Morgunblaðið - 28.06.2022, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 28.06.2022, Qupperneq 32
Edinborg er ein fegursta borg Skotlands og vagga skoskrar menningar. Það er mikil upplifun að heimsækja borgina og skoða sig um í „Old Town“ sem og nýrri borgarhlutanum. Gist er á hinu glæsilega Kimpton Charlotte Square Hotel við George Street, sem margir hafa kallað „Champs-Élýsée“ Edinborgar þar sem kaffihús, veitingastaðir og glæsilegar verslanir skarta sínu fegursta. Farið verður í skoðunarferðir um borg- ina og utan hennar og heimsóknir í Edinborgar- og Stirling kastala ásamt siglingu á Loch Katrine og heimsókn til Whisky-framleiðanda auk kvöld- skemmtunar „Spirit of Scotland Show“. Innifalið í verði: Flug með Icelandair til Glasgow báðar leiðir, skattar og bókunargjald. 4ra nátta gisting á Kimpton Square Hotel ásamt morgunverði og kvöldverði. Allur akstur ásamt skoðunarferðum og aðgangi að þeim stöðum sem heimsóttir verða. Fararstjóri: Sigurður K. Kolbeinsson. • Aukagjald fyrir einbýli er kr. 85.000 Edinborg fegursta borg Skotlands Verð 249.500 á mann m.v. gistingu í tvíbýli* Niko ehf | Austurvegi 6 | 800 Selfoss | kt. 590110-1750 Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferðaskrifstofu eldri borgara í símum 783-9300 og 783-9301, einnig með tölvupósti í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is og á www.ferdaskrifstofaeldriborgara.is Aukaferð vegna mikillar eftir- spurnar – aðeins 24 sæti laus Sérferð fyrir eldri borgara 23. – 27. október Grasrótarhátíðin Reykjavík Fringe stendur nú sem hæst en hún hófst 24. júní og lýkur 3. júlí. Yfir 90 atriði eru á dagskrá hennar og því af nógu að taka og mikil fjöl- breytni viðburða, m.a. uppistand og kabar- ett en allar upplýs- ingar má finna á vef hátíðarinnar, rvk- fringe.is. Í dag, 28. júní, verður margt í boði og þá meðal ann- ars tónlistar- og leiksýningin Velvet Determination í Iðnó kl. 18. Þar mun bandaríska listakonan Cynthia Shaw bjóða gestum í sjálfsævisögulegt tónlistar- ferðalag, þar sem rangar nótur koma m.a. við sögu og klikkaðir nágrannar. Shaw lærði klassískan píanóleik í Colorado og New York. Segir frá ævi sinni og leikur á píanó ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 179. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Breiðablik og Kórdrengir tryggðu sér sæti í fjórðungs- úrslitum Mjólkurbikars karla í knattspyrnu með naum- um sigrum í æsispennandi leikjum í 16-liða úrslitunum í gærkvöldi. Breiðablik vann ÍA 3:2 og Kórdrengir unnu Aftureld- ingu 2:1 eftir framlengdan leik. Kórdrengir komust þannig í fjórðungsúrslit í bikarkeppni KSÍ í fyrsta sinn í sögu félagsins. »27 Breiðablik og Kórdrengir áfram eftir mikla spennu ÍÞRÓTTIR MENNING látið það vera síðan. Ég hef átt bíl síðan ég var 17 ára og er enn með bílpróf en fer að láta bílinn fara.“ Vel fer um Guðjón á Ási og hann leggur áherslu á að þar sé gott að búa. „Starfsfólkið er gott við mig og hér er ýmislegt í boði. Eitthvað ann- að en í New York, sem er ekki manneskjulegur staður. Á Manhatt- an sér maður bara ekkert nema upp í himininn, engin fjöll og ekkert gras.“ Hann segir ekki yfir neinu að kvarta en hann sakni þess að fá ekki reglulega hefðbundinn íslenskan mat. „Ég fæ nóg að borða og mat- urinn er góður en mig langar stund- um í súrar lappir og sviðasultu, súrt slátur, lundabagga og þvíumlíkt. Ég ólst upp við þennan herramannsmat en ef þú ert pítsumaður, skilur þú þetta ekki!“ Guðjón á góðar minningar frá æskuárunum og verður tíðrætt um að hann vilji upplifa lífið á diskótek- um á ný þegar hann verði 100 ára. „Ég vann mikið í danshúsunum, sá um diskóljósin á stöðum eins og í Glaumbæ, Klúbbnum og víðar. Allt það skemmtilegasta í lífinu er búið, en ég hef stundum sagt að ég vilji fara á diskótek á Spáni þegar ég verð 100 ára. Við sjáum til hvað verður. Þegar ég er lasinn segja stelpurnar hérna að þetta rjátlist af mér þegar ég verð gamall, en ég lifi bara af gömlum vana og er hrædd- astur við að vakna steindauður einn morguninn.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Grundar í Reykjavík, naut aðstoðar Guðjóns Jónssonar við að laga raf- magnið á árum áður og frá áramót- unum 2008/2009 hefur Guðjón, sem er 97 ára, búið á Grundarheimilinu Ási í Hveragerði. „Þegar ég var að læra rafvirkjun um miðjan fimmta áratuginn var ég stundum sendur á Grund, en þá átti ég ekki von á því að enda hérna, enda er ég bara raf- virki,“ segir hann. Ása Snæbjörnsdóttir, sambýlis- kona Guðjóns frá því þau voru um sextugt, lést fyrir um þremur árum. Áður eignaðist hann fjögur börn í tveimur samböndum og eru tvö þeirra á lífi. Hann segir að þau Ása hafi átt góð ár saman og meðal ann- ars notið lífsins í fimm mánuði á Kanarí þegar þau voru áttræð. Ekki farið þangað síðan. „Við fórum til Spánar á hverju ári, stundum tvisvar, fórum nokkr- um sinnum í sjóinn á daginn og skemmtum okkur á diskótekunum á kvöldin. Kanarí var eiginlega okkar annað heimili. Þegar þú verður átt- ræður geturðu skemmt þér með konunni á Kanarí, en nú geri ég orð- ið ekki neitt, ligg bara og hugsa. Mig langar til að gera eitthvað en nenni því ekki, finnst best að liggja og sofa.“ Sjónin sé farin að dofna og því eigi hann erfitt með að halda sig við lestur eða horfa á sjónvarp. „Helst vildi ég vera úti að moka skít.“ Nikka og rafskutla Þegar Guðjón var 72 ára byrjaði hann að læra á harmoniku hjá Karli Jónatanssyni. „Ég byggði sumar- bústað fyrir Ásu á Þingvöllum og hún og börnin hennar gáfu mér harmoniku í staðinn, en ég er ekki mjög flinkur og spila mest fyrir sjálfan mig á nýja ítalska Fantini.“ Guðjón er orðinn fótalúinn en læt- ur það ekki stöðva sig. „Ég fékk mér rafskutlu og keyri á henni í mat og svoleiðis. Þegar ég fékk hana þeyttist ég út um allan bæ en hef Hræddastur við að vakna steindauður - Guðjón Jónsson rafvirki er 97 ára og nýtur lífsins á Ási Morgunblaðið/Eggert Léttur Guðjón Jónsson á Ási í Hveragerði fer flestra sinna ferða á rafskutlu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.