Morgunblaðið - 28.06.2022, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 2022
Einn mikilvægasti leikur
karlalandsliðsins í körfubolta um
árabil fer fram á Ásvöllum í Hafn-
arfirði á föstudagskvöldið þegar
Ísland fær lið Hollands í heim-
sókn.
Undankeppni heimsmeist-
aramótsins hefur heldur betur
þróast Íslandi í hag og liðið er í
góðri stöðu eftir útisigur gegn
Hollendingum og hinn gríðarlega
óvænta heimasigur á Ítölum í
spennutryllinum á Ásvöllum í
febrúarmánuði.
Sigur á föstudag myndi þýða
að Ísland tæki með sér þrjá sig-
urleiki og einn tapleik yfir í seinni
undankeppnina þar sem sex
þjóðir bítast um þrjú sæti á HM
2023.
Lokakeppni heimsmeistara-
móts hefur ávallt verið fjarlægur
draumur fyrir Ísland en nú er
hún allt í einu orðinn raunhæfur
möguleiki. Erfiðir mótherjar bíða
síðar á árinu en eftir sem áður er
liðið komið í stöðu sem það hef-
ur aldrei verið í áður.
Fjarvera Martins Hermanns-
sonar frá þessum mikilvæga leik
á föstudag, og þeim sem fram
undan eru á næstu mánuðum, er
að sjálfsögðu mikið áfall fyrir ís-
lenska liðið. Hann var í lykilhlut-
verki í sigurleikjunum gegn Hol-
landi og Ítalíu og skoraði þar
samtals 50 stig.
Í svona leik munar heldur bet-
ur um að hafa ekki besta körfu-
boltamann landsins tiltækan. En
í slíkri stöðu er það ávallt áskor-
un fyrir samherjana að fylla í
skarðið og leika enn betur.
Íslenska liðið þarf að spila
virkilega vel til að vinna öflugt lið
Hollands aftur. Í sigrinum magn-
aða gegn Ítölum sem áður er
nefndur fór hinn hávaxni Tryggvi
Snær Hlinason hreinlega ham-
förum. Það væri ekki verra ef
hann endurtæki það!
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ljósmynd/Guðmundur Bjarki
Blikar Leikmenn Breiðabliks fagna fyrsta marki leiksins gegn ÍA á Akranesi í gærkvöldi. Það skoraði Kristinn Steindórsson snemma leiks, á 11. mínútu.
Breiðablik og Kórdrengir tryggðu sér
í gærkvöldi sæti í fjórðungsúrslitum
bikarkeppni karla í knattspyrnu,
Mjólkurbikarsins, með sigrum í æsi-
spennandi leikjum í 16-liða úrslit-
unum. Áður höfðu HK, KA, Ægir, FH
og KR tryggt sér sæti í 8-liða úrslit-
unum.
Í gær heimsótti Breiðablik ÍA á
Akranes og byrjuðu gestirnir leikinn
mun betur. Staðan var 2:0 í leikhléi
eftir að Kristinn Steindórsson hafði
komið gestunum yfir á 11. mínútu og
svo lagt upp mark fyrir Anton Loga
Lúðvíksson á 35. mínútu.
Skagamenn mættu hins vegar ákaf-
ir til leiks í síðari hálfleiknum og
minnkaði Færeyingurinn Kaj Leo í
Bartalsstovu muninn strax á 51. mín-
útu úr vítaspyrnu, sem var dæmd eftir
að Höskuldur Gunnlaugsson braut á
Gísla Laxdal Unnarssyni innan víta-
teigs. Kaj Leo var svo aftur á ferðinni
á 74. mínútu og jafnaði þá metin fyrir
heimamenn í ÍA eftir mistök Antons
Ara Einarssonar í marki Breiðabliks.
Á 90. mínútu skoraði Gísli Eyjólfs-
son hins vegar sigurmark Blika með
laglegu skoti af vítateigslínunni sem
fór niður í bláhornið fjær. Lokatölur
því 3:2 í frábærum fótboltaleik.
Kórdrengir og Afturelding mættust
þá í Safamýrinni í Lengjudeildarslag.
Þórir Rafn Þórisson kom Kór-
drengjum yfir á 52. mínútu en á 85.
mínútu jafnaði Elmar Kári Enesson
Cogic metin fyrir Aftureldingu og
knúði þannig fram framlengingu.
Á 116. mínútu skoraði varamað-
urinn Sverrir Páll Hjaltested sigur-
mark Kórdrengja og tryggði liðinu
frækinn 2:1-sigur, sem fleytti liðinu í
8-liða úrslit bikarkeppni KSÍ í fyrsta
sinn í sögu félagsins.
Gísli hetjan undir lokin
- Blikar mörðu Skagamenn - Kórdrengir í fjórðungsúrslit í fyrsta sinn
Ómar Ingi Magnússon, landsliðs-
maður Íslands og leikmaður Þýska-
landsmeistara Magdeburg, var í
gær útnefndur besti leikmaður
tímabilsins í þýsku 1. deildinni,
sterkustu landsdeild í heiminum.
Ómar átti frábært tímabil, þar
sem hann fór fyrir liði Magdeburg
þegar það varð þýskur meistari í
fyrsta sinn í rúma tvo áratugi og
varð næstmarkahæsti leikmaður
deildarinnar.
Í atkvæðagreiðslu vefsíðu deild-
arinnar fékk Ómar hvorki fleiri né
færri en 65 prósent atkvæðanna og
því var um algjöran yfirburðasigur
að ræða.
Næstur á eftir honum kom Jo-
hannes Golla, línumaður Flensburg
og fyrirliði þýska landsliðsins, með
10,92 prósent og þriðji var íslenski
Daninn hjá Füchse Berlín, Hans
Óttar Lindberg, sem varð fertugur
að aldri markakóngur deildarinnar
en hann hlaut 10,69 prósent at-
kvæða.
Ómar Ingi langbestur
í bestu deild heims
Ljósmynd/Szilvia Micheller
Yfirburðir Ómar Ingi Magnússon fékk langflest atkvæði í kjörinu.
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu fór í gærmorgun til Pól-
lands þar sem það spilar vináttu-
landsleik á morgun og þar með er
lokatörnin fyrir Evrópumótið á
Englandi hafin.
Eftir leikinn í Póllandi fer liðið til
Þýskalands og æfir þar en heldur
síðan til Englands þar sem fyrst
verður leikið gegn Belgíu sunnu-
daginn 10. júlí. Landsliðskonurnar
stilltu sér upp fyrir framan flugvél-
ina á Keflavíkurflugvelli í gær-
morgun.
Ljósmynd/KSÍ
Tilbúnar Íslenska landsliðið á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun.
Lagðar af stað á EM
Sex Íslendingafélög verða í Meist-
aradeild karla í handknattleik á
komandi keppnistímabili en EHF,
Handknattleikssamband Evrópu,
tilkynnti í gær hvaða sextán lið
myndu leika í deildinni næsta vet-
ur.
Níu félög voru þegar örugg með
sæti í deildinni og þar á meðal tvö
Íslendingalið.
_ Magdeburg frá Þýskalandi
með Ómar Inga Magnússon og
Gísla Þorgeir Kristjánsson.
_ Kielce frá Póllandi með Hauk
Þrastarson.
Hin sjö öruggu liðin eru Barce-
lona frá Spáni, GOG frá Danmörku,
París SG frá Frakklandi, Kiel frá
Þýskalandi, Pick Szeged frá Ung-
verjalandi, Porto frá Portúgal og
Dinamo Búkarest frá Rúmeníu.
Af þeim sjö félögum sem EHF
veitti í gær keppnisrétt í deildinni
eru fjögur Íslendingalið.
_ Aalborg frá Danmörku með
Aron Pálmarsson og svo Arnór
Atlason aðstoðarþjálfara.
_ Nantes frá Frakklandi með
Viktor Gísla Hallgrímsson.
_ Veszprém frá Ungverjalandi
með Bjarka Má Elísson.
_ Elverum frá Noregi með Orra
Frey Þorkelsson.
Hin þrjú liðin eru Zagreb frá
Króatíu, Wisla Plock frá Póllandi
og Celje Lasko frá Slóveníu.
Sex félög sem sóttu um sæti í
deildinni fengu ekki aðgang en í
þeim hópi var Kadetten Schaff-
hausen frá Sviss sem Aðalsteinn
Eyjólfsson þjálfar og Óðinn Þór
Ríkharðsson leikur með frá og með
næsta tímabili.
Liðunum sextán í Meistaradeild-
inni er skipt í tvo átta liða riðla og
dregið er til þeirra á föstudaginn.
Tólf liðanna, sex úr hvorum riðli,
komast í útsláttarkeppnina eftir að
leikin hefur verið tvöföld umferð,
fjórtán leikir á lið.
Sex Íslendingafélög
í Meistaradeildinni
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 16-liða úrslit:
Selfoss: Selfoss – Víkingur R .............. 19.45
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kópavogur: Augnablik – Haukar........ 19.15
Í KVÖLD!
Enska knatt-
spyrnufélagið
Arsenal gekk í
gær formlega frá
kaupum á banda-
ríska landsliðs-
markverðinum
Matt Turner frá
New England Re-
volution.
Strax í febrúar
á þessu ári var
gengið frá því að Turner myndi
koma til enska félagsins í sumar.
Hann hefur leikið með New England
í sex ár og verið liðsfélagi Arnórs
Ingva Traustasonar í hálft annað ár.
Turner er 28 ára gamall og á að
baki 18 A-landsleiki fyrir Bandarík-
in. Hann var í hópnum sem tryggði
sér keppnisrétt á heimsmeist-
aramótinu í Katar í lok þessa árs.
Hjá Arsenal mun Turner berjast
við Aaron Ramsdale um markvarð-
arstöðuna en Þjóðverjinn Bernd
Leno og Rúnar Alex Rúnarsson, sem
var á láni hjá OH Leuven í Belgíu á
síðasta tímabili, eru væntanlega á
förum frá félaginu.
Turner kom-
inn til Arsenal
Matt
Turner