiman vildi maður sækja sér einhverja menntun eftir barnaskóla. Eftir barnaskólagöngu fór Stella til Stykkishólms og bjó þar hjá Steina bróður og Döddu og lauk þar landsprófi, síðan lá leiðin til Ísafjarðar til að fara í Menntaskólann á Ísa- firði. Vegna aldursmunar og skólagöngu voru tækifærin til samveru afar takmörkuð. Stella flutti til Reykjavíkur og settist þar að og starfaði. Alls staðar var hún vel liðin og duglegur starfskraftur. Eftir að Stella og Örn voru farin að búa hittumst við oftar og samverustundir okkar urðu fleiri. Stella systir var vinamörg og var einstaklega dugleg við að fylgjast með og halda sambandi við vinnufélaga, vini og ættinga. Hún var virk í hópum sem voru að njóta náttúrunnar eins og t.d. í ferðafélögum þar sem var gengið á fjöll og hafði hún einstaka ánægju af því. Þá átt- um við saman margar skemmti- legar berjaferðir á æskuslóðir á Tálknafirði. Það er ekki öllum gefið það eiga langt líf en Stella mín yf- irgefur þessa jarðvist 63 ára. Hún greindist með krabbamein fyrir réttu ári síðan og var það óvægin barátta hjá henni við þennan sjúkdóm. Undir það síðasta var okkar samband þannig að við töluð- umst við daglega og ef ástand hennar var ekki þannig að hún ætti auðvelt með að tala sendi hún mér skilaboð, en þau inni- héldu oftar en ekki þessi orð: „Gunna mín, er ekki nógu hress núna en hringi seinna í dag ef ég verð skárri.“ Stella mín það er nú svolítið einkennilegt að heyra ekki rödd þína nánast daglega og á ég eft- ir að sakna þess um mörg ókom- in ár. Við munum öll sakna þín og ég óska þess að góður Guð styrki og styðji fjölskyldu þína á þessu erfiðu tímum. Og ég veit að Bergur bróðir tekur vel á móti þér við komuna í Sumarlandið. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Guð blessi minningu þína. Guðrún (Gunna) systir og fjölskylda. Við kveðjum í dag elskulega mágkonu mína, Stellu Aðal- steinsdóttur. Hún var einstök manneskja, með góðar gáfur og einstaklega skemmtilegt viðmót. Hún laðaði fólk auðveldlega að sér og var sérstaklega trygg vinum sínum. Fjölskyldu sinni var hún æv- inlega stoð og styrkur, mundi alla afmælisdaga og stóra daga í fjölskyldunni. Við hér í Ameríku nutum góðs af elskulegheitum Stellu, stór kassi af íslensku súkkulaði barst til okkar fyrir hver jól og páskaegg stór og smá um páska. Bækur komu oft ef hún hélt ég hefði gaman af. Það var mikill fögnuður þegar Stella, Örn og börnin komu í heimsóknir til okkar, bæði í New York og Flórída. Eins var gaman að vera hjá þeim á sumr- in og fara í ferðalög og á kons- erta og annað skemmtilegt. Að ég minnist ekki á allan góða matinn, en Stella var listakokk- ur og verðlaunabakari. Hún hafði mjög gaman af að dútla í garðinum og gróðursetja og garðurinn var líka fallegur. Fyrir alllöngu sagði vinkona mín við mig: „Ég er ekki öfund- sjúk manneskja en ég öfunda þig af henni Stellu þinni.“ Það voru orð að sönnu, hún var ein- stök og var í miklu uppáhaldi hjá okkur öllum. Söknuðurinn er mikill, Stella dó langt um aldur fram. Við hér í Flórída, Kathleen Þóra, Kristen, Chris og ég, sendum Erni, Svövu, Snorra og Nínu okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning elsku Stellu. Svava Þórisdóttir Eatough. Elskuleg svilkona mín og vin- kona, Stella Aðalsteinsdóttir, er kvödd í dag hinstu kveðju með sárum söknuði eftir snarpa við- ureign við illvígan sjúkdóm. Skyndileg og alvarleg veikindi Stella Aðalsteinsdóttir ✝ Engilráð Inga Guðmunds- dóttir fæddist á Skagaströnd 27. nóvember 1936. Hún lést á Hrafn- istu, Hafnarfirði, 14. júní 2022. Foreldrar henn- ar voru Elísabet Kristjánsdóttir, f. 8. nóvember 1912, d. 6. mars 1991, og Guðmundur Júlíusson, f. 19. júní 1885, d. 1. janúar 1961. Leiðir þeirra skildu. Systkini Ingu eru Ásdís, f. 22. nóvember 1930. Kristján Karl, f. 10. maí 1933, d. 11. desember 2011. Sólveig, f. 26. mars 1939. Eiginmaður Ingu var Jón Guðmundsson, f. 2. janúar 1933, d. 11. júní 1987. Þau skildu. Kjörsynir þeirra voru Eggert, f. 28. janúar 1961, d. 10. maí 1989, og Guðmundur Björn, f. 3. janúar 1968, d. 21. júlí 1985. Inga og Jón tóku litla frænku Ingu, Maríu Lúísu, í fóstur um tíma vegna veikinda móður Maríu. Inga, eða Ráða eins og hún var kölluð þar, ólst upp á Skagaströnd en vegna veikinda móður hennar fór hún ung að aldri í fóstur til ungu hjónanna á Jaðri, Bjössa og Betu, eins og þau voru alltaf kölluð. Þau reyndust henni góðir foreldrar. Þar eignaðist hún líka fjögur fóstursystkini, þau Sigga, Halla, Gumma og Dídí sem henni þótti mjög vænt um og varð að ævi- langri og gagnkvæmri tryggð og væntumþykju þeirra í milli. Eftir að hún flutti suður kom hún á hverju sumri norður í heimsókn með strákana sína að Jaðri, hennar dyr í Hafnarfirð- inum stóðu líka ávallt opnar fyrir Jaðarsfólkið henn- ar. Bjössi var alla tíð kletturinn í öllu hennar lífi. Inga fór ung að heiman, að- eins 15-16 ára, og þá til Dísu systur sinnar í Hafnarfirði. Þar fór hún beint í vinnu á „Gamla elliheimilið“ við Austurgötu í Hafnarfirði, þaðan lá leiðin svo á Sólvang. St. Jósefsspítali varð svo hennar aðalvinnustaður í gegn- um árin. Inga varð ung einstæð móðir með drengina sína tvo, en hún gafst ekki upp heldur snéri vörn í sókn, keypti sér „alvöru“ saumavél, sem hún sat við flest öll kvöld þegar drengirnir hennar sváfu. Hún saumaði m.a damask rúmföt fyrir Fatabúð- ina í Reykjavík. Hún missti báða drengina sína alltof unga, það varð henn- ar erfiðasta lífsreynsla. Hún söng í kirkjukór Fríkirkjunnar í mörg ár og spilaði golf. Síðustu árin glímdi hún við alzheimer. Útförin fer fram frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði í dag, 28. júní 2022, klukkan 13. Húmar að kveldi, hljóðnar dagsins ys, hnígur að ægi, gullið röðulblys. Vanga minn strýkur blærinn blíðri hönd, og báran kveður vögguljóð við fjarðarströnd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró, kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. Syngdu mig inn í svefninn ljúfi blær. sorgmæddu hjarta er hvíldin jafnan vær. Draumgyðjan ljúfa, ljá mér vinarhönd. Ég er þreyttur, ég er þreyttur, og ég þrái svefnsins fró. Kom, draumanótt, með fangið fullt af friði og ró. (Jón frá Ljárskógum) Elsku Inga mín, hvíldu í friði og ró, laus úr viðjum illvígs sjúk- dóms. Sé þig sitjandi í blómabrekk- unni fallega og brosandi, með strákana þína þér við hlið og allt góða fólkið okkar, sem hafa tekið á móti þér og umvefja þig ást og umhyggju. Við, fjölskyldan öll, þökkum all- ar góðar samverustundir liðinna ára. Guð blessi minningu þína. Þín frænka og vinkona, Kristín Lúðvíks (Stína). Engilráð Inga Guðmundsdóttir Ástkær eiginmaður minn, bróðir okkar og mágur, ÓSKAR AÐALGEIR ÓSKARSSON, Norðurgötu 10, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 20. júní. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 1. júlí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hollvinasamtök SAK. Guðrún Rósa Friðjónsdóttir Þórdís Óskarsdóttir Einar Óskarsson Hannes Óskarsson Ásta Eggertsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN ERLA FRIÐÞJÓFSDÓTTIR, Erla í Hjólinu, Laufbrekku 4, Kópavogi, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu sunnudaginn 19. júní. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fimmtudaginn 30. júní klukkan 13. Björn Ingólfsson Linda Björk Björnsdóttir Sigurður G. Benediktsson Stefán Logi Björnsson Marta Sigurðardóttir Víðir Snær Björnsson Adda Steina, Aldís Erla, Þórdís Ása, Fanný Sif, Stefanía Ásdís, Aníta Ósk og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.